Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Síða 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. JUNI1984. Bretland: Slagsmál í konungshöll Lögregluþjónar voru sendir til Windsor kastala, eins bústaöa bresku konungsfjölskyldunnar, til þess að rannsaka slagsmál sem urðu milli tveggja starfsmanna á föstudag. Annar þeirra liggur nú á spítala vegna meiösla sem hann hlaut i átökunum. Samkvæmt frásögnum breskra blaða kom til slagsmálanna í herbergi eigi allfjarri sal þar sem breska konungsfjölskyldan var saman komin að halda upp á góðan árangur Ed- wards prins í prófum í Oxford háskóla. Þar var Elísabet drottning í forsæti. Lögregluþjónar frá Scotland Yard rannsökuöu tildrög slagsmálanna en enginn hefur verið handtekinn. Elísabet Bretadrottning virðist hafa verið óheppin með þjóna. Útlönd írak: Kúrdarræna ferðamönnum Kúrdískir skæruliðar í Irak hafa tekið tvo ferðamenn höndum og halda þeim nú í gíslingu í mótmælaskyni við kúgun íraskra stjórnvalda á þjóðernisminni- hlutahópi Kúrda. Ferðamennimir voru Austurríkisbúinn Peter Stakner og Þjóðverjinn Klaus Ecker en skæru- liðar handtóku þá 15. júní. I yfirlýsingu sem skæruliðar sendu austurrísku f réttastofunni APA mót- mæla Kúrdar meðferð stjómarinnar í Bagdad á sér. Austurríska utanríkis- ráðuneytið hefur staðfest að Austur- ríkisbúa hefði verið rænt og að ráðuneytið væri nú að reyna að f á hann látinn lausan. Kanada: ERTUMEÐ ATVINNUREKSTUR? ÞÁ ÞARFT ÞÚ AÐ SETJA NIÐUR FYRJR1JÚÚ UPPSKERAN VERÐUR RÍKULEG FYRSTA JAKÝRIN FÆÐIST Fyrsta „jakýrin” fæddist nýlega og óvart í kanadískum dýragarði.. „Jakýr” er blendingur af jakuxa og nautgrip af skosku hálandakyni. Aödragandi málsins er sá aö gamalt naut, ættað úr skosku hálöndunum, fékk aö ganga laust, enda taliö sauð- meinlaust og að auki talið getulaust fyrir elli sakir. Boli ráfaði þá inn í byggingu þar sem jak-uxar voru geymdir og komst þar að kú sem var til i tuskið. Meögöngutíminn var tæpt ár, eins og tíðkast meðal jak-uxa. Nú nýlega fæddist síðan „jakýrin” og var skírð Rósa. Hún er loðin og hárið rauðleitt og svipar þannig til föður síns. Þá baular hún en jak-uxar, að sögn sérfræðinga, frýsa yfirleitt en baula ekki. Skv. lögum frá Alþingi frá 29. mars sl. geta fyrirtæki og einstaklingar sem hafa tekjur af atvinnurekstri dregið 40% frá skattgjaldstekj- um til að leggja í fjárfestingarsjóð. Sé það gert fyrir 1. júlí nk. lækka skattar af tekjum á árinu 1983. Skylt er að leggja helming tillagsins inn á sérstakan bankareikning. Útvegsbankinn er reiðubúinn til að taka við greiðslum inn á slíkan reikning og greiðir hæstu vexti sem í boði eru á þessu sviði. Ráðgjafinn í Útvegsbankanum segir þér hvernig þú undirbýrð jarðveginn og setur niður. Uppskeran lætur svo ekki á sér standa. Spyrðu eftir Ráðgjafanum á næsta afgreiðslustað bankans. ÚTVEGSBANKINN BNN BANKI • ÖU WÓHUÍTA Eigandi dýragarðsins Alan Connel heldur að Rósa sé eina „jakýrin” í heiminum. ifÐUofflihÖ fcöirÁiii W-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.