Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Page 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNl 1984.
5
; : ;L: : -
Hæstiréttur ómerkti síöastliðinn
fimmtudag sex mánaöa fangelsis-
dóm sem fyrir tveimur árum var
kveöinn upp af sýslumannsemb-
ættinu í Arnessýslu yfir fyrrverandi
sveitarstjóra á Stokkseyri. Hæsti-
réttur vísaði málinu heim í héraö „til
löglegrar meöferðar og dóms-
álagningaraðnýju”.
Sveitarstjórinn hafði í undirrétti
verið fundinn sekur um að hafa
svikiö út olíustyrki með því að gefa
upp fleiri styrkþega í Stokkseyrar-
hreppi en rétt áttu á olíustyrk. Sveit-
arstjórinn var dæmdur fyrir að hafa
svikiö út um 2,7 miUjónir gamaiia
króna á tímabiUnu frá 1975 til 1978.
1 nýfóllnum dómi hæstaréttar
segir:
„Akæröi hefur staðfastlega neitað
að hafa misfarið með fé það, sem
hann er ákærður út af.
f máU þessu eru ýmis vafaatriði
um fjölda þeirra manna, sem áttu
rétt á olíustyrk á þeim tíma er á-
kærði gegndi starfi sveitarstjóra í
Stokkseyrarhreppi, frá 1. júU 1975
þar til í júnibyrjun 1978. Að vísu
Uggur fyrir skýrsla um þetta unnin
af þeim Steingrími Jónssyni og
Einari Svefnbjörnssyni, er tóku við
störfum ákærða á vegum Stokkseyr-
arhrepps. Skýrsla þessi er hvorki
nægilega rækileg og getur heldur
ekki talist unnin af óvilhöllum
mönnum, eins og mannasktpti þessi
urðu á vegum hreppsins og lýst er í
héraðsdómi, og er því ekki fært að
byggja á henni í refsimáU á hendur
ákærða. Þá verður að telja að hina
tölfræðilegu þætti ákæruefnis þessa
hefði átt að rannsaka ítarlega af
óvUhöllum mönnum sérfróðum á
sviöi tölf ræði og endurskoðunar. Þeir
sérfræðingar hefðu átt aö semja
rækilega skýrsíu, þar sem fram
kvæmi ítarlega og í einstökum atriðum,
hvemig háttað var mannfjölda í
Stokkseyrarhreppi á því tímabUi,
sem ákæran tekur tU. Þar þarf
einnig að koma glöggt fram, hve
margir fluttust úr hreppnum og hve
margir í hann, hve margir fæddust
og hve margir létust og hvenær, enda
skipta timamörk, höfuömáli við mat
á, hverjir eigi rétt á olíustyrk sam-
kvæmt þeim reglugerðum, er gUt
hafa á starfstíma ákærða sem sveit-
arstjóra, sbr. 4. grein reglugerða
númer 1974 frá 1974 og númer 219 frá
1977. Ennfremur þarf í þessari
skýrslu að koma fram, hvernig hafi
verið háttað fjölda vistmanna á
Kumbaravogi og dvalartima á
hverjum ársfjórðungi á þessu tíma-
bUi.
Þar sem þess háttar könnun, sem
nú hefur verið lýst, hefur ekki fariö
fram í málinu, teljum við þaö ekki
hafa veriö rannsakað með þeim
hætti, sem nauösyn ber til svo að
unnt sé að leggja efnisdóm á saka-
mál þetta. Þar af Leiðandi er óhjá-
kvæmUegt að ómerkja hinn áfrýjaða
dóm og visa málinu heim i hérað tU
löglegrar meöferðar og dóms-
álagningar að nýju.
Eftir þessum málalokum verður
allur kostnaður sakarinnar lagður á
ríkissjóð, þar með talin mál-
flutningslaun skipaðs verjanda
ákærða, HUmars Ingimundarsónar
hæstaréttarlögmanns, er ákveöst 25
þúsund krónur samtals bæði í héraði
ogfyrirHæstarétti.”
Að þessum dómi stóð meirihluti
réttarins, hæstaréttardómararnir
Guðmundur Jónsson, Magnús
Thoroddsen og Sigurgeir Jónsson.
Dómararnir Björn Sveinbjömsson
og Magnús Þ. Torfason sldluðu sér-
atkvæði. Þeir telja engin rök hníga
tU þess að ómerkja hinn áfrýjaða
dóm vegna óviöhlítandi rannsóknar-
hátta, enda ætti ákærði við efnisdóm
í máUnu að njóta góðs af vafa um
sönnun fyrir ákæruatriðum. 1 sérat-
kvæði sínu tjá þeir Björn og Magnús
sig hins vegar ekki um sekt eða
sýknu ákærða.
Af ákæruvaidsins hálfu sótti málið
Jónatan Sveinsson saksóknarl
-KMU.
Nýtt f élag alif uglabænda:
ÆTLUM AÐ DREIFA
FRAMLEIÐSLU
OKKAR SJÁLFIR
„Við ætlum að standa saman gegn
því stirðnaöa kerfi sem er í kringum
landbúnáöinn og munum nota ÖU tiitæk
ráð tU að losa okkur undan oki þess.
Fyrsta verkefni okkar verður að reyna
að breyta því óréttláta kerfi sem er í
sambandi við kjamfóðursjóð sem
notaður hefur verið fyrst og fremst til
að viðhalda hinum hefðbundnu land-
búnaðargreinum.
