Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1984, Side 4
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. MAl 1984.
Litill pallbill rann út i Reykjavikurhöfn i gærmorgun, i rennunni, fyrir
framan Hafskipsskálann. Billinn var mannlaus er óhappið varö og er
talið að hann hafi hrokkið úrgir.
Lögreglan sentfi eftir kafara og með hans hjáip og krana var bíinum
náð aftur upp úr höfninni. FRHD V-mynd.
Sveitarstjórnarmenn og
f lutningamenn á Norðurlandi:
Stjörnuspekimiðstöðin, nýtt fyrirtæki við Laugaveginn:
„ÆTLUM AÐ HJÁLPA FÓLKI
TIL AÐ FIKNA SJÁLFT SIG”
— segir Guðlaugur Bergmann, kaupmaður og annar eigenda
Stjörnuspekimiðstöðvarinnar
„Þetta er fyrst og fremst af hugsjón.
Eg hef lengi haft mikinn áhuga á
stjörnuspeki, auk þess er nauðsynlegt
aö koma upp fyrirtæki af þessu tagi
þar sem fólki er hjálpað til aö finna
sjálft sig og ná sambandi við annaö
fólk,” sagöi Guðlaugur Bergmann,
kaupmaöur og annar eigenda fyrir-
tækisins Stjömuspekimiöstööv-
arinnar, í samtali við DV. Hinn eig-
andinn er Gunnlaugur Guömundsson.
Veröur fyrirtækiö til húsa að Lauga-
vegi G6 og opnað í júníbyrjun.
„Við veröum þama með tölvu sem
býr til kort af afstööu stjarnanna viö
fæðingu viökomandi einstaklings.
Gunnlaugur mun svo túlka kortiö fyrir
þá sem þess óska. Þá verðum við meö
til sölu ýmiss konar bækur varöandi
þetta.”
— Hver er tilgangurinn meö
fyrirtæki þessu?
„Þjónusta sem þessi er tilvalin fyrir
starfsmenn fyrirtækja og fjölskyldur
til aö hjálpa þessu fólki að skilja sjálft
sig og aðra. Um leið nær þaö betra
sambandi hvort við annaö og öll sam-
skipti veröa auðveldari.”
Guölaugur sagöi aö hann hefði lengi
haft áhuga á málefni þessu og sótt
mörg námskeiö varöandi þetta.
„Eg á von á aö fólk hafi áhuga á
þessu og leiti til okkar. ”
— Hvaö kostar þessi þjónusta?
„Þaö hefur ekki veriö ákveðið
ennþá. Eins og ég sagði er fyrirtækiö
opnaö af hugsjón en ekki til aö græða á
því,” sagöi GuðlaugurBergmann.
-KÞ.
Það má með nokkrum sanni segja
að hjói og hjólreiðar hafi sett svip
sinn á bæjarlifið i Reykjavík á
iaugardaginn. Hinn árlegi
hjóireiðadagur var haldinn og
hjóluðu galvaskir krakkar niður að
Lœkjartorgi frá öllum helstu
hverfum og bæjarfálögum
höfuðborgarsvæðisins. Á Lœkjar-
torgi var haldin skemmtun og
boðið upp á vertingar. Takmarkið
með hjólareiðadeginum var að
safha peningum til styrktar
lömuðum og fötluðum. Á meðan
krakkarnir hjóluðu hófst hið árlega
uppboð borgarfógeta á óskilamun-
um. Að venju var mikið afhjólum á
uppboðinu og runnu þau út eins og
heitar lummur.
-APH.
HUNDSA FRAM-
KVÆMDASTOFNUN
Vinna í Framkvæmdastofnun ríkis-
ins aö skipulagi samgöngumála á
Noröurlandi er komin i strand.
Sveitarstjórnarmenn og flutninga-
menn fyrir norðan sinna ekki beiðnum
um umsagnir og hugmyndir.
Sérstök nefnd á snærum samgöngu-
ráöherra vann aö úttekt á þessum
málum og skilaði ítarlegrí skýrslu í
október 1982. Áætlanadeild
Framkvæmdastofnunar hefur síðan
reynt aö fá inn umsagnir um skýrsl-
una, sem taldar eru forsenda þess aö
nefndin geti gert tillögur um
samgöng uskipulagiö.
Um síðustu áramót höföu aðeins 20%
sveitarstjóma skilað umsögnum og
17% flutningamanna.
Síðan í fyrrasumar hefur svo starfaö
önnur nefnd um skipulag samgangna á
Austuriandi. Er búist við aö hún skili
áfangaskýrslu í árslok. Reynir þá
einnig á umsagnir aö austan.
HERB
Náttúruvemdarráös til feröalaga um
svæöiö.
Samkvæmt lögum um Landhelgis-
gæslu er eitt af hlutverkum hennar aö
aðstoða viö framkvæmd almennrar
löggæslu. Aðstæður á Homströndum
eru þess eölis aö Landhelgisgæslan er í
raun eini löggæsluaödinn sem haft
getur eftirlit með því svæði. Slíkt
eftirlit veröur vart framkvæmt meö
öðm tækienþyrlu.
