Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Qupperneq 2
2 DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. JUNI1984. Eliza Heeren: Hefur verið íleiguhjá Eimskip og Hafskip Þýska skipiö Eliza Heeren er í eigu lítillar útgeröar í Oldenburg. Eigandi útgerðarinnar er Þjóðverji búsettur í Oldenburg. Auk Elizu Heeren á hann örfá skip til viðbótar. Eliza Heeren er um 2000 tonna skip og áhöfnin telur tíu manns. Fyrr á árinu var Eimskip með þaö á leigu i um átta vikna skeið. Að því loknu tók Hafskip það á leigu, aðeins þessa einu ferö, en skipið er notað til flutninga. Þegar Eliza fór héðan síöastliöiö þriðjudagskvöld, var skipið búið að liggja við Reykjavíkurhöfn í um tíu daga. Samkvæmt upplýsingum DV hafði Miroslav Peter komið sér í kynni við einhverja skipverja. Meðal annars haföi hann beðið skipstjórann um far en sá neitað. A sunnudag fyrir rúmri viku heimsóttu svo tveir Þjóðverjar Miroslav Peter á herbergi hans á Hjálpræðishemum. Er talið liklegt aö það hafi verið skipverjar af Elizu Heeren og hafi þeir verið að leggja á ráðin. Var sérstaklega til þessarar heimsóknar tekið þar sem Miroslav Peter fór mjög einförum og hafði hann lítið eða ekkert samneyti við fólk meðan hann var hér. Daginn sem skipið lét úr höfn sást svo Miroslav Peter í hópi skipverja. -KÞ VERÐUR DÓMNUM FULLNÆGT í V-ÞÝSKALANDI? „Þýsk yfirvöld þurfa þá að dæma upp á nýtt” — segir Linger hjá rannsóknarlögreglunni f Hamborg við DV Miroslav Peter Baly á yfir höfði sér skilorösbundinn dóm í Þýskalandi f - ■ ■ samkvæmt heimildum DV. Sá dómur er tilkominn vegna tilraunar til að Töskurnar sem hér sjást skildi þýski féikaeggjaþjófurinn < Þær eru nú i vörsiu isianska ríkisins. >autaf eitthvað nytt ■»*¥l W1 r** tri. SSSÆU- enska baðstrondi Bournemoutn. wm.. * Mjög þægilegur hiti, ca 18—25°C. 8—15 daga ferðir, sem hefjast 16. júlí. Gisting á góðum hótelum í 2 verðflokkum. Verð frá kr. mmw. fi m »»!»«! »1 fHjl 15.300 Starfsfólk Iceland Centre í London mun taka á móti farþegum og verða þeim til halds og trausts í öllum f erðum (íslenskt starfsfólk). Fyrsti hópurinn verður boðinn velkominn til Boumemouth með kvöldverði og íslenskri uppákomu. Sumarfrí í Bournemouth er fyrir unga sem aldna. Baðstrandarlíf, leikir, sport og skemmtanir. Möguleiki á íslenskum barnfóstrum. Boðið verður upp á eins dags ferðir og styttri skoðunarferðir, t.d. til Isle of Wight, um nágrenni Boumemouth og verslunarferð til London. Útsölumar em byrjaðar. Reynið nýjan og mjög athyglisverðan ferðamöguleika Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 stela fálkaeggjum þar í landi. Skyldi þeim dómi verða fullnægt nú í Þýska- landi? .Samkvæmt þýskum lögum hefur Miroslav Peter Baly ekkert gert af sér hér í landi til að þeim dómi verði full- nægt,” sagði Linger, hjá rannsóknar- lögreglunni í Hamborg, í samtali við DV. „Við uröum því að láta hann laus- an eftir að við komumst að því að hann væri þýskur ríkisborgari. ” — Átt þú von á því að hann muni taka út refsingu þá í Þýskalandi sem hann hefur verið dæmdur til á íslandi ? „Um það get ég ekkert sagt, nema það að þýsk yfirvöld þurfa þá að dæma upp á nýtt. Meira get ég ekki sagt,” sagði Linger. DV spurði sendiráðunaut þýska sendiráösins, Heinz Pallasch, hvort þeir myndu hafa einhver afskipti af málinu. „Samkvæmt okkar vinnureglum munum við aðeins flytja þau skilaboð sem við verðum beðnir fyrir milli ís- lenskra og þýskra yfirvalda,” sagði Heinz Pailasch. Hann