Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1985, Blaðsíða 10
10
DV. LAUGARDAGUR 2. MARS1985.
Fyrirmyndir l'yrr og mi
Menn hafa alla tiö haft löngun til
að líkjast einhverjum sögupersónum
eöa kvikmyndahetjum og stafar
þetta trúlega annaðhvort af minni-
máttarkennd eöa röngu uppeldi sem
fariö var að stunda í stórum stíl eftir
aö sálarfræðin var fundin upp.
Forðum daga voru hetjumar í Is-
lendingasögunum í mestu uppáhaldi
og þó helst þær sem drápu óvini sína
í góðu eða af illri nauösyn en þær sem
geröu þetta sér til skemmtunar og aö
óþörfu voru hins vegar í minni
metum.
Arftakar Gunnars á Hlíöarenda
og Skarphéöins sem fyrirmyndir
uröu síöan Roy Rogers og Tarzan
apafóstri og þeir sem voru fljótir að
hlaupa uröu meira að segja aö taka
að sér hlutverk Triggers þótt þeim
væri þaö þvert um geö því að hann
fékk aldrei aö skjóta neinn meö vísi-
fingri hægri handar eöa spýtu og
hneggja eins og vitlaus: Þú ert
dauöur, þú ert dauöur.
Hrói höttur var einnig ágætis
fyrirmynd bama á sinum tíma og
sendi hann óvinum sínum örvadrífu
og lamdi þá meö priki og stal þar aö
auki öllu steini léttara frá ríka fólk-
inu og gaf fátæklingum.
Eg held aö Roy hafi aldrei drepiö
nokkurn mann í þeim myndum sem
ég sá þó aö hann væri sifretandi úr
sexhleypunni sinni í allar áttir en á
hinn bóginn haföi hann þau áhrif á
æsku þessa lands á sínum tíma aö
hún sendi fólk kynslóðum saman í
látustunni inn i annan, og vonandi,
betri heim.
Fyrirmyndir nútímans
Um daginn voru geröar upptækar
á vídióleigum nokkrar fyrirmyndir
bama og unglinga nútímans og þeim
gefiö þaö aö sök að stunda tilgangs-
laus manndráp og sýna fólki tak-
markalausa mannfyrirlitningu, von-
andi tilgangslausa lika, og vom allir
harla ánægðir með þessa rassíu, eins
og athöfnin var kölluö.
Þegar ég las listann yfir bann-
færðu myndimar rakst ég þar á eina
sem ég haföi ýmist horft á með öðm
auganu eöa hvomgu því aö þar sem
ég hef aldrei unniö i sláturhúsi fóm
blóösúthellingamar i taugarnar á
mér.
Að vísu kom þaö stöku sinnum
fyrir að búiö var aö hálshöggva ein-
hvem eða stinga á hol áöur en ég gat
snúiö mér undan en sem betur fer
var það svo sjaldgæft aö ég held aö
ég hafi ekki beöiö verulegt tjón á sálu
minni.
I áðumefndri rassíu var ekki talin
ástæöa til að gera svokallaöar klám-
myndir upptækar þótt þær séu ekki
BENEDIKT AXELSSON
viö hæfi bama frekar en sláturhúsa-
myndir, foreldrar og kaffi enda mun
vera miklu erfiöara aö skilgreina
hvaö er klám en morö þótt menn séu
allir af vilja geröir og fái þar aö auki
borgaö fyrir það.
En þar sem ég er afskaplega siöa-
vandur, þótt ég hafi sjálfsagt fengið
rangt uppeldi, vil ég hér með mælast
til þess aö Kvikmyndaeftirlit ríkisins
sendi mann heim til min einu sinni til
tvisvar í viku til að standa fyrir
framan sjónvarpið mitt og koma
þannig í veg fyrir aö bömin mín
veröi fyrir slæmum áhrifum af þeirri
menningu sem ríkið sendir inn í stofu
til okkar og er stundum stranglega
bönnuö bömum.
James Bond
Einu sinni geröi ég mér það til
skemmtunar aö taka mér James
Bond til fyrirmyndar, þó ekki að öllu
leyti, en ég fékk mér í glas þegar
hann gerði þaö og vindling um leið og
hann.
Þetta gekk ágætlega tii aö byrja
með hjá okkur báðum en þegar ég
var kominn á blaösiðu tuttugu og
fimm í bókinni sem ég las, og man
ekki lengur hvað hét, var ég orðinn
blindfullur, kominn meö krónískan
reykingahósta og því gjörsamlega
ófær um aö fara aö stússast i kven-
fólki eins og Bond ætlaði aö fara aö
gera á blaösíðum tuttugu og sex til
tuttugu og átta.
Á meðan Bond var aö gamna sér
við kvenfólkið slagaöi ég því fram í
eldhús aö fá mér kaffisopa.
Þegar þangaö kom hélt ég í fyrstu
að það væru komnir gestir en áttaði
mig fljótlega á því aö fólkið sem ég
sá í eldhúsinu var bara konan mín i
steríó.
Þegar ég uppgötvaði þetta sá ég
mér þann kost vænstan aö fara og
leggjamig.
