Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Page 36
44
DV. FÖSTUDAGUR14. DESEMBER1984.
DAS KAPITAL - LILIMARLENE
DAS KRAFTUR
„Suma hvaö þið þræliö
það gengur ekki neitt.
Þiö veröiö hara sljórri
og aðeins meira þreytt.”
Fyrsta plata hljómsveitarinnar Das
Kapital er rist rúnum Bubba Moithens
í bak og fyrir. Hann á flest lög og texta
plötunnar og hefur sem fyrr ýmislegt
fram að færa eins og sést á viðlagi lags
hans, Launaþrællinn, hér í upphafi.
Áöeins tvö lög er aö finna á plöt-
unni sem kappinn hefur ekki farið
nærfærnum höndum um, lagið Fallen
Angels, sem þeir Mike Pollock og
Björgvin Gíslason hafa samið og tit-
illagið. Lagiö Fallen Angels er jafn-
framt hið eina á plötunni með enskum
texta.
WHAM! — MAKEIT BIG
Með betra
glanspoppi
Breski dúettinn Wham! á geysi-
legum vinsældum að fagna um þessar
mundir enda renna frá honum smell-
irnir rétt eins og af færibandi. Og á
þessari stóru plötu hljómsveitarinnar
er aö finna meöal annars þrjá af síö-
ustu stórsmellum hennar, þannig að
það er ekki að undra að þessi gripur
seljist eins og heitar lummur. Lögin
sem hér um ræöir eru „Wake Me Up
Before You Go Go”, „Careless Whisp-
er” og ,,Freedom”.
Reyndar var „Careless Whisper”
aðeins gefið út í nafni George
Michaels, annars helmings dúettsins,
en lagið er einnig eftir hinn helminginn
Andrew Ridgeley, nokkuð sein annars
er ekki algengt um lög hljómsveitar-
innar. Hljómsveitin er nefnilega
George Michael númer eitt tvö og þrjú.
Á þessari plötu er auk smellanna
þriggja að finna fimm lög, sem öll eru
eftir títtnefndan George Michael fyrir
utar. eitt, sem er gamalt lag eftir þá
Isley Borthers. Hvaö það lag er að
ger i á þessari plötu veit ég ekki, því
mér finnst það áberandi lakasta lag
plötunnar. Varla hefur George
Michael orðið uppiskroppa meö sinell-
ina.
Hin lögin fjögur eru mjög í anda
smellanna þriggja, áferðarfallegt og
átakalaust glanspopp, sem rennur þýö-
lega um eyru. Stærsti gallinn við plöt-
una aö mínu mati er sá aö maöur var
orðinn hundleiöur á smellunum þrem-
ur loksins þegar þeir koma á stórri
plötu. Enda er búiö að spila þá linnu-
laust i eyrun á manni síöustu mánuð-
ina. Engu aö síður veröur plata þessi
aö teljast í hópi betri platna ársins þar
sem glanspopp er haft aö leiðarljósi.
-SþS-
Platan Lili Marlene er kröftug plata
eins og flest verk Bubba hingaö til.
Tónlistin er að mestu hreint og beint
„rokk n ról”, blandaö ýmsum áhrifum.
Key rð í gegn af f estu og öryggi.
Þaö lag sem er einna bestur sam-
nefnari fyrir þær tónlistarpælingar
sem Das Kapital stendur í þessa
dagana og gefur jafnframt í skyn
ákveöna framþróun hjá hljómsveitinni
er Svartur gítar, en landsmenn hafa átt
þess kost aö berja þaö eyrum og
augum í Skonrokki meðal annars. Inni-
hald textans er meira stemmningslýs-
ing en gengur og gerist í öörum text-
um, eins og titlarnir, 10.000 króna frétt,
Giftu þig 19 og Bönnum verkföll, bera
meösér.
Lítið ber á hinum nýja meðlim
hljómsveitarinnar, Jens Hanssyni á
plötunni. Tenórsaxófónn hans heyrist
aðeins í einu lagi. Það gefur hins vegar
góðar vonir um framhaldið. -FRI.
