Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1984, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1984, Síða 38
38 DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL1984. Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum i byggingu að- veitustöðvar við Skagaströnd. Útboðið nær til byggingarhluta stöðvarinnar, þ.e. jarðvinnu, byggingar stöðvarhúss, endur- nýjunar öryggisgirðingar, fjárgirðingar og annarra tengdra liða. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118 Reykjavík, og Ægisbraut 3, Blönduósi, frá og með 25. apríl nk. og kostar kr. 300,- hvert eintak. Tilboðum skal skila til skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyrir kl. 14 þriðjudaginn 8. maí nk., og veröa þau þá opnuð. Tilboð sé í lokuðu umslagi merkt „Rarik-84006”. Verki skal vera lokið 23. ágúst nk. RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS innkaupadeild. Tilboösverö Svalahuröir úr oregonpine meö p' lœsingu, húnum og þéttilistum. Verö írá kr. 5.654,- Útihuröir úr oregonpine. Verö írá kr. 6.390,- Bílskúrshuröir, || 111 j | gluggar og gluggaíög. 'IJMI II|1 Gildir til 1.05.84. TRESMIÐJAN MOSFELL H.F HAMRATÚN 1 MOSFELLSSVEIT SÍMI 6 66 06 Gjöf Jóns Sigurðssonar Samkvæmt reglum skal veita fé úr sjóönum Gjöf Jóns Sigurössonar „til verðlauna fyrir vel samin vísindaleg rit og annars kostar til þess að styrkja útgáfur merkilegra heimilda- rita”. Heimilt er og aö „verja fé til viðurkenningar á viðfangs- efnum og störfum höfunda, sem hafa vísindarit í smíðum”. Öll skulu rit þessi „lúta aö sögu Islands, bókmenntum þess, lögum, stjórn og framförum.” Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar auglýsir hér meo eftir umsóknum um fjárveitingar úr sjóðnum. Skulu þær stílaöar til verölaunanefndarinnar, en sendar forsætisráðu- neytinu, Stjórnarráðshúsi, 101 Reykjavík, fyrir 15. maí nk. Umsóknum skulu fylgja rit, ritgerðir eða greinargerðir um rit í smíðum. Reykjavík, 15. apríl 1984. VERÐLAUNANEFND GJAFAR JÓNS SIGURÐSSONAR BJARNIGUÐNASON MAGNÚS MAR LÁRUSSON SIGURÐUR LÍNDAL. Tilkyuning um lóðahreinsun í Reykjavík vorið 1984 Samkvæmt ákvæöum heilbrigðisreglugerðar er lóðareigendum skylt að halda lóðum sínum hreinum og þrifalegum og að sjá um að lok séu á sorpílátum. Umráðamenn lóða eru hér með minntir á að flytja nú þegar brott af lóöum sínum allt sem veldur óþrifnaði og óprýði og hafa lokiö því eigi síðar en 14. maí nk. Að þessum fresti liðnum verða lóðirnar skoðaðar og þar sem hreinsun er ábótavant verður hún framkvæmd á kostnað og ábyrgð húseigenda, án frekari viðvörunar. Þeir, sem kynnu að óska eftir sorptunnum og lokum, hreinsun eða brottflutningi á rusli á sinn kostnað, tilkynni það í síma 18000. Eigendur og umráðamenn óskráðra um- hirðulausra bílgarma, sem eru til óþrifnaðar á götum, bílastæðum, lóðum og opnum svæðum í borginni, eru minntir á að fjarlægja þá hið fyrsta. Búast. má við, að slíkir bílgarmar verði teknir til geymslu um takmarkaðan tíma, en síðan fluttir á sorphauga. Úrgang og rusl skal flytja á sorphauga við Gufunes á þeim tíma, sem hér segir: Mánudaga—föstudaga kl. 08—20. laugardaga kl. 08—18, sunnudaga kl. 10—18. Rusl, sem flutt er á sorphauga, skal vera í umbúðum eða bundið. Ekki má kveikja í rusli á sorphaugunum og hafa ber samráð við starfsmennina um losun. Sérstök athygli skal vakin á því, að óheimilt er að flytja úrgang á aðra staði í borgarlandinu. Veröa þeir látnir sæta ábyrgð, sem gerast brotlegir í þeim efnum. GATNAMÁLASTJÓRINN í REYKJAVÍK. HREINSUNARDEILD. Vegna vinsælda þáttarins VIKAN OG TILVERAN, sem hóf göngu sína með 1. tbl. VIKUNNAR þessa árgangs, hefur verið ákveðið að efna til samkeppni um frásagnir af þessu tagi. Heitið er þrennum verðlaunum: 1. verðlaun kr. 10.000,- 2. verðlaun kr. 7.500,- og 3. verðlaun kr. 5.000,- VIKAN áskilur sér birtingarrétt að þessum frásögnum án frekari greiðslu og að velja úr öðrum frásögnum sem berast kunna og verða þá greiddar kr. 2.000 fyrir hverja birta frásögn. Eins og lesendum VIKUNNAR er kunnugt er hér um að ræða lifsreynslufrásagnir af ýmsu tagi og eru þær birtar nafnlausar. Þær geta verið af basli i daglegu lífi, mannraunum, merkilegri heppni, gleðilegum atburðum og raunalegum eða nánast hverju því sem hægt er að segja frá af persónulegri reynslu á læsilegan og eftirtektarverðan hátt. Heimilt er að breyta staðarnöfnum °g mannanöfnum og öðru þvi sem nauðsynlegt er til að Ijóstra ekki upp um hver skrifar frá- sögnina eða þá sem í henni koma við sögu. Æskileg lengd er 5—8 vélritaðar siður, miðað við ca 30 línur á hverri síðu. Handrit þurfa að hafa borist VIKUNNI, pósthólf 533,121 Reykjavik, auðkennd VIKAN OG TIL- VERAN, eigi siðar en 1. mai 1984. Handrit skulu merkt með dulnefni en rétt nafn fylgi i lokuðu umslagi merktu með heiti frásagnarinnar og dulnefni höfundar. Dómnefnd mun gæta nafn- leyndar höfundanna. Dómnefnd skipa: Guðrún Birgisdóttir fjölmiðlafræðingur, sr. Jón Helgi Þórarinsson, frí- kirkjuprestur i Hafnarfirði, Sigurður Hreiðar, ritstjóri Vikunnar. Handritin verða metin á grundvelli atburðar og frásagnar en ekki sem bókmenntaverk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.