Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1985, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1985, Page 30
30 DV. LAUGARDAGUR 2. MARS1985. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 105. tbl. Lögbirtingablaös 1984, 10. og 13. tbl. þess 1985 á hluta í Asparfelli 8, þingl. eign Jóhanns Sigdórssonar, fer fram eftir kröfu Jóhanns Þóröarsonar hdl. á eigninni sjálfri þriöjudaginn 5., mars 1985 kl. 11.30. Borgarfógetaembættiö í Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 105. tbl. Lögbirtingablaðs 1984, 10. og 13. tbl. þess 1985 á hluta í Ægisíðu 109, þingl. eign Arnþrúðar Sæmundsdóttur og Kolbeins Sæmundssonar, fer fram eftir kröfu Jóns Þóroddssonar hdl. á eigninni sjálfri þriöjudaginn 5. mars 1985 kl. 11.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 105. tbl. Lögbirtingablaös 1984, 10. og 13. tbl þess 1985 á Álftalandi 1, þingl. eign Bjarna P. Magnússonar, fer fram eftir kröfu lönlánasjóös, Veödeildar Landsbankans og Steingríms Eiriksson- ar hdl. á eigninni sjálfri miövikudaginn 6. mars 1985 kl. 15.45. Borgarfógetaembættið I Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 105. tbl. Lögbirtingabláös 1984, 10. og 13. tbl. þess 1985 á Akurgeröi 50, þingl. eign Olgu Sveinsdóttur, fer fram eftir kröfu Sveins H. Valdimarssonar hrl., Landsbanka islands, Veðdeildar Lands- bankans, Jóns Þóroddssonar hdl. og Guöjóns Á. Jónssonar hdl. á eign- inni sjálfri miðvikudaginn 6. mars 1985 kl. 15.30. Borgarfógetaembættiö í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 104. tbl. Lögbirtingablaðs 1984, 1. og 11. tbl. þess 1985 á hluta i Langageröi 6, þingl. eign Valdimars Guömundssonar, fer fram eftir kröfu Hafsteins Sigurðssonar hrl. á eigninni sjálfri miövikudaginn 6. mars 1985 kl. 14.30. Borgarfógetaembættiö í Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 72., 74. og 77. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 á hluta í Rauðalæk 8, þingl. eign Sigurpáls Jónssonar, fer fram eftir kröfu Landsbanka islands á eigninni sjálfri miövikudaginn 6. mars 1985 kl. 11.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var 1101. og 109. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 og 3. tbl. þess 1985 á Bakkagerði 6, þingl. eign Guðmundar Guömundssonar, fer fram eftir kröfu Ólafs Gústafssonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 6. mars 1985 kl. 15.00. Borgarfógetaembættiö í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 106. tbl. Lögbirtingablaös 1984, 10. og 13. tbl. þess 1985 á hluta I Dugguvogi 23, þingl. eign Jóhanns Þ. Jónssonar, fer fram eftir kröfu lönlánasjóös, Hafsteins Sigurðssonar hrl., borgarsjóös Reykjavikur, Magnúsar Fr. Árnasonar hrl., Ólafs Gústafssonar hdl., Guöjóns Á. Jónssonar hdl. og Útvegsbanka Islands á eigninni sjálfri miövikudaginn 6. mars 1985 kl. 14.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 101. og 109. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 og 3. tbl. þess 1985 á Blesugróf 7, þingl. eign Trausta Gunnarssonar, fer fram eftir kröfu Jóns Finnssonar hrl., Veödeildar Landsbankans, Útvegsbanka is- lands, lönaöarbanka islands og Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri miðvikudaginn 6. mars 1985 kl. 16.30. Borgarfógetaembættið I Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 101. og 109. tbl. Lögbirtingablaös 1984 og 3. tbl. þess 1985 á hluta I Háaleitisbraut 111, þingl. eign Ólafs Júniussonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar 1 Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudaginn 6. mars 1985 kl. 14.00. Borgarfógetaembættið I Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var 1102. tbl. Lögbirtingablaðs 1984, 2. og 8. tbl. þess 1985 á hluta í Mjölnisholti 14, þingl. eign Magnúsar Vigfússonar, ferfram eft- ir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudaginn 6. mars 1985 kl. 11.30. Borgarfógetaembaettið I Reykjavík. Nýkjörinn formaöur Alþýöuflokks- ins státaði af því, heimkominn af þingi norrænna krataforingja, að hann hefði komið í