Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1984, Side 20
LeifurSveinsson:
Ásakar arkitekta um klíkuskap
Á fundi hjá byggingarnefnd borgar-
innar nýlega voru lögð fram mótmæli
Baldvins Halldórssonar og Leifs
Sveinssonar vegna fyrirhugaðrar
byggingar parhúss á lóðinni nr. 33 við
Suðurgötu. Segir Leifur Sveinsson að
með bréfi byggingarfulltrúa hafi
honum verið gefinn kostur á að tjá sig
um fyrirhugaða byggingu samanber
reglugerð um grenndarrétt. Segir
Leifur að fyrirspumum og óskum
ákveöins aðila um að byggja á
umr-addri lóð hafi verið þverneitað en
nú beri svo við að tveir arkitektar fái
áhuga á lóð þessari til að reisa þar
parhús. „I Borgarskipulagi eru kolleg-
ar þeirra allsráöandi og þó gegnir allt
öðru máli en ef almennir borgarar
hefðu átt í hlut. Arkitektar virðast
standa saman ef setja þarf kíkinn fyrir
blinda augað. Svona stéttahroki mun
vera einsdæmi á Islandi og er „víta-
verður”,” segir m.a. í bréfi Leifs
Sveinssonar til byggingarnefndar.
Guörún Jónsdóttir, þáverandi for-
stöðumaður Borgarskipulags, sat
umræddan fund en forstöðumaður
Borgarskipulags á seturétt í
byggingarnefnd. Oskaöi Guðrún Jóns-
dóttir að bókað væri um að hún vísaði á
bug því sem stæði í bréfi Leifs Sveins-
sonar um stofnunina og starfsmenn
hennar.
Féllst byggingamefnd á erindiö um
leyfi til að byggja parhús á umræddri
lóð en vísaöi því til borgarráðs vegna
breytinga á skilmálum.
jfiittif ntís
Aðalvinningur ársins er fullgerð vernduð þjónustu-
íbúð á einni hæð að Boðahlein 15, Garðabæ.
í húsinu er fullkomið viðvörunarkerfi, sem tengt er
þjónustu- og öryggismiðstöð í Hrafnistu Hafnarfirði.
Húsið er 83,5 fermetrar með garðhýsi. Gangstéttar
upphitaðar.
Söluverðmæti 2,5 milljónir króna
Auk þess ellefu toppvinningar til íbúðakaupa
á 500 þúsund krónur,
100 bílavinningar, 480 utanlandsferðir og fjöldi
húsbúnaðarvinninga.
MIÐIER MÖGULEIKI
Sala á lausum miðum og endurnýjun ársmiða
og flokksmiða stendur yfir
§daeí
DARA /V
.rf/m
Happdrættí 84- 85
<<_________t
með §ölda stórra vínnínga
Tónlist er mikið notuð við kennslu kinverskra barna.
Skólabörn i borginni Xian syngja, klappa og dansa og
gera alls kyns likamsæfingar í tengslum við
kennsluna.
YF,R 9000 BÍLAR
ERUMEÐ
Lumenition
Eina transistorkveikjan sem slegið hefur í gegn
á íslandi. íí"
POSTSENDUM.
fSBm ttoS «a, hábebchit
Skeifunni 5a — Simi 8*47*88
dv. tíÖibj‘ODÁGÍj'á'24: !Áí>Kn: ísiáí!
íslenskir skólamenn fóru í mikla kynnisför:
TÓNUST í HÁ VEGUM
HÖFÐ í SKÓLUM í KÍNA
Hópur íslenskra skólamanna er
nýkominn úr kynnisf ör til Kína.
„Þetta var algjört ævintýri, allan
tímann,” sagði Áslaug Brynjólfs-
dóttir, fræðslustjóri í Reykjavík, en
hún átti fmmkvæðið að f erðinni.
„Þetta var alveg ógleymanleg
ferð. Við sáum svo mikið. Þetta var
nýr heimur,” sagði Áslaug og
hrifningin leyndi sér ekki.
