Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Síða 4
„Buddan tæmdist
jaf nf Ijótt hér
heima og í Noregi”
— segir blakmaðurinn og þjálf arinn
Guðmundur E. Pálsson, Þrótti
„Ástæöan fyrir því að ég er nú aö
vinna í málningarvinnu er einfaldlega
sú aö kennaralaun eru nokkuð sem
ekki er hægt að lifa af í dag,” sagöi
blakmaöurinn Guðmundur E. Pálsson
í samtali viö DV í vikunni en hann er
viðmælandi okkar í dag.
Guömundur er búinn aö vera kunnur
íþróttamaöur í mörg ár og um árabil
hefur hann staöiö einna fremstur blak-
manna okkar. Ávallt veriö mjög
traustur leikmaöur og mikið hefur
hann gert af því aö þjálfa. Guðmundur
er læröur íþróttakennari og málari og
þegar við ræddum við hann var hann
önnum kafinn á gjaldkeraskrifstofum
Háskóla Islands.
„Eg er svo aö segja ákveðinn í að
hætta í kennslunni. Þetta gengur ekki
lengur. Ég hef miklu meira upp úr því
aö mála. Faöir minn er Páll
Guðmundsson og hann er málara-
meistari. Ég vinn hjá honum.”
Málar rósir á ýmislegt
Ég hef gert dálítið aö því aö mála
rósir á hitt og þetta, til dæmis platta,
bakka eöa kistur. Þetta er mjög
skemmtilegt og krefst mikillar
nákvæmni. Ég lærði þetta svolítiö í
Iðnskólanum og svo þegar ég dvaldist í
Noregi fór ég á námskeið og hafði mjög
gott af því. Nei, nei, ég sel ekkert af
þessu. Ég geri bara fyrir sjálfan mig
DV. LAUGARDAGUR 7. JULl 1984.
■
Guðmundur E. Pálsson ásamt eiginkonu sinni, Sigrúnu Erlu Hákonardóttur, og sonum, Páli Liljar, lOára,
og Ólafi Heimi, 8 ára.
*>
*
og gef þetta stundum mínum
nánustu.”
„ Vildum prófa
eitthvað nýtt"
Segöu okkur eitthvaö meira frá
þessari Noregsferö?
,,Ég fór til Noregs.meö fjölskylduna
fyrir um þaö bil tveimur áriun og viö
vorum ytra í eitt og hálft ár. Okkur
langaöi til aö prófa eitthvaö nýtt og ég
fékk vinnu viö málun í Noregi. Við
kynntumst mörgu góöu fólki, lærðum
málið, sem er mjög líkt íslenskunni, og
ég held að strákarnir okkar hafi haft
sérstaklega gott af þessu. Þeir tala
báðir norsku eins og innfæddir. Einnig
var þessi utanferö okkar ákjósanlegt
tækifæri fyrir mig aö kynnast fjöl-
skyldunjii. Þaö fer mikill tími i
íþróttirriar og maður hefur ekki tíma
handa fjölskyldunni sem skyldi.”
Hvernig var að lifa í Noregi? Var
dýrtíðin meiri þar en hér?
„Nei, hún var ekki meiri. Mjög
svipuð, held ég. Vöruverö var yfirleitt
svipað en þó voru einstaka vörur
ódýrari en hér á landi. Buddan
tæmdist alltaf í Noregi þegar líða tók
að mánaöamótunum eins og hér. Það
var ekkert ööruvísi. ”
Af hverju varð Noregur fyrir valinu?
„Aðalástæðan var sú aö ég fékk
vinnu í Noregi. Ef ég hefði ekki fengið
vinnu þar heföi ég þess vegna getað
valið eitthvert allt annaö land.”
Þú talaöir um það í upphafi að
kennaralaunin væru lág. Hvemig
hafðir þú efni á að flytja til annars
lands meö alla f jölskylduna?
„Auðveldara en
margur heldur"
„Viö byrjuðum á því að selja bílinn.
Meö því sem fyrir hann fékkst gátum
Matstofa NLFÍ
<L?<L?'r
Bezt er að hafa sem flestar kokkahúfur og fæstar krónur
Bmgðbetri
jurtafæða
Austræn áhrif
Matstofur náttúrulækningamanna
á Vesturlöndum hafa batnað mikið í
kjölfar áhrifa frá austrænni mat-
reiöslu, einkum indverskri. Á þeim
slóöum hefur fólk öldum saman not-
að grænmeti og ávexti sem grund-
vallarfæðu og lítt eöa alls ekki notazt
viö fæðu úr dýraríkinu. Þaö á því á
þessu sviði eldri og traustari mat-
reiösluheföir en Vesturlandabúar.
Slik áhrif eru að koma í ljós í Mat-
stofu Náttúrulækningafélags Islands
á homi Laugavegs og Klapparstígs.
Á kvöldin er kominn þar í notkun
matseðill með ýmsum réttum, flest-
um austrænum. Þar má sjá kín-
verska Wun Tun súpu og Tofu og jap-
anska Miso súpu. Raunar má segja,
aö á kvöldin sé Matstofa NLFI orðin
austrænni en hinn hálf-vestræni
Dreki handan götunnar.
TQ skamms tíma var nytjastefna
alls ráöandi í matstofum náttúru-
lækningamanna. Þá var eingöngu
hugsaö um næringargildi og annað
slíkt, en lítil áherzla lögð á lystugt út-
lit matarins og bragðgæði hans eða
þá á aölaðandi umhverfi máltíðar-
innar. Hvort tveggja hefur breytzt í
Matstofu NLFl, sem þar með hefur
sótt inn á hinn almenna veitinga-
húsamarkað.
