Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Blaðsíða 20
DV.k mXnUDAGUR 9. ÁPRÍLl984."
NOACK
aust h.f
,^)»»»»»»»»»»»»»»»»»»»>^,
ÁSKRIFENDA
ÞJÚNUSTA
KVARTANIR
ÁSKRIFENDUR ERU
VINSAMLEGAST BEÐNIR
AÐ HAFA SAMBAND VIÐ
AFGREIÐSLUNA,
EF BLAÐIÐ BERST EKKI.
Við höfum nú opið lengur:
Virka daga kl. 9-21.
Laugardaga kl. 9-15.
SÍNIINN ER 27022
AFGRENDSLA
Þverholti 11 - Sími 27022
%i»((iiiKiii>i»iiiiiiiiiiiiiiiiiiiii>r
SIOAN
32
QGENN
AFULLU
VlNNUFÖT
VINNUFATAGERÐ ÍSLANDS.
REYKJAVÍK.SÍMI:16666
Frumsýning hjá LR:
BROS ÚR DJÚPINU
Á miðvikudagskvöld frumsýnir úr djúpinu eftir sænska leikritahöfund-
Leikfélag Reykjavikur leikritið Bros inn Lars Norén. Þetta er fyrsta leikrit-
Hanna María Karísdóttir og Sigurður Skúlason ihlutverkum sinum.
ið sem flutt er eftir Norén hér á landi.
Norén hóf feril sinn sem ljóöskáld og
hafði getið sér gott orð sem slíkur
þegar hann hóf aö semja leikrit.
Fyrsta leikrit hans var frumsýnt 1973
en þaö var þó ekki fyrr en upp úr 1980
að leikrit hans fóru að vekja verulega
athygli og má segja að hann hafi slegið
í gegn fyrst meö leikritinu Bros úr
djúpinu og einnig leikritinu Nóttin er
móðir dagsins. Norén hefur einnig
skrifað nokkuö fyrir útvarp og sjón-
varp.
Leikritið Bros úr djúpinu fjallar um
ást og ástleysi, foreldravandann og
ábyrgð okkar á sjálfum okkur og okkar
nánustu. Höfuðpersónur í verkinu eru
rithöfundurinn Eðvarö, sem ekki hefur
skrifað stafkrók í fjögur ár, og kona
hans Helena, ballerína, sem er nýkom-
in heim eftir þriggja mánaða dvöl á
geðsjúkrahúsi.
Meö hlutverk hjónanna fara Hanna
María Karlsdóttir og Sigurður Skúla-
son en önnur hlutverk Sigríður Haga-
lín, Guðrún S. Gísladóttir og Valgerður
Dan. Leikstjóri er Kjartan Ragnars-
son.
Taka skal fram að sýningin á Bros
úr djúpinu er bönnuð bömum og einnig
er hneykslunargjömu fólki ráðið frá
því að koma á sýninguna.
Húsvíkingar undirbúa
stofnun
iönþróunarfélags:
„Þöifinermikir’
Frá Jóni Baldvin Halldórssyni,
blaðamanni DV á Akureyri:
Húsvíkingar hafa í undirbúningi
stofnun iönþróunarfélags til eflingar
iðnaöi á staönum.
Að sögn Hauks Akasonar, sem á
sæti í undirbúningsnefnd, hefur þetta
verið lengi í deiglunni. Nokkur fyrir-
tæki í bænum sendu menn á iðnsýn-
ingu i Þýskalandi að leita hugmynda
og hvað hægt væri að gera og er nú
verið að vinna úr þeim gögnum.
Haukur sagöi að öll fyrirtæki i
bænum tækju þátt i undirbúningnum
en ekki bæjarsjóður.
Fljótlega verður haldinn fundur
þar sem lögð verða drög að reglu-
gerð fyrir félagið en það kemur til
með að heita Iðnþróun.
„Það er mikill áhugi fyrir þessu
hérna,” sagði Haukur í samtali viö
DV. „Þörfin fyrir svona félag er
mjög mikil. Eg held að við höfum allt
að græða á þessu hvað varðar eflingu
og uppbyggingu iðnaðar á Húsavík
og við erum búnir að einblína alltof
lengi á pappírsverksmiðju í þeim
efnum.”
-FRI
ANIMAÐ
ÚTBOÐ
RÍKISVÍXLA
Ríkissjóður (slands hefur ákveðið að bjóða út
■ ríkisvíxla, í samræmi við heimildarákvæði fjár-
laga 1984og með hliðsjón af ákvæðum laga nr.
