Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1984, Page 11
DV.ÞÍÚÐJÚDAGÚR 15.MAÍ 1984.
nr
11
LANSABYRGÐIR TIL
SMÁFYRIRTÆKJA
Allt frá því Schumacher gaf út
bókina ,,Smátt er fagurt” árið 1973
hefur vegur smáfyrirtækja farið
sífellt vaxandi. I auknum mæli snúa
Vesturlönd baki við framleiðsluað-
feröum stóriðjunnar, m.a. vegna
orkuþarfar, mengunar og hinna
miklu fjárfestinga, sem atvinnutæki
hennar þarfnast.
Nýlegar rannsóknir hafa sýnt, að
smáfyrirtæki í OECD löndunum
virðast hafa staðið sig betur í kreppu
undanfarinna ára en þau stóru og
hlutur þeirra í heildaratvinnu í fram-
leiðsluiðnaði hefur aukist víða.
Talið er að Islendingar muni þurfa
20—30 þúsund ný störf til alda-
-móta. Ekki er talið að landbúnaður
og sjávarútvegur bæti við sig að ráði
og því er nauðsyn að leita úrræða.
Smáfyrirtæki, uppspretta
atvinnu
Bandariskir vísindamenn, sem
athuguðu þarlend fyrirtæki á
lárunum 1969—1976, komust að raun
um, að næstum 2/3 allra nýrra starfa
mynduðust hjá fyrirtækjum, sem
höfðu 20 starfsmenn eða færri.
Önnur bandarísk rannsókn frá
sama tíma sýndi, að ný fyrirtæki í
nýtæknigreinunum svökölluöu, þ.e.
rafeindaiðnaöi, upplýsingaiðnaði
o.þ.h., f jölguðu starfsfólki um 40% að
meöaltali á meðan gömul, gróin,
stærri fyrirtæki bættu við sig 1%.
Rannsókn, sem gerð var árin 1977
og 1978 í minni OECD löndunum, svo
sem Sviss, Danmörku og Belgíu,
benti til að lítil og meðalstór fyrir-
tæki hefðu lagt til allt að 70% af allri
atvinnu í iðnaði.
Framleiðsluhlutur þessara fyrir-
tækja var minni en hlutur þeirra í at-
vinnutækifærunum, sem sýnir, að
þau kröfðust tiltölulega meira vinnu-
afls en stóru fyrirtækin.
Smáfyrirtæki, uppspretta
nýsköpunar
Smáfyrirtæki sýna yfirleitt liflegri
merki nýsköpunar og framtakssemi
en þau stóru. Frægustu dæmi síðari
ára eru líklega úr örtölvu-
byltingunni. Forystumenn hennar
rissuðu upp hugmyndimar á eldhús-
bekknum og hófu framleiðsluna í
kjallarakompum og bílskúrum.
Ur slíkum jarðvegi innblásturs og
framtakssemi óx iðnaöur í likingu
við Apple tölvufyrirtækið. Dæmin af
þessu tagi eru ótal mörg.
Á Vesturlöndum er vaxtar-
broddurinn í atvinnulífinu á sviði ný-
tæknigreinanna, svo sem í rafeinda-
iðnaði, hugbúnaðargerð, líftækni,
fjarskipta- og geimtækni. Þessar
greinar þriðju iðnbyltingarinnar
hafa þegar valdið stórkostlegum
breytingum á þjóðfélagsgerð Vestur-
landa og munu veröa undirstaða at-
vinnulífs á nýrri öld.
Einkenni þriðju iðnbyltingarinnar
eru hugvit og þekking einstaklinga,
sem nýtist meö framtaki þeirra og
atorku í fyrirtækjum, sem flesteru
lítil hvað varðar fólk og fjármagns-
þarfir. Þar er fjárfesting í heilu
fyrirtæki e.t.v. svipuð f járfestingu að
baki einum starfsmanni i stór-
iðjunni.