MAGNÚS OG JÓHANN - UÓSASKIPTI
Látlaus endurkoma
Magnús Þór Sigmundsson og Jóhann
Helgason eru báöir þekktir tónlistar-
menn hvor í sínu lagi. Þeir byrjuðu
aftur á móti feril sinn saman undir
nafninu Magnús og Jóhann og naut
dúettinn töluverðra vinsælda á sínum
tíma. Af og til hafa þeir komið saman
aftur og nú hefur hið nýja útgáfu fyrú--
tæki í hljómplötubransanum, Skálholt,
fengið þá til að gera plötu.
Platan nefnist Ljósaskipti og skiptist
í tvennt. Á fyrri hlið plötunnar, er nefn-'
ist jólahliðin, er aö finna lög og texta
sem vísa eingöngu til jólanna. Á hinni
hliðinni eru textarnir trúarlegs eðlis án
þess að beinast eingöngu aö jólunum.
A jólahliðinni eru bæði þekkt jólalög
og svo ný og frumsamin jólalög eftir þá
Magnús og Jóhann. Lög þeirra félaga
eru róleg og auðlærð. Best þykir mér
Gleöileg jól eftir Jóhann. Ekki er ég
alveg sáttur viö útsetningarnar á
hinum þekktu jólalögum sem þar eru
flutt. Kemur þar sjálfsagt til íhalds-
semi undirritaös um hvernig á að
flytja þau. Litla jólasyipan inniheldur
jólalög sem allir þekkja, era þau flutt
meö föstum danstakti sem ég felli mig
ekki allskostar við. Litli trommu-
leikarinn, hiö fallega lag, er of mikiö
rafmagnaö upp fy rir minn smekk.
Hin hliðin er trúarlegs eölis eins og
áöur sagöi. Byrjar á lagi sem Nútíma-
börn fluttu á sínum tíma, Konan, sem
kyndir ofninn minn. Virkilega fallegt
lag sem samiö er af Sverri Helgasyni
við ljóö Davíðs Stefánssonar. Magnús
og Jóhann syngja þetta lag vel. Eitt
annaö þekkt lag er 0, Jesú, bróöir
besti, vel flutt af þeim félögum. Fjögur
lög eru frumsamin af Magnúsi og
Jóhanni. Meðal þeúra er fallegt lag
sem Magnús hefur samiö viö Faöir-
voriö.
Ljósaskipti höföar að múiu mati
meira til bama. Er ölluin börnum holl
hlustun. Ekki er hægt að telja frum-
sömdu lögin með bestu lögum þeirra
Magnúsar og Jóhanns. Söngur þeirra
er aftur á móti alltaf áheyrilegur og í
heild er Ljósaskipti áheyrileg í látleysi
súiu. -HK.
STUÐMENN - KÓKÓSTRÉ OG HVÍTIR MÁVAR
OFTAST GERT BETUR
Stuömenn, er starfaö hafa meö hlé-
um í eúi fúnmtán ár, eru þekktir fyrir
skemmtileg og grípandi lög meö text-
um sem oft á tíðum eru bráðfyndnir.
Stuðmenn taka sig ekki alvarlega.
Meölúnirnir hafa aftur á móti starfað
sem
alvaran er meiri, samanber Þursa-
flokkúin og Spilverk þjóðanna. Seúini
árúi hafa þeir bætt viö sig einni list-
grein, kvikmyndinni. Kvikmynd
þeúra frá í fyrra, Meö allt á hreinu. . .,
sló heldur betur í gegn og plata Stuö-
inanna meö sama nafni var eúi mest
SADE — DIAMOND LIFE
Þokkafull söngkona,
þokkaleg breiðskífa
Margú- hafa haft stór orö um ágæti
þessarar fyrstu plötu Sade (frb.
Sharday) og vissulega er þetta þekki-
leg tónlist, en engin tímamótaplata. Þó
ber hún ánægjulegan vott um nýja
strauma í popptónlist og sýnir aö þessi
títtnefnda óalandi og óferjandi dægur-
lagatónlist snýst ekki bara kringum
sjálfa sig eúis og hundur sem eltir á sér
skottið. Hér er pínulítið róiö á mií
djassins og stemmningin afslappano
og dálítið rómantísk.
