Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Qupperneq 10
10 DV. LAUGARDAGUR 7. JULl 1984. Skálavarir. ÞAÐ NÆGIR El SEM NÁTTÚRAN GAF - ÝMSAR AFMYNDANIR Á LIKAMANUM Margar tilraunir hafa veriö geröar á langri vegferö mannsins við aö breyta lögun likamans, eyrna og útlima til þess að falla að þeim gildum sem feg- urst þykja. öskubuskusagan þar sem systumar hjuggu af sér tá eöa hæl er eitt frægt dæmi um þaö. Hér á eftir fer nokkur f róðleikur sem upp er aö mestu snúið af R. Broby-Johansen í bók hans Kropogklæder. Það að binda um iíkamshluta th að framkaUa aUs kyns bugður á iíkam- ann. Karaiberamir, fyrstu indíánamir sem Evrópumenn rákust á í Ameríku voru með bönd um hné og mjóaleggi þannig að leggurinn var bólginn og kúlulaga. Papúar á Nýju Gíneu setja þrönga málmhringi um handleggina þannig aö vöðvarnir bólgna upp báðum megin við þá eftir því sem handleggur- inn verður stærri og þykkari. Flathöfðar þekkjast meðal amerískra indiána. Þá er höfuð bams- ins sett í pressu sem Utur út eins og risastór hnetubrjótur. Víða er einnig stunduð höfuðbinding í Afríku en slík binding var ástæðan fyrir einkennileg- um blöðrulaga hnökkum egypskrar yfirstéttar á tímabili. Allir þessir þjóðflokkar nota höfuöiö til að bera með vatn og þungar byrðar. Með því að gera höfuöiö uppmjótt er það undirstrikað að viðkomandi þarf ekki að nota höfuðið til annars en skrauts. Skálavarir og hengieyru. Meðal margra afrískra negraflokka eru kon- ur með tréskífur allt upp í diskstærðir í vörunum. Athyglisverð kenning geng- ur út á að varirnar hafi upprunalega verið afmyndaöar af hagrænum ástæð- um. Arabar námu eitt sinn þrælastúlk- ur í kvennabúr sín frá þessum svæðum og negramir uppgötvuðu að þeir slepptu kvenfólki úr sem var með af- myndaðar varir. Arabamir kyssa eins og Evrópumenn en kossinn er óþekkt- ur meðal viðkomandi negraþjóöflokka. Hvaö snertir nefið er líka sett gat á miðsnesið og sett í það stykki, úr tré, beini, málmi og skeljum. En eyrun eru án nokkurs vafa sá lík- amspartur sem, meðal frumstæðra þjóða, er mest unnið í af listrænni elju. Það er eins og hið seiga eymabrjósk hvetji sérlega til tilrauna. Það er varla til sá frumstæði þjóð- flokkur þar sem einhverjar afmyndan- ir á líkamanum eiga sér ekki stað. Á mörgum stöðum í Suður-Indlandi og meðal papúanna er stunga í gegnum eyrun trúarleg athöfn sem er hliðstæð bamaskím okkar. Meðal kaffa er eyrnastunga eitt af því sem einungis veitist karlmönnum, zambesinegrar eru með eymasnepilinn lafandi niður á öxl og með götum sem eru nógu stór til þess að hægt er a ö stinga handleggnum í gegnum þau. Ný-kaledóníumenn eru með heimilisáhöld sín í eyrunum. Atriði sem skiptir áreiöanlega miklu máli í heitu loftslagi er umskurðurinn. Hann er þekktur í Evrópu sem gyðing- legur siður en er stundaöur meðal alira islamstrúarmanna frá Atlantshafi til Kyrrahafs, meöal afriskra negra, meðal Ástraliumanna og meöal indíána, bæði í Norður- og Suður- Ameríku. Guði þóknanlegar sjálfspyndingar. Hið frumstæða bændasamfélag byggir á andatrú með guðum sem líkjast mönnum. Umskurðurinn er ekki skoð- aður út frá þeim sjónarhóli aö hann sé praktískur heldur verður liður í trúar- athöfn. Við aðra athöfn þar sem menn eru teknir i fulioröinna manna tölu eru framtennumar dregnar úr eða sargað- ar til i þeim tilgangi aö greiða aögang fyrir sálina. Hárklipping er tískubundin afmynd- un. Meðal kragafólks indíána eru kon- umar stuttklipptar og karlamir með sítt hár. Það er athyglisvert að slétt- hærðir kynþættir reyna allt hvað þeir geta til að krulla hárið og hrokkinhærð- ir kynþættir gera allt sem þeir geta til að slétta úr hárinu. Afmyndanir á eyra eru meðal okkar takmarkaðar við götun fyrir eyrna- lokk. I Indlandi er borað í gegnum ann- an nasavænginn og sett gull eöa silfur- djásn þar eða jafnvel eöalsteinn. I Evrópu hefur höfuð barna verið af- myndað fram á vora tíma meö þröngu höfuðbindi. I Riddartiolmskirkjunni í Stokk- hólmi hafa fundist afmyndaðar haus- kúpur frá því á 13. öld. Og þegar nasisminn grasseraöi i Þýskalandi á þriðja og f jórða áratug þar sem arískir langhöföar voru í miklum metum af- löguðu margir foreldrar höfuð barna sínna. Hvíti maðurinn hefur beint áhuga sínum að öörum svæðum en aðrir viö aflögun likama síns. Með því að stækka eyrað eða bora í gegnum miðs- nesið eru ekki unnar skemmdir á heyrn eða lyktarskyni og höfuðbeina- og limaafmyndanir eru ekki heilsu-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.