Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Blaðsíða 21
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNl 1984.
6ttir
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
fþróttir
>mark Trausta og
menn f engu stig
jaf ntefli Vals og Fram 1-1 í 1. deild f gærkvöld
blautu grasinu og bann hafnaðl í horni
Fram-marksins.
Fram hafði náö forustu i leiknum
með marki Guðmundar Steinssonar á
51. mín. Eftir fallegt upphlaup fékk
Guðmundur knöttinn við vítateigs-
linuna, spyrnti óvænt og frekar laus
spyma hans lenti neðst í hominu hjá
Stefáni Arnarsyni, markverði Vals.
Maður hafði á tilfinningunni að Stefán
hefði átt aö verja en það var allt annað
en þægilegt að fylgjast vel með leikn-
um.
„Valsliðið er vel spilandi og með
sterka vörn. Jafntefli var nokkuð
sanngjöm úrslit,” sagði Jóhannes
þjálfari ennfremur. Ausandi rigning
var allan timann meðan leikurínn stóð
yfir og gerði það leikmönnum erfltt
fyrir. En það sáust samt ýmsir fallegir
hlutir í leiknum. Margir leiknir
strákar i þessum liöum en rennblautur
völlurinn og rigningin höföu þó oft yf ir-
höndina.
Valur var betra liðið í fyrri hálfleik.
Sverrir Einarsson, miðvörður Fram,
bjargaði á marklínu Fram eftir aðeins
10 mín. skot Hilmars Sighvatssonar.
Þá varði Guðmundur Baldursson gott
skot Hilmars í horn og eitt sinn varði
Guðmundur Þorbjörnsson skot félaga
síns, Guðna Bergssonar, inn á mark-
teig Fram. I hálfleiknum fékk Fram
eitt færi, Guömundur Steinsson komst
frír í gegn eftir mistök Jóhanns Þor-
varðarsonar. Missti knöttinn aðeins
f rá sér og Jóhanni tókst að b jarga.
Fram skoraði svo í byrjun sii. en
Valur Valsson var klaufi að jafna ekki
fyrir Val eftir slæmt úthlaup
Guömundar markvaröar. Skallaði
framhjá opnu markinu. Valsmenn
fengu fleiri færi, Guöni og Hilmar, en
eins og oftast áður í sumar brást skot-
fimin hjá Valsmönnum. Liðin voru
þannig skipuð.
Valar: Stefán Arnarson, Þorgrímur
Þráinsson, Guðmundnr Kjartansson, Jóhann,
Grímur Sæmundsen, örn Guðmundsson,
Bergþór Magnósson, Guómundur Þorbj.,
Valur, Guóni og Hilmar (Antbony Gregory 80.
min). Fram: Guðmundur, Hafþór Sveinjóns-
son, Þorsteinn Þorsteinsson, Sverrir, Trausti,
Bragi Björnsson, Orn Valdimarsson, Guöm.
Steinsson, Guöm. Torfason, Kristinn Jónsson
og Rafn Rafnsson (Viðar Þorkelsson 74.
1 min.). Dómari Magnús Theódórsson.
Maðurleiksins: Sverrir Einarsson, Fram.
-hsim.
Staðaní
1. deild
Áttundu umferð íslandsmótsins, 1.
deild, lauk í gærkvöldi með jafnteflis-
leik Vals og Fram 1-1. Staðan er nú
þannlg.
Akranes 8 6 11 14—4 19
Keflavík 8 4 3 1 7—4 15
Þróttur 8 2 4 2 9—8 10
Víkingur 8 2 4 2 11—12 10
Þór 8 3 1 4 9—11 10
KA 8 2 3 3 11—12 9
Breiðabllk 8 2 3 3 6—7 9
KR 8 2 3 3 8—13 9
Fram 8 2 2 4 9—11 8
Valur 8 1 4 3 5-7 7
Guðmundur Steinsson, Fram, er
markhæstur með fimm mörk. Páil
Olafsson, Þrótti, næstur með f jögur.
hsím.
Stuttgart sleppir Benthaus ekki:
DERWALL
SPARKAÐ
> » . -,V ’ «r
Guðmundur Torfason skallar að marki Vals á grasveilinum að Hliðarenda í gær-
kvöld. DV-mynd: Óskar.
„Jú, það er rétt, Hermann Neu-
berger, formaður þýska knattspyrnu-
sambandsins, hefur talað við mig og
sýnt milrfnn áhuga á að fá Heimut
Benthaus sem næsta landsliðsþjálfara
Vestur-Þýskalands í knattspyrnunni.