Raunar er Matstofa NLFI enn
sjálfsafgreiðslustaður og er þannig
strangt tekið ekki innan ramma
þessa greinaflokks um íslensk veit-
ingahús. En starfsfólk er farið að
freistast til að bera aðalrétti á borð
fyrir gesti. Mikilvægara er þó, að
matstofan er ekki meira af sama,
eins og flest nýstofnuð veitingahús
eru, heldur öðruvísi staður, sem
víkkar svigrúm íslenzkrar matar-
gerðariistar. Þess vegna er matstof-
an tekin með hér.
Eins og skurðstofa
Salurinn á annarri hæð hússins er
kaldur og nánast skurðstofulegur,
þótt innbúið sé nýtt og betra. Allt er
haft í ljósu. Hvítt er loftið, veggirnir
neðanverðir og viðamiklir glugga-
karmamir. Ljósbláir eru veggimir
ofanverðir. Og ljós furulitur er í gólfi
og húsbúnaði.
Furuparketiö á gólfinu glansar af
hreinlæti eins og raunar salurinn í
heild. Við hringlaga borð úr massífri
furu eru 35 nettir stólar úr sveigðum
krossviði. I gluggum eru pottablóm,
en að öðru leyti er horfið fyrra
blómaskrúð. I heild er andrúmsloftið
fremur heilsuverndarlegt en nota-
legt.
Eina frávikið frá lystugu útliti
matarins I Matstofu NLFI reyndist
vera heilhveiti-snittubrauðið, sem
var bæði gamalt að sjá og á bragöið.
Vonandi er þar ekki um að ræða
sömu sérvizkuna og á sjúkrahúsun-
um, þar sem brauð er af hollustu-
ástæðum geymt í sólarhring fyrir
notkun. Ég hef alltaf talið hina raun-
verulegu ástæðu vera óbeit sjúkra-
húsa á sjúklingum, hina sömu
óbeit og lýsir sér í skjannahvítum
sjúkrastofum.
Sveppasúpa Matstofu NLFI var
ekki merkilegur matur, enda var
hveitibragðið of áberandi, eins og í,
sumum öðrum réttum staðarins. Ef
ekki er tími til að losna við hveiti-
bragöið, er betra aö hafa súpurnar
tærar.
Wanton-súpa var sterk, dökkbrún
súpa með hveitinúðlupokum, ágætis
súpa, gott dæmi um, að matur
náttúrulækningamanna getur verið
eins lystugur og hver annar vel
heppnaðurmatur.
Japanska Miso súpan var hins veg-
ar dauf og lítt áhugaverð súpa með
baunafroöuhlaupi og ýmsu græn-
meti. Hana hefði mátt krydda meira
og betur.
Pottréttir í karrísósu
Bezti aðalréttur prófunarinnar var
bananakarrí-pottréttur. Hann var
borinn fram með karríhrísgrjónum,
bakaöri kartöflu, röspuðum gulrót-
um, tómötum og alfa-alfa spírum á
sérstökum hliðardiski. Á hinum
diskinum var mikið af bananasneið-
um með papriku og annars konar
grænmeti í miklu magni af mildri
karrísósu, sem ekki haföi alveg losn-
að við hveitibragðið. En þetta var
eigi aö síöur hinn lystugasti matur.
Sveppa- og bauna-karrípottréttin-
um fylgdi sams konar meðlæti á
hliðardiski. Sveppirnir virtust því
miður vera úr dós, en baunirnar voru
ágætar. Karrísósan var nokkru
sterkari en hin, sem var í banana-
réttinum.
Kínverska eggjarúllan var þunn
og stökk og góð, meö baunakássu
innan í. HliðaiTéttirnir voru hinir
sömu, en ekki á sérstökum diski.
Með rúllunni var mild og sæt tómat-
sósa í sérstakri skál.
Kínverskur Tofuréttur fólst í
soyabaunafroöuhlaupi á eins konar
tortilla-brauðbotni með áðurnefnd-
um grænmetis-hliðarréttum. Þetta
var skemmtilegur réttur, gersam-
lega ólíkur því, sem fæst í öðrum
veitingahúsum.
Ljómandi eftirréttir
Eftirréttir Matstofu NLFI ljómuöu
í prófuninni, bæði bakaðir bananar
með döðlum, möndlum og rjóma, svo
og kiwi með eplum, vínberjum og
kókosmjöli. Svo óvenjulegir eöa betri
eftirréttir fást ekki annars staðar í
bænum.
I hádeginu er gamla formið áfram
við lýði. Þá er á boðstólum réttur
dagsins á 160 krónur eða súpa á 140
krónur, hvort tveggja með aðgangi
að salat- og brauðbar.
Á kvöldin er miðjuverð á súpum 90
krónur, aöalréttum 150 krónur og
eftirréttum 85 krónur. Jurtate kostar
20 krónur og íslenzkt grasate 30 krón-
ur. Súpa og aöalréttur kosta að
meðaltali 240 krónur. Matstofa NLFI
er því í ódýrasta flokki íslenzkra
veitingahúsa, en er þó á kvöldin held-
ur dýrari en Laugaás, Potturinn &
pannan, Veitingahöllin og Drekinn.
Matstofan er komin á rétta braut.
Hún er að vísu ekki orðin að matar-
gerðarmusteri eins og sumar slíkar
erlendis, sem hafa sýnt fram á, að
náttúrulækningafæða getur í bragð-
gæðum keppt við hvaða aðra vel
matreidda fæðu sem er. En hún hef-
ur komizt áleiðis á þessu ári.
En mér fannst þetta vera hvítt
hveiti, en ekki heilhveiti. Er þaö
samkvæmt reglunum?
Jónas Kristjánsson.
....... ., ,■ ■■ .1 ÚI 1,1 i.,,-; .. •