Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Side 2
2
DV. FÖSTUDAGUR14. DESEMBER1984.
4 MILUARÐA
TEKJUTAP
„Oft heyrist um þaö rætt, hve
erfiðlega gangi aö draga saman
seglin í ríkisrekstrinum og aö ríkis-
sjóöur hafi ekki aö sínum hluta tekiö
þátt í þeim erfiöleikum, sem aö
þjóöarbúinu steöja,” sagöi Pálmi
Jónsson, formaöur fjárveitinga-
nefndar Alþingis í gær. Hann hóf
aðra umræöu um fjárlagafrum-
varpiö 1985 í sameinuöu þingi.
„í þessu sambandi er vert aö
athuga þaö, að áriö 1982 voru skatt-
heimtur ríkisins taldar nema 32,3%
af þjóöarframleiöslu. Samkvæmt þvi
frumvarpi sem hér er til umræöu og
eftir síðasta endurmat Þjóðhags-
stofnunar á tekjuhlið frumvarpsins,
sem sýnir aö Þjóðhagsstofnun áætlar
aö tekjur ríkissjóös veröi á næsta ári
24,9 milljarðar, er innheimtuhlutfall
rikissjóðs 28,1% af þjóðar-
framleiðslu. Hér hefur því þetta
innheimtuhlutfall lækkaö á þremur
árum frá 1982 til 1985 um 4,2%. „Gat
Pálmi þess aö þessar tölur kunni aö
breytast viö endanlega gerö fjár-
laga. Ef þjóöarframleiöslan hefði
staðiö í staö frá árinu 1982 heföu
innheimtur ríkissjóös veriö um 4
milljörðum hærri.
Skattalækkanir virðist vera hægt
aö meta á verðlagi næsta árs á um
1200 milljónir króna. Þá hefur verið
dregin frá söluskattshækkunin sem
gert er ráö fyrir að veröi lögfest nú,
það er 0,5 % söluskattshækk un.
Tekjutap ríkissjóös vegna skatta-
lækkana og samdráttar í þjóöar-
búskapnum nemur um 4 milljónir
króna.
„Niöurskurður fjárveitinga til
verklegra framkvæmda á næsta ári
er sá langharkalegasti sem fram-
kvæmdur hefur veriö,” sagði Geú-
Gunnarsson þingmaður er hann
talaöi fyrir minnihluta fjárveitinga-
nefndar.
„Er þó sá munur á ytri aöstæöum,
aö árin 1983 og 1984 minnkuðu
þjóðartekjur, 1983 um 3,7% en um
0,4% áriö 1984. En í þjóðhagsáætlun
fyrir næsta ár er því spáö aö þjóöar-
tekjur aukist um 1,8%. Stjórnar-
flokkamir hafa þó ákveöiö aö þá
skuli niöurskuröur félagslegra fram-
kvæmda veröa meiri að raungildi en
nokkru sinni hefur áður þekkst,”
sagðihann.
Fulltrúar allra flokka tóku til
máls í þessari annarri umræöu um
fjárlögin og stóð umræöa lengi fram-
eftir.
-ÞG.
Kjarval tvöfaldast
— og rúmlegaþað
Þó gangverö á málverkum eftir
Jóhannes Kjarval og Asgrím Jónsson
hafi veriö á bilinu frá 150—300 þúsund
krónur aö undanförnu fer vart hjá því
að það hækki eftir aö Þingvallamynd
eftir Kjarval var seld á rúmar 500
þúsund krónur á málverkauppboði í
Kaupmannahöfn fyrir nokkru.
„Kjarval kemur ekki til með aö
hanga á alþýöuheimilum eftir þetta og
vissulega mun þetta hafa áhrif á verö
annarra mynda hans,” sagöi lista-
verkasali í Reykjavík í samtali við DV.
„Kaupandinn fer varla aö selja þessa
mynd undir 600 þúsund krónum er hún
kemur heim,” sagöi annar.
Alls voru 12 íslenskar myndir
boönar upp hjá Bruun Rasmussen
uppboöshaldara í Kaupmannahöfn og
fóru þær flestar á hærra veröi en þær
hundruðir annarra mynda sem á
uppboðinu voru. Og þaö voru aðallega
íslendingar sem fjárfestu í íslensku
listamönnunum.
,,Eg hef vissu fyrir því aö Danir
hafa ekki áhuga á Kjarval, Ásgrími og
þessum köppum,” sagöi listaverka-
sali, „enda hafa þessi „reyfarakaup”
vakið athygli og furöu í dönskum fjöl-
iniðlum,” sagöi listunnandi sem er
hnútum kunnugur. „Þaö eru ekki
íslensk söfn sem kaupa þessar rándýru
myndir, heldur einstaklingar sem eiga
nóga peninga og líklega eru þeir búnir
aö kaupa myndirnar fyrirfram. Það
borgar sig fyrir menn sem eiga svona
málverk aö fara meö þau til Kaup-
mannahafnar. Þannig krækja þeir sér
í gjaldeyri og listaverkasalar sjá sér
hag í því aö sprengja upp verö á
innlenda listaverkamarkaðinum.”
