Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1985, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1985, Page 7
DV. FIMMTUDAGUR 24. JANUAR1985. 7 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur UM MEGRUN Upphafsorð: Það er kannski í sjálfu sér aö bera í bakkafullan lækinn aö skrifa um megrun. Þó má koma meö nokkur einföld ráð sem ættu aö koma fólki aö gagni í baráttunni við aukakílóin. Matur og hreyfing: Fitusöfnun á líkamanum veröur vegna þess aö einstaklingur neytir fleiri hitaeininga heldur en hann eyöir. Til þess að ná fram árangri í megrun þarf aö snúa þessu tafli við. Slíkt er þó ekki eins auðvelt aö framkvæma og aö segja. Til þess aö brenna umframhitaein- ingum þarf aö auka hreyfinguna. Hægt er aö fara í göngutúra eöa í létta leik- fimi. Þeir sem treysta sér til ættu að taka hlaupaspretti viö og viö. Hins vegar ætti fólk að gæta sín á því aö verðlauna sig eftir erfiðið, með því aö fá sér aukabita úr sjoppunni eöa bakaríinu. Fólk er nefnilega miklu fljótara að sporðrenna 100 hita- einingum heldur en aö brenna þeim. Ef sett er upp í töflu annars vegar þaö sem þarf aö gera til þess að brenna 100 he. og hins vegar hversu mikið magn þarf aö borða til þess aö fá 100 he. sésteftirfarandi: Bruni 100 he. Neysla 100 he. Ganga hratt 15 mín. 1/2 vínarbrauð Hlaupa 10 mín. 1 kókosboUa SyndahrattlOmín. 1/3 stórt prins póló Dansa25mín. lmiHistórkók 1 lítil ferna sykurlaus ávaxtasafi. Megrun og mataræði: 1 kg af fituvef inniheidur 7000 he. Ef einstaklingur dregur úr hitaeininga- neyslu sinni sem svarar 1000 he. á dag, þ.e. minnkar neysluna úr 2000 he. í 1000 he.,eyöirhannlkg af fituvef á viku. TU þess aö ná árangri verður einstaklingur aö breyta mataræöi sínu. Jafnframt veröur hann aö gera sér grein fyrir því að þörf líkamans fyrir næringar- og bætiefni er óbreytt. Þaö þarf aðeins aö draga úr hitaeininga- neyslu. Sá einstaklingur sem ætlar í megrun verður aö fá mat úr öUum fæöuflokk- um. I stuttu máU sagt verður hann að draga úr fitu- og sykurneyslu en auka grænmetis- og kornneyslu. Megrun og markmið: Það hafa verið geröir óteljandi megrunarkúrar sem eiga að leysa vandamáUö á mjög stuttum tíma. Því miður eru þessir megrunarkúrar t.d. jógúrtkúrar, kolvetnasnauöir kúrar, bananakúrar, ananaskúrar, grape- kúrar o.s.frv. afskaplega einhæfir og jafnframt mjög takmarkaðir næringarfræðUega séö. Þegar byrjað er á megrun verður hver og einn að setja sér raunhæft markmið aö stefna aö. Megrun tekur mjög langan tíma og krefst mikillar þolinmæöi vegna þess að oft skiptast á skin og skúrir meðan á baráttunni stendur. Raunhæft markmið er að ná af sér 1 — 11/2 kg á viku. En hvaö þarf aö gera til þess aö slíkt sé hægt? Notkun fæðutegunda: Grænmeti: Þennan fæöuflokk á aö boröa í miklu magni soöinn eöa ósoöinn. Ávextir: Ávextir gefa töluveröar hitaeiningar og því ætti aö miða dagsneyslu viö 2 ávexti. Foröast þurrkaða ávexti, rúsínur, döðlur og fíkjur. Kartöflur: Þær á að boröa soðnar eða bakaöar í takmörkuöu magni. Rótarávextir: Boröa soöna eöa hráa rótarávexti. Mjólkurvörur: Miöa neyslu mjólkurvara við margar tegundir, t.d. léttmjólk, undanrennu, léttost og léttjógúrt. Kjöt og fiskur: Boröa oft magran fisk, soöinn eða ofn- bakaðan. Einnig boröa magurt kjöt. Brauð og mjölmatur: Boröa helst sykurlaus brauð og mjöl- mat í takmörkuðu magni. Foröast aUt kaffibrauö. Feitmeti: Nota ekkert smjör eöa jurtasmjörlíki á brauö. Ef einhver fita er boröuð á aö miða við að hún innihaldi mikiö af linolsýru, t.d. lýsi eða sólblómaolia. Lokaorð Hér hefur veriö stiklað á stóru í sam- bandi við megrun. Til þess aö árangur náist veröur fólk aö gerbreyta matar- æöi sínu og auka hreyfingu sína. Til dæmis skilja bUinn eftir heima og fá sér göngutúr í staöinn. Hér er um lang- tíma markmiö aö ræða sem krefst mikiUar þolinmæði og hjálpsemi allra í fjölskyldunni. Gunnar Kristinsson matvælafræðingur SJÚKRAHÚS SKAGFIRÐINGA Sauðárkróki, óskar að ráða: Sjúkraþjálfara nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Ljósmóður til afleysinga í vetrarleyfum. Einnig óskast: Hjúkrunarfræðingar, Ijósmæður, sjúkraþjálfarar, meina- tæknar og sjúkraliðar til sumarafleysinga. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 95-5270. VIÐ RÝMUM VEGNA FLUTNINGA TEPPABUDIN SiÐUMÚLA 31 STORÚTSALA Mikið úrval af fatnaði, t.d. gallabuxur flauelsbuxur háskólabolir jogginggallar úlpur jakkar vinnuskyrtur sokkar - . stígvél 11 leðurjakkar lf SKÚLAGÖTU 26 Sendum í póstkröfu VINIMUFATABUÐIN Sími 11728

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.