79/1983. Öllum er heimilt að bjóða í víxlana.
2I boði verða víxlar að nafhvirði samtals
■ 30.000.000 kr. með útgáfudegi 13. apríl 1984 og
gjalddaga 13. júlí 1984.
3Hver víxill verður 50.000 kr. að nafnvirði og
■ verður innleystur í Seðlabanka íslands á gjald-
daga.
4Gera skal bindandi tilboð í heilt margfeldi af 10
■ víxlum (þ.e. nafnverð 500.000 kr.). Heildartil-
boðsverð þeirra skal tilgreint í heilum hundruð-
um króna. Allir tilboðsgjafar skulu láta fylgja
hverju tilboði sínu gjaldkeratékka, þ.e. tékki sem
gefinn er út af innlánsstofnun, sem tilboðstrygg-
ingu. Tékkinn skal vera að fjárhæð 10.000 kr. og
stílaður á Seðlabanka íslands v/ríkisvíxlaút-
boðs. Gangi tilboðsgjafi frá tilboði sínu, sbr. þó
7. lið, glatar hann fjárhæðinni, ella gengur hún
upp í ríkisvíxlaviðskipti viðkomandi aðila eða
verður endursend sé tilboði hafnað af ríkissjóði.
Tilboð, sem ekki fylgir greind innborgun, skal
meta ógilt.
Undanþegnir greindri innborgunarskyldu eru:
Innlánsstofnanir, fjárfestingarlánasjóðir, lífeyris-
sjóðir, sem viðurkenndir eru af fjármálaráðu-
neytinu, og tryggingafélög, sem viðurkennd eru
af Tryggingaeftirliti ríkisins.
5Tilboð má senda á sérstökum eyðublöðum sem
■ fást í Seðlabanka. Tilboðin ásamt tilboðstrygg-
ingu, ef um hana er að ræða, berist lánadeild
Seðlabankans, Hafnarstræti 10, 101 Reykjavík,
fyrir kl. 14.00 11. apríl 1984 og séu í lokuðum
ómerktum umslögum, að öðru leyti en því að þau
séu sérstaklega merkt orðinu „Ríkisvíxlaútboð".
6Heimilt er að símsenda tilboð í telexi eða stað-
■ festu símskeyti, og skulu þau berast fyrir sama
tíma og getið er í 5. lið hér að framan. Sömu-
leiðis má símsenda tilboðstryggingu, sbr. 4. lið.
7Ríkissjóður áskilur sér rétt til þess að taka eða
■ hafna tilboðum í heild eða að hluta. Breyting
eða afturköllun tilboðs skal hafa borist lánadeild
Seðlabankansfyrirkl. 14.00 hinn 11.apríl 1984.
8Tilboðsgjöfum sem eiga tilboð sem tekið er,
■ verður tilkynnt um það símleiðis fyrir kl. 16.00
hinn 12. apríl 1984. Staðfestingarbréf verða auk
þess send til þeirra.
Tilboðsgjöfum, sem eiga tilboð sem hafnað er
eða eru ógild, verður ekki tilkynnt um það sér-
staklega að öðru leyti en með endursendingu
tilboðstryggingar í ábyrgðarpósti.
9Niðurstöður útboðsins verða kynntar tölulega
■ eins fljótt og hægt er, án vísunar til nafna til-
boðsgjafa, með fréttatilkynningu til fjölmiðla.
Greiðsla fyrir víxla, skv. tilboðum sem tekið
■ verður, þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl.
14.00 á útgáfudegi og verða víxlarnir afhentir
eða póstsendir fyrir kl. 17.00 sama dag nema
þess sé óskað sérstaklega að Seðlabankinn
geymi víxlana. Berist greiðsla ekki á réttum tíma
áskilur ríkissjóður sér rétt til að krefjast tilboðs-
gjafa um hæstu lögleyfðu dráttarvexti fyrir þann
tíma sem greiðsla dregst, auk þess sem tilboðs-
gjafi glatartilboðstryggingu sinni.
Ríkisvíxlar þessir eru stimpilfrjálsir og án þókn-
unar. Um skattalega meðferð þeirra gilda sömu
reglur og gilda hverju sinni um innstæður í
bönkum og sparisjóðum.
Útboðsskilmálar og tilboðseyðublöð liggja
frammi í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnar-
stræti 10, Reykjavík.
11
12
Reykjavik, 4 april 1984
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS