Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1985, Síða 3
DV. LAU G ARDAGUR 2. MARS1985.
3
„LÍTIÐ LÆRT
ÞESSA ÖNN”
„Flestir nemendur, sem hafa mætt,
hafa verið i nokkrum tímum og með
göt á milli. Ég hef bara verið í tveimur
fyrstu tímunum,” sagði Halldór Sig-
fússon, nemandi á 1. ári í HM, í gær.
„Okkur hefur ekkert verið sagt hvað á
að gera í þessu máli. Við vitum því
ekki hvert framhaldið verður.
„Fœ már líklega vinnu of þetta
verður lengi."
— En hvað gerist hjá þér ef þetta
ástand á eftir að standa yfir langan
tíma?
„Ég býst við því að ég reyni að sækja
um vinnu. Síðan reyni ég að lesa eitt-
hvað með. Annars held ég að nemend-
ur haf i almennt litið lært á þessari önn
vegna þess að þessar aðgerðir hafa
verið yfirvofandi alla önnina. Nemend-
ur vita að ef þetta stendur lengi þá er
önninónýt.”
APH.
r
r
„MENNTAMALARAÐHERRA
VERDUR AÐ REDDA ÞESSU”
Tuttugu af þrjátíu og fjórum kennurum MA mœttu ekki í gœr. Á myndinni
eru kennarar að rœða málin og í beinu simasambandi við kollega sína í
Rqykjavfk. DV-mynd JBH.
„Verður að útskrifa stúdenta,
annars fer allt i vitleysu."
DV-mynd GVA.
Ásdis Bergþórsdóttir er á síðustu
önn og stundar nám á eölisfræðisviði.
Það er þvi mikið í húfi fyrir hana að
geta lokið námi á þessari önn.
„Það hefur ekki verið neinn timi hjá
mér í dag og ég á ekki von á því að það
verði nokkur. Mér reiknast til að að-
eins einn kennari minn sé starfandi
núna. Hjá honum er ég aðeins tvo tima
í viku. Fagið er framsögn og gildir ekki
nema fyrir eina einingu,” segir Ásdís.
— En nú er ljóst að ef kennarar
koma ekki fljótlega til starfa aftur áttu
á hættu að tapa niður þessari önn.
„Já, ef menntamálaráðherra reddar
ekki málinu áöur. Ég styð kennara í
þessari baráttu og tel að menntamála-
ráðherra og f jármálaráðherra eigi að
semja við kennara sem fyrst.
Það er min skoðun að menntamála-
ráðherra verði að útskrifa stúdenta,
annars fari allt í vitleysu. Ég lifi í
þeirrivon.”
— Enefsvoferaöönnineyðileggst?
„Þá neyðist ég til þess að vera annað
ár hér. Ég myndi sætta mig við það
aðeins ef kennarar fengju einhverjar
kjarabætur út úr þessu.”
-APH.
Saksóknari
þjarmar að
Arne Treholt
Frá PAtri Ástvaldssyni, fréttaritara DV
i Osló:
Lasse Qvigstad, saksóknari í Tre-
holt-málinu, var harðorður í garð
,Treholts í réttarhöldunum í gær.
Qvigstad tók meðal annars fyrir
fyrstu yfirheyrslumar yfir Treholt
og hélt því fram að aðferðir leyni-
lögreglunnar við þær hefðu verið
fyllilega eðlilegar. Einnig kvað hann
óvíst hversu miklu áfalli Treholt
hefði oröið fyrir i upphafi og sagöi að
viðbrögð hans hlytu að hafa orðið
önnur ef hann teldi sig saklausan.
Treholt ítrekaði þaö, sem hann
hefur áður hamrað á, að leyni-
lögreglan hefði notað úthugsaðar sál-
fræðilegar aðferðir, meðal annars
ógnað sér á ýmsan hátt.
Það vakti pirring hjá Qvigstad og
Rynning dómara er Treholt vék sér
undan að segja nánar til um hvaö
hann ætti við. Þess í stað bað hann
um frest á því að útskýra það.
Ulf Underland hefur enn ekki hafið
vöm sína en af hálfu verjanda er nú
unnið aö því að fá þá þrjá sérfræð-
inga í öryggis- og vamarmálum sem
rétturinn hafnaði í byrjun til að bera
vitni i málinu.
„ Vitum ekkert um
afdrif Hafþórs”
— segir Rannsóknarlögregla ríkisins
Leitin að Hafþóri Má Haukssym, öllum þeim gögnum sem málinu
piltinum úr Reykjavik sem hvarf á tengdust.
bifreið sinni, hefur staðið á annan „Við erum búnir að taka persónu-
mánuð. legar skýrslur af öllum sem koma
Að sögn Hauks Bjamasonar hjá inn í myndina. Enn sem komið er
Rannsóknarlögreglu ríkisins er búið vitum við ekkert um afdrif Hafþórs.
að kemba allt Suðvesturiandið. Búið Þó teljum við sennilegt að sést hafi
er að ganga inn á hálendin, kafa, til bílsins í Borgarfirði eins og fram
fljúga og aka en án árangurs. Sagöi hefurkomið.”
Haukur að nú væri veriö aö vinna úr _eh.
F / A T
SÖLUSÝNING
MEST SELDI BÍLL Á ÍSLANDI
sem ætla að festa kaup á nýjum bíl ættu að kanna endursöluverð á þeim bíl er
þeir hyggjast kaupa.
bíll hefur sannað áþreifanlega jafnhátt endursöluverðog FIAT.
ætti að festa kaup í öðru fyrr en hann hefur kynnt sér okkar landsþekktu FIAT-KJÖR.
fer bónleiður frá okkur með gamla bílinn, því við tökum flesta notaða bíla upp i nýja.
METSÖLUBÍLLINN
sem alls staðar slær í gegn.
ALLIR
ENGINN
ENGINN
ENGINN
ÚR FIAT-FJÖLSKYLDUNNl SÝNUM VIÐ:
FIAT Regata
FIAT127 Panorama
FIAT PANDA 4x4
FIAT UNC
OPIÐ LAUGARDAG KL. 1-6
OPIÐ SUNNUDAG KL. 1-5
1929 IWJHJÁLMSSON HF.
FIAT bíHinn Þ'»nn
F ' ATT
1985
Smiðjuvegi4 Kópavogi