Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1984, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1984, Síða 12
 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stiórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖROUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoðarritsi|órar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 684611. Auglýsingar: SÍDUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiösla, áskriftir/ smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerö: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Áskriftarverð á mánuöi 275 kr. Verö í lausasölu 25 kr. Helgarblaö28 kr. Einokun eykst Landbúnaöarmafían fullyrðir, aö hækkun kjarnfóður- gjalds úr 19% í 89% sé tilraun til að draga úr offram- leiðslu á mjólk. Ekki er aögerðin þó áhrifameiri en svo, að í undirbúningi er aukin mjólkurframleiðsla á búi fram- leiösluráðsmannsins á Hálsi og ráðherrans í Seglbúðum. Hægt er að benda á mun áhrifameiri aðgerðir til að minnka mjólkurframleiðsluna. Til dæmis mætti hætta að niðurgreiða áburð með hinu fáránlega lága orkuverði til Áburðarverksmiðjunnar. Ennfremur mætti einfaldlega lækka verð til neytenda á mjólk og mjólkurvörum. Kjarnfóðurgjald hefur hins vegar fyrst og fremst áhrif á framleiðslu eggja, kjúklinga og svína. I þessum greinum er langmest notað af kjarnfóðri. Hin gífurlega hækkun gjaldsins mun einkum hafa þau áhrif, að egg, kjúklingar og svínakjöt hækka í verði. Þegar landbúnaöarráðherra ákveður að stórhækka kjarnfóðurgjaldið samkvæmt tillögu Framleiðsluráðs hinna hefðbundnu greina landbúnaðarins, er hann fyrst og fremst að reyna að færa neyzlu frá kjarnfóður- greinunum yfir í hinar hefðbundnu greinar kúa og kinda. Um leið er stefnt að auknum tökum landbúnaðarmaf- íunnar á bændum í ræktun svína og alifugla. Það gerist á þann hátt, að hluta kjarnfóðurgjaldsins er skilað til baka í verkefni, sem njóta náöar mafíunnar. Við höfum þegar séð dæmið af eggjadreifingarstöðinni. I Kópavogi er verið að reisa stöð fyrir peninga, sem neytendur hafa í rauninni greitt, því að það eru þeir, sem að lokum borga kjarnfóðurgjaldið í hærra vöruverði. Að þessari stöð standa hinir þægari eggjabændur, sem eru þóknanlegir hinum einokunarsinnuðu. Ætlunin er að þröngva hinum óþægari eggjabændum smám saman inn í þessa stöð. Niðurstaðan á að vera, að „jafnframt yrði undirboðum hætt”, svo sem einn blaða- fulltrúa mafíunnar játaði í nýlegri lofgrein um eggja- dreifingarstöðina. Fá orð hans segja langa sögu. Einokunarlið landbúnaðarmafíunnar vill koma eggja- framleiðslu í sama ofsadýra skipulagið og ríkir í hinum hefðbundnu greinum landbúnaðarins. Það vill hindra, að stórtækir eggjabændur geti blómstrað með tækni og hag- ræðingu og lækkað eggjaverð í landinu. Athyglisvert er, að á tímum, þegar frjálsræði fer vax- andi á ýmsum sviðum, er einokun að færa út kvíarnar á öðrum sviðum. Á sama ári og miklar sprungur hafa myndazt í einokun á kartöflum er verið að koma á fót einokun í eggjum, þar sem áður ríkti frelsi. Furðulegt er, að sex ráðherrar Sjálfstæðisflokksins skuli ekki geta haldið aftur af einokunarstefnu land- búnaðarráðherra Framsóknarflokksins. I þessum ráðherrum á þjóðin ekki nokkra vörn, þegar hagsmunir landbúnaðarmafíunnar eru í húfi. Þá blaktir