Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Side 9
DVj LAUGARÐtAQUR 7. 'JOLl'1984. •9 Gunnlaugur Olafsson leikari Var kallaður Flosi Gulli sem krakki — Þaö eru engar sérstakar ástæður fyrir því aö ég nota Gunnlaugsnafnið ekki, ég notaði það lengi og mig minnir aö ég hafi verið kallaður Flosi Gulli þegar ég var krakki, segir Flosi Gunn- laugur Olafsson leikari. — Gunnlaugur er annars ágætis nafn en líklegast hefur mér fundist það of langt og því hætt að nota þaö. Ég held aö ég hafi hætt að nota þaö einhvem tímann í skóla. Flosi segir að Gunnlaugsnafnið sé þannig tilkomið að móður sína hafi dreymt mann sem var að læra til prests og hét Gunnlaugur og dó skömmu áður en skíra átti Flosa. Lárus Gests hljómplötuútgefandi Tvö nöfn tíðkuðust ekki þá — Það eru í mesta lagi 10—15 ár síð- an fólk sem heitir tveimur nöfnum fór að nota bæði nöfnin, sú er ástæðan fyr- ir því að ég nota ekki Lárusamafn mitt, segir Svavar Lárus Gests hljóm- plötuútgefandi. — Ef farið er í árgangana sem eru 35—40 ára og eldri er viðburður að finna fólk sem notar tvö nöfn. Lárusarnafn Svavars var því aldrei notaö, hvorki fyrr né síðar. Nafnið er annars tilkomið úr fjölskyldu Svavars sem og Svavarsnafniö. Klemenz Sophusson alþingismaður Notaði millinafnið fram undir tvítugt — Eg notaöi þetta millinafn mitt al- veg framundir tvítugt og skammstaf- aði þaö þá oft Kl. Það hefur síðan falliö niður hjá mér í seinni tíð án þess að nokkrar sérstakar ástæður liggi þar að baki, segir Friörik Klemenz Sophus- son, alþingismaöur og varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Friðrik segir að nafniö Klemenz sé þannig tilkomið að langafi hans í móö- urætt hafi heitið Klemenz og hafi hann verið skíröur í höfuðiö á honum. Friðriksnafnið sé hins vegar komið frá iangalangafanum. Aðspurður kveðst Friörik vera eini maðurinn í sinni ætt sem beri Klem- enzar nafnið og sé það greinilega á und- anhaldi. Kevin Bacon leikur í Footioose stórborgardrenginn Ren sem dansar trúar- ofstækið út úr smábænum með Ariel dóttur prestsins (hún er leikin af Lori Singer). NÝSTIRNIÐ KEVIN BACON Kevin Bacon er rólegur tuttugu og fimm ára gamall með húmor. Honum finnst gott aö borða góðan mat, spilar rokktónlist með bróður sínum, stundar brimbrettasiglingar í frístundum sínum ásamt útreiöum og iangar að eignast f jögur böm með vinkonu sinni, Tracy Pollan. Um Footloose segir hann: „Myndin segir ekki frá neinu óraunverulegu. Það eru margir svipaðir smástaöir í Bandarikjunum þar sem dans og rokk er bannaö. Við tókum myndina upp í Utah, þar sem fólk er mjög trúað. Fyrsta daginn gerðum við senuna þar sem ég segi Willard frá Chicago. Myndavélinni var fyrst beint að mér. Þegar því var lokið var vélinni beint aö honum og viðbrögð hans sýnd. An þess að myndavélinni væri beint að mér tók ég mig til og fór að skálda. tJt úr nokkrum tvíræðum setningum sem ég sagði óx meiri háttar klámmál á staðnum. Nokkrir þeir sem léku statistahlutverk í myndinni misskildu þetta og sögöu það um allan bæ að Footloose væri klámmynd. Af því spratt hrein múgsefjun. Mormónarnir ætluðu að reka okkur úr bænum og stöðvuöu kvikmynda- tökuna. Kvikmyndafélagið varð að lofa því að þaö sem ég haföi sagt myndi ekki koma í myndinni. Síöan var dreift fjölriti til okkar þar sem meðal annars var sagt að við mættum ekki reykja þar sem það væri bannað og aö við ættum að passa upp á orð- bragðið í vinnunni. Sem betur fer var myndin ekki stoppuð af.” „Ég hélt að ég kynni að dansa" Stjórnandi myndarinnar Footloose setti Kevin Bacon í æfingu hjá Lynne Taylor ballettkennara fyrir myndina og að auki lærði hann karate fyrir bardagaatriði.” Hvernig kann Kevin við Ren? „Ég vissi hvaða manngerð þetta var um leið og ég las handritið. Hvernig hann var, hvað hann sagði og hvemig hann gekk. Nú er ég búinn að sjá myndina þrisvar og er ennþá undrandi á því hvað ég er frábrugðinn því sem ég hélt aö ég væri að leika. Mér finnst hann vera fínn náungi. Eg var metnaðargjam eins og hann en ekki svona árásargjarn og hann er líka hávaðasamari. Jafnvel þó að myndin gangi út á að allt gangi upp hjá honum sem ungu ofurmenni þá hrasar hann dálítið. Eg kann vel við það. Persóna í mynd verður að hafa einhverja snögga bletti til þess aö maður trúi aö hún sé af holdi og blóði. Það er enginn full- kominn. Það er spennandi að leika einhvern annan en vera maður sjálfur um leið á einkennilegan hátt,” segir Kevin. Hann fór úr skóla og fluttist til New York sautján ára. Hann taldi aö það væri betra aö freista gæfunnar strax heldur en að naga sig í handarbökin síðar. Ur smáhlutverki í Animal House, sem var léttvæg mynd, hélt hann áfram á braut sem hefur legið til Footloose sem vitaskuld hefur gert hann stórfrægan. „Okkur langar í barn" Vinkona Kevins Bacon heitir Tracy Polian. Kevin er engin launung á því að þau langar til að eignast barn ef þau hafa tíma til þess. Getur hann gefið einhverja lýsingu ásjálfumsér? „Já. Það er erfitt og löng saga. Sumum spumingum svara ég aldrei, eins og hvaða leikstjóra ég vilji helst vinnameð.” En hvaða leikkonu vill hann leika á móti? „Þeirri sem ég bý með. Viö hittumst í leikriti og hún er besti mótleikari minn.” TJALDBORGARFELLITJALDIÐ er sérhannað fyrir íslenska veðráttu, það kostar aðeins brot af verði tjaldvagns og er jafnauðvelt í uppsetningu. Stærð 205 x 410 cm. Stærð svef ntjalds er 205 x 200. TómsTunonHúsiÐ hf Lsugauegi ÍM-Reytiauil: »21901

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.