Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1984, Síða 16
16
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. MAl 1984.
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. MAl 1984.
17
íþróftir íþróftir íþróffir íþrótfir íbróftir íþrótfir íþróftir íþrótfir íþrótfir
Stórsigur
Valsstúlkna
Valsstúlkurnar unnu aftur stórsigur í meistara-
flokki í keppninni á Reykjavíkurmótinu. Unnu KR
4—0 og skoruðu þær Kristin Arnþórsdóttir, tvö,
Bryndís 'Valsdóttir og Erna Lúðvíksdóttir mörk
Vals. Aður hafði Valur sigrað Fylki 5—0 og KR
sigraði Fylki einnig 5—0.
hsím.
Indónesía leikur
í úrslitunum
— íThomas Cup í badminton
Indónesía tryggði sér rétt í úrslitaleikinn í
Thomas Cup i badminton, heimsmeistarakeppni
karia-iandsliða, í gær, þegar Indónesía sigraði
Suður-Kóreu 4—1 í fyrri leiknum í undanúrslita-
leiknum. I dag leika Kína og England í hinum
leiknum í undanúrslitum.
Suður-Kórea kom mjög á óvart á föstudag, í
riðlakeppntnni. Sigraði þá Danmörku 3—2 og þar
með komust Danir ekki í undanúrslitin. Þeir unnu
aðeins sigra í einliðaleiknum. Morten Frost vann
Park Joo Bong 15—11, 14—15 og 15—7 og Jens
Peter Nierhoff vann Sung Hun Kook 15—5 og 15—
11. Danir töpuðu leikjunum í tvíliöaleik og þriðja
leíknum í einliðaleik. Hyung Hak vann Steen Flad-
berg 16-18,15-10 og 15-11.
Af öðrum úrslitum í riölakeppninni má nefna aö
Kína vann Svíþjóð 5—0, England vann Malasíu 3—
2 og tryggði sér meö því sæti í undanúrslitum.
Steve Baddeby vann Misbun Sidek 15—12 og 15—
11 og Steve Butler vann Razif Sídek 9-15,15-11
og 15—12. Nick Yates tapaði hins vegar í einliöa-
leiknum en Mike Tredgett og Andy Goode tryggöu
Englandi sigur í leiknum þegar þeir sigruöu
Misbun og Soh Goon Chup 18—13 og 15—12.
-hsim.
Hollensk félög fá
Standard-leikmenn
„Við höfum ákveöið að gera samning við Guy
Vandersmissen tii eins árs og hollenski landsUðs-
maöurinn Simon Tahamata mun fljótlega gera
þriggja ára samning við Feyenoord,” sagði
Gerard Kerkum, forseti Feyenoord, í Rotterdam í
g*r.
Þeir Vandersmissen og Tahamata eru báðir bjá
Standard Liege í Belgíu og ientu í mútumáUnu
fræga. Fengu þar báðir dóm — eins árs leikbann.
Forráðamenn Feyenoord láta það þó ekki á sig fá
og eru ákveðnir í að ná í þessa snjöUu leikmenn.
Fyrr i þessum mánuði gerði Roda JC Kerkrade,
hoUenska félaglð í úrvalsdeUdinni, samning við
Jos Daerden, framvörð bjá Standard, sem einnig
fékk árs ieikbann í Belgiu vegna mútumálsins.
-hsim.
Pressasett
á Rúmena
Sovéski ambassadorinn í Rúmeniu, E. M.
TiazbeinUcov, fór á fund Nlcolae Ceausescu, for-
seta Rúmenhi, í gær til þess að fá svar forsetans
við því hvers vegna ckki hefði verið skýrt frá því i
Rúmeníu, að Sovétrikin mundu ekki sækja
óiympíuleikana í Los Angeles. Engar fréttir af því
máli hafa birst í rúmenskum fjölmiðlum. Ekki
var skýrt frá því hvernig forsetinn tók ambassa-
dornum en fundi þeirra var komið á að ósk Sovét-
rikjanna. Háttsettir rúmenskir ráðamenn hafa
sagt að Rúmenia muni sækja leikana i Los
Angeles.
Þá var skýrt frá því í gær að Sovétríkin væru nú
að undirbúa mUila íþróttahátíð þeirrá þjóða sem
ekki keppa á ieikunum í Los Angeles. Sú hátíð
verður þó ekki á sama tíma og leikarnir, eins og í
fyrstu vartaUð.