Aö mínum dómi kemst þessi tónlist
þó hvergi á neitt verulegt flug, djasstil-
finningin er einlægt borin ofurliöi af
poppsinnuðum húsbændum hverjir svo
sem þeir eru. Og hér er auövitaö veriö í
aöra röndúia aö reyna eitthvaö nýtt,
þaö er lofsvert, en þaö er á hinn bógúin
afleitt þegar nýjungarnar eru helst í
umbúöunum, múini í innihaldinu. Eg
held nefnilega aö þrátt fyrir fremur
góöa rödd og stórum hrífandi á köflum
þá valdi Sade sjálf ekki alls kostar
þeirri dýpt og tilfinningu sem djasstón-
list krefst.
Engu aö síöur: þetta er fullkomlega
heiöarleg tilraun og ný aöferð til þess
aö sætta þessi gömlu systkin: rokk og
djass. Margt hefur verið reynt í þeim
bræðúigi gegnum tíðúia. Og því verður
ekki móti mælt: Sade er einkar þokka-
full söngkona hvernig sem á hana er
litið: raunar alveg ótrúlegt samræmi í
útliti og raddblæ og þaö er sennilega
ekki hvaö síst samspil þessara tveggja
þátta sem hefur lyft Sade upp á
stjömuhiminúin.
Eftú aö hafa heyrt lögúi af fyrstu
smáskífunum: Your Ixive is King og
Smooth Operator átti ég satt best að
segja von á betri breiðskífu. Asamt
Frankie’s First Affaú eru þetta bestu
lögin; besta lagið þó ekki á plötunni,
béhliöin af fyrstu smáskífunni: Love-
Affair With Life. Og svo verða menn aö
hafa í huga aö Diamond Life er
byrjandaverk, fyrsta plata Sade, og
þaö er fyllsta ástæða til þess að bíða
spenntur eftir framhaldinu. Aö sama
skapi, ástæöulaust aö hoppa hæö sina í
loft upp vegna Diamond Life. Þægileg
tónlist og þokkafull en skortir dýpt.
-Gsal.
selda platan enda virkilega skemmti-
leg og komu þar fram allir bestu kostú
þessara ágætu listamanna.
Þaö hefur því þótt sjálfsagt aö fylgja
þessari vinsælu kvikmynd eftir meö
annarri kvikmynd þótt ekki sé hún
beint framhald. Hvítir mávar nefnist
hún og veröur frumsýnd fljótlega eftir
áramót. Platan meö lögum úr kvik-
myndinni er komúi út og nefnist hún
Kókostré og hvítir mávar. Þaö verður
að segjast að nokkrum vonbrigðum
hefur platan valdiö undúrituðum.
Ekki þaö að hér sé um lélega plötu aö
ræöa heldur hitt aö þegar eiga í hlut
jafnfærú tónlistarmenn og Stuðmenn
eruþá býstmaöur viðmeiru.
Textarnir skemmtilegu eru á sínum
staö og bregöast þeir ekki. Þaö eru
lögin sem í heild ná ekki þeún standard
sem búist var viö. Hafa ber samt í
huga viö dóm á lögunum aö þau eru
samúi við kvikmynd og þar sem undir-
ritaöur hefur ekki séð myndina enn,
getur vel verið aö melódíurnar passi
vel viö þaðefni sem hvert lag á við.
Platan byrjar aö vísu glæsilega.
Hringur og bítlagæslumenn er besta
lag plötunnar og endúinn á plötunni er
í samræmi viö byrjunina. Hið fallega
lag Ut í veöur og vúid er eúinig virki-
lega gott lag. Inni á milli þessara laga
er ýmislegt sem ekki er eins gott. Þar á
meðal er lag sem er aö múinsta kosti
jafngamalt Stuðmönnum, Honey Will
You Marry Me, og þrátt fyrú góöa út-
setnúigu er litið púöur í því. Annað lag
sem Stuðmenn hafa flutt viö ýmis tæki-
færi er Come Pretty Baby To The Go
Go Party, lag sem ekki hefur áöur
komiö út á plötu. Er þaö grípandi og
einföld laglína sem Stuömenn fara vel
með. Góö videomynd hefur verið gerö
kringum þetta lag og geta áhorfendur :
fengiö þar smásýnishom af því sem i
koma skal þegar myndúi Hvítú mávar i
verður tekin til sýninga.