sagði og að sér þættu þetta slæm tíöindi. — ÁttþúvonáþvíaðMiroslavPeter þurfi að taka út refsingu sína í Þýska- landi? ,,Ef svo verður þurfa þýsk yfirvöld sjálf að dæma hann, dæma upp á nýtt. Islenskur dómur nær ekki yfir þýska ríkisborgara í Þýskalandi.” — Heldur þú að þýsk yfirvöld geri það? „Já, ég held það,” sagði Heinz Pallasch. -KÞ Siglingin til Esbjerg: B0RGARISLENSKA RÍKIÐ BRÚSANN? „Skipstjórinn hlýddi okkar fyrir- mælum en þverskallaðist hins vegar við dönsk yfirvöld,” sagði Jón Hákon Magnússon, framkvæmdastjóri Haf- skipa, í samtali við DV um þeirra hlut í flótta Miroslav Peter. „Það sem hefur gerst þama var það að annaö hvort hafa dönsk yfirvöld veriö of lin eða að skipstjórinn hefur fengið skipun frá þýskum yfirvöldum um það að láta Miroslav Peter ekki af hendi. Það er ekki laust viö að manni þyki tvískinnungur í þessu. Á sama tíma og þýsk yfirvöld eru aö heiðra Islendinga fyrir frækin björgunarafrek bjarga þeir dæmdum þjófi úr landi.” Eliza Heeren þurfti að breyta ferð sinni vegna flóttamannsins um borð. Skipið átti að sigla beinustu leið til Hamborgar og átti að vera þar um há- degi á sunnudag. Vegna fyrirskipana um að sigla til Esbjerg tafðist skipið um hátt í sólarhring. Hver borgar þessa töf? „Það er ekki ljóst ennþá. Það verður þó skoðaö fljótlega. Sennilega verða það þó íslensk yfirvöld eða þýska út- gerðin, en útgerðarmaðurinn þar var mjög leiður yfir þessu, þegar við töluð- um við hann. Reyndar tafði þetta skipið engin ósköp en þetta er spuming um olíukostnað og hafnargjöld í Es- bjerg,” sagði Jón Hákon Magnússon. -KÞ Meðferð erlendra sakamanna á íslandi: REGLURNAR VERÐA ENDURSKODAÐAR — ekki var hægt að hraða málinu meira, segirJón Thors I kjölfar flótta Miroslav Peter Baly hafa ýmsar spurningar vaknað um er- lenda sakamenn á Islandi. Þykir ýms- um kynlega að verki staðiö, einkum það að útlendingur af þessu tagi skuli þurfa aö bíöa dóms svo lengi. Á meöan er honum komiö fyrir á hóteli á kostnað ríkisins og fær auk þess dag- peninga. Að vísu var hann settur í far- bann og gert skylt að tilkynna sig til út- lendingaeftirlitsins tvisvar í viku. En farbann af þessu tagi er komiö undir heiöarleika viðkomandi, sem töluvert vantar á í þessu dæmi. En þarf ekki að endurskoða meðferð á sakamönnum í tilfellum sem þessum? „Jú, við munum endurskoða hvemig best sé að geyma svona menn,” sagði Jón Thors, deildarstjóri í dómsmála- ráðuneytinu, í samtali við DV. — Það hefur verið deilt á það að mál Miroslav Peter hafi ekki gengið nógu fljótt? „Málið fékk mjög hraða meðferð, eins hraöa og tæknilega er mögulegt.” — Hefði ekki átt að hraða því enn meir? „Nei, það var ekki hægt. Urskurður héraðsdóms lá fyrir 23. maí og málið verður flutt fyrir Hæstarétti á föstu- dag. Hraðar ganga ekki svona mál. — Hvað tekur nú viö? „Við munum bíða eftir endanlegum dómi áður en við ákveðum hvað við gerum næst.” — Verður dómnum framfylgt í Þýskalandi? „Við eigum eftir að skoða hvaða möguleikar eru fýrir hendi að fram- fylgja íslenskum dómi í Þýskalandi,” sagði Jón Thors. -KÞ InnbrotíOsta- ogsmjörsöluna Brotist var inn í hús Osta- og smjörsölunnar við Bitruháls um helgina. Innbrotsmenn höfðu á brott með sér nokkuð verðmæti, myndbandstæki, sjónvarp og myndavél auk ávísanahefta. Ollu þeir taisveröum skemmdum innanhúss, brutu til að mynda upp 11 huröir. Málið er í rannsókn hjá Rann- sóknarlögreglu ríkisins. ás

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.