-hsim.
Kínversku stúlk-
umaríúrslit
— íUber Cup í badminton
Kínversku badminton-stúlkurnar unnu stórsig-
ur á Suður-Kóreu í gær, 5—0, i Kuala Lumbur í
Umber Cup, heimsmeistarakeppni landsUða.
Leikurinn var i undanúrslitum og i hinum Ieiknum
leika England og Danmörk. Sá leikur verður i
dag.
I riðlakeppninni í Uber Cup i síðustu viku má
nefna að England vann Suður-Kóreu 3—2, Dan-
mörk sigraði Indónesíu 3—2 og kinversku stúlk-
urnar unnu sina leiki 5—0. Virðast langsterkastar.
hsim.
Iris Grönfeldt—enn nýtt Islandsmet.
Frjálsíþróttafóikið í Alabama gerir það gott:
Met í spjótkasti
kvenna—4 sigrar
—á háskólamóti í Lousiana—íris Grönfeldt kastaði 55,90 m
og er við ólympíulágmarkið
„Eg er mjög ánægð með þennan
árangur. Hann er alveg við lágmarks-
afrekið fyrir ólympiuleikana i Los
Angeles i spjótkasti kvenna. Eg náði
metkastinu i síðustu tilraun. Var þá i
öðru sæti, átta sentimetrum á eftir
Það verður ekkert úr
Norðuríandamótinu
—Danir og Svíar voru ekki tilbúnir að vera með 1985
Það verður ekkert úr Norðurlanda-
mótinu í knattspyrnu, sem fyrirhugað
var næsta sumar. Þegar ljóst var að
Danir ætluðu ekki að taka þátt i mótinu
tilkynntu Sviar að þeir yrðu heldur
ekki með. — Það var þvi ljóst þegar
Danir og Sviar voru búnir að draga sig
til baka að þá væri Norðuriandamótið
úr sögunni — að sinni, sagði Ellert B.
Schram, formaður KSt, sem sat
Norðurlandaþing knattspyrnusam-
banda i Danmörku um sl. helgi.
Ellert sagði að Danir hefðu bent á að
það væri erfitt fyrir þá að stilla upp
sinu sterkasta liöi þar sem atvinnu-
menn þeirra væru í sumarfríi á þeim
tíma sem fyrirhugaö væri að mótið
færi fram og Svíar voru einnig á því
máli.
— Þó að Norðurlandamótið verði
ekki næsta sumar.er áhugi fyrir hendi
að halda þaö síðar, sagði Ellert.
-SOS.
„Höfum jafna mögu-
leika gegn Juventus”
—segir þjátfari Porto—Úrslitaleikurinn í Evrópukeppni
bikarhafaámorgun
„Við berum virðingu fyrir Juventus
sem hefur stjörnuleikmenn eins og
Michel Platini og Paolo Rossi í liði
sinu en ég tel að við höfum jafna mögu-
leika í úrslitaleiknum í Basel. Eg veit
að leikmenn mínir eru í toppþjálfun.
Þeir sönnuðu það í leikjunum við
Aberdeen og í síðustu viku sigruðum
við í bikarkeppninni í Portúgal,” sagði
Antonio Marias, þjálfari Porto, sem á
miðvikudag leikur til úrslita við
Junvetus í Basel í Evrópukeppni bikar-
hafa. Leiknum verður sjónvarpað
beint hér og hefst kl. 18.
Porto er enginn nýgræðingur í
evrópskri knattspymu. Hefur 23
sinnum tekið þátt í Evrópumótunum
en liðið er nú í fyrsta skipti í úrslitum.
Liðiö er með mjög sterka vöm, fékk
aöeins á sig níu mörk í 29 leikjum í
Portúgal í 1. deildinni. Varð þar í öðru
sæti á eftir Benfica en tryggði sér sigur
i bikarkeppninni.
Maðurinn bak viö góðan árangur
Porto undanfarin ár, aðalþjálfarinn
Jose María Pedroto, getur ekki
stjórnað liði sínu í úrslitaleiknum.
