Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1985, Page 31
DV. LAUGARDAGUR 2. MARS1985.
31
vinnuveitandinn er annarsvegar.
Hvað „megadauöi” felur í sér hafa
þeir annaðhvort ekki hugmynd um eða
hliðra sér hjá að hugsa nánar um það.
Geislavirkur megadauði er enginn
hetjudauði í fornum skilningi, heldur
kvalafullur dauðdagi sem við fengum
forsmekk af í Hiroshima og Nagasaki.
Glæpur gegn mannkyni
Hina skynsemina, sem sé af mann-
úðarrót, eigi þeir sem ekki loki augun-
um fyrir því hvaö felst í megadauða.
Þeir geti sett sig í spor annarra og
fundiö til með þeim sem farast. I eigin
Tortímingarógnunin felst jafnt í hin-
um háþróaða vopnabúnaði og vígorð-
um stjórnmálamanna sem réttlæta
hann. Aö útbúa gereyðingarvopn er
tæknilega flókið og einungis á færi sér-
fræðinga en það á alls ekki við um víg-
orðin sem beitt er til að fá þjóðir Evr-
ópu til að fallast á þau og taka viö
þeim. Þær röksemdir eru hreint ekki
háþróaöar, öðru nær. Þær eru svo
fjarskalega frumstæðar og einfaldar
að hver sem lesiö getur og hugsað á
lafhægt með að ræða þær og hrekja.
Alfvén telur að hóflaus stigmögnun
vígbúnaðarkapphlaupsins sé aö vekja
Bann við kjarnorkufram-
leiðslu
En rökrétt hugsun leiðir lengra, seg-
ir Alfvén. Að vinna úran, reisa kjarn-
orkuver þarsem plútón er framleitt og
þróa einfaldari aöferðir til að vinna úr-
an-ísótópa eru samkynja verknaðir.
Veröi þeir ekki stöðvaðir munu þrýsti-
hópar viðskiptalífsins, sem færa sér í
nyt valdagíruga stjórnmálamenn,
dreifa efnum og tækni kjarnorkufram-
leiöslunnar til æ fleiri ríkja. Eitt sinn
var von til þess að Alþjóðakjarnorku-
stofnunin (IAEA) gæti komiö í veg fyr-
ir frekari dreifingu en hún hefur verið
þannig rekin aö stuðlað hefur verið aö
auknu ójafnvægi á þessu sviði.
Þetta leiðir til þeirrar niðurstööu að
ekki sé hægt að fallast á kjarnorku-
framleiösiu í neinni mynd. Þangaðtil
sannaö verður að hægt sé að viöhalda
hluta kjarnorkuframleiðslunnar og
samtímis að tryggja fullt öryggi okkar
verður þessi eina ályktun dregin.
Eina leiðin til að foröast tortímingu
heimsbyggöarinnar af völdum kjarn-
orkuvopna er að lýsa hverskonar
kjarnorkustarfsemi glæp gegn mann-
kyninu. Plánetan Jörð rúmar ekki
hvorttveggja í senn, líf og kjarnorku.
Annað þeirra verður að hverfa um ald-
ur og ævi. Við neyöumst til að velja.
Hannes Alfvén lýkur grein sinni með
þeim orðum að ekki sé raunsæ pólitik
að einskorða tilraunir til að bjarga
mannkyninu við aðgerðir sem séu vel-
þóknanlegar samtryggðu kerfi stjóm-
málamanna, herforingja, viðskipta-
jöfra og vísindamanna. Við höfum öll
orðið vitni að því að athafnir þeirra
auka hættuna á tortímingu. Slík pólitik
verður aldrei nefnd raunsæ. Ef við lít-
um svo á að maðurinn eigi aö beita
hyggjuviti sínu til að bjarga mannkyni
frá útþurrkun þá megum við ekki láta
valdamenn heimsins bægja okkur frá
að nota hyggjuvitið, svo þeir geti hald-
ið áfram að vinna að skammsýnu
hagsmunapoti sínu.
Eina raunsæja pólitík samtimans er
að forða okkur frá kjarnorkudauða.
Þessvegna er eina raunsæja pólitikin
að stöðva hverskonar framleiðslu
kjarnorku hið allra fyrsta.
Sigurður A. Magnússon.
Megadauði
er enginn
hetjudauði
- EFTIR SIGURÐ A. MAGNÚSSON
búnir meti uppfinningar sínar í hlut-
falli við eyðingarmátt þeirra, hve
mörgum mannslífum þær grandi, hve
stór talan verði í dálkinum yfir „mega-
dauða” („megadauði” er milljón
mannslík). Takmark þeirra er aö gera
þá tölu sem allra hæsta þegar óvinur-
inn á í hlut og sem allra lægsta þegar
hugskoti séu þeir einn milljónasti part-
ur stærðarinnar sem kjamorkuknúin
skynsemi nefni megadauða. Og
hvernig á að skilja miili þessarar
tvenns konar skynsemi? Með því að
leggja við hlustir og fá úr því skorið
hvort rætt er um fleiri kjarnorkuvopn
— eða færri.
heilbrigð viðbrögö almennings um
heim allan. Læknar flykkjast til að
mótmæla og sömuleiðis vísindamenn,
sálfræðingar, blaðamenn, tæknifræð-
ingar. Nú sé því tími til kominn að skil-
greina markmið friðarbaráttunnar.
Þaö veröi æ ljósara aö hernaðaráætlun
Bandaríkjastjórnar — árás að fyrra
bragði með kjamaoddum — sé „ann-
aðhvort blekking eöa sjálfsmorð”, eins
og herfræöingar hafi komist að orði.
Sama gildir um allar hótanir um að
beita kjarnorkuvopnum í pólitísku
markmiði, sama frá hvorri hliðinni
þær komi. Hér sé um að ræða
ótvíræðan glæp gegn mannkyninu.
Framleiðsla kjarnorkuvopna sé
samskonar glæpur þareð þau verði
fyrr eða síðar sett á skotpalla. Sama
máli gegni um rannsóknir sem miði aö
því að gera vopnin mannskæöari.
STÚLKA ÓSKAST
Vön stúlka óskast í kjörbúð. Upplýsingar á staðnum.
KJÖRVAL,
Mosfellssveit.
QSy 'antar m
/í EFTIRTAUN0
/ HVFRFi 10-
Hftfffl SAMBANP VIO AFGRHÐSI.UNA OG SKRIHO YKKUR A BfflUSTA.
Arnarnes
Aðalstræti
Express miðbær
Höfðahverfi
Rauðarárholt
ST. JÓSEFSSPÍTALI
LANDAKOTI
Lausar stöður á eftirtöldum deildum:
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR:
— Handlækningad./Augndeild l-B
— Gjörgæsludeild
— Lyflækningadeildum l-A og l-A
— Barnadeild
— Skurðdeild
SJUKRALIÐAR:
— Lyflækningadeild
— Handlækningadeild
Einnig óskast hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðartil sumar-
afleysinga.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist hjúkrunarforstjóra sem veitir nánari upplýsingar í
síma 19600 frá kl. 11.00-12.00 og 13.00-14.00 alla virka
daga.
Reykjavík 26.2. 1985,
Skrifstofa hjúkrunarforstjóra.
w.
denta Hringbraut °9 hefc# l,
JERÐUR
1G NV B10T0ML1ST
'AU i/L “'“SÍIIWGíB .p
09
J00 T k' ’3°g '5 'aUSara^nn ímars
'•OKTEltiL BO°'OA BALUO
kolly