-EIR.
VITA-BAR,
Hverfisgötu 82.
ÞÚ PAIMTAR — VIÐ SENDUM.
Smurt brauð — snittur — samlokur —
hamborgarar og franskar.
Einnig gos — sælgæti — tóbak og blöð.
i flestum tilvikum sendum við
ykkur að kostnaðarlausu á
Reykjavíkursvæðinu.
Sími 23535.
Úr flugstjórnarmiðstöðinni i Kefia-
vik. Verið er að endurskipuieggja
vaktirnar.
Sitja þeir áf ram
dauðþreyttir við
ratsjárskermana?
Ohóflegt vinnuálag og uppsöfnuö
þreyta flugumferðarstjóra.
Þessi orö má lesa í skýrslu rann-
sóknamefndar um atvikiö viö Keflavík
6. september síðastliöinn þegar ekki
munaöi nema nokkrum metrum aö
tvær Flugleiðaþotur með samtals 403
menn innanborös rækjust saman.
Svipuö orð má finna í skýrslu um at-
vik hálfu ööru ári áöur. Þann 15. mars
1983 munaöi litlu aö Arnarflugsþota og
Orion kafbátaleitarvél frá Varnar-
liöinu rækjust saman skammt frá
Vestmannaeyjum. Flugstjóra Arnar-
flugsþotunnar tókst þá á síöustu
stundu aö sveig ja þotu sína til hægri og
f ramhjá Vamarliðsvélinni.
Því er von að spurt sé: Hafa menn
ekkert lært af reynslunni? Sitja flug-
umferöarstjóramir ennþá dauö-
þreyttir viö ratsjárskermana eftir
margar oglangaraukavaktir?
í skýrslu um atvikið viö Vestmanna-
eyjar lagöi rannsóknamefnd meöal
annars til aö vaktir flugumferöar-
stjóra yröu endurskoðaöar. Hvaö hef ur
gerstíþví máli?
„Viö erum á lokastigi meö tillögur
um endúrskipulagningu á stjóm,
vaktalengd og vaktakerfi,” sagöi
Pétur Einarsson flugmálastjóri í
samtali viö DV.
„Vaktir eru núna tólf klukkustunda
langar. Það er okkar hugmynd aö
stytta þær niöur í hámark átta
klukkustundir,” sagöi Pétur. Taldi
hann að nýtt vaktafyrirkomulag gæti
tekið gildi á fyrsta ársf jóröungi 1985.
Flugmálastjóri sagöi aö álag á flug-
umferðarstjórum væri ekki einvörð-
ungu þegar mikil umferö væri. Lang-
ar, aðgerðarlausar vaktir væru jafnvel
hættulegri. Álag væri einnig á aögerö-
arlausumvöktum.
Pétur sagöi aö lokum aö erlendir
sérfræöingar, sem komiö heföu hingaö
til lands og kynnt sér flugstjórnar-
kerfiö, hefðu hrósaö því.
Gátu ekki fylgst með
radaraðskilnaði
I grein í blaöinu í gær um atvikiö viö Flugumferðarstjórinn sagöi flug-
Keflavík þegar nærri lá viö árekstri mönnunum að þeir gætu ekki fylgst
tveggja Flugleiöavéla féll úr einni meö radaraöskilnaöi.
setningu oröið „ekki”. Breyttist því Beöist er velviröingar á þessum mis-
merkingsetningarinnaralveg. tökum. -KMU.
DV-mynd KAE.
RÁÐHERRARNIR
FARNIR
Norrænu forsætisráöherrarnir, sem
setiö hafa vetrarfund í Reykjavík til
undirbúnings þingi Noröurlandaráös
sem haldiö veröur hér á landi snemma
á nassta ári, eru flognir til síns heima.
Olof Palme, forsætisráöherra Sví-
þjóöar, veröur hér þó einn dag til
viöbótar í opinberri heimsókn.
A fréttamannafundi sem forsætis-
ráöherramir og forsætisnefnd Noröur-
landaráðs héldu í Norræna húsinu síð-
degis í gær kom fram að mikil eining
ríkti í norrænu samstarfi. Olof Palme
og Káre Willoch, forsætisráðherra
Noregs, deildu þó eilítiö um
kjarnorkuvopnalaust svæöi á Noröur-
löndum, annars fór fundurinn vel fram
og leystist upp vegna þess að ráöherr-
arnir voru aö flýta sér í flugvélar
sínar.
-DV-mynd KAE.