Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Síða 35
DV. FÖSTUDAGUR14. DESEMBER1984.
43
&
Nýjar bækur
Nýjar bækur
Nýjar bækur
SAGNAKVER
SKÚLA GÍSLA-
SONAR
Séra Skúli Gíslason (1825—1888) var
einn þeirra sem á síöustu öld söfnuöu
þjóösögum og sögnum og lögöu til efni í
Þjóösögur Jóns Arnasonar. Sagnakver
Skúla Gíslasonar í útgáfu Sigurðar
Nordal kom út árið 1947 og gerði
Halldór Pétursson myndir viö sögurn-
ar. 100 þjóösögur og sagnaþættir eru í
bókinni og 19 myndir. Er hér að finna
ýmsar af okkar þekktustu þjóösögum,
t.d. Galdra-Loft, Móöir mín í kví kví,
Atján barna fööur í álfheimum, sögur
af séra Eiríki í Vogsósum og af Fjalla-
Eyvindi. Þá er í bókinni ítarlegur for-
máli Siguröar Nordal og athugasemdir
umútgáfuna.
Ragnheiöur Kristjánsdóttir hannaöi
kápuna. Bókin er prentuö í Hólum og
bundin hjá Bókfelli hf.
TANNLÆKNA-
TAL 1854—1984
Komið er út á vegum Tannlæknafé-
lags Islands Tannlæknatal 1854—1984.
I ritinu er aö finna æviskrár 248 tann-
lækna.
Þar á meðal eru nokkrir Islendingar,
sem starfað hafa erlendis og sömuleiö-
is nokkrir erlendir tannlæknar sem
fengið hafa íslenskt tannlækningaleyfi.
I bókinni er grein eftir Rafn Jónsson
um „Stofnun og starfsemi Tannlækna-
félags Islands fyrstu 30 árin 1927—
1957.
Þar er einnig kandidataskrá, nafna-
skrá og skrá yfir stjómir félagsins frá
upphafi.
Formaður ritnefndar Tannlækna-
talsins er Gunnar Þormar. Bókin er
samtals 232 bls. aö stærö og var sett í
Prentþjónustunni hf., prentuð í Prent-
bergi hf. og Bundin í Bókfelli hf.
A kápuumslagi er mynd af Brynjúlfi
Bjömssyni, sem var aðalhvatamaður
aö stofnun Tannlæknafélags Islands
1927.
TVÆR LJÓÐABÆKUR
EFTIR ÁRNA
LARSSON
ORÐ ELTA
FUGLA
GÓÐVONAR-
HÖFUÐ
Ljóöasmiöjan s/f í Reykjavík hefur
sent frá sér tvær ljóöabækur eftir Arna
Larsson. Bækurnar heita Orð elta
fugla og Góðvonarhöfuö. Þær hafa aö
geyma um hundrað ljóö og er önnur
bókanna myndskreytt. Ljóöabækurnar
eru prentaöar í prentsmiöjunni Rún og
bundnar inn hjá Arnarbergi.
Aöur hafa komið út eftir Arna
Larsson bækurnar Uppreisnin í
grasinu (skáldsöguþættir) 1972 og
ljóöabókin Leikfang vindanna 1974.
Ennfremur er í ráöi hjá I.jóða-
smiöjunni s/f aö gefa út blaða- og tíma-
ritsgreinar eftir Arna frá árunum
1970—1983. Greinasafniö ber heitiö
Þrumudýröin og kemur þaö út
snemma á næsta ári.
Ljóöabækurnar Orð elta fugla og
Góövonarhöfuö fást í bókaverslun
Braga í Lækjargötu, hjá Isafold, bóka-
verslun Máls og menningar, bóka-
verslun Sigfúsar Eymundssonar og
Bóksölu stúdenta.
Rúnar Helgi Vigr'isson
EKKERT
SLOR
RÚNAR HELGI VIGNISSON
EKKERT SLOR
Ut er komin hjá Forlaginu ný skáld-
saga, Ekkert sior, eftir Rúnar Helga
Vignisson. Vettvangur sögunnar er
Fiskhúsið hf. — endalaus hringiða þar
sem Plássbúar strita viö aö bjarga
verðmætum frá skemmdum. Upp úr
iöandi mannlífi sögunnar teygja sig
nokkrir ungir þorpsbúar sem fengið
hafa slor í háriö og dreymir drauma
um lífiö utan frystihússins og oftar en
ekki tengjast draumar þeirra hinu
kyninu sem flögrar fyrir augum þeirra
meöan bónusinn sveiflar svipunni yfir
mannskapnum.
