Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1984, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1984, Blaðsíða 29
DVÞRIÐJÚDÁGlÍR 15'. MÁTlÖð4. ’" 29 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Bkki eru þetta KBA-páfagaukar, að visu, en skyidir þeim engu að síður. Fangavörður á Lítla Hrauni veitti því athygli að fangi, sem nýlega var þangað kominn, hlustaði alltaf með athygli á Passíusálmana i út- varpinu, en það er venjulega haftopiðöUkvöld. „Svo þér geðjast að Passfusálmunum,” sagði fangavörðurinn. „Nei, aUs ekki,” svaraði maðurinn, „ég hélt þetta tU- heyrði refsingunni. Hér í Sandkornum var því haldið fram i síðustu viku að Ingvar Gislason, þingmaður og fyrrum ráðherra, hefði sagt NT, hinum umskapaða Tíma, upp. Þessi saga leið- réttist hér með og hið sanna í málinu er að Ingvar Gislason er áskrifandi að NT og hefur aldrei sagt blaðinu upp. Sand- korn biðjast velvirðingar á þessum mistökum. KEA-gaukar Eftirfarandi texti er feng- inn úr því ágæta blaði Islend- ingi sem gefið er út á Akur- eyri en er ekki í eign KEA: Ef Akureyringur segði Ný- sjálendingi frá þvi að hann væri félagsmaður í KEA, rteki Nýsjálendingurinn upp stðr augu. Stafar þetta af nokkr- um mismun í merkingu orð- anna. Á Nýja-Sjálandl lifir nefnilega páfagaukstegund ein, sem tekur nafn eftir KEA, eða öfugt. Páfagauks- tegund þessi (á latínu Nestor natabilis, Nestor hinn eftir- tektarverði) hefur sér það til sérkennis að leggjast á sauð- f é, i þeim tilgangi að ná til fit- unnar í kringum nýrun, sem Ulfygli þessu þykir mest hnossgæta. Aðferðin sem fugl þessi notar, er að setjast á bak skepnunnar og kroppa niðuraðnýrum. Vituö þér enn, eða hvað? Ritstjóra skipti Og enn af því ágæta blaði Islendingi. Þar munu hafa orðið ritstjórasklpti og hefur Guðmundur Heiðar Frí- mannsson tekið við ritstjórn- inni af HaUdóri HaUdórssyni. Mun HaUdór nú snúa sér að því að skrifa sögu Jóns Sól- ness, fyrrverandi þing- manns. Þarf ekki að efast um að úr því verður skemmtUeg bók og mikið iesin. Haiidór Haiidórsson. Flóknar reglur I blaðið Norðurland á Akur- eyri ritaði Óttar Einarsson nýlega pistU um vanda hús- byggjendanna. Þar minnist hann þess hvemig póUtíkusamir lofuðu örmagna lýð sem stæði í að koma þaki yfir höfuðið nýjum og betri tímum eftir kosning- amar síðustu. Attatíu prósenta lán með kostakjör- um í óratíma, ekkert mál. En því miður, kjósandinn mis- skUdi víst eitthvað. Attatíu prósent koma kannski á næstu öld, og það voru settar reglur og fyrirvarar tU aö breyta vondum lánum í góð. I útfærslu Ottars var þetta þauuig: 1. umsækjandi sé að byggja í alfyrsta sinn — fyrsta sinn nægir ekki. 2. Um- sækjandi má ekki vera undir tvítugu. 3. Umsækjandi má ekki vera yfir tvítugu. 4. Um- sækjandi má ekld vera giftur. 5. Umsækjandi má ekki vera ógiftur. 