Bond hélt hins vegar uppteknum
hætti og varö ekkert meint af.
Kveflja
Ben. Ax.
Hiigleiðingar
að loknn a£-
mælismðti
Sumir hafa gaman af þvi aö leika
sér að tölum. Einn þeirra hvislaöi aö
mér um daginn heldur kuldalegum
staöreyndum um nýlokið afmælis-
mót Skáksambandsins. Hann sagöi
aö Islendingamir sex, sem tefldu á
mótinu og skipuöu ólympíusveitina
sem tefldi i Grikklandi i lok síöasta
árs, heföu staðið sig afleitlega.
„Fjórum ólympíuförum tókst aöeins
aö vinna samanlagt tvær skákir í
fjörutíu og fjórum tilraunum og hinir
tveir unnu sjö skákir en þar af sex
gegn félögum sínum í ólympíusveit-
inni!”
Eftir þessu að dæma virðast út-
lendingarnir hafa sloppiö ósköp auö-
veldlega frá mótinu. Aö vísu er
kannski ekki viö öðru aö búast af
mönnum eins og Spassky, Hort og
Jusupov sem þekktir eru fyrir allt
annað en aötapa skákum. Og Larsen
var i banastuði og þar að auki hepp-
inn, enda náöi hann efsta sæti.
En hvaö er jjaö sem veldur, spyrja
þeir sem vitni uröu aö „skákbylgj-
unni miklu” fyrir réttu ári er
Islendingar vermdu efstu sæti á
hverju mótinu á fætur ööru. Að vísu
ber þó ekki aö gera litið úr frammi-
stööu þeirra Islendinga sem nú stóðu
sig. Margeir náði þeim glæsilega
árangri að deila ööru sæti meö ekki
ómerkari manni en fyrrum heims-
meistara, Boris Spassky, og náöi þar
meö einnig sínum fyrsta stórmeist-
araáfanga. Og Guömundur var harla
óheppinn aö hrapa úr góöri stööu
meö því aö fá aöeins hálfan vinning
úr síðustu þremur skákunum. En
burtséö frá þessum tveimur ollu Is-
lendingamir vonbrigöum.
Nærtækasta skýringin er sú að
mótiö hafi einfaldlega verið of
sterkt! Þau mót sem haldin voru hér
á landi fyrir ári vom aö jafnaöi
þremur styrkleikaflokkum veikari
en afmælismótiö, sem jafngildir því
aö meöalstig skákmanna hafi veriö
sjötíu og fimm stigum lægra. En
þetta er skýring, sem við neðri sæta
menn eigum erfitt með að sætta
okkur við því þaö er auðvitað fjar-
stæða aö viö séum ekki betri en
þetta. Okkur til málsbóta ber að
nefna að meðalstig Islendinganna
sjálfra hafa hækkaö um fjörutíu og
átta stig á þessu eina ári.
Aðrir kenna um mismunandi
aðstöðu Islendinga og erlendu kepp-
endanna. Hinir síöamefndu bjuggu á
Loftleiöahótelinu, þar sem teflt var,
og áttu á margan hátt auöveldara
meö aö einangra sig frá umheimin-
um og einbeita sér að skákmótinu.
Larsen haföi á oröi að hann heföi
aðeins tvisvar fariö út af hótelinu á
meðan mótiö stóö yfir! Því fylgja
náttúrlega ýmsir kostir aö búa í
heimahúsum en samt er það svo að
það er margt sem glepur úr hinu
daglega amstri.
Annars benda öll sólarmerki til
þess að heilladísimar hafi einfald-
lega snúiö baki viö Islendingum aö
þessu sinni. Helgi átti t.a.m. sannan-
lega unnið tafl gegn Larsen í fyrstu
umferð og þaö var eins og þaö drægi
svolítiö úr honum mátt að „missa
þann stóra”. 1 lok mótsins missti
hann svo niöur í einum leik unniö tafl
á móti Hollendingnum Van der Wiel
og það var útlit fyrir sigur hans gegn
Margeiri á timabili. Meö sigri í
þessum þremur skákum heföi Helgi
komist nálægt stórmeistaraáfanga,
svo ekki var nú munurinn meiri.
Oheppnin elti Jóhann einnig á
röndum. Stærsti bitinn var stiga-
hæsti keppandinn, Sovétmaöurinn
Jusupov, sem lenti í kröggum og átti
erfiöa stööu lengi fram eftir tafU. En
í tímahrakinu fór Jóhann of geyst í
sakimar og missti vænlega stöðu
allaleiöniöurítap.
Karl Þorsteins var einnig ófarsæll
aö tapa tveimur jöfnum og spenn-
andi skákum gegn Van der Wiel og
Jusupov en hann skorti aðeins einn
vinning til viðbótar til þess aö ná
lokaáfanga aö alþjóölegum meist-
aratitli.