I kynningu Forlagsins segir m.a.: „I
fjörugri frásögn sameinar höfundur
gráa glettni í garö þeirra sem finnst
ekkert slor aö fá að puöa og aðdáun á
þeim sem reyna aö eygja tilgang í
lífinu þrátt fyrir sloriö. — Hér er á
feröinni litríkur skáldskapur ungs
höfundar.”
Ekkert slor er 112 bls. Prentsmiðjan
Isrún á Isafirði prentaði. Ragnheiður
Kristjánsdóttir hannaöi kápu.
BERGSVEINN SKÚLASON
ÞARABLÖÐ
ÞÆTTIR FRÁ
BREIÐAFIRÐI
Bergsveinn Skúlason er löngu þjóö-
kunnur rithöfundur. Meöal ritverka
hans eru Breiðfirskar sagnir sem kom
út í nýrri útgáfu 1982.1 Þarablöðum er
aö finna meöal annars frásögn af
breiðfirskum konum, sem stunduðu
sjóinn öörum fremur á seinni öldum og
árum, bæöi sem hásetar og formenn og
fórst þaö hlutverk vel úr hendi. Þá eru
margvíslegir þættir og sögur og í
bókarlok er langur kafli sem heitir
Slætt upp af minnisblöðum Jóns
Kristins Jóhannessonar. Jón Kristinn
var bundinn Breiöafiröi alla tíö. Eftir
hann liggja þrjú ljóðasöfn og smá-
sagnasafn. Minnisblöð sín ritaði hann
á Hrafnistu en þar dvaldi hann síðustu
æviár sín. Víkurútgáfan gefur Þara-
blöð út. Bókin er 180 bls.
Bergsveina Skulason
»arablöð
ættir frá
» ÍSLENSK
KNATTSPYRNA 1984
A»g«lr Sigu'vins-
jon vAfcro b*’’1
tíSfí
SLANu
D*,Bók kn.nspyw"""
VIÐBURÐARIKT
KN ATTSPYRN UÁR 1984!
íbókVíðisSigurðssonar, Islensk knattspyrna
1984 er allt um viðburði ársins: sigrana, glæsimörk-
in, baráttuna, ósigrana.
Sumir atburðir munu seint gleymast, t.d. sigurinn á
Walesbúum á Laugarda[svellinum í undankeppni HM
og glæsilegur árangur Ásgeirs Sigurvinssonar í
Vestur-Þýskalandi, en íslensk knattspyrna
1984 varðveitir þá alla.
Litmyndir af meistaraliðum ársins 1984, ítarlegar
upplýsingar um félög og leikmenn. Leikir allra
leikmanna í 1. og 2. deild karla og 1. deild kvenna.
Mörkin. Svart/hvítar myndir af öllum liðum 1. deildar
karla og lokastöður í öllum deildum og flokkum
íslandsmótsins.
DAGBÓK KNATTSPYRNUNNAR 1984 í MÁLI OG MYNDUM -
VÖNDUÐ BÓK SEM GEYMIR MINNINGAR UM VIÐBURÐARÍKT KNATTSPYRNUÁR.
VATNAVITJUN
Frásögurfjögurra þekktra veiðimanna af veiðiferðum,
veiðigleði og fengsælli vatnavitjun í fegurð íslenskrar
náttúru. Guðmundur Guðjónsson tók saman.
Hver og einn hefur sína sérvisku og aðferðir við veiðar:
Ólafur G. Karlsson tannlæknir, Rafn Hafnfjörð
prentsmiðjustjóri og Ijósmyndari, Hjalti Þórarinsson
læknir og Guðlaugur Bergmann framkvæmdastjóri
lýsa veiðum með mismunandi agni, segja skemmtileg-
ar sögur af ónefndum veiðimönnum og skynsömum
löxum og rifja upp ógleymanlegar veiðiferðir.
VATNAVITJUN - AGN SEM HVER
EINASTI VEIÐIMAÐUR BÍTUR Á.
Bókhlaðan