6. Umsækjandi skal vera örvasa drykkjuræfill á framfæri aldraðrar móður sinnar og leggi fram staðfest vottorð sóknarprests og hér- aðslæknis þar aö lútandi. Umsjónarmaður: Ólafur B. Guðnason Kvikmyndir Kvikmyndir NÝJAR KVIKMYNDIR: CROSS CREEK Ein af þeim kvikmyndum sem fékk nokkrar tUnefningar til óskars- verölauna en varð af þeim öllum er Cross Creek. Myndin gerist 1928 og er byggð ó sannri sögu um kafla í lífi Marjorie Kinnan Rawlings, rithöf- undar sem ákvað að fórna öryggi innan fjölskyldu, skildi við eigin- mann og byrjaði nýtt líf í Cross Creek í Flórída. Eftir að sögum hennar hafði veríð hafnað nokkrum sinnum breytti hún um ritstíl og fór aö skrifa um fólkið í kringum sig og landið sem það byggði. Tókst henni vel upp við þess- ar sögur og hlaut meðal annars Tilvonandi rithöfundur, Majorie Kinnan Rawlings (Mary Steenburger), nýkomin til Flórida, spyr hóteleigandann, Norton Baskin (Peter Coyote), til vegar. Pullitzer verðlaunin fyrir skáld- söguna The Yeraling. Einnig er mjög fræg sjálfsævisaga hennar sem ber sama naf n og kvikmyndin. Aðalhlutverkið er í höndum Mary Steenburger. Aðrir leikarar eni minna þekktir en meðal þeirra eru Rip Tom og Alfre Woodward, en þau voru bæði tilnefnd til óskars- varðlauna fyrir aukahlutverk. Leik- st jóri er gamla kempan Martin Ritt. H.K. Majorie er trufluð við ritstörf sín af Geechee (Alfre Woodward) sem vill verða ráðskona hjá henni. Páimi Jónsson tekur fyrstu skóflustunguna að hinni nýju verslunarmið- stöð. Fyrsta skóf lustungan að nýju verslunarmiðstöðinni ínýja miðbænum: HAGKAUP OG 45 SÉRVERSLANIR Fyrsta skóflustungan að nýju verslunarmiðstöðinni í nýja miðbænum hefur verið tekin en miðstööin er byggð á vegum Hagkaups sem mun flytja aöalstarfsemi sína í húsið. Jafnframt munu 45 sérverslanir af ýmsum stærðum vera innan miðstöðvarinnar, flestar við yfirbyggða göngugötu (Mall). Við verslunarmiðstöðina verður bílageymsla á tveimur hæðum með u.þ.b. 1000 bílastæðum og stækkanleg um500bílastæði. Stefnt er að því að opna miðstöðina í júlí 1987. Istak mun annst jarðvinnu í 1. áfanga verksins, arkitektar byggingarinnar eru frá teiknistofunni Laugavegi 96, Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen sér um verkfræðilega hönnun og framkvæmdastjóri verkefn- isins er Ragnar Atli Guðmundsson við- skiptafræðingur. -FRI Forráðamenn framhaldsdeildar Fósturskóla isiands. DV-mynd GVA Framhaldsdeild við Fósturskóla Islands: FYRSTV NEMENDURN- IRAÐ ÚTSKRIFAST Fyrstu nemendurnir úr eins árs framhaldsdeild við Fósturskóla Is- lands verða brautskráðir á þessu vori. Nám þetta er ætlað fóstrum með starfsreynslu sem hyggja á forstöðu- störf svo og störf er varða ráðgjöf og umsjón dagvista fyrir böm. Þetta er fullt nám og eru nemendur 24 talsins. Er meginmarkmið námsins að auka skilning og þekkingu nemenda á al- mennri stjómsýslu, og megináherslan er lögð á þróun og nýjungar í skipu- lögðu uppeldisstarfi dagvista. Fjallað er um ýmsa þætti stjómunar og forystu svo sem stefnu- mótun, áætlanagerö, skipulags- breytingar og starfsmat. Fósturskólinn hefur ámm saman baríst fyrir fjárveitingu vegna fram- haldsdeildar. Aö mati kennara og nemenda, sem nú eru að ljúka námi, hefur árangur þessarar fyrstu fram- haldsdeildar orðið mjög góður. -KÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.