Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Qupperneq 19
.tm ívtö L.3S HunAautaiHfi. va
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. JUNl 1984.
Vargurinn við Mývatn óvenju ágengur:
Bitmýið kom
aftur en þá
fór rykmýið
Bitmýiö viö Mývatn er nú aftur í
essinu sínu eftir að hafa litiö látiö á
sér kræla siðustu árin. Hafa sumir
Mývetningar kvartað yfir aö vargur-
inn sé óvenju ágengur viö menn og
skepnur.
Gísli Már Gíslason, dósent í vatna-
líffræði viö Háskóla Islands, hefur
stundaö víðtækar rannsóknir á mý-
inu. Hánn sagði í samtali við DV
aö ólíklegt væri aö vargurinn væri
nokkuö aögangsharðari en einu sinni
hefði verið. Líklegri skýring væri aö
menn væru famir aö ryðga í hvemig
hann var fyrir 1978 þegar bit-
mýsstofninn í Laxá hrundi. Hrunið
stafaöi af minni þörungafram-
leiöslu í Mývatni en lirfur bitmýsins
biða á botninum i Laxá og veiða agn-
ir sem fara framhjá. Þessar agnir
minnkuðu um helming og þar með
fæða bitmýsins líka.
Afleiðing þessa hefur verið sú,
sagði Gísli Már, að bændur við Mý-
vatn hafa orðið lítið varir við varg
síöustu ár. Stofninn fór að rétta við
áriö 1982 og lirfustofninn í Laxá er nú
oröinn svipaður og hann var 1977.
Fyrstu vikuna í júní hefur verið að
klekjast vorganga bitmýsins og
sagði Gísli Már að í efri hluta Laxár
ætti allt mý að vera flogið upp. Senni-
lega væri þetta mý að verpa nú í ann-
aö skipti fyrst þaö sækti svona á fólk
og fénað. Vargurinn þurfi að sjúga
blóö tilaöfá orku tO að verpa í annaö
skipti. Bjóst hann við að þessi ganga
yrði farin eftir nokkra daga. Þá komi
nýjar lirfur aftur i ána og fari að
fljúga í ágúst.
1 Laxárdal gerist þetta allt seinna
og kemur ein stór ganga sem Gísli
Már bjóst við að færi að fljúga eftir
nokkra daga.
Hrun bitmýsins 1978 hafði mikil
áhrif á dýralíf á Mývatni. Afkoma
straumandar varð til dæmis mjög
slæm og húsandarstofninn minnkaöi.
Húsöndin hrökklaðist þá reyndar af
Laxá og upp á Mývatn. Hjá báðum
þessum andartegundum varð betri
afkoma í fyrra þegar bitmýið kom
aftur og húsöndin flutti til baka á
Laxá.
Rykmýið fór
I fyrra hrundi stofn rykmýsins við
Mývatn og kunna vísindamenn ekki
ennþá skýringar á þvi, sagði Gísli
Már. Rykmýiö er samnefni yfir
margar tegundir af tvívængja flug-
um sem lifa í vatni. Vargurinn eða
bitmýið er líka tvívængja tegund en
af annarri ætt. Hér á landi eru f jórar
tegundir bitmýs en sú sem er í Laxá
er sú eina sem bítur spendýr. Ryk-
mýið lætur nægja að troða sér inn í
augu, eyru, nef og munn, sem getur
verið nógu slæmt eins og margir
þekkja.
Þau árin sem bitmýið vantaði í ána
var uppgangur á rykmýi í Mývatni
Gisfí Már Gíslason: Ófíklegt að vargurinn sé nokkuð aðgangsharðari...
DV-mynd AS.
en í fyrra hvarf rykmýið svo að
miklu leyti, eins og áður sagði. Gísli
Már taldi þó að ekki væru tengsl þar
á milli. Senniiega hefði vantað fæð-
una fyrir rykmýið en nú stæðu yfir
rannsóknir á þessu.
Gera má ráð fyrir að endurkoma
bitmýsins muni hafa góð áhrif á
urriðastofninn í Laxá, að sögn Gísla
Más. Það ætti að koma fram eftir 2—
3 ár. I Laxá er bitmýið ríkjandi skor-
dýrategund og framleiðsla þess talin
vera um eitt kíló á hvem fermetra í
ánni. Af rykmýi eru hins vegar að-
eins framleidd um 200 grömm. I Mý-
vatni er rykmýið hins vegar ríkjandi
og mikilvæg fæða fyrir silung og alla
andarunga. Það segir sig því sjálft,
sagði Gísli Már, að þegar það bregst
hefur þaö mikil áhrif. Það komast fá-
ir ungar upp, öndum hefur fækkað
mikið á vatninu og bleikjuveiði á
vatninu er sáralítil. Rannsóknimar
núna beinast aö þvi hvað stjórnar
rykmýsstofninum og hvað mýið
étur. Þær rannsóknir er flóknar og
tímafrekar. En við þær eru bundnar
vonir um að hægt verði að skýra til
hlítar þátt rykmýsins í h'friki Mý-
vatns. JBH/Akureyri
TÆKJALEIGA
Fossháls 27 - sími 687160
Vibratorar
Gólfslípivélar
Jaróvogsþjöppur
Hæðarmælar
Háþrýstiþvottatæki
Vatnsdælur
Rafmagnsheflar
Handfræsarar
Stingsagir
Vmkilskifur
Pússibeltavélar
Pússijuðarar
Nagarar
Hjólsagir
Borðsagir
Bútsagir
Loftpressur
Naglabyssur
Heftibyssur
Reigvélar
Höggborvélar
Vinnupallar
Stigar
Tröppur
Álbúkkar
Opið virka daga
kl. 7.30-18.00,
laugardaga kl. 7.30-12.00.
VÉLA-
og
PALLALEIGAN.
Kgntucky
Fried
Cbicken.
OPNUMIDAG
á nýjum stað í Hafnarfirði,
á horni Hjallahrauns og Reykjanesbrautar
(Keflavíkurvegurinn), einn glæsilegasta
skyndibitastað sem þekkist hér á landi og þó
viðar væri leitað.
Þið getið setið inni í rólegheitum og snætt
okkar gómsætu kjúklinga
eða ekið upp að og fengið
kjúklingana, gosið
og franskar beint í bílinn.
Komið og sjáið,
sjón er sögu ríkari.
KJÚKLINGASTAÐURINN
HORNI HJALLAHRAUNS
OG REYKJANESBRAUTAR
HAFNARFIRÐI - SÍMI50828
Áður Reykjavíkurvegi 72,
Hafnarfirði.
NÆG
BÍLASTÆÐI