Þátttakendur voru alls 22 talsins,
aðallega skólastjórar. Fimmtán
voru úr Reykjavík en sjö utan af
landi, úr hverju fræðsluumdæmi.
Lagt var af stað frá Islandi 15. mars
og komiö heim aftur 30. mars.
„Ferðin var skipulögö af
Kinversk-íslenska menningarfélag-
inu. Hún var á mjög hagstæðum
kjörum, öll ferðin, kostaöi 53 þúsund
krónur á hvern mann,” sagði
Aslaug.
Kostnaðinn greiddu þátttakendur
að mestu úr eigin vasa. Sveitarfélög
veittu þeim þó styrk. Reykvísku
skólamennimir fengu til dæmis tíu
þúsund króna styrk hver frá borg-
inni.
„Eg fékk áhugann eftir aö hafa séö
kvikmynd frá kínverska sendiráðinu
frá skólastarfi í Kína. Ég vildi sjá
með eigin augum skóla í Kína,”
sagðiÁslaug.
Hópurinn flaug fyrst til London og
gisti þar eina nótt áður en flogið var
til Hong Kong með millilendingu á
Indlandi. Dvalið var í Hong Kong í
tvo daga en síöan fjórar stórar borg-
ir í Kína heimsóttar; Kanton,
Shanghai, Zian og Peking.
Leiðsögumaður fylgdi hópnum
allan tímann. Skólar fyrir alla
aldurshópa voru skoðaöir en einnig
var farið í verksmiðjur, söfn, í óperu
og á danssýningu, svo eitthvað sé
nefnt.
„Það sem mér fannst einna
athyglisveröast við kínverska skóla
er hvaö tónlist er í hávegum höfö í
tengslum við kennsluna,” sagði
Aslaug.
Má búast við að kynni íslenskra
skólamanna af kínverskum skólum
hafi áhrif á íslenska skóla?
„Við yfirfærum ekkert af þessu
beint. En það kvikna ýmsar hug-
myndir við að sjá eitthvaö allt ann-
að,”sagði Áslaug.
Auk hennar fóm til Kína Jón Áma-
son, Árbæjarskóla, Þorvaldur
Oskarsson, Breiðholtsskóla, Karen
Vilhjálmsdóttir, Breiðholtsskóla,
Áslaug Friðriksdóttir, öldusels-
skóla, Árni Magnússon, Hlíöaskóla,
Guðbjöm Björgúlfsson, Fjölbrauta-
skólanum Breiðholti, Valgerður
Selma Guðmundsdóttir, Hólabrekku-
skóla, Pétur Orri Þórðarson, Hlíða-
skóla, eiginkona hans, Kristín Bem-
höft, Ingibjörg Þorkelsdóttir,
Breiðageröisskóla, Hrefna Sigvalda-
dóttir, Breiöageröisskóla, Anton
Sigurðsson, Isaksskóla, Karl
Kristjánsson, Ármúlaskóla, Jenna
Jensdóttir rithöfundur, Indriði Ulfs-
son, Akureyri, eiginkona hans, Helga
Þórólfsdóttir, Guðmundur Magnús-
son, fræðslustjóri Austurlands,
Þuríður Pétursdóttir, Isafirði, Hjör-
dís Guðbjömsdóttir, Sigurður
Guðmundsson, Heiöarskóla, og
Bjami Sigurðsson, Þorlákshöfn.-KMU.
Hópurinn sem fór tilKína.
Myndavélar voru á lofti og filmur ekki sparaðar þegar litið var inn i
kinverskar kennslustofur.
Aðalfundur
Hagtryggingar hf.
árið 1984 verður haldinn í Domus Medica við Egilsgötu laugar-
daginn 28. apríl og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
Aðalfundarstörf skv. 15. gr. samþykkta félagsins.
Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæðaseðlar verða afhentir
hluthöfum eða öörum með skriflegt umboð frá þeim í skrif-
stofu félagsins að Suðurlandsbraut 10, Reykjavík dagana 24.—
28. apríl á venjulegum skrifstofutíma.
STJÓRN HAGTR Y GGINGAR HF.
snmymnH
siiiiiBnn
...vöruverð
í lágmarki
vn