veg fyrir ráðagerð Ankers Jörg- ensens og annarra kollega um að víkja í sameiginlegri ályktun að því stefnumiði margra forkólfa hreyfing- arinnar að Norðurlönd væru lýst kjam- orkuvopnalaust svæði. Vakti þetta framtak einkennilega ánægju í ýmsum herbúðum hérlendis og er kannski til marks um annarlega dauðahvöt sem bærist í ólíklegustu brjóstum. Sá hugsunarháttur, að Islendingum sé sæmst að fuðra upp í kjarnorkubálinu við hliö hinna vesturheimsku „vernd- ara”, ef til stórátaka komi, á sér óskiljanlega marga og háværa formæl- endur og er ónotalegur vitnisburður um þýlyndi sem meðal annars hefur birst í viðbrögðum Morgunblaðsins og utanríkisráöherra viö þeim tíöindum að Bandaríkjaforseti hafi lagt blessun sína yfir leynilega áætlun um að flytja hingaö kjarnorkuvopn, ef til ófriðar dragi. Jafnt Carrington lávarður, framkvæmdastjóri Atlantshafsbanda- lagsins, sem kanadískir ráðherrar og herforingjar hafa harðlega gagnrýnt þessar leynilegu ráðagerðir, en opin- berir talsmenn Islendinga bregðast við á nákvæmlega sama hátt og forráða- menn leppríkjanna í Austur-Evrópu þegar Sovétmenn verða berir að ger- ræði eða valdníðslu. Formlegt sjálf- stæði þjóðar er tæplega orðið einnar messu virði þegar leiðtogar hennar eru famir að leika hlutverk þræla gagnvart voldugum nágranna. Herferð Morgunblaðsins gegn Olafi Ragnari Grímssyni fyrir frumkvæöi hans og þátttöku í friöarviðleitni stjórnmálaleiðtoga úr þremur heims- álfum er annað ömurlegt dæmi blindr- ar þjónkunar við sjónarmið herveld- anna.sem virðist því miður eiga hljóm- grunn í mörgum lítilsigldum og ósjálf- bjarga sálum hér á skerinu. Um að gera að láta ríka frænda í vestrinu ráöa bæði lífi sínu og limum! Þessi sérkennilegu viðhorf eru stundum kennd viö raunsæi eða „real- politik”,sem er eitt af mörgum öfug- mælum nútimastjórnmála og hrika- legt dæmi um afvegaleidda hugsun og afskræmt tungutak. Getur þaö í nokkrum skilningi talist raunsætt að vígja hugsun sína, tilfinningar og athafnir fyrirsjáanlegri tortímingu? Vissulega er raunsætt aö horfast í augu við þá óumflýjanlegu staðreynd að eitt sinn skal hver deyja.en það er dálítið annar handleggur en sú meðvitaöa þjónusta viö dauðann sem lýsir sér í framleiðslu kjamorkuvopna og vörnum fyrir mannfjandsamlegum tortímingaráætlunum tröllveldanna beggja. Að leiðrétta orðin Sænskættaði vísindamaðurinn Hannes Alfvén, sem starfar í Banda- ríkjunum og hlaut Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði 1970, hefur flestum mönnum ljósar og hispurslausar fjallaö um þessi örlagaríku mál. I nýlegri grein í tímaritinu Development Dialogue, sem gefið er út af Dag Hammarskjöld Fund, gerir hann enn kjamorkuvíg- búnaðinn að umtalsefni. Hann byrjar á að ítreka þá frumskyldu vísindamanna að segja sannleikann og ekkert nema sannleikann; þeir veröi að fá mannkyn til að horfast í augu við aðstæður einsog þær raunverulega eru í veröld sem býr sig undir sjálfstortímingu í einhverskonar tímabundinni brjál- semi. Alfvén bendir á að eitt ráð til að hamla gegn vígbúnaðaræðinu sé að nefna hlutina sínum réttu nöfninn. Þegar einhver spurði Konfúsíus hvert verða mundi hans fyrsta verk ef hann yrði keisari í Kína, svaraði vitringur- inn: „Mikilvægast er að leiðrétta orðin.” Þannig sé oft talaö um kjarnorku- vopn í sömu andrá og nánast sama skilningi og heföbundinn vopnabúnað. Kjarnorkuvopn séu afturámóti raimverulega fyrst og fremst ætluð til fjöldamorða á óbreyttum borgurum, eða öllu heldur séu þau ætluð til aö kvelja úr þeim líftóruna. Þessvegna beri að kalla þau tortímingartól og sé þá átt við vopn einvörðungu ætluð til tortímingar, en verði ekki notuð í varnarskyni. Gegn kjamorkuvopnum sé engin raunhæf vöm eftir að þeim hefur verið skotið á loft. Kannski verði með tíð og tima fundnir upp leysi- geislar sem að einhverju leyti megi beita til vamar gegn þeim, en sú fram- tíðarsýn sé í ætt við rómantíkina í Star Wars. Það sé sömuleiðis fölsun á tungumáli og staðreyndum að fjár- magna tortímingartóún með framlög- um til landvarna. Kostnaðinn ætti