Hann hefur átt við erfið veikindi að
stríða frá áramótum en hefur þó lagt
upp leikaðferðina í hverjum leik frá
heimili sínu í Porto( sem er aöeins 300
metrum frá leikvelli félagsins, Antas-
leikvanginum. Antonio Morias fylgir
svo eftir áformum hans.” Við erum
ekkert án þess aö hafa samráð við
hann,” segir Morias.
Þekktasti leikmaður Porto er mið-
herjinn Femando Gomes. Hann hlaut
„gullskó Adidas” á síðasta leiktímabili
sem markhæsti leikmaðurinn í
Evrópu. Á því leiktímabili sem er að
ljúka hefur Gomes skorað 21 mörk af 65
mörkum Porto. Besti leikmaður liðsins
er hins vegar Jaime Pacheco — „heili”
liðsins á miðjunni og maðurinn bak viö
flestar sóknarloturnar. Skorar einnig
þýöingarmikil mörk. Antonio Sousa er
sérfræðingur Porto í aukaspymum og
Carlos Silva er vinsælasti leikmaður-
inn. Stansar aldrei í leik, knattmeðferð
hans frábær og mikill einleikari. Það
var hann sem skoraði mark Porto í
Aberdeen — vippaði knettinum yfir
Jim Leighton markvörð eftir að hafa
einleikið með knöttinn frá eigin vallar-
helmingi.
Porto er með marga aðra skemmti-
lega leikmenn í liði sínu og það verður
gaman að kynnast þeim í leiknum við
Juventus á miðvikudag. En auðvitað
verða ítölsku meistaramir með sex
heimsmeistara í liði sínu og auk þess
Platini og Boniek taldir mun sigur-
stranglegri þó svo Dino Zoff sé nú
alveghætturímarkinu. hsím.
þeirri fyrstu. Þá kom metkastið, 55,90
m,” sagði Iris Grönfeldt, íþróttakonan
kunna úr Borgaraesi, eftir að hún setti
nýtt íslandsmet í spjótkasti á háskóla-
móti í Lousiana um helgina. Eldra met
hennar var 54,96 m, sett fyrr í ár.
tslensku keppendurnir i háskólaliði
Alabama voru mjög sigursælir á
mótinu. Sigruðu í fjórum greinum í
bikarkeppni nokkurra háskóla.
Alabama var í fyrsta sæti eftir keppn-
ina. Þá kom upp mikið hitamál. Sveit
Alabama i 4X100 m boðhlaupi var
dæmd úr leik og Alabama féll niður í
þriðja sæti.
Islandsmet Irisar er alveg lágmark
alþjóöaólympíunefndarinnar. Það er
56,00 m og vantar þvi tíu sentimetra á
það. Hins vegar er lágmarksafrek ísl.
ólympíunefndarinnar miklu hærra,
eða 61 meter.
Iris sigraði i spjótkastinu og þrir
aðrir Islendingar sigruðu á mótinu.
Sigurður Einarsson í spjótkasti karla,
kastaði 82,64 m og sigraöi með miklum
yfirburðum. Sigurður á best 82,76 m.
Vésteinn Hafsteinsson kastaði kringlu
62,94 m og sigraði, svo og Þórdís Gísla-
dóttir í hástökki. Stökk 1,83 m. Þórdis
er að verða góð af meiðslunum, sem
hún hlaut í bílslysi á dögunum.
Þráinn Hafsteinsson hlaut 6905 stig í
tugþraut í keppninni. Var talsvert frá
sinu besta enda á hann viö meiðsli að
stríða. Keppti hins vegar til að hala inn
stig fyrir Alabama-háskólann.
Vésteinn var við sinn besta árangur í
kúluvarpi. Varpaði 17,35 m. Á best
17,41 og Eggert Bogason, FH, náði
sínum besta árangri í kúluvarpi.
Varpaði 17,19 m en átti 16,66 best áður.
Þá keppti Guðmundur Skúlason í 800 m
hlaupi. Hljóp á 1:51,49 min. en komst
ekki í úrslit. Hann á best 1:50,92 mín.
Atti við meiðsli að stríða i vetur en er
núaönásérástrik. -hsím.
Essen leikur
íBeiiín
I gær var dregið í undanúrslit þýsku
bikarkeppninnar í handknattleik.
