Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Qupperneq 8
Kristinn Björgvinsson framkvæmda- stjóri Nota Kristinsnafnið afogtil — Eg nota þetta millinafn mitt af og til, til dæmis þegar ég þarf aö gefa upp fullt nafn og einnig stundum þegar ég skrifa eitthvað, segir Sighvatur Krist- inn Björgvinsson, framkvæmdastjóri Norræna félagsins og fyrrverandi al- þingismaður. Sighvatur segir að ástæðan fyrir því að hann noti miliinafniö litið sé sú aö fyrra nafn hans sé það langt að óþarfi sé að bæta öðru jafnlöngu viö. Hann segist ekki hafa notaö Kristinsnafnið meira þegar hann 'var yngri en þegar hann hafi notað það hafi hann oft skammstafað það Kr. MiUinafnið segir Sighvatur aö sé til- komiö á þann veg að hann sé skírður í höfuöiö á föðurafa og -ömmu sinni sem hétu Sighvatur og Kristjana, en hjá þeim dvaldist hann mikið sem barn ogungUngur. Hilmar Bergmann ritstjóri Hættiaðnota millinafnið íMoskvu — Ég notaöi HUmarsnafnið mjög lengi en hætti að nota það er ég var við nám í Moskvu. Það var nefnilega nógu erfitt aö kenna Rússunum að segja Árni svo ég bætti ekki öðru nafni við, segir Ámi HUmar Bergmann, ritstjóri Þjóðviljans. Hilmarsnafnið er þannig tilkomið að amma Áma hét Bjamhildur og er nafnið leitt af því. Árnanafnið er hins vegar komið frá afa Áma. Ámi segist oft hafa hugsað um að taka HUmarsnafnið upp aftur en af því hafiekki orðiðenn. — Ég hef hálfpartinn samviskubit gagnvart ömmu minni út af þessu en hún var hin besta kona, segir Ámi og bætir þvi viö aö ekki sé öll nótt úti enn. Guðbjörg Þórisdóttir leikkona Snemma byrjað að kalla mig Lilju — Ég veit ekki hvort það eru neinar sérstakar ástæður fyrir því að ég nota Guðbjargamafnið ekki, það var bara byrjað að kalla mig LUju þegar ég var litil og því hefur verið haldið áfram, segir Guðbjörg Lilja Þórisdóttir leik- kona. Einu skiptin sem Guöbjargarnafnið er notað er á opinberum plöggum og finnst Lilju óþægilegt að hafa þetta nafn fyrir framan en nafnnúmerið ræöur því að svo er. — Svo getur þetta veriö pirrandi stöku sinnum þegar ég gleymi því að ég heiti Guðbjörg og er svo köiluð upp undir því nafni og fatta ekki neitt, segir Lilja. Guðbjargarnafnið er komið frá ömmu Lilju sem hét líka Guðbjörg LUja og það sem meira er, hún var einnig köUuð LUja aöaöalnafni. — Ætli það hafi ekki haft áhrif í þá áttina aö ég var snemma bara köUuö LUja, segir LUja. Marteinn Guðmundsson rithöfundur Gatekkinotað miHinafnið af hlédrægni — Það er þannig, sjáðu, að ég er skírður Marteinsnafninu í höfuðið á Marteini Maulinberg, fyrrum kaþólsk- um biskupi í Landakoti. Sjálfur gekk ég í Landakotsskólann og var svo hlé- drægur aö ég gat ekki notaö biskups- nafnið í skólanum, segir Jónas Mar- teinn Guömundsson stýrimaður, rit- höfundur og Ustmálari. — Mér fannst það svipað og að taka biskupsvigslu aö fara að nota þetta nafn i skólanum, bætir hann við. Marteinsnafnið hefur Jónas því aldrei notað og hefur ekki í hyggju að geraþaö. ÐV. LAUGARDAGÚR7. JULri984. Gunnsteinn Snævarr hæstarétt- ardómari Myndaðist venja um millinafnið — Þegar ég var drengur austur á Norðfirði myndaðist einhvern veginn sú venja að ég var bara kallaður Ár- mannsnafninu, segir Gunnsteinn Ár- mann Snævarr, hæstaréttardómari og fyrrverandi háskólarektor. Ármann telur að það hafi helst verið félagar hans fyrir austan sem hafi komið þessari venju á. — Einu skiptin sem ég man eftir að hafa veriö kaUaöur báöum nöfnunum var þegar veriö var að finna að við mig heima hjá mér, segir Armann og hlær. Gunnsteinsnafnið er þannig tilkom- ið að bróðir Armanns hét þessu nafni, en hann dó 12 ára gamall, árið áður en Armann fæddist. Armannsnafnið er aftur á móti draumnafn. Georg Friðriksson alþingismaður Aldrei notað Georgsnafnið — Ég hef aldrei notað Georgsnafnið nema þar sem ég hef nauðsynlega þurft að gera það, segir Georg Helgi Seljan Friðriksson alþingismaður. — Ástæðumar fyrir því eru eðUleg- ar, ég hef aldrei verið kaUaöur þessu nafni og mér finnst þetta eins og hvert annaö aukanafn þarna fyrir framan. Um föðurnafn sitt segir Helgi að það hafi hann fellt niður sem strákur. — Eg er alinn upp annars staöar og tók þetta Seljansnafn upp eftir jörðinni sem fósturforeldrar mínir bjuggu á. Ég lét svo skýra mig Seljansnafninu þegar ég fermdist og það hefur síðan þróast þannig að ég hef notað það ein- göngu,segir Helgi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.