að færa undir liðinn „Tæki til að pynda al- menna borgara til bana”. önnur misþyrming tungunnar felst að dómi Alfvéns í þeirri siðvenju Reag- ans og stjórnar hans að setja jafnaðar- merki milli „Rússa” og „kommún- ista”. Yfirgnæfandi meirihluti sovéskra borgara sé alls ekki af rúss- neskum uppruna og vafasamt sé að fleiri en 10% af íbúum Sovétríkjanna séu kommúnistar samkvæmt skil- greiningu Reagans. Þegar Banda- ríkjaforseti skjóti upp kjarnorkuflug- skeytum sínum sé mjög ósennilegt aö þau hæfi kommúnista á borö við Tsér- nenkó eða forsætisnefnd Æðstaráösins í sínum sprengjuheldu byrgjum. Hins- vegar sé meiren líklegt að milljónir manna, sem ekki eru af rússneskum uppruna, farist í árásinni og flestir þeirra vísast á öndverðum meiöi við stjórnvöld, menn einsog til dæmis Sakharov. Hversvegna segir Reagan þetta ekki beint útúr pokahorninu? spyr Alfvén. Á sama hátt munu sovéskar eldflaugar pynda og drepa mörgum milljón fleiri verkamenn en kapítalista í Vestur-Þýskalandi. Hvenær hefur Tsérnenkó sagt það skýrum orðum? Við ættum líka, segir Alfvén, að spyrja þau Mitterrand og Thatcher hvort þau hafi leitt hugann að því.að milljónir saklausra manna muni kveljast til dauöa,þegar þau skjóta á loft sínum flugskeytum og, aukþess gereyðast stór landflæmi sem aldrei síðan muni bera sitt barr. Skyldu þau gera sér grein fyrir því, að ekkert svipað hefur gerst síðan Djengis Khan og Timur Lenk fóru eldi um Asíu og Evrópu? Ætli frú Thatcher hafi í hug- anum borið saman pýramídana sem Timur Lenk hlóð úr beinagrindum meðfram vegum sínum og þjáning- arnar sem Trident-flaugar hennar eiga eftir að valda? Hefur monsieur Mitter- rand borið saman ,,Ia culture francaise” og menningu Djengis Khans? Raunsæ pólitík? Loks kemur Alfvén inná merkingu hugtaksins „raunsæ pólitík”. Með því sé að jafnaði átt við pólitík sem virði hagsmuni stjórnmálamanna, iðju- hölda og vísindamanna sem hafi bein not af kjarnorkuvígbúnaðinum. Þaö sé DÓIitik sem með hveriu nviu ári boki okkur nær allsherjartortímingu. Að kalla slíkt „raunsæja pólitík” sé hörmulegt. Raunsæ pólitík eigi og verði að byggja á óbrenglaðri merkingarfræði. Alfvén víkur að hlutverki vísinda- manna í þróun kjarnorkuvopna. Tor- tímingarógnunin sé ávöxtur svokall- aðra vísindaframfara. Vísindin, sem í upphaflegum skilningi hafi verið for- sendulaus könnun náttúrunnar og öld- um saman unnið mannkyni ómælt gagn, hafi nú fengið nýtt hlutverk. Augljóst sé að rannsóknir hafi gert vísindin að ógnun við allt líf á jörðinni. Starf vísindamannslns hafi verið í því fólgið að finna og opinbera sannleikann og ekkert nema hann, fá menn til að sjá raunverulegt ástand veraldarinnar. Margir þessara vísindamanna hafi trúað.aö það yrði best gert með því að hvísla hollráðum í eyru ráðamanna. Það eigi alls ekki við lengur. Stjórnmálamenn hlusti, eðli sínu samkvæmt, á þá eina sem mestum þrýstingi beiti og það séu ekki vísindamenn. Eina raunhæfa ráöið gegn kjarnorkuógninni sé fólgið í f jöldahreyfingu sem verði svo öflug að hún þvingi stjórnmálamenn til að leggja við hlustir. Það sé eina færa leiðin til aö bjarga siömenningu sem á að baki sér árþúsunda þróun. Geislavirkur megadauði Alfvén er vonsvikinn yfir frammi- stöðu kollega sinna. Hversvegna voru mótmæli þeirra ekki kröftugri? Eina skýringu á því telur Alfvén vera að flestir þeirra séu sérfræðingar og líti svo á að síðasta uppgötvun þeirra eða tækniundur sé mikilvægara en allt annað. Hvort þaö leiði til blessunar eöa bölvunar sé aukaatriði. Þeirri ábyrgð sé velt yfirá fyrirtæki, herforingja og stjórnmálamenn sem standa straum af kostnaði við rannsóknirnar. Þareð skaðvænar uppfinningar séu miklu betur borgaðar en hinar þá lendi vísindamenn tíðum í blindu kapp- hlaupi að endamarki tortímingar. En Alfvén telur að finna megi dýpri orsök þess að vísindamenn mótmæla ekki. Þeir séu einatt skynsamir menn. En til sé tvennskonar 'skynsemi. Aðra tegundina megi kalla „kjarnorku- knúða skynsemi”. Þeir sem henni séu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.