Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1984, Page 11
hRor t tt’tt nr írnriívrTnrn^ii ^TH
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. JULI1984.
11
BYGGINGAVORUR
28 600 Harðviðarsala................ 28 604 Solustjóri . 28-693
28-603 Málntngarvorur og verkfæn . 28-605 Skrifstofa. 28 620
Flisar og hremlætistæki . . 28 430
Ómar Benediktsson: — Á ieið til Frankfurt á vegum Ferðamálaráðs.
DV-mynd A.
Ferðamálaráð opnar skrifstofu í Þýskalandi:
25 ára forstjóri
í Frankfurt
ODDDDODODDDDBDDDODDODDDDDDDDD IDI. DDDDDDDDD**>130
D
D
D
D
D
ADUR
SOL SALOOIM
sólbaðsstofa,
Laugavegi 99
Andlitsljós og sterkar perur
Opiö
mánud.-föstud. kl. 8—23
og iaugard. kl. 9—21.
SÍMI22580 4P I
DDDDDDDDDDDDnDDDDDUaDDDDDDDDDDDDODDDDDDDDDnDD
VARIOPARK.
Verð kr. 873 fm.
SÍMI SÖLUMANNS 28600.
PREPARK.
Verð kr. 690 fm.
Nýlega var tekid í notkun nýtt útibú Búnadarbankans ú
Hofsósi. Byggingameistari að húsinu var Stefún
Gunnarsson. íþessu glœsilega húsi hefur skrifstofa hrepps-
ins einnig aðsetur.
DV-mynd óm.
„Þetta verður bæði spennandi oj»
krefjandi starf. Það er ekki ætlunin að
ég sitji og fletti pappírum á skrifstofu
heldur ferðist um Evrópu og reyni að
ná samböndum sem aukið gætu ferða-
mannastrauminn til Islands,” segir
Omar Benediktsson, viðskipta-
fræðingur sem starfar hjá Ferðamála-
ráði og hefur verið ráðinn til starfa á
skrifstofu sem ráöið hyggst opna í
Frankfurt í Þýskalandi. Auk Ferða-
málaráðs standa að skrifstofunni Flug-
leiðir, Arnarflug og innlend hótel og
veitingastaðir.
Omar Benediktsson er aðeins 25 ára
að aldri, ættaður frá Bolungarvík og
starfaöi hjá Ferðamálaráði á náms-
árum sínum í viðskiptaf ræðinni.
„Eg hef reyndar ekki hugmynd
um hvers vegna mér var boðið þetta
starf, enda um nóg annaö aö hugsa
eins og er. Ég býst viö að halda utan í
næsta mánuði og koma mér fyrir á
skrifstofunni sem verður til að byrja
með aðeins eitt herbergi í skrifstofu-
samsteypu þar sem ýmis þjónusta er
sameiginleg,” sagði Omar.
Það er engin tilviljun aö Frankfurt
verður fyrir valinu þegar skrifstofu
sem þessari er valinn staður. Frank-
furt liggur í hjarta Evrópu og þar er
stærsta flughöfn á meginlandinu. „Ég
mun að sjálfsögðu ekki einskoröa mig
við Þýskaland heldur vera á þeytingi
um alla Evrópu og frá Frankfurt liggja
leiðiríallaráttir.”
Meö sér til Þýskalands mun Ömar
taka ófriska eiginkonu sína, Guðrúnu
Þorvaldsdóttur, og eiga þau von á
erfingja númer eitt í október. Um
áhugamál sín segir Omar ekki margar
sögur.. . „á mínum aldri er lífið vinna
og aftur vinna en ég gef mér þó tima til
að lesa og þá helst ævisögur. Ég var að
ljúka við ævisögu Thor Jensen og er að
byrja á Olafi Thors. Það er ágætt að
lesa um ættir í réttri tímaröð,” segir
ungi Frankfurtforstjórinn sem verður
alla vega í eitt ár að störfum erlendis.
-EIR.
Hringbraut 120 (Aðkeyrsla frá Sólvallagötu)
ÓDXSLn PftRKET,
Rannsóknastyrkir EM60 í
sameindalíffræði
Sameindalíffræöisamtök Evrópu (European Molecular
Biology Organization, EMBO) styrkja vísindamenn sem
starfa í Evrópu og Israel til skemmri eða lengri dvalar viö er-
lendar rannsóknastofnanir á sviöi sameindalíffræði. Nánari
upplýsingar fást um styrkina í menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík. — Umsóknaeyðublöð fást hjá
Dr. J. Tooze, Executive Secretary, European Molecular
Biology Organization, Postfach 1022.40, D-6900 Heidelberg 1,
Sambandslýðveldinu Þýskalandi. Umsóknarfrestur um styrki
til 3ja mánaða eða lengur er til 15. ágúst en um styrki til
skemmri tíma má senda umsókn hvenær sem er.
4. júlí 1984.
Menntamálaráðuneytið.
Laust embætti, sem forseti íslands
veitir
Embætti þjóðskjalavarðar er laust til umsóknar. Veitist frá 1.
desember 1984. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfs-
feril skulu hafa borist Menntamálaráðuneytinu fyrir 5. sept-
ember næstkomandi.
4. júlí 1984
Menntamálaráðuneytið.
SVEITARSTJÓRI
Tálknaf jarðarhreppur óskar að ráða sveitarstjóra.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu
þurfa að hafa borist fyrir 1. ágúst til oddvita
Tálknafjarðarhrepps, skrifstofu Tálknafjarðarhrepps, 460 —
Tálknafiröi. Nánari upplýsingar veitir oddviti í síma 94-2539
eða 94-2538.