Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Síða 21
DV. LAUGARDAGUR 7. JULI1984.
21
Joseph Losey að störfum
fyrír framan kvikmynda-
tökuvélina.
JOSEPH
LOSEY
(19091984)
BANDARISKI
KVIKMYNDALEIKSTJÓRINN
JOSEPH LOSEY, SEM GERÐI
MEÐAL ANNARS MYNDINA
THE SERVANT OGTHE GO-BETWEEN,
LÉST NYLEGA AÐ HEIMILI
SÍNU í L0ND0N 75 ÁRA AÐ ALDRI
, JJg kann mjög vel við leiklist og
kvikmyndir enda snýst líf mitt meira
eða minna um þetta tvennt.” Þessi
setning var eitt sinn höfð eftir banda-
ríska leikstjóranum Joseph Losey en
hann lést nýlega 75 ára að aldri. Þótt
Losey væri bandarískur að uppruna
eða frá Wisconsin, þá dvaldist hann
síðustu 30 árin af ævi sinni í Evrópu
eftir að hafa orðið að yfirgefa heima-
land sitt vegna pólitískra skoðana
sinna á tímum ofsóknastefnu Mc-
Carthy. Evrópubúar tóku Losey hins
vegar mjög vel og var hann m.a.
valinn besti leikstjórinn úr hópi
„bestu leikstjóranna” af hinu virta
franska kvikmyndatímariti Cahiers
du Cinema. Þótt þetta sé nú ef til vill
einum of sterkt til orða tekið, þá
hafði hann mjög mikil áhrif á
evrópska gagnrýnendur og unga
kvikmyndagerðarmenn sem voru að
hefja störf.
Þótt Losey væri sár þegar hann
var settur á svarta listann yfir þá
leikstjóra í Hollywood sem taldir
voru hafa óæskilegar skoðanir á tím-
um McCarthy, þá fékk hann síðar
meir dálitla uppreisn æru í
heimalandi sínu. Voru honum veitt
heiðursverðlaun af Dartmouth skól-
anum 1973 en þar stundaöi hann á
sínum yngri árum læknisfræðinám.
Tíu árum síðar hlaut hann einnig við-
urkenningu frá háskólanum í Wis-
consin.
Peningar og frægð
Joseph Losey sagði í blaðaviðtali á
sl. ári að það besta sem hefði fyrir
hann komið væri að hann var settur á
svarta iistann. „An þess hefði ég lík-
lega átt núna 3 Cadillac bifreiðir, tvær
sundlaugar, milljónir dollara og væri
liklega dauður þar að auki,” sagði
hann. „Þetta var slæmur tími og nið-
urlægjandi en aftur á móti getur
maður auðveldlega látið glepjast af
peningum og frægð. Þótt það sé hrist
duglega upp í manni gerir það
engum mein.”
Eins og kemur fram í þessum um-
mælum Losey þá er hér um að ræöa
þrjóskan einstaklingshyggjumann.
Hann hefur löngum háð harða bar-
áttu gagnvart fordómum bæði á
stjómmála- og listasviðinu. Þótt
Losey stundaöi læknisfræði við Dart-
mouth skólann í fyrstu.þá snerist
hugur hans fljótlega að leiklistinni.
Þegar árið 1930 var hann farinn að
skrifa fyrir tímaritið Theatre Arts
Magazine um leiklist. Skömmu síðar
fékk hann starf sem aðstoðarleik-
stjórí og var aðeins 23 ára gamall
þegar hann setti .á svið sitt fyrsta
leikritáBroadway.
Leikhúsið heiilar
Joseph Losey hafði mjög ákveðn-
ar skoöanir á leikhúsmálum á þess-
um árum og þótti ýmsum þær vera
einum of róttækar miðað við banda-
rískar hefðir. Arið 1935 fór hann til
Moskvu og setti upp leikritið „Wait-
ing for Lefty” og ári síðar vann hann
að verkefni sem var stutt af banda-
riska ríkinu og bar nafnið „The Liv-
ing Newspaper”. Hápunkturinn á
leikhúsferli hans var þegar hann
setti upp leikrit Bertolt Brechts,
”Galileo Galilei”, með Charles
Laughton i aðalhlutverki. Hann hitti
Brecht sjálfan og aðra leiðandi aöila
í tilraunaleikhúsi, meöal annars
Mayerhold, meöan hann dvaldist í
Moskvu.