Essen, sem Alfreð Gíslason leikur
með, dróst á móti Fusche, Berlín, og
verður leikurinn í Berlín. Grosswald-
stadt og Hameln leika í hinum undan-
úrslitaleiknum í Grosswaldstadt.
-hsim.
„011 blaklið í einni deild?”
—Athugasemd við grein í DV
er í sátu 6 menn og var tillögunni vísað
til atkvæðagreiðslu þingsins án þess aö
nefndin tæki afstþðu vegna klofnings
innan nefndarinnar. Þegar tillagan
var borin undir atkvæði var hún sam-
þykkt með 15 atkvæðum gegn 3 en
nokkrir sátu hjá.
hvergi í fréttinni. Ekki var sagt frá því
hverjir fluttu tillöguna.
I fréttinni stóö að það hefðu einkum
verið fulltrúar 2. deildarliöa sem beittu
sér fyrir samþykki tillögunnar.
Fremstir í flokki hefðu verið fulltrúar
Víkings.
Iþróttasíðu DV barst í gær eftirfarandi
athugasemd frá blakdeild Víkings.
„Þann 07.05 birtist grein í DV undir
heitinu „öll blaklið í einni deild? ”
Þessi klausa kom flestum á óvart og
þó sérstaklega Víkingum. Þar ýkir
KMU einum um of með því að segja að
fulltrúar Víkings, á síðasta BLI þingi,
hafi staðið fremstir í flokki, sem
fallkandídatar, um að koma á einnar
deildar skipulagi. Að tillögu þess efnis
stóðu fulltrúar frá IS, Þrótti Nes-
kaupstað, KA Akureyri og Reyni Ar-
skógsströnd og komu Víkingar þar
hvergi nærri eins og KMU heldur
fram.
Reyndin er að tillaga sú sem fram
kom á síðasta BLI. þingi er þess efnis
að stjórn BLI. er heimiiað, ef ríkar
ástæður liggja fyrir, að setja á einnar
deildar fyrirkomulag. T.d. ef þátttaka
í 2. deild verður ekki næg, enda veröi
þá jafnframt keppi í 1. flokki karla.
Framangreind tillaga hlaut
meðhöndlun ílaga- og leikreglnanefnd
Fyrir hönd Blakdeildar V íkings.
Björn Guðbjörnsson,
Arngrímur Þorgrímsson.
SvarKMU
Gera verður þá kröfu til þeirra sem
athugasemd vilja gera við frétt að þeir
lesi þá frétt og skilji hana. I
athugasemd sinni segja Víkingamir
Björn Guðbjörnsson og Arngrímur
Þorgrímsson að í umræddri frétt DV
hafi KMU haldið því fram að Víkingar
hafi komið nærri flutningi tillögu um
breytt deildaskipulag. Þetta stóð
Það fór ekki framhjá neinum á þingi
Blaksambandsins að sá sem oftast og
lengst var uppi í pontu til að mæla með
tillögunni var leikmaöur og þjálfari
karlaliðs Víkings í vetur. Aðrir
Víkingar fóru heldur ekki leynt með
áhuga sinn í þinghléi.
Þaö kom skýrt fram í frétt DV að um
heimild til stjórnar Blaksambandsins
væri að ræða ef ríkar ástæður væru
fyrir hendi, svo sem ef of fá lið til-
kynntu þátttöku í 2. deild.
Það er ennfremur rangt sem þeir
Björn og Arngrimur segja í athuga-
semd sinni að laga- og leikreglna-|
nefnd þingsins hafi visað tillögunni til
atkvæðagreiðslu þingsins án þess að
taka afstööu. Ljóst var að meirihluti
nefndarinnar var andvígur samþykki
tillögunnar. Nefndin vísaði tillögunni
því frá sér. Flutningsmenn lögðu engu
að síður tillögu sína fyrir þingiö.
Þeir Björn og Arngrímur fara ekki
einu sinni rétt með úrslit atkvæða-
greiðslunnar. Tillagan fékk ekki 15 at-
kvæðiheldurl3.