örvum stofnun smáfyrir-
tækja
Víða erlendis, s.s. á Norðurlöndum
og í Bretlandi, hafa stjórnvöld í
frammi öflugar aðgerðir til að hvetja
til stofnunar smáfyrirtækja. Þessar
aðgerðir geta verið af ýmsu tagi.
Má nefna fræðslu fyrir almenning
um stofnun og rekstur smáfyrir-
tækja, m.a. með samningu
fræðsluefnis, útgáfu handbóka og
námskeiðahaldi. Breska sjónvarpiö
BBC hefur t.d. útbúið sjónvarpsþætti
um smáfyrirtækjarekstur. Einnig
mætti halda námskeið um þessa
þætti atvinnulífs og ýmsa fleiri, í
skólum, starfsmannafélögum og
verkalýðsfélögum.
Einnig hefur ýmiss konar sérfræði-
þjónusta verið veitt þeim, sem
hyggja á fyrirtækjarekstur. Mó
nefna t.d. aðstoö við lögfræði- og
bókhaldsleg atriði. Einnig hafa verið
settar á fót tæknismiðjur, þar sem
hugvitsmenn geta unnið að útfærslu
hugmynda sinna með aðstoö sér-
fróðra manna.
Hérlendis hefur komist á fót vísir
að þessu starfi með starfsemi iðn-
ráðgjafa. Þeir vinna þarft verk, sem
bráönauðsynlegt er að efla. Sem
dæmi má nefna námskeið á vegum
iðnráðgjafans á Suðumesjum í
vetur, sem fjölluðu um stofnun og
rekstur fyrirtækja. Þau voru fjölsótt
og tókust vel.
Lánsábyrgðir til smáfyrir-
tækja
Þingmenn Bandalags jafnaðar-
manna fluttu í vetur tillögu á þingi
um eflingu atvinnulífs með stuðningi
við stofnun smáfyrirtækja. Auk
fræðslu og sérfræðiþjónustu, eins og
lýst var hér að framan, lögðu þeir til
lánsábyrgðarkerfi smáfyrirtækja til
að auðvelda öflun áhættufjár til
fyrirtækjastofnunar.
Samkvæmt þessu kerfi yrðu ríkis-
ábyrgðir veittar á stofnlánum til
smáfyrirtækja. Lánanna yrðu menn
að afla í bönkum, en bankinn gæti
Kjallarinn
1
GUÐMUNDUR
EINARSSON
ALÞIIMGISMAÐUR Í
BANDALAGI
JAFNAÐARMANNA
siðan sótt um ríkisábyrgð á allt að
helmingi lánsupphæðarinnar.
Til að mæta skakkaföllum er lagt
til að ríkissjóður taki sérstaka
áhættuvexti, er myndu bætast ofan á
venjulega útlánsvexti bankanna.
Þannig væri leitast við að tryggja
hallalausan rekstur kerfisins.
Að auki er sérstaklega lagt til aö
lífeyrissjóðlr landsmanna verði
virkjaðir til þátttöku í uppbyggingu
á atvinnulífi. Þeir ættu aö lána til
fleiri hluta en steinsteypuhlunka.
Undirstaða framfara er hugvit,
þekking og rannsóknir. Við höfum
vanist því að telja þekkingu nauösyn-
lega til að nýta auölindir. Nú er
runninn upp sá tími, að þekkingin
sjálf er aiiðlind.
Við verðum að fara að huga að at-.
vinnuháttum morgundagsins. Við
höfum gefið framtiöinni litinn gaum,
én bömin okkar munu þó alltént
þurfa á henni aö halda.
FELAGSLEGARIBUÐABYGGINGAR:
Hver er raunveruleg af-
staða Sjálfstæðisflokksins ?
Sú undarlega — að ég ekki segi
'hallærislega — staða er nú komin
upp á Alþingi Islendinga, að annar
stjórnarflokkanna hefur samþykkt
ákveðna grein stjórnarfrumvarps
við nafnakall við aðra umræðu í
neðri deild til þess eins að allt í einu,
við nánari eftirþanka, snúast gegn
þessum eina lið við þriðju umræðu.
