Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1985, Blaðsíða 24
24
DV. LAUGARDAGUR 2. MARS1985.
Nauðungaruppboð
annaö og síöara sem auglýst var i 116., 119. og 122. tölublaöi Lögbirt-
ingabtaösins 1983 á eigninni Kársnesbraut 24 — hluta —, þingl. eign
Hermanns Sölvasonar, fer fram aö kröfu Guðjóns Á. Jónssonar hdl.,
Verslunarbanka islands, Einars Viöar, Guöjóns Steingrímssonar hrl.,
Ara isberg hdl., Brunabótafélags íslandsog Tryggingastofnunar rikisins
á eigninni sjálfri miðvikudaginn 6. mars 1985kl. 10.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
Nauöungaruppboði, sem halda átti að Hamraborg 3, norðan viö hús,
Kópavogi, mánudaginn 4. mars 1985 kl. 17.00, aö beiöni Jóns Eiríks-
sonarhdl., hefur veriö frestaö til 11. mars 1985 kl. 17.00.
Eftirtaldir munir verða þá boönir upp:
Bifreiöin R-73362 af gerðinni Rover 3500, árgerö 1978. Vélsleði af gerð-
inni El. Tigre, Arctic Cat, ásamt vagni. Sófasett með hvítu antilópuleðri
(3 + 2 + 1) ásamt boröi. Luxor litasjónvarpstæki 26". Nordmende mynd-
segulbandstæki.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 23., 26. og 29. tölublaöi Lögbirtingablaösins 1983, á
eigninni Kársnesbraut 90, þingl. eign Árna Helgasonar, fer fram að
kröfu skattheimtu ríkissjóös í Kópavogi, Tryggingastofnunar ríkisins og
bæjarsjóðs Kópavogs á eigninni sjálfri miövikudaginn 6. mars 1985 kl.
11.15.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 5., 8. og 10. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1984 á eign-
inni Hlaöbrekku 11 - hluta -, þingl. eign Hilmars Adólfssonar, fer
fram að kröfu skattheimtu rikissjóðs i Kópavogi, Ólafs Gústafssonar
hdl., bæjarsjóðs Kópavogs og Veðdeildar Landsbanka islands á eign-
inni sjálfri miðvikudaginn 6. mars 1985 kl. 11.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 1 40., 42. og 44. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984, á
eigninni Kópavogsbraut 78 - hluta -, þingl. eign Lúðvíks Jónssonar
og Sigrúnar Guðmundsdóttur, fer fram að kröfu bæjarsjóðs Kópavogs,
Hauks Bjarnasonar hdl., Gísla Baldurs Garöarssonar hdl. og Jóns
Finnssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 6. mars 1985 kl. 11.45.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 79., 80. og 82. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Ásbraut 11 — hluta —, þingl. eign Gunnars Björnssonar, fer
fram að kröfu bæjarsjóðs Kópavogs, Guöjóns Steingrímssonar hrl. og
Ólafs Gústafssonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 6. mars 1985 kl.
15.45.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 79., 80. og 82. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Vatnsendabletti 417, talinni eign Eddu Dagbjartsdóttur, fer
fram að kröfu bæjarsjóðs Kópavogs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 6.
mars 1985 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
annað og siöasta á eigninni Hverfisgötu 24, Hafnarfiröi, þingl. eign
Einöru Sigurðardóttur, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 6. mars
1985 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 51., 55. og 57. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Miðbraut 3, 1. hæð, Seltjarnarnesi, þingl. eign Kristjönu Eddu
Haraldsdóttur, fer fram eftir kröfu Guðjóns Ármanns Jónssonar hdl. á
eigninni sjálfri þriöjudaginn 5. mars 1985 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 51., 55. og 57. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Nesbala 92, Seltjarnarnesi, þingl. eign Finnboga B. Ólafssonar,
fer fram eftir kröfu Ólafs Gústafssonar hdl. og Veödeildar Landsbanka
islands á eigninni sjálfri þriöjudaginn 5. mars 1985 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi.
Marilyn undir
yfirborðinu
Marilyn Monroe er ein tilbeðnasta
stjarna sem Hollywood hefur átt. I bók
sem franska leikkonan Simone
Signoret gaf út nýlega segir hún frá
Marilyn og fleirum.
Árið 1960, tveimur árum áður en hún
dó, lék Marilyn Monroe í myndinni
Let’s Make Love ásamt Yves
Montand. Þau bjuggu hlið við hlið í
Hollywood, bæði gift. Marilyn var gift
Arthur Miller og Montand var giftur
Simone Signoret. 1 minningabókinni,
Nostalgi er ekki það sem hún var, segir
Simone Signoret frá Marilyn sem
nágranna sem á endanum var keppi-
nauturinn Marilyn. Marilyn og Mon-
tand áttu nefnilega í ástarsambandi er
myndin var tekin upp.
