Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1984, Blaðsíða 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. JULt 1984.
31
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Thalía og
Bakkus
LeiklistargyÖjan Thalía og
Bakkus konungur eiga ekki
alltaf samleiö eins og
kunnugt er. Þó munu ein-
hverjir tilburöir í þá átt eiga
sér stað í leikhúsum höfuö-
borgarinnar og t.d. hefur
Stúdentaleikhúsið haft það til
siös aö selja gestum sínum
rauövínskúta á borðin á
meðan á sýnbigum stendur.
Þykir þetta . afskaplega
huggulegt — stundum.
Þó fóru huggulegheitin
dálítið á skjön hér um daginn
þegar heili saumaklúbbur
mætti á sýninguna „Láttu
ekki deigan síga, Guömund-
ur” og þaö var augljóst að
kvensurnar ætluöu heldur
ekki aö láta deigan siga.
Búnar að hita sig upp á
Griliinu með drinks og til-
heyrandi og svo voru aö sjálf-
sögðu pantaöir nokkrir
rauövinskútar á boröiö áður
en sýning hófst. Framan af
Ein úr saumaklúbbnum.
gekk allt vel, sýníngin leið
áfram á sviðiuu og rauðvínið
ofan í saumaklúbbinn.
Klúbburiuu skemmti sér vel,
hló á réttum stööum og allir
voru ánægðir... þangað til
saumaklúbburinn var farinn
aö hlæja stanslaust. Nú voru
góö ráð dýr, starfsmaður
reyndi kurteislega að draga
úr innsoginu í öndunarfærum
kvennanna með þeim árangri
að upp hófust orðaskipti á
milli leikenda og sauma-
klúbbsins scm enduðu með
þvi að síðarnefndi hópurinn
yfirgaf leikhúsiö og hálftóma
kútana í fússi.
Hott, hott!
Það var líf og f jör á hesta-
mannamótinu á Kaldár-
melum um síðustu belgi. Þar
öttu menn ekki eingöngu
saman hestum sinum heldur
og cinnig sjálfum sér viö
aðra. A kvöldvöku einni sem
haldin var kepptu menn m.a.
i því hver væri fyrstur aö ríða
hesti berbakt að planka
einum miklum, reka í hann
nagla, éta pulsu upp úr potti
án þess aö nota hendúrnar og
stökkva síöan upp á pall og
syngja Gamla Nóa.
Gekk þetta að vonum
misjafniega. Margir ultu af
baki enda óvanir aö ríöa
berbakt. Flestum tókst aö
reka niður naglann og éta
pulsuna en verulega kom á
óvart hversu margir kunnu
ekkiGamla Nóa...
„Samfarir" hjá
Flugleiðum
! júníheflti timaritsins
Frequent Fiyer sem dreift er
til tugþúsuuda lesenda i
viöskiptalífinu í Bandaríkj-
unum og víðar cr að finna
grein um borgina Orlando i
Flórída og fiughöfnina þar
sem er í hvaö örustum vexti
allra flughafna vestanhafs.
tbúaf jöldi eykst hröðum
skrefum og flest flugfélög i S-
Ameríku og Evrópu eru með
Orlando-flughöfnina einhvers
staðar i áætlunum sinum.
í blaðinu er því velt fyrir
sér hvaö vaidi þessum
vinsældum Orlando. Sumir
segja að nálægð Disneylands
ráði þar einhverju cn aðrir
eru þeirrar skoðunar aö
íslenska flugfélagið Flug-
leiðir eigi sinn þátt i vinsæid-
unum. t fréttatilkynningu frá
félaginu sem send var
Amcrikumönnum segir
nefnilega aö Flugleiöir hafi
lengi haft augastað á Oriando
Behind that
dean-cut image
How did lirtle Orlando bccome
a primc destination tor í'or*
cigners visiting the U.S., and
whv is it that probably evcry Euro-
ncan and Latin American airline has
the Florida city in its long-range
plans? Conventional w isdom holds
that the wholcsome fun of Disncy
World is the main lure. But Ieeland*
air, which will bcgin scrvice from
Luxembourg to Orlando in Scptem*
ber, may have found another reason
whv Europeans want to come (if the
carricr is to bc taken at its word). In a
press release announcing thc new
service, an lcclandair executive was
quotcd as saying:
“Wc’vc had our eyes on Orlando
£or somc time. lt’s onc of the fastest-
growing arcas of thc U.S., which
mcans thcrc is a substantial copula-
rion basc to draw Trom... it is a high-
!y’ attractivc vacation dcstination for
Europcans.”
Whcrc do wc book?
Kynlifsgreinln í Frequent
Flyer.
og hyggist nú hefja áætlunar-
flug þangað frá Luxembourg
í september. Orlando sé sá
staöur í Baudarikjunum sem
sé i hvaö örustum vexti. Þar
séu samfarir tíðar og borgin
því ákjósanlcg fyrir Evrópu-
menn sem eyða vilja sumar-
ieyfi sinu vestan hafs.