Tillagan hlaut samþykki eftir að
þjálfari Víkings hafði skýrt frá því
hvað fyrir flutningsmönnum vekti með
flutningi hennar. Víkingsþjálfarinn
sagði að tillaga væri nauðvöm ef sú
staða kæmi upp að ekki yrði hægt að
keppa í 2. deild. Víkingarnir Bjöm
Guðbjömsson og Arngrímur Þor-
grimsson ættu kannski aö spyrja sjálfa
sig hvers yegna þjálfari þeirra og sam-
herji skyldi hafa tekið að sér að skýra
tillöguna fyrir hönd flutningsmanna.
I frétt DV var skýrt satt og rétt frá
máli þessu og hvergi ýkt um þátt
Víkinga.
-KMU.
Jupp Derwall — gefur hann eftir og velur ekki leikmenn Stuttgart i
landsliðlð?
Sigur Dýrlinganna
„Eg get ekki
neitað mér
um leikmenn
Stuttgart”
— segir Jupp Derwall, landsliðseinvaldur
V-Þýskalands—Mikil óánægja í herbúðum Stuttgart
Dýrlingarair hafa nú möguleika á
að hljóta annað sætið í 1. deildinni
ensku eftir 0—2 sigur á WBA í West
Bromwich í gærkvöld. Southampton
hefur nú 74 stig eins og Man. Utd. en
bæði liðin eiga einn leik eftir.
Southampton við Notts County heima
en United við Nottingham Forest í
Nottingham.
Þá sigraði Everton West Ham 0—1 í
Lundúnum í gærkvöld. Þeir Trevor
Brooking og Billy Bonds léku þar sinn
síðasta leik með West Ham. Hafa báðir
ákveðið að leggja skóna á hilluna. t 3.
deild vann Port Val Millwall 1—0 á
heimavelli og í skosku úrvalsdeildinni
sigraði Rangers Dundee Utd. 1—2 í
Dundee. -hsim.
Frá Hilmari Oddsyni — fráttamanni
DV í V-Þýskalandi:
— Jupp Derwall, landsliðseinvaldur
V-Þýskalands, var á meðal áhorfenda í
Stuttgart þegar Stuttgart lék gegn
Frankfurt á laugardaginn. Hann var
þar til að sjá landsliðsmenn sína hjá
Stuttgart leika en eins og hefur komið
fram, þá leika V-Þjóðverjar sinn síð-
asta leik fyrír Evrópukeppnina i
Frakklandi — gegn ttölum i Sviss. Sá
leikur er afmælisleikur FIFA sem er 80
ára.
— Eg get ekki neitað mér um þá
fjóra leikmenn sem leika með
Stuttgart — þá Karl-Heinz Förster,
Berad Föster, Helmut Roleder, mark-
vörð og Guido Buchwald. Eg mun
velja þá alla í landsliðshópinn sem
leikur gegn Itölum, sagði Derwall.
Buchwald fær tækifæri til að leika
sinn fyrsta landsleik í Zurich og
Derwall sagði að hann hafi verið mjög
ánægður með framistöðu Buchwald
gegn Frankfurt. — Það er ávinningur
fyrir landsliöið að fá hann. Buchwald
hefur tekið miklum f ramförum í seinni
tíð, sagði Derwall.
Óánægja í Stuttgart
Forráðamenn Stuttgart eru ekki
ánægðir með að Derwall ætli sér aö fá
fjóra leikmenn félagsins til Sviss. —
Það er mjög slæmt fyrir okkur að
Karl-Heinz Förster — gefur hann ekkl
kost á sér i v-þýska landsliðið?
missa fjóra leikmenn til Sviss, aðeins
f jórum dögum áður en við leikum hinn
þýðingarmikla leik gegn Hamburger,
sagði Helmut Benthaus, þjálfari
Stuttgart, og hann benti á að Stuttgart
missti fjóra menn til Sviss — á sama
tíma og Hamburger missti aðeins einn
leikmann. — Við erum ekki ánægðir
með að Derwall taki ekkert tillit til að
við erum aö berjast um V-Þýskalands-
meistaratitilinn, sagði Benthaus og þá
má búast viö að mikil læti verði út af
landsleiknum gegn Itölum þegar nær
dregur leiknum. Spumingin er —
hunsa leikmenn Stuttgart leikinn? Ef
þeir gera það, eiga þeir á hættu aö
missa landsliðssætin sín og vera ekki
valdir til að leika í Evrópukeppninni í
Frakklandi. Leikmenn Stuttgart eru
núámillisteinsogsleggju. -HO/-SOS