einokunin. Neytendur hafa enga pólitíska vörn í eggjastríðinu, sem einokunarliðið hefur blásið til. Hið eina, sem þeir geta gert, er að treysta á sjálfa sig. Þeir geta hafnað eggj- um einokunarinnar og eingöngu keypt egg frá hinum frjálsu, sem enn hafna fjötrunum. Alveg eins og í kartöflunum geta neytendur brotið eggjaeinokunina á bak aftur. Það mundu neytendur í út- löndum gera, ef þröngva ætti upp á þá einni dreifingar- stöö með einu verði. Þeir geta neitað að skipta við einokunarstöðina, sem landbúnaðarmafían er að þröngva upp á þá. Jónas Kristjánsson. Kjallari á fimmtudegi „Hafa þessir einkaboðberar andvaraleysisins marsérað um götur og torg þegar helst var von á fóiki á ferli tilað kyrja siagorð sin og veifa svivirðingum um Vesturlönd." Skuggahlið á skoðanakðmun Mönnum hefur oröiö tíðrætt síö- ustu dagana um skoðanakönnun nokkra, sem meðal annars leiddi i ijós meiri samstööu um utanríkismál en margir bjuggust viö. Hávaða- samir minnihlutahópar hafa haldiö uppi harðsnúinni andstöðu gegn þátt- töku Islendinga í varnarsamtökum vestrænna þjóöa og bergmálaö dyggilega allar kenningar Kreml- verja um nauösyn þess fyrir Evrópubúa aö vera vopnlausir og andvaralausir svo auöveldara yrði fyrir þá aö koma á afgönsku lýðræði á Vesturiöndum. Hafa þessir einkaboðberar andvaraleysisins marsérað um götur og torg þegar helst var von á fólki á ferli til aö kyrja slagorö sín og veifa sví- virðingum um Vesturlönd. Fyrirferö þeirra hefur oft á tíðum verið slík aö menn hafa ofmetið styrk þeirra og fylgi. Skoðanakönnunin nú og raunar fyrri skoöanakannanir hafa leitt sannleikann áþreifanlega í ljós. Yflr- gnæfandi meirihluti þjóöarinnar fylgir í grundvallaratriðum þeirri utanríkisstefnu sem fylgt hefur veriö. Auövitaö er það mjög misjafnt hvaö mönnum finnst eftirtektar- veröast við þessa nýjustu skoðana- könnun. Mér finnst þó á umræðu manna aö tvennt veki mesta athygli. Annars vegar það að fjóröi hver kjósandi Alþýðubandalagsins er fylgjandi þátttöku Islendinga í vamarbandalagi Vesturlanda, NATO, hitt er þaö aö meirihluti þjóðarinnar virðist samþykkur gjaldtöku í einhverri mynd fyrir dvöl vamarliðsins á Islandi. Þaö er í meira lagi hjákátlegt aö heyra forystumenn Alþýðubanda- lagsins foröast að minnast á fylgi kjósenda þess viö Nato og þótt ekki nema 7% kjósenda þess styöji ennþá dvöl vamarliðsins hérlendis er mjög líklegt aö sú tala eigi eftir að hækka. Veröur að segjast eins og er að ekki er von aö forystumönnum Alþýðu- bandaiagsins gangi vel að telja þjóðina á úrsögn úr Atlantshafs- bandalaginu á meöan kjósendur flokksins virðast vera í óöa önn að snúa baki viö stefnunni. Hið mikla fylgi innan Alþýðubandalagsins við gjaldtökuna bendir einmitt til þess aö þama sé komin af staö þróun er enginn veit hvar endar. Er greinilegt aö til lítils hefur veriö kyrjað á götum og torgum. Gjaldtakan á sér mikið fyigi Hitt atriðiö sem ég held að hafi komið mönnum verulega á óvart er hiö mikla fylgi viö gjaldtöku fyrir dvöl vamarliðsins hérlendis. A þaö hefur veriö bent af andstæðingum gjaldtöku aö stjórnandi skoöana- auka öryggi þegna þessa lands. Þarna hafa menn einkum og sér í lagi góða vegi í huga, sem gætu tekiö viö miklum straumi fólks er kynni aö þurfa að leita skjóls í fjarlægum landshlutum. Hafnir og flugvellir eru einnig gjama