Við erum alfarið á móti aUri
miðstýringu á afurðum okkar og
ætlum sjálfir að sjá um að dreifa þeim.
Við höfum ekki þörf fyrir eggja-
dreifingarmiðstöð sem nú þegar hefur
verið sóað í ómældu fé,” segja
stjómarmenn í nýstofnuöu félagi aii-
fuglabænda.
En fyrir nokkm stofriuðu bændur
sem standa aö 20 aUfuglabúum nýtt
félag, sem nefnt hefur verið Félag ali-
fuglabænda. Megintilgangur félagsins
er að gæta sameiginlegra hagsmuna
félaga sinna og vinna að atvinnufrelsi
á sviði aUfugla- og eggjaframleiðslu.
Félagið er öUum opið sem stunda þess-
ar atvinnugreinar.
Eins og flestum er líklega kunnugt
hafa verið nokkuð skiptar skoðanir um
stofnun eggjadreifingarmiðstöðvar og
önnur mál í sambandi við eggjafram-
leiðslu. Miklar deUur hafa staðið á
miUi eggjaframleiðenda innbyrðis og
leiddu þær til þess að stór hópur þeirra
sagði sig úr Sambandi eggjafram-
leiðenda. Það er m.a. þessi hópur sem
stendur að stofnun hins nýja f élags.
Að sögn þeirra er ekki um uppgjör
stóm og smáu framleiðendanna að
ræða, eins og sumir hafa haldiö fram,
því í félaginu eru bæði smáir og stórir
framleiðendur. AUir félagar hafa
sama atkvæðisrétt.
Félagarnir í hinu nýja félagi eiga
það sameiginlegt að vera á móti því
kerfi sem ræður ríkjum í landbúnaðar-
málum hér á landi. Þeir treysta ekki
lengur þeim mönnum er þar sitja við
stjórn til að fara með þeirra mál, enda
hefur stjómin reynt að gera þeim aUt
til bölvunar. Með stofnun eggja-
dreifingarstöðvarinnar er verið að
færa sölumál eggja í sama form og er i
öðrum landbúnaðargreinum. 1 þessa
stöð er þegar búið að sóa miklu fé, sem
verður að lokum greitt af neytendum
í hækkuðu eggjaverði. Um leið verður
ÖU frjáls samkeppni drepin niður og
einokun eggjasölunnar tekur við.
Félagið ætlar að beita áhrifum
sínum tU að aUir aUfugla- og eggja-
framleiðendur njóti sömu réttinda
gagnvart stjómvöldum og hinum
ýmsu sjóðum og stofiiunum í land-
búnaði án tiUits til rekstrarforms eða
þess hvort framleiðsla telst eiga sér
stað á s vonefndu lögbýU eða ekki.
Félagið mun sömuleiöis miðla
upplýsingum til félaga um markaði og
efla þekkingu þeirra á atvinnu-
greininni.
-APH.
Hitaveitan á Suðureyri brann:
..Álög á þessu þorpi”
„Hitaveitan var komin aftur í
gagniö kl. átta á laugardags-
kvöldið og nú eru öU hús hér orðin hlý
aftur,” sagöi Guðjón Jónsson,
slökkviUðsstjóri á Suöureyri við Súg-
andafjörð- i gær um brunann í hita-
veitu Suðureyrar síðastUðið
fimmtudagskvöld.
Brunmn i hitaveitunni hafði það í
för með sér að þorpið varð hita-
veitulaust. Mjög hráslagalegt varð
þvi í húsunum, sérstaklega er sólar
nautekkivið.
„Ég held svei mér þá að það séu
álög á þessu þorpi,” sagði einn íbúi
Suðureyrar í samtaU við DV iaust
eftir miðnættiö á fimmtudagskvöld,
greinilega óhress meðgang mála.
Slökkvibíll flugvallarins á
Suðureyri var notaður við
slökkvistarfið. Það hófst fljótlega
eftir að eldurinn kom upp. Ástæðan
var sú að kona í sumarbústað varð
eldsins vör og lét strax vita.
Hitaveitan er um 4 kUómetra inn
af Suðureyri. Eldsupptök eru talin
frá neistaflugi, sem varð, er
öxultenging bilaði. -JGH.
Stjórn Fó/ags alifuglabænda. I fremríröð til vinstri: Einar Eiríksson formaður Miklaholtshelli, Ingimundur
Bergmann Vatnsenda, Sigurður Sigurðsson Nesbúi, Bjami Ásgeir Jónsson Reykjahtið, Jón Jóhannsson
Ásmundarstöðum og t.d. aftarí röð Geir Gunnar Geirsson Valló, og Guðmundur Kolbeinn Finnbogason
Hjalla.
DV-myndBj. Bi.
TAKIÐ EFTIR
Höfum tekið að
okkur sölu á ofnum
fyrir PANELOFNA hf.r
Kópavogi.
Gerum tilboð samkvæmt
teikningum yður að
kostnaðarlausu.
Sími sölumanns er 28693.
Einstakir greiðsluskilmálar á öllum byggingarvörum.
Allt niður i 20% útborgun og lánstími allt að sex f
mánuðum.
D
□I
PMfflMl Hf.
BYGGlMGflVORURl
Byggingpvörur. 28—600 Harðviðarsala. 28-604 Sölustjóri. 28-693
Gólfteppi.28-603 Málningarvörur og verkfæri. 28 - 605 Skrifstofa. 28-620
Flísar- og hreinlætistæki. . . 28-430
HRINGBRAUT 120 (Aökeyrsla frá Sólvallagötu)