Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Blaðsíða 37
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 26. JONI1984.
37
Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið
Kostabod
Þeir sem keyrt
hafa þjóðveg
númer 1 hafa
ábyggilega veitt
þessari verklegu
eldavél athygli,
en hún hefur
staðið við bæinn
Svignaskarð í
Borgarfirði þó
nokkurn tíma.
Það er furðulegt
að vegfar-
endur skuli hafa
getað staðist
þetta freistandi
tilboð því það er
ekki á hverjum
degi sem mönn-
um býðst svona
verklegur gripur,
en einhverra
hluta vegna hefur
hún ekki selst.
Því er ekki
seinna vænna,
vilji menn eign-
astsvonaforláta-
grip, að drífa sig
á staðinn. Eftir
birtingu þessarar
i greinar verður
ábyggilega sleg-
ist um hana.
Vannærður Travolta á yngri ár-
um.
Travolta
horast
Frá því var greint fyrir
skömmu að John Travolta
hefði átt við offituvandamál
að stríða. Ef svo ólíklega vill
til að einhver muni eftir
þeirri frétt þá er orðið tíma-
bært að létta spennunni af
þeim sama því Travolta tókst
að grenna sig og er orðinn
sama horgrindin aftur. Þau
tíðindi hafa einnig borist að í
tilefni af vel heppnuðum
megrunarkúr hafi hann opn-
að heilsukiúbb í Los Angeles.
Aðgangur að þeim klúbbi
kostar aðeins um 200.000
krónur á ári og af því má
draga þá ályktun aö venju-
legir launaþrælar séu þar
óvelkomnir.
íBorgarfíröi
Málshátturdagsins
Flot spillir meyjum, mergur
húsfreyjum og mör karl-
greyjum.
brúðkaupsveisluna. Myndin er tekin í Beirút í
Líbanon og þegar fólk giftir sig þar þá getur það
frekar búist við að fá yfir sig grjótmulning úr nær-
liggjandi húsum en skæðadrífu af hrísgr jónum.
Það hefur hingað til ekki þótt gæfulegt að hjónaband
sé í rústum sjálfan brúðkaupsdaginn en í þessu til-
felli varð ekki hjá því komist. Eins og myndin ber
með sér þá hefur mikið gengið á og er þá ekki átt við
Travolta á efri árum, pattara-
legur og með glerlaus gler-
augu.
Brúðguminn tekst á við ,,hættur
hjónabandsins".
Þaðnýjasta
afNixon
Glæfra-
leg
gifting
20 ti'ma
snyrti-
vinna
Hvort sem menn trúa því eða ekki þó er það staðreynd að bandaríska söng-
konan Diana Ross eyðir bvorki meira né minna en 20 klukkustundum ó viku í
það eitt að snyrta á sér neglumar. Þetta dútl hefur tekið það mikinn tima
stjömunnar frá öðmm aðkallandl störfum að hún hefur róðið til sin mann-
eskju til að sjá um þá hllð mála og mun hún fyigja söngkonunni eftir á tón-
leikaferðum hennar. Ekki fyigdi sögunni hvort tánegluraar féllu undir starf-
Sumt fólk leggur sig í framkróka við
að vekja á sér athygli. Tökum sem
dæmi hjónin Marsha Polekoff og
Radames Pera. Þau tóku upp á því
fyrir skömmu að gifta sig og ákváðu að
það skyldi verða borgaralegt brúð-
kaup. En athöfnin varö langt í frá að
vera látlaus því hún fór fram í flugvél í
tveggja kílómetra hæð yfir Kalifomíu.
Þegar búið var að setja upp hringana
voru flugvéladymar opnaðar og brúð-
hjónin stukku út, í fallhlíf að sjálf-
sögðu.
Skýringin sem þau gáfu á þessu var
álíka gáfuleg og sjólf athöfnin. „At-
höfnin átti að tókna þá hættu er fólk
leggur út í þegar það giftir sig.”
Hvorugt hafði stokkið í fallhlíf fyrr.
Forsetinn fyrrverandi,
Richard Nixon, hefur verið
lítið í fréttum upp á síðkastið.
Þó hafa þau tíðindi spurst að
hann sé að minnka við sig
þessa dagana því stórhýsi
eitt mikið sem hann á í New
Jersey er til sölu. Hús þetta
er 15 herbergja og er sagt að
forláta vínkjallari fylgi, að
vísu án víns. Af föstum fylgi-
hlutum má nefna tennisvöll,
sundlaug og jafnvel einka-
flugvél. Þessi herlegheit
kosta aðeins tæpar 30 milljón-
ir króna.
Tilboö sem hægt er aö hafna, ogþó
Sá undarlegi orðrómur er á kreiki vestanhafs að Catherine
Deneuve, hinni góðkunnu frönsku leikkonu, hafi verið boðið að leika í
Dallasgrínþáttunum sem enn er verið að framleiða. Hlutverk það
sem henni er ætlað er ekki bitastætt frá listrænum sjónarhóli séð, því
henni er ætlað að leika ástkonu Joð Err. Hins vegar eru launin öllu
bitastæðari því henni eiga að hafa verið boðnir 30.000 dollara fyrir
bvern þátt.