„Þegar Marilyn kom heim voru
Arthurog ég annaðhvort heima hjá
henni eða hjá mér. Hún var ennþá förð-
uö og sagði: „Eg ætla aðeins að
skreppa í bað. Svo kem ég.” Hún kom
klædd litlum kimono úr bláu gervisilki
með hvítum deplum. Oförðuð og án
gerviaugnahára, berfætt, sem minnk-
aði hana dálítið, leit hún út eins og
yndislegasta bóndadóttir í Frakklandi.
Eins og hún hefur verið lofsungin um
aldir.
Lítill þríhyrningur
Krullumar fram á ennið voru
horfnar. Hún haföi burstaö þær
kröftuglega aftur. Lítið þríhymt far
kom í ljós. Það var fallegt lítið far með
litlum liðuðum hárum sem skiptust
yfir miöju enni hennar. Hún þoldi þessi
hár ekki þvi að þessi litlu hár, sem
voru n.júk eins og á ungabami, voru
miklu ómóttækilegri fyrir litun heldur
en önnur hár á ljósu höfði hennar.
Fallegar enniskrullur sem héngu niður
yfir augað, að því er virtist fyrir tilvilj-
un, vom eins og skjöldur með svika-
rætumar fyrir ofan. Það útskýröi hún
fyrir mér um leið og við vorum orðnar
vinkonur.
Hún sagði líka: „Sjáöu nú. Allir
halda að ég sé með fallega langa fætur.
En ég er stuttfætt og meö lærin í
skónum.” Það var varla satt þegar
hún var berfætt í kimonónum og hætti
alveg að vera það þegar hún var upp-
færö sem „Marilyn”. Eg sá hana
einungis þrisvar sem „Marilyn” á
f jórum mánuðum.
Til þess að halda hári sinu platínu-
ljósu og losa það viö blettinn sem var
dekkri borgaöi hún afar gamalli konu
frá San Diego fyrir að koma. Þessi
kona var á eftirlaunum frá Metro-
Goldwyn Mayer fyrirtækinu og hafði
unnið þar viö að lýsa hár. San Diego er
nálægt mexíkönsku landamærunum og
þar bjó þessi listamaður i aflitun. Hún
hafði 30 árum áður gert aöra mikla
stjömu ljóshærða. Það var Jean
Harlow. Hún var platínuljós á hár sinn
stutta feril. Því hélt kerlingin aö
minnsta kosti fram.
Ct af þessu sagöi Marilyn alltaf við
mig hvert föstudagskvöld þegar við
kvöddumst: „Sjáumst aftur á morgun
klukkan 11 í eldhúsinu mínu.”
Hvem laugardagsmorgun fór gamla
konan um borö i flugvél í San Diego og
lenti í Hollywood. Þar beið bíll
Marilynar eftir henni á flugvellinum
og ók henni i litla eldhúsiö i raðhúsi
númer21.
Áður en Marilyn lét gömlu konuna
taka flöskumar með brintoverilte, sem
fyrir löngu var hætt að nota, upp úr
töskunni, kom hún og bankaði hjá mér.
(Hún hafði lagt mat á borð sem sú
gamla hressti sig á) og síðan þurftum
við aö safna saman nauðsynlegum
handklæðum. Hægt var að byrja
aflitunarveisluna.
Sögur af Jean Harlow
Gamla konan lifði aftur fortíð sína.
Viö urðum ljóshæröar á meðan hún
sagði frá litnum sem hún hefði notaö á
Jean Harlow fyrir 30 árum sem hefði
vakiö á henni alheimsathygli.
Frásagnir hennar voru fullar af lýsing-
um á silkikjólum, hvítum refum, gull-
bryddum skóm og veislum. Þær
enduðu alltaf með lýsingu á jarðarför
platinuljóskunnar. Við tvær nutum
þessara endurminninga og blikkuðum
hvor til annarar þegar sú gamla hætti
áður en hún yrði allt of hrærð. Litli
pensillinn sem endaði á bómullarvisk
sem dýfðist ofan í dýrmætan vökvann
sveiflaöist í loftinu í stað þess að
beinast að dýrmætum hárrótum
okkar. Marilyn hafði einungis áhuga á
að litli dökki bletturinn fengi nákvæm-
an skammt. Afganginn af tímanum
naut hún bara f rásagna gömlu konunn-
ar. Eftir því sem sú gamla sagöi frá
hlaut Jean Harlow að hafa verið í aflit-
un allan daginn því hún hafði eftir
sögunum að dæma verið með henni
dag og nótt. Hún flaug aftur til baka til
San Diego seinna um eftirmiðdaginn
eftir smá máltíð. Við vorum báðar
orðnar óaöfinnanlega aflitaðar.
Marilyn platínuljóshærö og ég pínulítiö
ljósrauðhærð. Við tókum til í eldhús-
inu. Listamaöurinn hafði skilið eftir
fjölda bómullarviska sem vættir höfðu
verið i brintoverilte.
Það hlægði mig að ég hafði verið
aflituð af konunni sem þóttist hafa búið
til goðsögnina sem fyllti blöðin í mínu
Þama stillir Marilyn sér upp fyrir Ijósmyndara á frumsýningu.