nefndir sem hugsanleg „greiðsia” fyrir landið undir her- stöðina. Yfirleitt segist fólk ekki vilja beinar peningagreiöslur er gangi inn í reksturinn, en finnst h'til sem engin hætta í hinu f ólgin. MAGNUS BJARNFREÐSSON Skylt er skeggið hökunni Auðvitað er ekki hægt annaö en aö viðurkenna aö í þessu eru nokkur sannindi fólgin. Engu aö síöur er ljóst aö allar slíkar greiöslur og öll slflc framlög koma til með aö hafa áhrif á íslenskt efnahagslíf. Og öll koma þau til með að gera okkur háöari dvöl herliðsins hér en ella. A „Ég hefi áður látið í þessum greinum W í Ijósi andstöðu við gjaldtöku í hvers konar mynd og hefi ekki skipt um skoðun.” könnunarinnar hafi sjálfur tekiö fram að spurningar um þetta atriði kunni aö hafa verið þannig fram sett- ar aö svör hafi fremur hnigið í þessa átt. Þaö kann aö vera rétt, en ég held aö menn megi ekki vanmeta þessa niöurstööu. Hið mikla fylgi við gjaldtökuna kom mér á óvart, það skal ég hrein- skilnislega viöurkenna. Mér datt ekki í hug að hún væri svona almenn. Allir stjórnmálaflokkamir hafa lýst yfir andstöðu við hana, þaö er nánast hiö eina sem fullt samkomulag hefur virst um milh þeirra í öryggis- og vamarmálum. Eftir að þessar niðurstöður skoöanakönnunarinnar lágu fyrir hefi ég reynt að leita álits fólks í kringum mig á þessu atriði og ég er sannfærður um aö svörin eru ekki út í hött og eru ekki nema að litiu leyti afleiðing leiöandi spurninga. Ötrú- legasta fólk hefur látið í ljósi fylgi viö þessar skoöanir og ég er hræddur um aö þeim sé sífellt að aukast fylgi. Raunar er ég sannfærður um aö þaö er mjög misjafnt hve langt fólk vill ganga. Ekki nándar nærri alhr sem vilja gjaldtöku í einhverri mynd vUja fá beinar peningagreiöslur fyrir afnot af landi. En margir benda á að ekki sé óréttlátt að á meðan viö lán- um land undir herstöö sem líkleg sé til þess aö draga að sér hemaðar- aögeröir ef tU styrjaldar kæmi, þá séu hinir sömu aöUar skikkaöir til þess á móti að leggja fram fé tU að Eg hefi áöur látiö í þessum greinum í ljósi andstöðu við gjald- töku í hvers konar mynd og hefi ekki skipt um skoðun. Eg held líka aö ekki fari miUi mála aö ég sé fylgjandi aðUd aö Nato og dvöl vamarUösins eins og á stendur. En ég vil ekki að viö verðum fjárhagslega háöari dvöl þess en þegar er oröið. Þaö verður ef við tökum gjald fyrir hana i ein- hverri mynd. Þaö er önnur ástæöan fyrir því aö ég er andvígur g jaldtöku. Hin meginástæðan er sú aö mér finnst það ekki sæmandi okkur sem þjóö að reyna aö hagnast á þennan hátt á því aö öryggi okkar sé treyst tU hins ýtrasta. Þar þýðir ekkert aö vitna tU suðlægra þjóöa með vafa- samt siöferöi í hvers kyns fjármála- vafstri, þar sem mútur og hvers kyns spUUng em lyklar að völdum og veg- semdum. Halda menn að það sé langur vegur í miUi greiðslna fyrir landafnot og mútugreiöslna fyrir skoöanir og völd? Nei, takk, hann er stuttur og við skulum ekki byrja á að feta hann. Hiö mikla fylgi viö gjaldtökuna sýnir hins vegar að nauðsynlegt er aö koma á upplýsandi umræðu um þessi mál. Hana hefur skort og ef til vUl hefur sumt fólk ruglað saman andstöðu viö gjaldtöku og andstööu við dvöl vamarUösins. Það verður aö gera ahnenningi ljóst, að það eru tvö algerlega aðskUin mál. Magnús Bjarnfreðsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.