Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1984, Blaðsíða 45
iRpt TH-t'íA fcí f?itr»íniiT.fíT«d vn
DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL1984.
45
Dæmalaus Veröld
Dæmalaus V'ERÖLD
Dæmalaus Veröld
Sigursteinn og Týra: Hún ermeð
4 eyru þó svo það sjáist ekki
glöggt á myndinni.
Tíkmeð
fjögureyru
Flestum hundum nægja tvö eyru
en ekki Týru á Akureyri, hún hefur
vísi aö tveimur til viðbótar.
„Eg var aö baöa hana um
daginn og þá fann ég þetta,” sagöi
eigandinn, Sigursteinn Kristinsson.
,,Ég hélt fyrst að þetta væru
einhver æxli og fór með hana til
dýralæknis, Knudsen vildi endilega
fá að sjá hana. Hann sagöi að þetta
væru aukaeyru og aö þau hlytu aö
hafa veriö fyrir hendi þó þau væru
fyrst núna aö vaxa. Þaö gæti vel
verið aö þetta yrði ekkert meira en
svo gæti eins veriö aö þetta færi i
fulla stærð, enda tíkin aðeins árs-
gömui og ekki alveg búin aö taka út
vöxt.”
Sigursteinn sagöi einnig aö
dýralæknirinn heföi ekki vitað nein
önnur dæmi um svona aukaeyru á
hundum. Svona lagað gæti þó alltaf
gerst og væri hliöstætt dverg-
spenum á kúm. Þetta myndi örugg-
lega ekki há tíkinni neitt.
Ennþá eru eyrun ekki þaö stór
að þau sjáist. Þetta er helst eins og
hníflar neðan viö eyrun. Hnúöurinn
hægra megin er meira eyralagaður
en sá vinstrá megin.
Tíkin kom sem litill hvolpur
fyrir um ári frá Matthíasi Eiössyni
á bænum Brún sem er fyrir ofan
Akureyri. Hún hefur þroskast full-
komlega eölilega hingaö til en
eitthvað virðist hún vilja bæta
heyrnina, blessuö skepnan.
-JBH/Akureyri.
Fótbrotinn gráhegri
Þessi myndariegi gráhegri fannst fótbrotinn og grindhoraður úti á Laugarnestanga fyrir svo sem 10
dögum. Lá hann þar fiatur og gat sig ekki hreyft þegar menn gengu að honum. Að sögn Ævars Petersen,
sem hér heldur á sjúklingnum, eru gráhegrar algengir hér á landi á veturna en hingað koma þeir frá
Norðuriöndum.
Gráhegrinn dvelur nú i góðu yfiriæti á Náttúrufræðistofnun, fótbrotið er að gróa og étur hann karfa
eins og heitar lummur. Þykir hann góður og skemmtilegur félagi þar á skrifstofunum þó svo starfsmenn
verði að mæta um helgar tilað fæða hann. „Það er fyrir mestu að hann hressist, "sagði Ævar Petersen.
D V-m ynd Bjarnleifur.
Þannig litur Kadilakkinn út að utan.
Nýi bfllinn hans Reagans
Ronald Reagan er búinn aö fá sér öfund viö að lesa eftirfarandi sem hefja má skothríð meö vélbyssum
nýjan bíl. Og þaö er enginn venjulegur upptalningu: ef þannigstendurá.
bíll, aukabúnaðurinn er þess eölis að — örsmá.göf á hliöum bílsins, vart — Flugbeittir hnjfar stingast út úr
sjálfur James Bond yrði grænn af sjáanleg með berum augum, þaðán bílnum, neðariega, ef mugurinn ætlar
aö reyna að troöast yfir tækiö.
— Sérstakir hjólbarðar sem springa
ekkiþótt skotiðséáþá.
— Afturstuðara má breyta í pall
fyrir lífverðina til aö stökkva upp á ef
slys hendir. Pallinum fylgir handriö.
— Rúöur eru tvöfaldar og skotheld-
ar og bíllinn á aö þola sprengjuárásir
líkar þeim sem tíökast í Beirút þessa
dagana.
Þá er ekki nefndur sá lúxus sem
fylgir bílnum innvortis en eintakiö 'ar
sérstaklega lengt til að gera þaö þægi-
legra.
Bíllinn er af Cadilac-gerð og rúllar
um á sérgeröum, stórum dekkjum sem
þurfti að sérhanna þannig aö bíllinn
þyidi'allan aukábúriaöiriri.
HEIMSLJÓS
Rokkí
Stokkhólmi
Roger Waters, bassaleikari,
söngvari og lagahöfundur í
Pink Floyd, heldur hljómleika í
Stokkhólmi 16. júní nk. Með
honum leikur Eric Clapton á
gítar.
Menguní
Miðjarðar-
hafí
Miftjarðarhafið er svo
mengað af kvikasílfri að tún-
fiskur og kræklingur sem þar
veiðist er vart mannamatur.
Svo segir í skýrslu frá um-
hveríismálanefnd Sameinuðu
ijóðanna. Ofrískar konur eru
varaðar við að neyta skelfisks
úr hafinu enda sýna rannsóknir
að aðeins 4% af honum séu
innan neyslumarka.
Hlaupari
slærmet
Zola Budd, 17 ára millivega-
lengdahlaupari frá Suður-
Afríku hefur fengið breskan
ríkisborgararétt á mettíma —
eða aðeins 10 dögum. Hefur
það valdið deilum í breska
þinginu og formælandi stjórna-
andstöðunnar segist viss um að
hæfileikar hennar sem hlaup-
ari og hvítur húðlitur hafi hér
skipt miklu. Budd mun hlaupa
fyrir hönd Bretlands á ólym-
píuleikunum.
Víetnam-
stríðið á
stofuborðinu
Bandarískur háskólakenn-
ari, Nicholas Karp, sem er sér-
fræðingur í styrjöldum Róm-
verja hefur hannað nýtt spil
um Víetnamstyrjöldina. Sam-
anstendur það af 780 einingum
sem endurspegla átökin eins og
þau voru her- og stjórnfræði-
lega. Annar keppandinn er fuli-
trúi Bandarikjanna og Suður-
Víetnama á meðan hinn spilar
fyrir Norður-Víetnama og
Þjóðfrelsisfylkinguna. t flókn-
ustu útgáfum sinum getur spil-
ið varað í 100 klukkustundir.
Snjómaður-
inn ógurlegi
Vadim Ranov, einn virtasti
visindamaður í Sovétríkjunum
hefur krafist þess að starfsfé-
lagar hans hætti leitinni að
snjómanninum ógurlega sem
staðið hefur lengi og verið tek-
in alvarlega í sovéskum fjöl-
miðlum. Segir Ranov rök leit-
armauna hrcina fjarstæðu og
reyndar uppfundin af þeim
sjálfum.