Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1985, Page 1
Skagfirðingar flýja undan ríkisrafmagninu:
Einkastöðvamar borga
sig upp á fáeinum ámm
Gríðarlegur áhugi er nú meðal ým-
issa manna í Skagafirði á þvi að ger-
ast sjálfum sér nógir í orkumálum.
Víða eru aðstæður til þess að koma
upp einkarafstöðvum. Notast raf-
magnið bæði til venjulegs heimilis-
og búreksturs og til upphitunar.
Stöðvamar eru taldar borga sig upp
á 3—5 árum, sé miðað við taxta Raf-
magnsveitna ríkisins og oliuverð.
Samkvæmt heimildum DV hefur
Bragi Þ. Sigurðsson, vélsmiður á
Sauðárkróki, nýlega smíðað raf-
stöövar fyrir bæina Vatn á Höfða-
strönd og Fremri-Kot. Hann mun
smíða 200 kílóvatta rafstöö fyrir
Sleitustaðaþorpið þar sem eru sex
hús og verkstæði. Þá hefur DV
spumir af að forráðamenn á Hofsósi
kanni hagkvæmni þess aö koma upp
rafstöð fyrir allt þorpið.
Þorvaldur Oskarsson á Sleitustöð-
um sagði DV að hann gæti einungis
staðfest það sem að sér sneri. Ætlun-
in væri að byggja nýja rafstöð fýrir
þorpið. Fyrir væri gömul, lítil stöð
fyrir Sleitustaöabæinn. Hann sagði
að komið væri að endurnýjun henn-
ar. Þar sem séð væri að aldrei kæmi
hitavelta á staðinn, borgaði sig tví-
mælalaust að reka rafstöð til hitunar
jafnframt. Stöðin myndi borga sig á
innan við fimm árum. Hún yrði jafn-
framt það stór að dygði fyrir helm-
ingi stærra þorp.
Þá sagði Þorvaldur að hann yrði
var viö mikinn áhuga manna á
einkarafstöðvum einmitt um þessar
mundir. Margir kæmu til sin og öfl-
uðu upplýsinga um gömlu stöðina og
þær fyrirætlanir sem uppi væru. Þor-
valdur kvað það helst í veglnum að
engin peningafyrirgreiðsla lægi
fyrir. A því þyrfti að finna lausn og
að minnsta kosti í sumum tilvikum
kæmi hugsanlega til greina aö einka-
ráfstöðvamar yrðu í viðskiptatengsl-
um viö almenningsveiturnar. Það
væri iðkaö i Danmörku og heföi kom-
iðbáöumvel. -HERB.
Menningarvorðlaun DV fyrlr árið 1984 voru afhent við hádegisverðar-
boð að Þinghoiti Hótel Holts í gær. Hér sjóst verðlaunahafarnir, en þelr
eru, talið frá vinstri, María Sfgurðardóttlr, sem tók vlð leikllstarverð-
launum fyrir hönd Alþýðuleikhússins, Elnar Jóhannesson, sem hlaut
tónlistarverðlaunin, Álfrún Gunnlaugsdóttlr, sem hlaut bókmennta-
verðlaunln, Hrafn Gunnlaugsson, en kvikmynd hans Hrafninn flýgur
fékk kvikmyndaverðlaunin, Jón Gunnar Árnason, sem hlaut mynd-
listarverðlaunin, og Einar Sæmundsen, Grétar Markússon og Stefán
örn Stefánsson, sem hlutu byggingarlistarverðlaunin. Nánar verður
sagt frá afhendlngu Menningarverðlauna DV á siðu 42 og 43.
DV-mynd. GVA.
Kaffibaunamál
Sambandsins til
ríkissaksóknara:
Brotá
bókhalds-
og skatta-
lögum?
„Mínar athugasemdir varöa skatta-
og bókhaldsþátt málslns," sagði
Garðar Valdimarsson skattrann-
sóknarstjóri í samtali við DV. „Ríkis-
saksóknari tekur nú ákvörðun um þaö
hvort lögreglurannsókn verður sett í
gang.”
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum DV er talið að gögnin í
málinu sýni greinileg bókhalds- og
skattalagabrot af hálf u Sambandsins.
Eins og DV skýrði frá í gær hefur
Gjaldeyriseftirlit Seðlabankans skilað
áliti sínu til skattayfirvalda á kaffi-
viðskiptum Sambandsins. Þetta álit, á-
samt greinargerð frá verðlagsstjóra,
hefur skattrannsóknarstjóri nú sent
ríkissaksóknara.
„Eg er um það bil að senda gögnin
frá mér. Rikissaksóknari mun taka á-
kvöröun um hvort lögð verður fram
ákæra íþessumáli.”
Rikissaksóknari er erlendis og ekki
væntanlegurfyrr en eftir helgina.
-EH.
1 Larsen á |
Hvaðerá 1 toppnum !
seyðium 1 — sjá bls.2
helgina? 1 Unniðíbuil-
— sjábls. 19—30 j andiloðnu
, — sjábls. 3
Frækilegur
t sigur
íslendinga
— ogstærsti ósigur
Júgóslava í 10 ár
— sjá bls. 18
:
DV yfirheyrsla: {
Þekkiengin
rök fyrir að
neitabami
umbrauð l
-sjábls.ll I
Tvær
hervélarí
nauðum
íKeflavík
— sjá bls. 44