Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1984, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1984, Síða 7
DV. LAUGARDAGUR18. ÁGÚST1984. 7 maðurinn væri samsettur af sjö líköm- um, efnislíkama, skugga, tvífara, sál, hjarta, anda, er nefndist khu, afli, nafni og andlegum líkama. Við dauðann var skugginn skilinn frá efnislíkamanum og var hægt aö ná sambandi við hann aðeins með vissum dulrænum athöfnum sem aðeins fáir útvaldir kunnu (e.k. miðilsfundur). Aöallega er þó talað um aöeins tvo andlega líkama er nefndust ka og ba. Ka bjó í grafhýsinu eða múmíunni, og varð til við fæðingu, og var einnig lífs- kraftur einstaklingsins. Konungar og guðir áttu tvö ka, annað er bjó á „himnum” eða með guðunum, og hitt er var í líkamanum og bjó í pýramídanum eftir dauðann. Ba, sem táknaður var fugl með mannshöfúö, yfirgaf líkamann á dauöastundinni en mátti ferðast um á daginn en varð aö koma aftur inn í múmíuna aftur aðnóttu til. Dánarheimur almennings var ekki hinn sami og dánarheimur faraóanna. Almenningur fór til heims þar sem hann lifði svipuðu lifemi og hann gerði ihér, og ef vanþroskaöur varð hann að Itaka út refsingu er nefnd var „endur- fæðing” (þ.e. koma aftur hingað til jaröarinnar og þroska sig betur). Konungsstéttin fór aftur til goðheima því í þessu lífi var hún álitin afkomandi guðanna eöa milliliður þeirra. Ein trúin var sú að við dauðann yrði konungurinn að nýrri stjörnu á næturhimninum til þess að verða al- séður um gjörvallt Egyptaland. — Einnig var því haldið fram að konungurinn hitti sólguðinn Re eða Ra og sigldi með honum um himininn á barkskipi sínu, (sólinni). Þessi trú var algeng á fimmta konungstímabilinu . (2494 -2345 f.Kr.). Einnig var sú trú aö þegar konungur andaöist færi sál hans til dánarheima þar sem hann mætti fyrir dómstól 42 dómara og þyrfti að svara fyrir sig (ósiris trú). Jafnframt var hjarta hans vegið á vogarskálum réttlætis og ef hann reyndist verðugur fékk hann inn- göngu í hina eilífu sælu. Ekki er alveg öruggt hvort nokkur kvalarstaður eöa helvíti hafi verið í dauðahugmyndum Egypta. — Þó er getið um óvætt einn er Ammút hét, sem var að hluta ljón, krókódíll og flóð- hestur. Sagt er að hann hafi verið vörður er gætti inngönguleiöarinnar í hina eilífu sælu. En sumir vilja halda því fram að hjarta þeirra sem ekki reyndust verðugir að dvelja meðal réttlátra, væri kastað til hans. Ekki er sú hugmynd ólíkleg því að nafn hans þýðir „HAMUR.” Osiris-trúin, og þær hugmyndir er tengjast henni um dauðann, var afar- vinsæl og í hávegum höfð. Væri of langt mál aö útskýra þá trú hér. Skraut I nýkonungsríkinu (1300—1200 f.Kr.), var hætt að fjarlægja innyflin, og í stað kanópik-krukkanna voru settir fjórir verndarvættir er nefndust hinir fjórir synir Hórusar. — Þekking manna á varðveislu líka og öðrum iön- greinum jókst og umbúðir urðu vandaöri í alla staði. T.d. var farið að skreyta líkkistur og mála mynd af hinum látna á þær á 21. konungstíma- bilinu (1085—945 f.Kr.) og um 305—30 f. Kr., á hinum svonefnda PTOLE- MISKA-tíma, var farið að skreyta lík- kistur með gleri og eðalsteinun. Síðan var farið að hafa þetta einfalt (um 30 f.Kr.) og múmíum komiö fyrir í trjágrindum er síðan voru vafðar og skreyttar. Enda geymdar í húsi eftir- lifandiættingja. Á þriðju og f jórðu öld eftir Krist má segja að múmíugerö sé meö öllu horfin. -Ronald M. Kristjánsson. Heimildlr: Death in Ancient Egypt e. A.J. Spencer. Egyptian Mythology e. Veronica Ions. minnisleysi sálarinnar (hinn annar dauði) sem Egyptar óttuöust mest. Elstu heimildir, sem við höfum í dag varðandi greftrun í Egyptalandi, er hægt aö tímasetja allt að 3000 árum fyrir Kristsburð. Þá voru grafir opnar og hring- eða egglaga. Voru þær þar sem eyöimörkin og frjósamur Nílardalurinn mættust. Þurr eyðimerkursandurinn þótti heppilegri greftrunarstaöur því að hann varðveitti líkið mun betur en rakur, fr