En Bentbaus á eitt ár eftir af samningi
sínum við Stuttgart og hann verður að
ljúka honum. Þá tel ég útilokað að
sami þjálfari sé bæði með félagslið og
landslið til loka keppnistimabiisins
1985,” sagði Gerhard Mayer-Vor-
felder, forseti Þýskalandsmelstara
Stuttgart, í viðtali vlð þýsku frétta-
stofuna SID í gær.
Talið er nú fullvíst að Jupp Derwall,
landsliðsþjálfari, segi stöðu sinni
lausri á miðvikudag þó svo tvö ár séu
eftir af samningi hans. Þar kemur til
slök frammistaða þýska liðsins á
Evrópumótinu í Frakklandi en það
verður þó að segjast að Derwall er með
mjög góðan árangur sem landsliðs-
þjálfari. Lið hans var Evrópumeistari
j 1980 — í öðru sæti í heimsmeistara-
keppninni á Spáni 1982. Samt á að
sparka honum.
j Derwall er nú í sumarfríi í Sviss. Fór
þangað til hvíldar eftir að Spánverjar
höfðu slegið Vestur-Þýskaland út í
Frakklandi. Þeir Neuberger og
Egidius Braun, gjaldkeri þýska knatt-
spymusambandsins, hafa kallað
Derwall t*l sín á fund í París í dag þar
sem þeir fylgjast með Evrópukeppn-
inni. Talið er fullvíst að Derwall segi af
sér en á fundinum í París verður rætt
við hann um nýtt starf honum til
handa innan knattspyrnusam-
bandsins.
Mjög óvíst er hver tekur viö af
honum. Neuberger vill brjóta þá reglu
sem lengi hefur verið, að aðstoðar-
landsliðsþjálfarinn taki við starfinu.
Hann telur Horst Ribbeck, núverandi
aðstoðarþjálfara, of ungan og
reynslulítinn. Ribbeck er 36 ára.
Benthaus er efstur á óskalista
Neuberger en Stuttgart gefur hann
ekki lausan meðan hann er samnings-
bundinn við félagið. Þá hefur Dietrich
Weise, sem gerði piltalið Vestur-
Þýskalands að heimsmeistara, verið
nefndur. Hann er núþjálfari Eintracht
Frankfurt, sem bjargaði sér frá falli í
2. deild nú í vor á síðustu stundu. Þá
var rætt um Franz Beckenbauer,
j fyrrum landsliðsfyrirliða, og þann
leikmann sem flesta landsleiki hefur
leikið fyrir Vestur-Þýskaland. Franz
„keisari” hefur hins vegar lýst því yfir
að harni hafi engan áhuga á því að
gerast þjálfari. Hins vegar gæti hann
vel hugsað sér að sjá um stjóm á
vestur-þýska landsliðinu, val og leik-
aöferðir, ef einhver annar annaðist
þjálfunina. -hsim.
Setti upp sólgleraugu og
kastaði spjótinu 93,44 m
— Duncan Atwood, sem sigraði á bandaríska úrtökumótinu, hafði
kastað best 87 metra áður
Spjótkastarinn Duncan Atwood stal
heidur betur senunni sl. þriðjudag á
bandariska úrtökumótinu i frjálsum
íþróttum í Los Angeles. Hann var Iítt
þekktur fyrir keppnina sem spjótkast-
ari en þeytti þar spjótinu 93,44 metra.
Bætti sinn besta árangur um 6,44
metra og skaut öllum þekktustu spjót-
kösturum Bandarikjanna langt aftur
fyrir sig. Fyrir keppnina i Los Angeles
hafði hann kastað lengst 87,00
metra en eftir risakast sltt vantaði
hann aðelns 40 cm upp á að komast i
hóp tiu bestu spjótkastara heims.
Það leit þó allt annað en vel út hjá
Duncan Atwood framan af spjótkasts-
keppninni á þriðjudag. Hann var
meðal þeirra lökustu. Hafði náð best
79,48 m í fjórum fyrstu tilraunum sín-
um.
Kvöldsólin, lágt á himni, hafði haft
talsvert truflandi áhrif á spjótkastar-
ana. Utkastslinan var ekki alltaf
greinileg og siðan vildi spjótið hverfa í
lága sólargeislana. Atwood fann ráð
viö því. Setti upp sólgleraugu í fimmtu
umferðinni og þeytti síðan spjótinu
93,44 m öllum til mikillar furðu og þá
ekki síst honum sjálfum. Þar með
hafði hann tryggt sér sæti í bandaríska
liðinu á ólympiuleikunum. Þaö hafði
hann einnig gert fyrir ólympíuleikana í
Moskvu 1980. Hafði sigrað á úrtöku-
móti Bandaríkjanna en síöan hættu
Bandarikin við þátttöku á Moskvuleik-
unum.
Petranoff annar
Heimsmethaflnn Tom Petranoff náði
sér aidrei verulega á strik á banda-
riska úrtökumótinu. Var þó aldrei í
hættu að komast ekki í ólympíuliðið.
