Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1984, Qupperneq 14
DV. PRIÐJUDAGUfl.Íff.'3tJL,fÍðW.Va
Þjóðhetja
án fálkaordu
Á hápunkti fjárlagagatsumræðna í
vor ákváöu þingmenn að stofna til 25
nýrra starfa við skattalögreglu.
Töldu þeir að með þeirri ráðstöfun
tækist betur að loka óráðsíugati
þeirra á meðferð skattfjár al-
mennings. Vitanlega leysir þessi
ráðstöfun engan vanda ríkissjóðs
sem alltaf hefur verið rangstæður í
jafnaðarstefnu þeirri sem fylgt hefur
veriö allt frá því að Jónas á Hriflu
tók að flytja fé frá sjávarafla til
bænda í afdölum. Bænda er gjaman
fluttu á mölina þegar vegurinn eða
hlaðan og fjárhúsin voru fullgerð.
Trippadeildin
„Gerðu allt fyrir alla stefnan” er
enn í fullum gangi og á vori komanda
taka þingmennirnir okkar sig til og
finna upp á einhverju nýju til að
íþyngja þjóðinni með sinni botnlausu
fjármálastefnu. Þá þarf ekki nema
tvo Eiða eða Jóhönnur til að benda á
„Sjónvarpið hefur riðið á vaðið og innheimtir sín gjöld af tiltölulegri smekkvísioggamansemi.”
frekju. Upp úr þessum farvegi koma
græningjar og samhyggjuflokkar
þar sem maðurinn og náttúra eru
orðin stærri gildi en sameiginleg
píning í afköstum og skattheimtu.
Þegar tæknimaðurinn opnar fyrir
skjáinn að afloknum kvöldverði birt-
ast flæðarmálsmyndir svona rétt til
áminningar. Eða Omar hverfur með
okkur inn i draumaheim til karla og
kerlinga sem greiða skattinn einu
sinni á ári og una glöð við sitt í nánu
sambandi við náttúruna og óblíða
veðráttu. Maðurinn sem lagði veginn
í brattri fjallshlíðinni án opinberra
afskipta og harkalegra innheimtu-
aögeröa er orðinn þjóðhetja án fálka-
orðu.
I Rússlandi er KGB lögregla sem
kemur mönnum sem eru óþjálir
kerfinu eða ímynduðu öryggi ríkisins
til Síberíu. Hversu langt við eigum
eftir í það form ofstjórnar skal ósagt
látið en stutt er í það kerfi ef ekki er
aðgát höfð. Ofstjóm kerfisófreskj-
unnar er miskunnarlaus og hörð við
þá sem hún ætlaði að vernda. Það er
ef til vill dæmigert fyrir aðgangs-
hörkuna á Islandi að nú er kominn
fiokkur er hefur það að stefnumiði að
vernda manninn og þá væntanlega
fyrir kerfinu.
I Evrópu komu græningjar á at-
kvæðamarkaðinn þar sem aðgerðir
til vemdunar náttúru voru
aðkallandi. Á Islandi kemur sam-
hyggjuflokkur er ætlar að vernda
manninn og veröur hann eflaust
hinum flokkunum þungur í skauti.
Sigurður Antonsson.
að enn sleppa einhverjir við að inn-
heimta söluskattinn og skila til
Alberts. Þá bæta þeir enn 25 nýjum
stööugildum í skattarannsóknar-
deildina. Hún gæti þá fengið sér-
heitið „trippadeildin” til
afmörkunar frá öðmm deildum.
Yröu starfsmenn hennar sérstaklega
útbúnir f jórhjóladrifsbifreiðum til að
fylgjast með borgarbúum sem fara í
sveitimar til að kaupa folaldakjöt á
mun lægra verði en hina vemduðu
leiðbeindu bændum í bókhaldi,
prentun reikninga og yfirfæru Ieyfis-
veitingar.
Allt í kerfi, ekki satt
Nýlega kærðu hótel- og veitinga-
menn starfsbræður sína í heima-
húsum og lögreglan var send á
staðinn til aö aðgæta hvort bruna-
varnir, útgöngudyr og rúmstæði
væru í lagi fyrir guðs blessaða ferða-
mennina og gjaldeyrisskapandi.
• „Ofstjórn kerfisófreskjunar er misk-
unnarlaus og hörð við þá sem hún ætlaði
að vernda.”
dilkakjötsframleiðslu. Það væri
ærinn starfi frá haustmánuðum að
vordögum. Síðan gætu lög-
reglumennirnir úr trippadeildinni
tekið að sér að fylgjast með túristum
yfir sumarmánuðina. Hvarþeir ækju
heim að sveitabæjum, drykkju kaffi
eða þægju aðra þjónustu, t.d.
gistingu eða hestaleigu. Síðan kæmu
þessir blessaðir starfsmenn trippa-
deildarinnar, væntanlega viðskipta-
lærðir úr æðsta skóla landsins og
Einnig var kannaö hvort skattar og
skyldur væm greidd til hins opinbera
svo og hvort leyfisveiting væri í lagi.
Þig og mig skal vemda af hinu
opinbera og s já til þess að allir greiði
tilskilin gjöld til að viðhalda kerfinu.
Daglega flæða yfir skatt-
greiðendur og innheimtumenn ríkis-
sjóðs alLskonar aðvaranir í til-
kynningaformi útvarps frá morgni
til kvölds. Hversu langt er ekki í
sjónvarpsauglýsingar um lokun og
Kjallarinn
SIGURÐUR
ANTONSSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI
NÝBORGAR
dráttarvexti verði ekki tilskilin gjöld
greidd á réttum tíma? Sjónvarpið
hefur riðið á vaðið og innheimtir sín
gjöld af tiltölulegri smekkvísi og
gamansemi. Bifreiðaskatta-
auglýsingin er ekki jafnhógvær.
Segja má að rikisfjölmiðill eins og
útvarp sé gróflega misnotaður.
Þegar það sendir frá sér allskonar
hótanir frá opinberum aöiljum dag-
inn útoginn.
Greiddu rafmagnið, hitann, skatt-
ana, bifreiðagjaldið, eindagi,
dráttarvextir, viðurlög og hvað það
nú heitir allt, aö öðrum kosti máttu
búast við óþægilegum aðgerðum.
Þræll opinberra afskipta
Nútímamaðurinn sem með hverju
árinu er líður verður meiri þræll
opinberra afskipta og tölva með
dráttarvexti og mánaðarlega
innheimtu situr i sinni eigin
gildru fullur af tækni og heimtu-