Eftir að hafa greitt fyrst atkvæði
með c-lið 33. gr. húsnæöisfrúmvarps
ríkisstjómarinnar við aðra umræðu
hefur þingflokkur Sjálfstæðis-
flokksins sem sé algerlega kúvent og
vill nú ekki samþykkja frumvarpið,
sé nefndur c-liður þar með!
Af þessu tilefni vil ég benda hér á
viss atriði er snerta húsnæðissam-
vinnufélög, félagslegar íbúða-
byggingar og einnig rif ja upp nokkra
punkta úr sögu stærsta stjórnmála-
flokks landsins.
Vinsælasta form félags-
legra íbúðabygginga
I öllum nálægum löndum em hús-
næðissamvinnufélög með búseturétt-
arsniði vinsælt og virt eignarform
húsnasðis.
Búseturétturinn tryggir fólki
fullan umráðarétt yfir íbúðum sínum
og gerir þaö jafnframt í mjög ríkum
mæli ábyrgt fyrir umgengni um hús-
næðiö, þannig að húsnæðissamvinnu-
félög em yfirleitt þekkt fyrir það
hversu íbúðir á þeirra vegum eru vel
með farnar, jafnvel þótt um áratuga
gamalt húsnæði sé að ræða.
Okkar náskyldasta frændþjóð,
Norðmenn, valdi þá leið á ámnum
1945—1950 er hún mótaði húsnæðis-
stefnu eftirstríðsáranna að veita
nánast öllum félagslegum íbúða-
byggingum þar í landi í farveg hús-
næðissamvinnunnar. Reynsla
Norðmanna er ótvírætt sú að einmitt
húsnæðissamvinnuformið er miklu
farsælli leiö en t.d. einhliða áhersla á
byggingar leiguibúa á vegum
sveitarfélaganna.
Vinsældir húsnæðissamvinnu-
formsins við félagslegar íbúðabygg-
ingar eru óumdeilanlegar. Þetta sést
af því að í nágrannalöndum okkar
skrá ráðdeildarsamir foreldrar börn
sín I slík félög þegar á fermingar-
aldri.
I Noregi eru um 700.000 félags-
menn í um 3500 búseturéttarfé-
lögum. Undanfarin ár hefur
aðstreymið til þeirra farið sívaxandi
og hefur félagsmönnum fjölgaö um
meira en 40.000 manns árlega und-
anfarin ár, sem nemur um 2/3
hlutum af heildarfólksfjölgun í Nor-
egiásamatíma!
Félagsleg húsnæðisstefna
Sjálfstæðisflokksins
Sem kunnugt er hefur Sjálfstæöis-
flokkurinn frá upphafi einkennst af
alveg sérstöku tvíeðli. Annars vegar
stendur flokkurinn á íhaldssömum
meiði en aö hinu leytinu er að finna í
flokknum sterkt ívaf frjálslyndis og
mannúðarstefnu enda er flokkurinn
til orðinn viö samruna Ihalds-
flokksins og Frjálslynda flokksins
árið 1929.
Þessa tvíeðlis sér mjög stað í af-
skiptum flokksins af húsnæðis-
málum. Eina stundina vinnur
flokkurinn að því með öörum að þoka
sjálfsögðum umbótamálum áfram,
hina stundina er hann hinn viðskota-
versti sé bryddað upp á nýjungum er
til umbóta horfa í þessu lífshags-
munamáli okkarallra.
Hörð andstaða gegn verka-
mannabústöðunum
Sama ár og fyrrgreindur samruni
flokkanna tveggja átti sér stað voru
afgreidd á Alþingi Islendinga fyrstu
lögin um verkamannabústaöi.
Menn sem síðar áttu eftir að sitja á
Alþingi fyrir hinn nýja flokk um ára-
tuga skeið fundu lagafrumvarpinu
um verkamannabústaði allt til for-
áttu, m.a. það að því væri beinlínis
beint gegn þeim sem minnst mættu
sín, þar sem verkamannabústaða-
byggingar drægju svo mjög úr
byggingarvilja athafnamanna að
kjör alþýðu manna yrðu til muna
þrengri.
