Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1984, Qupperneq 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. JULl 1984.
9
Útlönd Útlönd
K jarnorkusprengingar í Ky rrahaf i:
AUKA EKKILÍKUR
Á KRABBAMEINI
Rannsóknir fimm vísindamanna
gefa ekki tilefni til að álíta að kjarn-
orkusprengingar Frakka í Suður-
Kyrrahafi hafi valdið krabbameini í
íbúum nærliggjandi eyja.
Kjamorkusprengingar Frakka í
Suður-Kyrrahafi hafa ekki aukið
likumar á krabbameini á meðal íbúa á
nærliggjandi eyjum. Fimm vísinda-
menn, sem unnið hafa að rannsóknum
á afleiðingum af tilraunasprengingum
Frakka í Suður-Kyrrahafi, hafa komist
að þessari niðurstöðu. Hins vegar segir
í skýrslu vísindamannanna að spreng-
ingamar hafi valdið miklu tjóni á líf-
ríki hafsins og að Mururoa kóralrifin,
þar sem sprengingamar hafa fariö
fram, hafi orðið fyrir óbætanlegu tjóni.
Rannsóknina unnu tveir visinda-
menn frá Ástralíu, tveir frá Nýja-Sjá-
landi og einn frá Nýju-Guineu.
Warren Cooper, utanríkisráðherra
Nýja-Sjálands, sagði þegar honum
vom kynntar niðurstöðurnar að þótt
ekki væri sannað að heilsu manna
stafaði hætta af sprengingunum þá
væri ekkert sem réttlætti þær. Hann
sagði ennfremur að öllum væri ljóst að
lífríki hafsins stafaði mikil hætta af til-
raunum Frakka og væri það nóg til að
réttlæta bann við slíkum sprengingum.
Stjórnvöld á Nýja-Sjálandi, Ástralíu
og Kyrrahafseyjunum hafa ítrekað
krafist þess að Frakkar hættu tilraun-
um sínum með kjarnorkusprengjur í
Kyrrahafinu. Frakkar hafa sprengt 62
kjamorkusprengjur á þessu svæöi frá
því á árinu 1975.
ULTRA
■LOSS
Eina raunhæfa
nýjungin í bílabóni
|sso;
OHufélagiðhf
ÞÚ BÓNAR TIL REYNSLU
ULTRA GLOSS er svo frábært bón, að þú verður
að hafa reynt það til þess að trúa því. Kauptu þér
brúsa og gerðu tilraun, smáa eða stóra.
VIÐ ENDURGREIÐUM
ónotaðar eftirstöðvar ef þú ert ekki fyllilega ánægður
með árangurinn.
• Auðvelt í notkun
• Hreinsar
• Margföld ending
• Gefur glæsilega áferð
• Stöðvar veðrun (oxyderingu)
• Vemd gegn upplitun
Það sem gerir ULTRA GLOSS svo frábrugðið er,
að það inniheldur engin þau efni, sem annars er
að finna í hefðbundnum bóntegundum, svo sem
harpeis, vax, plast eða polymer efni. Grunnefnið í
ULTRA Gl.OSS eru glerkristallar, auk bindiefna og
herða.
Þegar bónað er með ULTRA GLOSS, þá myndast
þunnt glerungslag á yfirborði lakksins, sem bæði
styrkir það og kemur i veg fyrir að óhreinindi nái að
bita sig föst við lakkið. Varnarskelin er það góð, að
sé bónið borið á ál eða silfur þá fellur ekki á málminn.
Með öðrum orðum, veðrun (oxydering) á sér ekki
stað. Framleiðendur benda auk þess á, að ULTRA
GLOSS endist langt umfram hefðbundnar bónteg-
undir. Þetta þarf engum að koma á óvart, því ef borin
er saman ending á vax- eða plasthúð annars vegar
og glerhúð hins vegar, þá er nokkuð augljóst hvaða
efni endist lengst.
En ULTRA GLOSS hefur fleiri kosti, þvi eins og
kunnugt er þá dregur gler úr virkni útfjólublárra
geisla, en þeir eru höfuðorsök þess að lakk á bílum
upplitast.
Erlendar umsagnir:
General Motors Engineering Staff GM
GM Dessert Proving Ground
We have tested your product in various departments and divisions.
Your product seems to be supenor in every way compared to other
product of similar nature. We are thoroughly satisfied with your
product. »
Sl9n' OJttStCP-kJW^.
Cl.ester R. Ya|icy \
•’urchasing DepartmAt
Ford v
15505 Roscoe Bouleward
Sepulveda, Cal. 91343
We believe ULTRA GLOSS is exceptionally fioe product and would
enthusiastically recommend itlo any dealer.
GALPIN MOTORS> INC.*
Bert Boeckmann
Owner-President
Einkaumboð á islandi Háberghf. Skeifunniða.
Útsölustaðir:
Bensínafgreiðslur
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
____I REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtal-
inna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamn-
ingum.
DeUdarstjóra við Áfengisvamardeild Heilsuvemdarstöðvar
Reykjavíkur. Áskilin er háskólamenntun á sviði félagsvísinda
eða önnur sambærileg menntun svo og reynsla í áfengis-
vamarmálum. Upplýsingar veittar í skrifstofu borgarlæknis,
Heilsuvemdarstöðinni í síma 22400. Umsóknarfrestur er til 1.
ágúst nk.
• Forstöðumann fyrir íbúðir aldraðra, Furugerði 1. Menntun
og reynsla í félagsmálastarfi og umgengni við aldraða nauð-
synleg. Upplýsingar veitir húsnæðisfulltrúi Félagsmálastofn-
unar, Vonarstræti 4, í síma 25500.
• DeUdarfulltrúa í InnkaupadeUd Rafmagnsveitu Reykja-
víkur. Verslunarpróf eða sambærileg menntun áskilin.
Upplýsingar veitir starfsmannastjórf Rafmagnsveitu
Reykjavíkur í síma 686222. Umsóknum ber að skila íil starfs-
mannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á
sérstökum umsóknareyðublöðum, sem þar fást fyrir kl. 16.00
mánudaginn 16. júlí 1984.
IgninaTbleian
T-lagið á bleiunum gerir þaö að verkum að bleian
situr á réttum stað, rennur ekki aftur eins og venju-
legar bleiur.
Lenina T-bleian er þykkust, þar sem þörfin er mest.
Lenina T-bleian veitir lofti að líkama barnsins, þar
sem notaðar eru T-taubuxurnar í stað bleiuplasts á
öðrum bleium.
Barnarassar þurfa á miklu lofti að halda til að líða
vel.
LÁS-STEINN
TIL HLEÐSLU í GÖRÐUM
myndar fallegan hleðsluvegg sem heldur
vel við jarðveg.
Seljum einnig hleðslustein j (gamli, góði holsteinninn). til hleðslu útveggja
m Framleiðendur ÚTSÖLUSTAÐUR
BYGGINGAVÖRUR
Hringbraut 120 (aðkeyrsla frá Sólvaiiagötu) Sími sölumanns 28600.