Þótt Losey sneri sér siðar
að kvikmyndagerð þá hélt hann allt-
af góðu sambandi við leikhúsið og
leikstýrði meðal annars i London
„The Wooden Dish” og „The Night of
theBall” 1954 og 1955.
Upphaf ferils Joseph Loseys sem
kvikmyndagerðarmanns má rekja
aftur til ársins 1939 þegar hann leik-
stýrði sinni fyrstu stuttu mynd. Var
það myndin PETE ROLEUM AND
HIS COUSINS en áður hafði hann séð
um framleiðslu á kennslukvikmynd-
um fyrir Rockefeller Foundation.
Meðan seinni heimsstyrjöldin stóð
yfir vann Losey við útvarpsstöð og
einnig fyrir Army Signal Corps. Árið
1948 leikstýrði hann síðan sinni
fyrstu mynd í fullri lengd sem bar
heitiö THE BOY WITH GREEN
HAIR. Var myndin framleidd fyrir
Dore Schary sem þá var yfirmaður
RJC.O. fyrirtækisins. Eins og með
svo margt í lífi Losey, þá lenti hann í
vandræðum með myndina. Efnið
fjallaði um afskaplega viðkvæma
þætti í bandarísku þjóðfélagi, eöa um
kynþáttavandamál. Upphaflegi
framleiðandinn, Adrian Scott, var
tekinn í karphúsið af „Unamerican
Activites” nefndinni og framleiðand-
inn sem tók við misskildi efni mynd-
arinnar. Dore Schary var ýtt til hlið-
ar þegar Howard Hughes tók yfir
R.K.O. kvikmyndaverið og ný stefna
leit dagsins ljós. Vandamál af þessu
tagi áttu eftir að koma oft upp hjá
Loseysíðarmeir.
Gerður
útlægur
Losey hélt samt sem áður ótrauð-
ur áfram að gera margar kynngi-
magnaðar myndir í Hollywood sem
fjölluðu um þjóðfélagslegt efni. Þar
má telja THE LAWLESS sem gekk
undir nafninu THE DIVDING LINE
í Bretlandi (1949), THE PROVLER
sem var endurútgáfa af M og THE
BIG NIGHT gerð 1951. I þessum
myndum kom fram sú listræna
stefna sem átti síðar eftir að ein-
kenna myndir hans. Fjallaöi hann á
meistaralegan máta um mannleg
samskipti og þann eiginleika manns-
ins aö reyna að koma sér áfram í líf-
inu oft án tillits til þess hvað það
kostaöi.
Þegar Joseph Losey var staddur í
Evrópu 1953 var hann settur á svarta
iistann í heimalandi sínu og eftir aö
hann sneri til baka fékk hann hvergi
vinnu. Þegar Losey fluttist alfarinn
til Evrópu neyddist hann til aö vinna
undir nafni annarra leikstjóra til
þess að fá eitthvað að gera. A þess-
um tíma gerði hann m.a. myndirnar
STRANGER ON THE PROWL sem
hann gerði á Italíu 1952, THE
SLEEPING TIGER 1954 og THE
INTIMATE STRANGER 1956 í Bret-
landi. Allar þessar myndir verða að
teljast frekar veigalitlar og það var
ekki fyrr en 1957 þegar hann gerði
sína fyrstu mynd í Bretlandi undir
sinu eigin nafni að hann náöi sér á
strik aftur. Var það myndin HME
WTTHOUT PITY sem fjaUaði um
réttarkerfið í Bretlandi. Næst tók við
dálítið væmin mynd sem hét GYPSY
AND THE GENTLEMAN en það var
þó ekki fyrr en 1959 að hann gerði
nokkuð vinsæla mynd, BLIND
DATE, þar sem hann tvinnaði sam-
an við dularfuUa atburðarás f lóknum
persónuleikum og innri togstreitu
meðal hástéttarinnar.
Ástríða, ástir, völd
Augsýnilegt var á þessum tíma að
Joseph Losey var kominn langt með
að þróa sinn eigin kvikmyndastíl.
Hann missti áhugann á að fjaUa um
efnisþráðinn í kvUunyndum sínum á
beinskeyttan og einfaldan máta en
einbeitti sér þess í stað að að byggja
upp persónuleika viðkomandi aðUa.