Útrýming bragganna
Ljótasti bletturinn í félagsmála-
sögu okkar á þessari öld er bragga-
húsnæði það sem þúsundir Reyk-
víkinga uröu að gera sér að góðu um
tveggja áratuga skeið. A árunum
1955-1965 stóð Sjálfstæðisflokk-
urinn, undir forystu þáverandi borg-
arstjóra, fyrst Gunnars Thoroddsens
og síðar Geirs Hallgrímssonar, að
skipulögðu átaki til útrýmingar
bröggunum, með þeim árangri að er
leið á sjöunda áratuginn voru þeir að
mestu úr sögunni.
Framkvæmdanefnd
byggingaráætlunar
Árið 1965 geröi „viðreisnar-
stjórnin”, undir forsæti Bjama
Benediktssonar, samkomulag við
verkalýðshreyfinguna um stærsta
átak í húsnæðismálum í sögu
þjóðarinnar. A næstu árum voru
JÓN RÚNAR
SVEINSSON,
FORMAÐUR BÚSETA,
REYKJAVlK.
byggðar 1250 félagslegar íbúðir í
Breiðholtshverfi í Reykjavík á
vegum sérstakrar framkvæmda-
nefndar.
Innan Sjálfstæðisflokksins var hins
vegar ætið fyrir hendi hörð andstaða
gegn Breiðholtsframkvæmdunum.
M.a. beitti það blað sem þá var mál-
svari höröustu andfélagshyggju-
aflanna innan flokksins, Vísir, sér af
mikilli hörku gegn Framkvæmda-
nefnd byggingaráætlunar.
Sjálfstæðisflokkurinn bæði
með og á móti leigu-
íbúðum félagasamtaka
Svo sem ég lýsti í grein hér í
blaðinu í síðustu viku þá gengu sjálf-
stæðismenn á Alþingi í fyrravetur
fram fyrir skjöldu við tillöguflutning
sem gekk lengra en frumvarp
Svavars Gestssonar í þá átt að gera
félagasamtökum á borð við
Leigjendasamtökin og Búseta kleift
að byggja leiguíbúðir fyrir félags-
mennsína.
Mér er sömuleiöis tjáð aö Halldór
Blöndal alþingismaður hafi sjálfur
starfað baki brotnu í allt fyrrasumar
í húsnæðisnefnd félagsmálaráðherra
,án þess að uppgötva þann ægilega c-
lið 33. gr. sem samkvæmt áliti
samnefndarmanns hans og flokks-
'bróður, Gunnars S. Björnssonar,
opnar ótvírætt á lán til Búseta!
Nú er hins vegar svo komið að arf-
taki Olafs, Bjarna og Geirs á hinum
kalda hefðartindi valdsins, Þor-
steinn Pálsson, snýst af algerri
hörku gegn húsnæðissamvinnu-
hreyfingunni. Heitar vonir nær
þriggja þúsunda ungra manna og
kvenna sem gengið hafa í Búseta-
félögin megna líklega ekki að bræða
hiö jökulkalda f ormannshjarta.
Eg er hins vegar sannfærður um
að hin skammsýna og skammarlega
andstaða þeirra afla sem nú um
stundir virðast ráða ferðinni í
stærsta stjómmálaflokki
þjóðarinnar við húsnæðisform sem
alls staðar í nálægum löndum þykir
jafnsjálfsagt ogt.a.m. hinnalmenni
kosningaréttur mun ekki megna að
loka hinni nýju húsnæðisleið.
Eg er þess einnig fullviss að er
fram líða stundir munu sjálfstæðis-
menn reyna að gleyma andstöðu
sinni við Búseta, alveg eins og þeir í
dag vilja engan veginn kannast við
að hafa nokkru sinni verið andvígir
by ggingum verkamannabústaöa.