Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1984, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1984, Blaðsíða 13
DV. LAUGARDAGUR18. ÁGUST1984. 13 Ég vilgjaman vita hver hringir svo ág lyfti tólinu afog svara: „Þetta er sjáifvirkur símsvari Roh/ Wesen- lunds..." Hvemig tekst þér þetta? ,,Égnota valíum!” —Hvaðsegiröu? ,,Já, ég siappa af í bátnum minum og ég hef skírt hann Valíum.” En aftur að sviðinu... „Já, ég tel það tiltölulega erfitt. Eg held að ég hafi verið skynsamur þegar ég tók mér hvíldarár fyrir fjórum árum. Eg komst að þeirri niöurstöðu að það væru það margir félagar í minni starfsstétt bæði í Noregi og Sví- þjóð sem lentu í alvarlegum vanda- málum aö ég hugsaði: Wesenlund, þú verður aö slappa af. Og ég tók mér frí í heilt ár! Það var stórkostlegt. Eg yngdist um tíu ár. Um leið fékk ég nýtt viðhorf til tilverunnar. Hræðslan um að ráða ekki við allt hvarf. Þess vegna gat ég á ný glaöst yfir því að vera til. Auk þess hitti ég Ruth, nýju konuna mina. Eg á eftir að taka mér fleiri hvíldarár. ” —Hvað gerðirðu á hvíldarárinu? ,,Eg skrifaði bók og vann við góögerðarmál. Eg vann meðal annars fyrir sjómenn. Skemmti þeim ókeypis þegar þeir voru í landi. — Þannig að lífið hefur aftur fengið tilgang? „Já, ég er ekki lengur hræddur um að deyja. Nú getur lífið boðið mér næstum hvað sem er og ég veit að ég ræðviðþað. Hatar símtæki og tómata I þessu samtali hefurðu verið ákaf- lega alvarlegur. Er það tilfellið? ,,Nei, ég býst við því að ég sé af- skaplega alvarlegur. Eg vil að menn taki mig í alvöru og líka að litið sé með meiri alvöru á skemmtun en venja er.” — Nefndu eitthvað sem pirrar þig. „Það eru tveir hlutir sem ég get sagt beint að pirri mig. Það eru tómat- arogsímtæki!” —Hvaðáttuvið? „Tómata hata ég vegna þess að allur matur er borinn fram og skreyttur með tómötum. Off, þessir rauðu hlutir eru bara skrautmeti. Þar fyrir utan eru þeir bragðlausir. ’ ’ — Og símar? „Þeir hringja bara. Eg hata þá." — En þú getur nú sveigt hjá því vandamáli. Sem þekktur maöur get- urðu með góðri samvisku orðið þér út umleyninúmer. „Jú, það er fyrir sitt leyti góð hug- mynd en ekki nógu góö. Ég vil nefnilega vita hver það er sem vill ná í mig og hvers vegna.” —Hvernig leysir þú vandamálið? „Eg er minn eiginn sjálfvirkur símsvari.” — Hvemig virkar það? ,Jíg lyfti tólinu með annarri hendinni og held fyrir nefið með hinni og svara. „Þetta er sjálfvirkur símsvari Rolv Wesenlunds. Þegar fólk- ið byrjar svo að tala og heldur að það sé að tala við símsvara legg ég inn eitt og eitt viðeigandi orö. I níutíu og niu prósent tilvika heldur fólk að svörin hafi verið leikin inn. Svona heldur leik- urinn áfram eins lengi og mig lystir. Þegar ég er orðinn leiður legg ég tólið á. Þá verður enginn reiður. Það var nef nilega ekki ég sem skellti á neinn! ” ENNBESTA AVOXTUN SPARIFJAR! Sparifjáreigendum gefst nú kosturá nýjum Landsbankaskírteinum. Öllný skírteini, sem stofnað er til 20. ágúst eða síðar, bera lVi% vaxtaálag á ári umfram almennasparisjóðsvexti semnúeru 17%. Þannig gefa nýju Landsbankaskírteinin 26% ársávöxtun. Hagkvæmari ávöxtun sparifjár er ekki að finna í öðrum bönkum eða sparisjóðum. STARFSFÓLK LANDSBANKANS AÐSTOÐAR. Allt starfsfólk í sparisjóðsdeildum Landsbankans er þaulkunnugt kjörum á skírteinunum semogöðrum innláns- formum. Þú getur því snúið þér til einhvers þeirra og rætt mál þín í trúnaði. HUGIÐ AÐ FJÁRMÁLUM YKKAR. TRYGGIÐ YKKUR LANDSBANKA- SKÍRTEINI. LANDSBANKINN Græddur er geymdur eyrir NÝIANDSBANKÁSKÍRTEINI með 71/2% vaxtaálagi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.