Sérstaklega f jaUaði hann vel um þær
hefðir og snobb sem einkenndi
breskú hástéttina ásamt þvi að
blanda inn i það þeirri togstreitu sem
myndast þegar ástriða, ástir og völd
takastá.
Það var þó ekki fyrr en hann hafði
gert myndirnar THE CRIMINAL,
THE DAMNED og EVE1962 að kom-
ið var að því tímabUi í ævi hans sem
lUdega verður að telja frjóast frá
kvUtmyndalegu sjónarmiði. Þá gerði
hann myndir sem hlutu mikið lof
gagnrýnenda og gengu vel peninga-
Loseys sem var THE GO-BE-
TWEEN. Gerði hann þá mynd 1971
og er hún byggð á verki L.P.
Hartleys. Þessa mynd gerði Losey
aftur í samvinnu viö Harold Pinter
sem skrifaði kvikmyndahandritið
og fjallaöi eins og svo oft áður um
mannleg samskipti. Sagan segir frá
ungri hefðarmær af breskri hástétt
sem verður ástfangin af bóndasyni.
Þetta var efni sem Losey hafði gam-
an af að fjalla um enda tókst honum
að draga mjög vel fram andstæður
og fordómana í bresku þjóðfélagi.
Hlaut Joseph Losey gullpálmann á
Cannes kvikmyndahátíðinni 1971 fyr-
irþessamynd sína.
Hann hlaut aftur verðlaun á sömu
kvikmyndahátíð sjö árum seinna
fyrir kvikmyndaútgáfu sína af óperu
Mozarts, „Don Giovanni” með
Ruggiero Raimondi, Kiri te Kanawa
Ein af þekktarimyndum Losey er liklega THE SERVANTmeð Dirk Bogarde
og James Fox i aðalhlutverkum.
lega séð. Má þar nefna THE SERV-
ANT með Dirk Bogarde í aöamlut-
verki, gerð 1963, KING AND
COUNTRY með Tom Courtenay og
Dirk Bogarde ári seinna og svo
MODESTY BLALSE árið 1965.
Líklega er sú mynd sem flestir
muna eftir Josep Losey ACCIDENT,
sem byggð er á leikriti Harold Pint-
ers. Enn var það Dirk Bogarde sem
fór með eitt aðalhiutverkið ásamt
Stanley Baker og Elizabeth Taylor.
Myndirnar sem fylgdu á eftir, þ.e.
BOOM, byggð á verki Tennessee
Williams, og SECRET CEREMONY
(1968) hlutu ekki eins góðar undir-
tektir þó þær væru á margan hátt vel
gerðar. Það sem háði þeim var að
Joseph Losey hafði nú of mikil fjár-
ráð þannig að þær virkuðu of fburð-
aimiklar og virtist að framleiðand-
inn hefði lagt meira upp úr mörgum
stjömum í aðalhlutverkum heldur en
gæðum myndarinnar.
Veikur fyrir óperum
Næst kom myndin FIGURESIN A
LANDSCAPE 1970 sem var nokkurs
konar upphitun fyrir aðra stórmynd
og Joee Van Dam í aðalhlutverkum.
Inn á milli gerði hann myndirnar
THE ASSASSINATION OF
TROTSKY 1972 með Richard Burton
í aðalhlutverki, sem hlaut frekar lé-
lega dóma. Einnig gerði Losey árió
1974 myndina THE ROMANTICS
ENGLISH WOMAN þar sm Glenda
Jackson fór með eitt aðalhlutverkið
á frábæran máta. Er ekki að efa að
mörgum er sú mynd mjög minnis-
stæð.
Joseph Losey hafði um áraraöir
haft mjög mikinn áhuga á óperum og
hafði lengi gengiö með þann draum
að getað kvikmyndað verk Mozarts,
Don Giovanni. Sjötugur að aidri setti
hann á svið í óperunni í París „Boris
Godunov” við misjafnar undirtektir.
Þótt Joseph Losey væri 75 ára að
aldri þegar hann lést þá hafði hann
nýlokið við nýjustu mynd sína
STEAMING og hefur hún nú verið
frumsýnd við þokkalegar undirtekt-
ir. Með Joseph Losey er fallinn frá
mjög sérstæður leikstjóri sem .allt
sitt líf stundaði kvikmyndagerð af
fullu kappi og lét hvorki fordóma né
ofsóknir hafa áhrif á sköpunargáfu
sina. B. H.