jósamur jarövegurinn. I dag má enn finna slíkar grafir og líkin ótrúlega vel varöveitt. Áður en múmíur komu til sögunnar voru líkin í fyrrnefndum gröfum lögö þannig til að hnén voru dregin upp aö höku (dregin í kuðung), hendurnar lagðar fyrir framan andlitið og líkið látið snúa í vestur (sólsetur, í átt að dánarheimi). Egyptar héldu því fram að án líkamans ætti sálin engan hvíldarstað og gæti því ekki þrifist (leystist upp). Það tíðkaöist einnig aö ýmsum veraldlegum hlutum væri komið fyrir í gröfinni sem hinn fram- liöni gat notiö góös af á ferð sinni um dánarheima og þegar hann kom aftur í gröf sína. Þetta voru til dæmis leirker, verkfæri, matur og ýmsir verndar- gripir. Síðar þróast grafir upp í þaö að þeim er lokað. Voru sum lík þá vafin geitar- skinni eða ullarbrekáni. Viöarkistur var farið aö nota snemma á fyrsta konungstímabilinu (3100—2890 f.Kr.), þó með sama sniöi og áður, að draga líkið í kuöung. Því næst þróast hinar egglaga grafir í rétthymdar þar sem auðveldara var aö loka þeim. Ut frá þeim þróast e.k. jaröhús sem kistan var lögð í ásamt hlutum þeim er nauðsynlegir þóttu fyrir hinn látna. Frá þessum gröfum þróast svo graf- hýsi er mastaba nefndust (hlaðnar grafir með flötu þaki). Á þriðja konungstímabilinu (2780—2680 f.Kr.) koma þrepa-pýramídarnir, og svo hinir eiginlegu pýramídar. Stærstur þeirra er Keops-pýramídinn, eöa pýra- mídinn mikli eins og hann er oftast nefndur. Er hann 160 m hár og þekur um 13 ekra svæöi. öll ofantöld grafhýsi vom hin mestu völundarhús, með löngum göngum og ranghölum til að villa um fyrir ræningjum er vildu stela fjársjóðum og verðmætum sem sett höfðu verið með hinumlátna. Múmíugerð Egyptar fundu þó fljótlega út að í viðarkistum varðveittist líkið ekki eins vel og með gömlu aðferðinni. Voru þá gerðar tilraunir með aö binda um líkin og elsta heimild sem viö höfum í dag um þessa aðferð er frá tímum Djer konungs í ABYDOS (ca. 2800f.Kr.). En aöeins hönd hans (eða talin vera af honum) hefur varðveist. Það er ekki fyrr en á fjóröa konungstímabilinu (2613—2494 f.Kr.) aö hin eiginlega múmíugerð nær einhverjum fram- förum. Þá var farið með líkið á ákveðna múmíuvinnustofu er nefndist „Uabit per nefer” og þýðir hús endur- fæðingar, einnig nefnt hið góða hús, staður hreinsunar og gullsins hús. Þar var líkiö þvegið upp úr Nílar- vatni, síðan var heilinn fjarlægður gegnum nasaholurnar sem síðan voru fy lltar upp aftur með leir eöa hörlérefti til að sálin leystist ekki upp. Næst var framkvæmdur uppskuröur á vinstri síðu og innyfli (lungu, lifur, þarmar og magi) f jarlægð. Þessu var komiö fyrir í ákveðnum krukkum er nefndust kanópik-krukkur. — Hjartaö var ekki fjarlægt því það var taliö aðsetur vits- munanna og vegið í dánarheimi. Að uppskurði loknum var líkiö smurt með pálma-víni, kryddjurtum og dýrmætum smyrslum. Því næst var það lagt í sódium-salt og geymt þar í 70 daga til að þurrka þaö. Því næst var bundiö um líkið með umbúðum, vættum smyrslum, kryddjurtum, víni og bræddri viðarkvoðu (harpeis). Á meðan verið var að binda um líkið var lesið upp úr dauörabókinni svoköll- uöu, sem var e.k. leiöarvísir sálar- innar um dánarheima. Þegar talað var um látinn mann var talaö um hann sem ósiris, en um látinn kvenmann aftur sem haþor. Þetta jafngildir þvi er við segjum í dag heitinneðasálugi. Osiris og Haþor (Ament) voru nefnilega yfir dánarheimum. Dánarheimur Fom-Egyptar héldu því fram að Sanyo er með á nótunum. GXT-200 Ótrúleg tóngæði og fallegt útlít fyrir breakara á öllum aldri. Magnarí 2X10 sin. wött. Útvarp með FM steríó (rás 2) MW-LW. Plötuspílari, hálfsjálfvírkur með moving magnet, pick-up og demantsnál. Segulband með DOLBY Nr og METAL stíllingu. 50 watta hátalarar og stórglæsilegur víðar- skápur með reyklitðum glerhurðum og loki. VEFÐ AÐEINS KR. 18.876,00 stgr. Gunnar Ásgeirsson hf. Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.