Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1984, Qupperneq 1
5 STOR SPRENGIMOTTAI
GEGNUM
HÚSÞAK
Frjálst, óháið dagblað
DAGBLAOIÐ — VISIR
m. TBL.—74. og 10. ARG.—ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1984.
Lögreglan kannar verksummerki i morgun. Fyrir framan mennina er sprengimottan og fyrir ofan sést
gatið á þakinu. Það var mál manna að hefði maður orðið undir hefði hann ekki lifað það af. DV-mynd EÓ.
„Það varð feiknasprenging. Grjóti
rigndi yfir stórt svæði. Svo þeyttist
þessi sprengimotta hátt í loft upp,
yfir rafmagnslínur og niður í gegnum
þak á verksmiðjuhúsi Aðalbrautar,”
sagði sjónvarvottur, sem staddur var
við Eirhöfða í Ártúnshverfi um kvöld-
matarleytið í gær.
Það var um sexleytið að starfsmenn
frá Loftorku voru við vinnu sína á Eir-
höföa. Þar er unnið að gatnagerð þessa
daga. Var vinnuflokkurinn að sprengja
fyrir lögnum. „En eitthvað virðist
sprengihleðslan hafa mistekist,” sagði
lögreglumaður í samtali við DV, „því
skyndilega sprakk allt í loft upp.”
„Við það að sprengimottan fór hér
niður í gegnum þakið brotnuðu tvær
sperrur á húsinu,” sagði starfsmaður
Aðalbrautar. „Það var mesta mildi að
enginn skyldi vera í húsinu en viö
vorum allir farnir heim. Þetta eru
stórar mottur og mjög þungar, svo
ekki er ólíklegt að menn hefðu slasast
illa ef þeir hefðu orðið undir mott-
unni.”
En hvað gerðist þama?
„Þetta er ekkert stórmál. Þetta ger-
ist oft,” sagði starfsmaöur Loftorku og
vildi ekki t já sig meira um málið.
Að sögn lögreglunnar er veriö að
skoða þetta mál og verður það sent
áf ram til rannsóknar.
-KÞ
NEYÐARBILLINN
GENGUR EKKI
Sjúkraflutningar fara ekki fram í
dag frá Borgarspítalanum og verður
neyðarbíUinn ekki í förum. Hann er
lokaður inn á slökkvistöðinni. Astæðan
fyrir þessu er sú að sjúkraflutninga-
menn em að mótmæla ýmsu varðandi
rekstur bilsins.
„Það er óánægja hér í sjúkra-
flutningamönnum með samstarfið við
ákveðna aðila á Borgarspítalanum og
þá eru þeir að mótmæla því að engin
staðfesting hefur komið á menntun
þeirra frá heUbrigöisyfirvöldum eða
viðurkenning frá borgaryfirvöldum
vegna aukinnar menntunar þeirra, til
dæmis í formi launahækkana.”
Þetta sagði Rúnar Bjarnason
slökkvUiðsstjóri í morgun. Hann sagði
að í dag y rði því sama þjónusta veitt og
á nóttinni og sunnudögum. SjúkrabUar
færu í útköll frá slökkvistöðinni en
neyðarbUUnnyröiekkiífömm. -JGH
Leit haldið áfram
„Við fundum tvo brúsa og fríholt,
sem er örugglega úr bátnum,” sagði
Guðbrandur Jóhannsson, formaður
Björgunarsveitar Hornafjarðar, í
morgun.
„Þetta rak hér upp að um tvær mílur
vestan við innsiglinguna.”
Guöbrandur sagði að fjörur yrðu
gengnarnæstudaga.
Maðurinn sem fórst með Asrúnu GK
á sunnudag hét Eiríkur Gíslason. Hann
var 57 ára að aldri. -JGH
Bondmynd á Vatnajökli
Nýjasta James Bond-myndin, A
view to kiU, verður tekin upp að
hluta á VatnajökU í júní næstkom-
andi. Þegar er farið að undirbúa
komu kvikmyndafólksins en þeir
fyrstu, 5 menn, koma til Horna-
f jarðar eftir viku.
„Við erum mjög ánægðir með allar
aðstæður og náttúrufegurðin hér er
með óUkindum. JökulUnn er stór-
kostlegur,” sögöu Englendingarnir,
Tony Wayne og Peter Bennett, frá
Eom Prods Ltd. í samtali við DV á
HótelHöfnígærdag.
Eom Prods Ltd. hefur framleitt
aUar James Bond-myndimar og þeir
Tony og Peter hafa starfað við gerð
nokkurra þeirra.
„Myndin verður tekin ánokkr-
um stööum í heiminum. Við vinnum í
hópum og er kvikmyndað í nokkrum
löndum á sama tíma. A Islandi
ætlum við að taka um 35 prósent
myndarinnar og öll atriðinveröa
á jökUnum.”
Tony er framkvæmdastjóri
hópsins sem verður hér á landi og
Peter er aðstoðarleikstjóri. ÞeU-
félagar komu frá London á sunnudag
og héldu rakleitt austur ásamt sex
öörum frá Eom-fyrirtækinu. Þar á
meðal voru svokaUaöir brellumenn.
Þeir héldu að mestu tU á Fagurhóls-
mýri. Hópurinn fer aftur út tU Eng-
landsídag.
„Við vonum að okkur takist að
ljúka öllum tökum hér á landi í júní
en vinnslu myndarinnar lýkur í
janúar næstkomandi. Það er reiknað
með að myndin verði komin í kvik-
myndahús í j úní að ári. ”
Þegar er farið að gera ráðstafanir
tU að hýsa kvikmyndafólkið á Höfn.
„Hópurinn sem verður hér í júní er
um 35 manns og við erum farnir að
auglýsa eftir herbergjum í bænum,”
sagði Arni Stefánsson, hótelstjóri á
Höfn, í gær.
En fáum viö Islendingar að sjá
hinn fræga Roger Moore á Horna-
firðiísumar? „Nei,þvímiður,”
— En myndin, verður hún jafn-
skemmtileg og þær fyrri?
„Þessi er sú besta, albesta,”
svörðu þeir að bragði.
-JGH.
Bondmennirnir Tony Wayne og Peter Bennett fyrir utan Hótel Höfn í
gærdag. Þeir hafa báflir komið við sögu i gerð Bondmynda. Sem dæmi
má nefna að Peter vann að gerð Octopussy, Moonraker, For your eyes
only, og nú er það A view to kill. DV-mynd: GVA.