Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Blaðsíða 5
DV. MANUDAGUR 22. APRtL 1985.
5
Fákur'
SKILUM LANDINU GRÓNU
„Af okkar hálfu hefur aldrei annað |
komiö fram en að við skiljum við
landið f ullgróið að f jórðungsmóti sunn-
lenskra hestamanna loknu,” sagði öm
Ingólfsson, framkvæmdastjóri Hesta-
mannafélagsins Fáks, er DV ræddi við
hann.
„Viö höfum lagt mikinn kostnað í að
græða nærliggjandi land upp, höfum
dreift grasfræi og boriö á landið. I
samvinnu viö skógræktina höfum við
gróðursett plöntur og grætt upp
gróðurlausa mela. ”
Örn sagöi aö ákvörðunin um að
hefja framkvæmdimar heföi ekki
veriö tekin með glöðu geði því félagið
væri ekki fjársterkur aöili, en félagið
hefði leitað logandi ljósi að stað fyrir
bílastæöi félagsins eftir að ákvörðunin
um að halda mótið hefði verið tekin.
„Eins og ég sagði áður hefur aldrei
verið ætlunin að eyða gróðri og það
mun ekki koma til greina að við
göngum frá þessu sem svörtu flagi
enda má segja að ekki sé í anda hesta-
mannafélags að eyðileggja gróður-
land,” sagði Örn að lokum.
-ÁE.
Umferðarmiðstöðin:
Matsnefnd
reiknar út
raunvirðið
— niðurstaða
ínæstu viku
„Fjármálaráðuneytið er nú í sam-
ráði við okkur að láta kanna raunvirði
hússins og mér hefur verið sagt að
niðurstöður matsins liggi fyrir í næstu
viku,” sagðiÖlafurSteinarValdimars-
son, ráðuneytisstjóri samgönguráðu-
neytisins, í gær um sölu Umferðarmið-
stöðvarinnar.
Sem kunnugt er bauð hópur sér-
leyfishafa í Umferðarmiðstöðina
skömmu eftir áramót. Ekki hefur feng-
ist uppgefið hve tilboðiö var hátt en
rætt hefur verið um töluna 15 milljónir
króna.
Félag hópferðaleyfishafa hefur
einnig lýst áhuga á að bjóöa í húsið
veröi það selt. „Þaö hefur ennþá engin
ákvörðun verið tekin um að bjóöa hús-
ið út til sölu,” sagöi Olafur Steinar.
-JGH
Helgarró á
sælueyju
Helgin var með rólegra móti um
allt land að sögn laganna varða — eða
eins og einn þeirra orðaði þaö: „Bara
hefðbundið ölæði og venjuleg slags-
mál.” Flestir töldu góða veðriö eiga
sinn þátt í friðsemi landans — sólin
seiddi fram það skásta í hverjum og
einum.
„AUt í sómanum,” sagði annar við-
mælandi hressilega og bætti við:
„Kannski ekki þannig að við gætum
bara farið heim. Það var þetta venju-
lega og eðUlega nudd í sambandi við
ölvunarstúss, engin stórslys og nánast
aUt meö kyrrum kjörum.”
baj.
Lýsi hf. Grandavegi 42, Reykjavík.
ARGUSCO
„Indiana Jones” — hattarnir fyrir dömur og
herra fara sigurför um heiminn — fást nú í
fyrsta sinn hér á landi hjá okkur.
M.B. húfurnar
Allir nýjustu
tískulitirnir
HATTABUÐIN
FRAKKASTÍG 13
Matelot-húfan