Sjálfur gekk ég ekki heill til
skógar framan af móti og átti í raun
ekki von á miklum afrekum af heila-
búinu. En þó er aldrei að vita hvað
gerst heföi ef ekki hefði komið til
afar slysalegur leikur í fjórðu um-
Skák
Jón L. Árnason
ferð á móti Spassky. Rétt áöur en
tímamörkunum var náö fékk ég þá
flugu í höfuðið að leggja „gildru”
fyrir heimsmeistarann fyrrverandi
en ekki vildi betur til en svo aö hann
lumaði á peðsleik sem breytti stöð-
unni í einu vetfangi. Aður ai ég lagði
út í ævintýrin var staöa mín nefni-
lega mjög vænleg, ef ekki unnin meö
bestu taflmennsku.
Eftir mistökin sat ég hins vegar
uppi með erfiða biðstööu, slakan
riddara gegn öflugum biskupi og
Spassky tefldi lokin óaöfinnanlega.
Hér kemur þessi skák i heild sinni en
hún var að mörgu leyti innihaldsrík.
Hvitt: Boris Spassky
Svart: Jón L. Árnason
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rc3 Rc6 3. g3
Lokaða afbrigðið svonefnda, sem
Spassky hefur haldið tryggö við síö-
ustu tuttugu árin, þrátt fyrir mis-
jafnt gengi.
3. — g6 4. Bg2 Bg7 5. d3 d6 6. Rge2
1 síöustu umferö mótsins lék
Spassky 6. f4 og síðan Rf3, 0—0, Be3
og Rh4 gegn Helga en svartur jafnaöi
tafliö auðveldlega.
6. —e6 7. 0-0 Rge7 8. Bg5 0-0
9. Dd2 Dd77
Slæmur leikur sem Spassky not-
færir sér strax. Betra t.d. 9. —Hb8.
10. Bh6 Rd4
Hvítur hótaði 11. Bxg7 Kxg7 12. d4
með betri stööu.
11. Rxd4 cxd4 12. Bxg7 Kxg7 13.
Re2 eS 14. f47
Nú nær svartur að endurskipu-
leggja varnirnar. Betra er strax 14.
c3! og hvítur nær aö brjóta upp miö-
borösstöðuna sér í vil.
14. - Dd8l 15. c3 Bg4 16. Rc1 Db6
17. Kh1 f618. cxd4 exd4
Ekki 18. - Dxd4? 19. h3 Be6 20.
Re2 og síðan d3—d4 og hvitur nær
yfirhöndinni.
19. h3 Be620. Re2d5
Svartur má nú vel viö una því hann
hefur komiö mönnum sínum á fram-
færi og hefur heilbrigða stöðu.
Hvítur leggur til atlögu.
21. f5 Bf7l7 22. e5
Annars nær svartur tangarhaldi á
e5-reitnum.
22. - Rxf5 23. exf6 + Kh8 24. Df4
Eftir 24. g4 Re3 25. Hf4 g5! 26.
Hxd4 Rxg2 27. Kxg2 Hae8! veröur
hvítur aö leika 28. Ha4 til aö komast
hjá liðstapi! Staða hvíts yrði hættu-
leg vegna opinnar kóngsstööu. 28.—
d4!? væri tilraun til þess að ná
sóknarfærum.
24. — Hae8 25. Rg1 He3 26. Rf3
Dxf6 27. g4 Dd6I
Á þennan hátt losar svartur sig úr
leppuninni og hefur haft peö upp úr
krafsinu.
28. Dxd6 Rxd6 29. Had1 He2 30.
Rxd4 Hxb2 31. a3 (7)
Betri möguleiki til þess að flækja
málin var fólginn i 31. Hf6, sem
svartur svarar best með 31. —Hd8.
31. - Kg7 32. Hcl Hc8 33. Hxc8
Rxc8 34. Hcl Rd6 35. Hc7 Kf6 36.
Hd7 Hb6 37. h4 h6 38. Kh2
38. - Rb577
Beint út um gluggann.
Hugmyndin er að svara 39. Bxd5 með
millileiknum 39. — Be8! En þetta er
tálsýn. Eftir hinn sjálfsagða leik 38.
— Ke5 á hvítur í miklum vanda. T.d.
39. Rf3+ Kf4 40. g5 h5 41. d4 Be6 42.
Hg7 Bf5 43. Re5 Re4 með hótuninni
44. — Ke3 og svartur vinnur létt.
39. g5+ I hxg5 40. hxg5 + Kg7
Annað tapar: 40. — Kxg5 41. Rxb5
Be8 42. Hxd5 með skák; eða 40. —Ke5
41. Rxb5 Be6 42. d4+! og vinnur
mann.
41. Bxd5 Rxd4 42. Hxf7+ Kh8 43.
Hf8+ Kg744. Hf7+ Kh8 45. Kg3l
Eftir þennan snjalla leik er hæpið
aö svartur fái borgiö taflinu. Biskup-
inn hvíti er sterkur og kóngurinn hót-
ar aö gera innrás i sumum tilfellum.
45. — Hd6 46. Be4 Re2+ 47. Kf3
Rc3 48. Hxb7 Ha6 49. Kf4 Kg8 50.
d4 Kf8 51. Hb3 Rxo4 52. Kxe4 Ke7
53. Ke5 He6+ 54. Kd5 Hd6+ 55.
Kc5 Ko6 56. He3 + Kd7 57. d5.
Biöleikurinn og svartur gaf.