Nýju lögin á plötunni eru öll samúi afl
Jakobi Magnússyni, Valgeiri Guöjóns-
syni og Agli Olafssyni og hefur þeim
oftast tekist betur upp í lagasmíöúini
en þeim bregst ekki bogalistin í texta-
gerö. Það er ekki aö efa aö einstaka lög
á Kókostré og hvítú mávar eiga eftir
aö heyrast mikiö á næstunni en í heild
veröur plötunnar sjálfsagt helst
minnst sem laganna úr kvikmyndinni
Hvítúmávar. -HK.
Sæl nú! Þeir hafa nú aldrei
verið að skafa neitt utan af
hiutunum, bresku gagnrýn-
endurnir, eins og margir
vita. Einn þeirra var freniur
óhress með jóialagið frá
Wham! strákunum, sagði i
lausiegri íslenskri þýöingu og
staðfærðri aö lagið yrði
örugglega smellur en sjálíur
kysi hann-fremur aö hiusta á
áramótaávarp útvarps-
stjóra. . . Það ríkir mikið
bræðralag meðai poppstjarn-
anna fyrir þessi jól. Öll heistu
goðin búin að syngja saman
inn á plötu i þágu söfnunar-
ínnar fvrir Eþíópíu og það
R10
lag; Dö They Know It’s
Christmas þegar á toppi
Lundúnalistans. Þá hóaði Paui
Welier úr Style Couneil í
nokkra þekkta poppara og
baö um aðstoð við gerð plötu
sem tiieinkuð verður náma-
mönnum í Bretlandi. Platau
átti að koma út i gær.. .
Human Leagueog Alvin Star-
dust tróðu upp í vikunni í
Sheffieid og ágóðinn af
hljómleikunum rann óskiplur
í Eþiópíusjóðinii. sömuleiðis
fé af hljómieikum í Royal AI-
bert Hall fyrr i mánuðiiium
þar sem fram komu meðal
aunarra: Niek Heyward,
Mari Wilson, Feargal
Sharkey, Thomas Dolby,
Alvin Stardust, Riek Wake-
man, Matt Bianeo og Trevor
Walters.. . Og fleiri troða
upp í þágu góðs malefnis:
Flying Piekets, Helen Terry
og Jools Hoiland skemmtu á
dögunum og söfnuðu fé fyrir
sjóð sem hefur það inarkmið
aö sérmennta lækna i
krabbameinsfræðum. Floy
Joy og Working Weekætla
sto aö lialda hljómieika í
uæstu viku og safna fé fyrir
Chile og Thompson Twins
sem gátu ekki verið með i
Band Aid ævintýrinu gefa
hluta af ágóða nýjustu smá-
skifunnar í Eþíópiusjóð-
inn. .. Og svo er fólk að segja
að poppfotkið sé ekkí fallega
þenkjandil. .. Jólalög eru nú
farin að setja svip sinn á
vinsældaiistana og fyrir utan
Band Aids lagið i efsta sæti
breska iistaus eru á þeim
lista jóialög með Wham (2),
Toy Dolls (161, Queen (21) og
Gary Glitter (22). Tölurnar í
svigunum merkja sæti á list-
anum. .. Það bætast alltaf
við uöfn í anda Frankie Goes
to Hollywood. Nýjar hljóm-
sveftir, sem við höfum haft
spurnir af, heita þessum
nöfnum: Freddie Goes to
Crieklewood, Ronnie Goes to
Liverpool og Bonzo Goes to
Washiiigton. . . Ekki meiri
molar að sinni. Góða heigi!
-Gsal