Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1984, Page 35
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNl 1984. 35 Bindindisfélag ökumanna og DV héldu keppni í ökuleikni á Hellu að kvöldi mánudagsins 18. júní. Keppendur voru átta talsins og þar af 2 úr kvennariðli. Keppt var við Grillskálann á Hellu. Sigurvegarinn í karlariðli náði mjög góðum árangri í keppninni. Það þykir gott að fara niður fyrir 200 refsistig og enn betra ef farið er niður fyrir 150 refsistig. En sigurvegaranum tókst það. Hann var með 131 refsistig og er það næstbesti árangur yfir landið eins og er. Þessi keppandi er Garðar Olafsson og ók hann Broncojeppa. I öðru sæti í karlariðli var Grétar Olafsson, einnig á Bronco, hann fékk 195 refsistig. Tveir keppendur skildu jafnir í 3.-4. sæti með 199 refsistig og voru það Kristinn Bergsson og Sigurjón Eiríksson. Urðu þeir að keppa aftur um 3. sætið og vegnaði Kristni betur og hafnaði hann því í 3. sæti. Hann ók á Chevrolet Blazer jeppa. 1 kvennariðli sigraði systir Kristins, Sigríður Bergs- dóttir með 230 refsistig. önnur varð systir hennar, Eygló, með 251 refsistig. Þær óku báðar sama bílnum, sem er Mazda 323. Gef- andi verðlauna á Hellu var Búnað- arbankinn á Hellu. EG OKU' LEIKM ÖKULEIKNIN A HÖFN: GÓDUR ÁRANGUR í KVENNARIÐU Hér sést Erla Guðrún Einarsdóttir fara gegnum þrautaplanið. Hún hefur náð besta árangri í kvennariðli á þrautaplaninu, er aðeins með 20 refsistig eða 2 villur. Sæmileg þátttaka var í öku- leikni Bindindisfélagas ökumanna og DV á Höfn þriðjudagskvöldið 19. júní. Keppendur voru 14 tals- ins, þar af kepptu 5 á vélhjólum og 9 á bílum. Tveir keppendur náðu niður fyrir 200 refsistig. Sigurvegarinn í karlariðli, Ragnar Pétursson, ók Daihatsu Charade og fékk 186 refsistig. Annar varð Bjami Sævar Gestsson á Sapporo með 193 refsistig. 13. sæti varð Gunnar Pálmi Pétursson á Saab 99 með 207 refsistig. Fjórir keppendur voru í kvenna- riðli og virðist þátttaka kvenna fara vaxandi, enda keppnin ekki síður ætluð konum en körlum. Sigurvegari í kvennariðli var Heiða Jónsdóttir á Saab 99 með 312 refsistig og önnur varð Sonja Ásbjömsdóttir á Volkswagen 1300 með 377 refsistig. 1 þriðja sæti varð Gunnhildur Baldvinsdóttir á Land-Rover jeppa með 410 refsi- stig. Fjórði keppandinn í kvenna- riðli náði besta árangri hingað til út úr þrautaplaninu í kvennariðli. Það var Erla Guðrún Einars- dóttir. Hún ók Volvo 244 og gerði aðeins 2 villur. En hún áttaði sig ekki á að tekinn er tími í brautinni og féll á því. 1 vélhjólakeppninni varð efstur Ragnar Pétursson, sá hinn sami og sigraði á bílunum. Hann fékk 235 refsistig. Annar varð Gunnar Pálmi Pétursson með 327 refsi- stig. Hann ók á Suzuki TS 50. Davíð Sveinsson lenti í þriðja sæti með 345 refsistig. Hann ók á sama hjóli og Ragnar. Vélhjólakeppnin er nokkurs konar torfærukeppni og eru ýmsar þrautir settar í brautina er reyna á hæfni og leikni ökumanns. Gefandi verðlauna á Höfn var Vélsmiðja Homafjarðar. EG KJARAKAUP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.