Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1985, Síða 4
4
DV. FÖSTUDAGUR15. FEBRUAR1985.
„ÖMURLEGT AÐ VERA A
ATVINNULEYSISBÓTUM”
Margrét Guðmundsdóttir og Erna Gunnarsdóttir vinna við að hreinsa
þorjskflökin.
Þessa viku hefur veriö nóg að
gera i Sjöstjömunni í Njarövíkuin.
Þar féll niður vinna um miðjan
desember og allir sendir heim. Vinna
hófst aftur í lok janúar.
Eigandi Sjöstjörnunnar, Einar
Kristinsson, er einn ræðumanna á
fundinum sem verður haldinn í _
Keflavik á morgun. Hann ætlar að p.
fjalla um stöðu fiskvinnslunnar á s -
Suðumesjum. Hann segir sjálfur að
þaö sé ekki lengur hægt aö halda
áfram rekstri þar ef ekkert verður
aðgert.
Þessa viku er fiskur og flestir
reyna eflaust aö gleyma atvinnuleysi
sem vofir yfir.
Er í góðri leigu
Emiiía Þórðardóttir er 24 ára og
einstæð móöir með eitt bam. Hún
varð að fara heim um miðjan
desember eða rétt fyrir jól. Hún fór á
atvinnuleysisbætur.
„Það er ömurlegt aö þurfa að fara
á atvinnuleysisbætur,” segir Emilía.
,íig fékk 2.900 á viku. Þaö gengur
ekki að lifa á því.” Emiiía bætir því
við aö hún sé í góöri leigu. Það bjargi
öllu. Hún segir einnig að hún hafi
verið f rá vinnu lengur í f jrra.
Vantar smáiðnað
Margrét Guðmundsdóttir og Ema
Gunnarsdóttir eru að vinna á fullu
við að hreinsa þorskflökin sem
væntanlega eiga eftir að fara á
Bandaríkjamarkað.
Margrét segir að þetta árlega at-
vinnuleysi fari vaxandi. Hún er búin
að starfa í fiski í 17 ár.
,,Það kemur manni alltaf jafnilla
að þurfa að fara á atvinnuleysis-
bætur. Ég fékk 2000 krónur á viku.”
Erna Gunnarsdóttir hefur
ákveðnar skoöanir á þessum vanda
sem blasir við á Suðurnesj unum.
„Okkur vantar smáiönað. Það er
ekkert fyrir okkur konumar að gera
nema ræstingar og fiskur. Og nú fer
fiskverkunarhúsunum fækkandi.
Þess vegna vantar nú atvinnutæki-
færi héma. Ég held að smáiðnaöur
geti hjálpað.”
Maðurinn var í vinnu
Atvinnuleysi kemur illa við flesta.
En þau áhrif geta aö sjálf sögöu verið
nokkuð mismunandi.
„Þetta kom ekki svo illa út hjá
mér. Maðurinn minn var í fullri
vinnu allan tímann. Ég fékk 1700
krónur á viku,” segir Elínborg
Vestergárd sem er í þann mund að
snara einum stórum þorski á borðið
hjásértilflökunar. APH
„ROSALEGA
ILLA STÖDD”
Jóhanna Kristinsdóttir er ein
þeirra sem hefur verið atvinnulaus
frá því fyrir jól. Hún er reyndar
heppin að vera gift manni sem hefur
haft atvinnu þennan tíma. Jóhanna
er 26 ára og á tvö börn. Hún hefur
unnið í frystihúsinu Heimi hf. Rétt
fyrir jói var ekki meira að gera þar
og flestir sendir heim á atvinnu-
leysisbætur.
En það er ekki nóg að vera svo
heppin aö eiga mann sem er með
fulla vinnu. Að minnsta kosti ekki
þegar fjölskyldan stendur í miðjum
íbúöarkaupum.
„Þetta kemur okkur rosalega illa
f járhagslega. Við erum ákaflega illa
stödd, því við stöndum í íbúðarkaup-
um.”