I framhaldi af handtöku fálkaeggja- fálkanum, og eggjum á Vestfjöröum,” Ætla má að þyrlur gætu víöar komiö
þjófáhérlendis hafa starfsmenn Land- segir meöal annars í texta minnisblaðs að notum við eftirlit í þágu náttúm-
helgisgæslunnar verið minntir á að sem lögmaður Landhelgisgæslunnar, vemdar. Þyrla væri ekki lengi að
þeim beri, eftir þvi sem aöstæöur Jón Magnússon, sendi varöskipum og skjótast um hálendiö til aö kanna til
leyfa, aö aöstoöa meöal annars viö aö flugdeild. dæmis óbyggöaferöir erlendra tor-
framfylgt sé lögum um náttúravemd. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar fæmtrukka eða til aö koma fálka-
„Grunur hefur leikiö á því að eru sérstaklega minntir á friðlandiö á þjófum aö óvörum eöa hreinlega elta
erlendir og/eða innlendir menn sækist Homströndum en á tímabilinu frá 15. þá uppi.
eftir friöuöum fuglum, einkum apríl til 15. júní ár hvert þarf leyfi -KMU.
Gæslan fylgist
með fálkaþjófum
I dag mælir Dagfari
I dag mælir Dagfari
I dag mælir Dagfari
BJÚTIKEPPNIR Á AÐ BANNA
Eins og allir vita hefur mikill og
góður árangur náðst í jafnréttisbar-
áttunni. Sú barátta hefur þaö háieita
markmið, aö gera öllum jafnhátt
undir höfði. Kemur sennilega að því,
aö jafnréttið verði ákveöið meö lög-
um, sem banni fólki aö vera öðmvisi
en aðrir. Konur hafa gengið fram
fyrir skjöldu i baráttunni fyrir stööu
sinni í þjóðfélaginu, enda búa þær við
það böl, að vera öðmvisi en karlar.
Þær em jafnvel ólikar sjálfar, sem
auövitað nær ekki nokkurri átt, ef
jafnréttið á að standa undir nafni.
Staða konunnar og jafnréttisbar-
áttan befur verið vinsælasta póli-
tiska réttlætismálið allan síðasta
áratug. Konur hafa komist á þing
með þá stefnuskrá að jafna metin við
karlana og hefur árangur þeirra
veriö undraverður. Ekki er að
minnsta kosti aö sjá, að nokkur um-
talsverður munur sé lengur á þing-
mönnum, hvors kyns sem þeir em.
Allir era þeir eins, þingmennirnir
okkar, þegar kemur aö málatilbún-
aði, ræöuhöldum og því elenduga
kjaftæöi, sem þjóðinni er sagt frá i
þingfréttum. Smám saman er þetta
jafnræði að breiðast út i þjóðfélag-
inu, og sjálfsagt er kvenfólkiö fariö
að pissa standandi. Um þaö getur
Dagfari þó ekkert fullyrt aö sinni,
meðan sú mismunun er enn við lýði,
að hafa aðskilin salemi fyrír konur
og karla.
Þetta em sem sagt breyttir timar,
sem við lifum. Á undanföraum
öldum hefur það nefnilega komið
fyrir að einstaklingar, og þá sér í lagi
konur, hafa notið nokkurra forrétt-
inda i krafti fegurðar og glæsileika.
Hefur það gjaraan þótt einhvers
virði að líta sæmilega út, og karl-
menn hafa jafnvel fallið í þá gryfju
að vélja sér kvonfang með hliðsjón af
smekk og f egurðarskyni.
Allir sjá, að slikt mat stangast
gjörsamlega á við það jafnrétti, sem
nú tíðkast, enda nær þaö vitaskuld
engri átt, að karlar geri upp á milli
kvenna í makavali sinu út frá svo sið-
lausri afstöðu að telja eina konu betri
en aöra. Nóg er nú samt að konur
standi höilum fæti gaguvart karl-
peningnum þótt ekki sé einnig verið
að viðhalda rangiætinu og misréttinu
þeirra i milli innbyrðis.
Hefur það farið eftir á seinni árum,
að konur hafa tekið sig á í þessum
efnum, og vinna skipulega að þvi, að
eyða þokka sinum og dylja fegurð
sina með rytjulegum klæðaburði og
heldur ósjálegu útliti. Að vísu hafa
karlar ennþá laumast til að leita sér
að ektakvinnum i samræmi við
smekk og smag, en þvilík misþyrm-
ing á jafnréttinu líður vonandi undir
lok, eftir því sem herskáum valkyrj-
um vex ásmegin. Utlit og kynþokki
hljóta að vera bannorð í hinni heiiögu
baráttu fyrir stöðu og jafnrétti
kvenna, og þess vegna eru karl-
rembusvin að gera hosur sinar
grænar fyrir kvenfólki á röngum
forsendum, þegar þeir gera upp á
mlili þelrra, af þvi þeim finnst ein
vera fallegri en önnur.
Það verður þvi að teijast hin mesta
ósvinna í miðri jafnréttisbaráttunni,
þegar ungar og saklausar stúlkur
era dregnar fram á Broadway á
baöfötunum einum saman i þeim
dæmalausa tilgangi að velja þá fal-
legustu. Bjútíkeppni af þessu tagi,
hiýtur að vera dauðasynd gagnvart
þvi réttlætismati að gera alla eins.
Verður ekki betur séð en að svo
gamaldags kroppasýning varði við
jafnréttislög, og liggur beint við að
draga feguröardrottninguna, hver
sem hún verður, fyrir dómstóla og
láta hana svara til saka um það
axarskaft aö vera fallegri en hinar.
Bjútíkeppnir á að banna, ef menn
meina eitthvað með jafnréttinu. Það
hljóta allir að sjá.
Dagfari