Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1984, Blaðsíða 7
1
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. JOLI1984.
Neytendur Neytendur
„Gamla” góða skyrinu pakkað í plastpoka.
Indriði Albertsson, mjólkurbústjóri i Borgarnesi. Á bak við hann sést í Birgi
Gíslason verkstjóra.
Gamlir varalitir eru settir saman og hltaðir upp í örbylgjuofni. Nýr litur
settur í krús, málað á varirnar með pensli—fullkomin nýting. DV-mynd: RR
Húsrád: ,
VARALITURINNI
ÖRBYLGJUOFNINN
Varaiitir eru ekki alltaf nýttir til
fulls og eru ýmsar ástæður fyrir því.
Dömurnar fá leið á litunum, þeir eru
ekki lengur í tísku o.s.frv. Þá má
gera tilraun í þá átt aö útbúa nýjan
lit með því að blanda þeim gömlu
saman. Stór hluti hvers varalitar
gengur niður í hólkinn, sumir mála
sig þá með pensli en aðrir henda
honum og telja hann fullnýttan.
Aðferðin er sú aö skafa nú upp úr
hverjum hólki sem ekki hefur verið
notaður í langan tima. Fáeinir litir
settir saman í örbylgjuofn, látnir
hltna í 1/2 — 1 minútu. Litnum er
siöan hellt í ílát undan augnskugga,
Xií-tt-*
verkjatöflum eða hverju sem
nýtanlegt er og næsta dag er hann
tilbúinn. Liturinn er síðan penslaður
á varirnar. Ef mikið er til af litum er
ástæðulaust að blanda þeim öllum
saman, tveir litir gefa nýjan tón og
má því fá nokkra nýja úr þeim
gömlu.
Varalit er auðvitað einnig hægt að
hita í potti, en þaö tekur lengri tíma
og er aðeins meira fyrirtæki. Ef
varaliturinn er þurr og ekki nægilega
mikið glansandi má bæta við júgur-
smyrsli eða vaselíni UI að fá meira
„gloss” á varimar.
-RR.
100 daga
áætlun
Macintosh
tölvan var kynnt 24. janúar 1984 og hafa menn síðan
keppst við að lofa þessa nýju tölvu. Apple gerði djarfa
100 daga áætlun. Áætlað var að selja 50.000 tölvur
fyrstu 100 dagana. Áætlunin stóðst engan veginn, salan
varð 70.000 stykki. Nú er ljóst að Macintosh tölvan frá
Apple er mest selda nýja einkatölva sögunnar. En
hvers vegna er Macintosh tölvan svona vinsæl? Megin
ástæðan er sú að það er svo auðvelt að nota Macintosh.
Það tekur ekki nema u.þ.b. 2 klst. að læra svo vel á
hvert forrit að hægt er að nota það af fullum krafti í
stað margra daga eða vikna. Þegar þú ert búinn að
læra eitt forrit þá er auðvelt að læra fleiri því
skipanirnar eru alltaf eins. Macintosh er fyrirferðar-
lítil og kemst auðveldlega á skrifborð og tekur litlu
meira pláss en sími. Ekki skortir Macintosh tölvuna
hraða né getu því hún er búin einni öflugustu örtölvu
sem um getur.
Motorola 68000 sem er 32 bita.
Það er enginn vafi á því að það verður rifist um þessar
fáu tölvur sem við höfum fengið. Sjón er sögu ríkari.
Komdu og kynnstu Macintosh frá Apple.
KYNNINGARVERÐ KR. 75.000
ÚTBORGUN KR. 15.000.
EFTIRSTOÐVAR Á ALLT AÐ10 MÁNUÐUM
Skipholti 19 ^
Sími 29800 jölvudeilc
f|appkz coTiputGr