Ætlar þú þá ekki að reyna að
sækja um þá aðstoð sem rikisstjóm-
in býöur upp á fyrir aöþrengda
íbúðakaupendur?
,3g var reyndar að lesa um þetta
í blöðunum. Ég held að viö verðum
aö sækja um þessi aukalán.”
Jóhanna segir að hún geri sér
vonir um að komast í vinnu næsta
mánudag. Þaö standi til að byrja
vinnslu hjá Heimi hf. Verkefnaleysi
þar stafar m.a. af þvi að allur fiskur
sem bátar frystihússins hafa aflað
undanfarið hefur verið seldur beint
úr landi í gámum.
„Eg hef fengíð3.066 krónur á viku
í atvinnuleysisbætur. Þaö dugir aö
sjálfsögðu ekki neitt.”
-APH.
J» >
Jóhanna Kristinsdóttir er að
hugsa um að sœkja um viðbótar-
lán hjð húsnæðisstofnun. Hún er
búin að vera atvinnulaus í nokk-
urn tima og stendur í íbúðarkaup-
um. DV-mynd KAE
„Góð leiga bjargar mér," segir Emilía Þórðardóttir, einstæð móðir.
Sjávarútvegurinn á Suðurnesjum:
Ætlar að snúa
vöm i sókn
Atvinnuleysi er fyrirbrigöi sem
núverandi kynslóð hefur ekki kom-
ist mikið í návígi viö. Með minnk-
andi fiskafla og vegna annarra
erfiðleika í sjávarútvegi hefur það
færst í vöxt að fiskvinnslufólk og
allir er starfa við sjávarútveg hafa
þurft aö fara heim og þiggja at-
vinnuleysisbætur í stað vinnu-
launa.
Suöumes eru atvinnusvæöi sem
er kannskí dæmigert fyrir þessa
þróun. Undanfarin ár hefur verið
nokkuð reglubundið atvinnuleysi
þar ár hver. Hápunktur þess er í
desemberog janúar.
Um þessi áramót var fjöldi at-
vinnulausra meiri en nokkru sinni
áöur. A Suðurnesjunum varð tala
þeirra tæp 600. Nú er vertíðin byrj-
uð og atvinnuleysið í rénun.
Þaö er margt sem veldur þessu
atvinnuleysi.1 Kvótafyrirkomulag-
ið, gámaútflutningur og ekki síst
brostinn rekstrargrundvöllur fisk-
vinnslustöðvanna aö mati eigenda
þeirra.
Fundur á morgun
„Snúum vöm í sókn” er yfir-
skrift fundar sem haldinn verður á
morgun í Keflavik. Þaö eru samtök
launþega og atvinnurekenda sem
standa fyrir þessum fundi. A dag-
skrá er staða sjávarútvegsins á
Suðurnesjum. Þar verður reynt að
leita lausna á þeim vanda sem
blasir viö öllum sem starfa við
þessa undirstöðuatvinnugrein okk-
ar. I frétt frá verkalýðsfélögunum
segir m.a. .JEinnig verður rætt um
þá staðreynd, að sjávarútvegur á
Suðumesjum er verr staddur en
gerist annars staðar á landinu.
Togarar og bátar með þúsundir
tonna aflakvóta streyma af svæð-
inu — eftir situr verkafólk atvinnu-
laust. Þau sjálfsögðu mannréttindi
að hafa atvinnu eru ekki til staðar
hjá öllum.
Fundurinn verður haldinn £
Félagsbíói á morgun og hefst
klukkantvö.
APH
Guðrún Ólafsdóttir, formaður verkakvennafélagsins á Suðurnesjum,
var önnum kafin á fimmtudaginn þegar DV leit inn til hennar. Hún var
ásamt öðrum að senda út fundarboð til 3500 félaga í öllum verkalýðs-
félögum sem tengjast sjávarútvegi á Suðurnesjum.