Þetta með „samfarirnar” í
Orlando er til komið vegna
þess að í fréttatilkynningu
Flugleiöa rugluðust saman
orðin „population” (íbúa-
fjöldi) og „copulation”
(samfarir)
Greminni í Frequent Flyer
lýkur með spurningunnf hvar
hægt sé að panta miða hjá
Flugleiðum.
Heimaæfingar
Sundiaugarvörðurinn í
Borgarncsi er yfirleitt í góðri
æfingu í starfi sinu sem felst í
að gæta sundlaugar sem er 12
m löng. Heima hjá sér er
hann nefnilega með einka-
laug sem er 8 m löng og þar
getur hann æft sig í fristund-
unum.
Umsjón Eiríkur Jónsson.
Amerísk þjóðhátíð í Árbæ
Kvikmyndir Kvikmyndir
r Bíóhöllin/Tvífarinn:
Yktur Bogart
Heiti: The man with Bogarts Face.
Þjóðerni: Bandarísk.
Argerð: 1980.
Leikstjóm: RobertDay.
Handrit: Andrew J.Fenaday.
Kvikmyndun: RichardC. Glouner.
Aðalhlutverk: Robert Sacchi, Olivia
Hussey, Herbert Lom, Sybil Dann-
ing.
Hvað er hægt að kalla mann sem
lætur breyta andliti sínu þannig að
hann líti út eins og Humphrey
Bogart, kallar sig Sam Marlowe og
opnar einkaspæjaraskrifstofu? Það
er til dæmis hægt aö kalla hann því
snotra nafni Lúní eða eitthvað annað
álíka.
Þetta gerir engu að síður
persónan í Tvífaranum og græðir á
því. Verkefnin hrannast upp en öll
virðast þau beinast í einn farveg, í
átt að bláu safírunum, tveimur dýr-
mætustu steinum jarðríkis.
Kannski er Sam Marlowe lúní en
þaö kemur aldrei upp á yfirboröið í
myndinni, þetta er skemmtileg grín-
mynd með sæmilega spennandi sögu-
þræði. Aldrei er gert grín að
meistara meistaranna, töffara
töffaranna, sjálfum Humphrey
Bogart, óumdeilanlega mesta gæja
frá upphafi.
Sacchi er ótrúlega likur þessum
látna snillingi en sennilega er þetta í
eina skiptiö sem hann á eftir að
græða á því (fyrir utan auglýsingar)
sem er synd því hann er ekki svo af-
leitur leikari. Hann nær Bogart
nokkuð vel og gott betur því hann
ýkir allar hreifingarnar og verður
fyrir bragðið fyndinn. Allar frægustu
klisjumar úr Holly wood hefur hann á
hreinu, lifir sig inn í þennan heim þar
sem allt er í plati, því Sam Marlowe
er sífellt að vitna í hinar og þessar
kvikmyndastjörnur og má ekki sjá
nýtt andlit, þá er hann farinn að
velta því fyrir sér hver hefði leikið
viökomandi væri þetta kvikmynd.
Stöku sinnum bregður Fenady,
handritshöfundur og framleiöandi
myndarinnar, út af Bogartlinunni og
lætur Sam (Spade) (Phillip)
Marlowe missa stjóm á sér, nokkuð
sem varla henti Bogart er hann
túlkaði Phillip Marlowe eöa Sam
Spade.
Það má hafa gaman af þessari
mynd hvort sem maður er brjálaöur
Bogart-aðdáandi eða hefur aldrei séð
Fyrsta spurning i getraunaieikn-
um: Br þetta Borgart eða er þetta
ekki Bogart?
mynd með honum því hún stendur
ágætlega að vígi ein sér. Urvalsliö
leikara bakkar Sacchi upp, þar á
meðal Herbert Lom og Franco Nero
(sérlega viðkunnanlegt nafn). Já
þetta var bara helv. gaman.
Sigurbjöra Aðals teinssou.
SMÁAUGLÝSINGAÞJÓIMUSTA
VIDGETUV1
IETT ÞER SPORIN
OG AUDVELDAÐ ÞER FYRIRHÖFN
• Afsöl og sölutilkynningar bifreiða
• Húsaleigusamningar (löggiltir)
• Tekið á móti skriflegum tilboðum
Við viljum vekja athygli á að þú getur látið okkur sjá
um að svarafyrir þig simanum. Við tökum á móti
upplýsingum og þú getur siðanfarið yfir þær i góðu tómi
virka daga kl. 9—22
OPIÐ: laugardaga 9—14
sunnudaga kl. 18—22
Tekið er á móti myndasmáauglýsingum og
þjónustuauglýsingum virka daga kl. 9—17.
SÍMINN ER 27022.
ATHUGIÐ
Ef smáauglýsing á að birtast í helgarblaði
þarf hún að hafa borist fyrir kl. 17 föstudaga.
SMÁAUGLÝSINGADEILD,
ÞVERHOLT111, SÍMI 27022.
Kvikmyndir
Kvikmyndir