Hins vegar var annar besti spjótkast-
ari Bandarikjanna gegnum árin, Bob
Roggy, sem kastað hefur lengst 95,80
metra, alveg miður sín. Hann varð að-
eins í sjöunda sæti á úrtökumótinu.
Tom Petranoff varð annar i keppn-
inni með 84,94 m. Steve Roller þriðji.
Kastaði 83,00 m og tryggði sér þar með
þátttökurétt á ólympíuleikunum. I
fjórða sæti varð svo Tom Jadwin með
81,96 m. Curt Ransford fimmti með
81,92 m. Jason Bender sjötti með 81,38
m og Roggy kom svo i sjöunda sæti
með 80,42 metra. hsim.
íþróttir
fþróttir
fþróttir
Michelverður
eftirmaður
Michel Hidalgo
— sem landsliðsþjálfari
Frakka
Michel Hidalgo, hinn vinsæli landsliðsþjálf-
arí Frakka, hættir sem landsUðsþjáUari eftir
úrslitaleikinn i París á morgun. Hidalgo, sem
hefur náð frábærum árangri með franska
landsUðið, siðan hann tók við því 1978, ætlaði
upphaflega að hætta eftir HM á Spáni 1982.
: Svo varð ekki þvi að hann varð við ósk franska
knattspyrnusambandsins að sjá um Uðið i tvö
ár tU viðbótar — eða stjórna því í Evrópu-
keppninnl i Frakklandi.
Hidalgo, sem er 51 árs, hefur lengi haft hug
á að taka sér fri frá knattspymu. Sá maður
sem mun taka við franska landsHðinu er aö-
stoðarmaður Hidalgo, Henri Michel, fyrrum
fyrirUðiNantes.
Frakkar Vilja þó ekki aö Hidalgo hætti —
þeir vilja aö hann verði með landsUðið áfram,
eða fram yfir HM i Mexikó.
Ef Frakkar verða Evrópumeistarar á
morgun, er liklegt að Hidalgo hætti á toppn-
um. -SOS
Battiston út
fyrir Amaros?
Það bendlr aUt Ul að það verði Patrick
Battison er verður látinn vikja úr franska Uð-
inu fyrir Manuei Amaros, ef Michel Hldalgo,
þjálfari Frakka, ákveður að Amaros leiki úr-
sUtaieik EM gegn Spánverjuum. — Ef ég tel
það rétt að láta Amaros leika gegn Spán-
verjum mun ég láta hann ieika, sagði Hidalgo,
þcgar hann var spurður um hvort ekld værl
erfitt fyrir Amaros að tryggja sér sæti í
franska landsUðinu eftir að Jean-Francois,
sem tók stöðu Amaros, skoraði tvö mörk fyrir
Frakka gegn Portúgölum.
Ef breyting verður á franska Uðinu telja
franskir knattspyrnusérfræðlngar að
Battlston verði látinn vikja fyrlr Amaros.
-SOS
Reynir að fá
leikmenn hér
Klaus Peter, sem þjálfaði Valsmenn í fyrra-
sumar en var látinn hætta áður en leiktimabU-
inu lauk, er nú staddur hér á landi að lelta að
leikmönnum fyrir þýsk áhugamannafélög og
jafnvel Uð úr 2. deUd Bundeslígunnar. Eftir
leik KR og Keflavikur hafði Klaus samband
við forráðamenn KeflavikurUðslns en ekki er
vitað um leikmenn, sem ábuga hafa á að fara
tíl Þýskalands og leika þar knattspyrnu yfir
vetrarmánuðina — að mlnnsta kosti ekki á
þessustigi. SOS.
Stuttgart keypti
miðherja Belgíu
Frá Kristjáni Bernburg, fréttamanni DV i
Belgiu.
Stuttgart keypti í gær mlðherja belgiska
landsUðsins, Nico Claesen frá Searing, og
grelddi fyrir hann rúmlega eina mflljón
niarka eða rúmar 10 mUljónlr islenskra króna.
Searing er g jaldþrota og ekki hefur tekist að
selja félagið í einu lagi svo það er byrjað að
selja elnstaka lelkmenn. TaUð er að danski
landsUðsmaðurlnn Jörn Berthelsen verði
næstur. Markaðnum innan Belgíu var lokað á
hádeglidag. KB/hsím.
Silfurogtvenn
bronsverðlaun
— á ólympíuleikum
fatlaðra
Sigrún Pétursdóttir hlaut silfurverðlaun í 25
metra baksundi á ólympiuleikum fatlaðra i
New York i gær. Varð önnur af sjö keppend-
um. Hún hefur elnnig hlotið bronsverðlaun í 25
m og 50 m skriðsundi.