Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Síða 22
DV. MANUDAGUR 22. APRIL1985. íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Werder stendur nú best að vígi í Bundesligunni Siggi Gunn —14 miirk. Siggi Gunn bjargaði Corona — skoraði 14 mörk í Madrid á laugardag Landsliösmaöurinn Sigurður Gunnarsson var heidur betur í ham þegar Corona sigraði Caja í Madrid 26—25 á laugardag í fall- baráttunni í 1. deild í haudboit- auum á Spáni. Við sigurinn er Corona úr faiihættu og getur þakkað það Sigurði, sem skoraöi 14 mörk í leiknum þö hann væri lengstum tekinn úr umferð. Þrjú markanna voru úr vítaköstum. Sigurður kemur heim í æfingar landsiiðsins í júní en allar líkur eru á að hann leiki með Corona á Kanaríeyjum einnig næsta leiktímabil. Vafi er hins vegar á hvort sænski landsliðsmark- vörðurinn Ciaes Hellgren verður áfram hjá liðinu. -hsím. Dregið í bikarnum Á iaugardag var dregið í und- anúrslit bikarkeppni HSÍ í hand- knattleiknum en undanúrsiita- ieikirnir verða á miðvikudags- kvöld. Dregið var í sjónvarpssal í beinni útsendingu og þaö var for- maður HSÍ, Jón Hjaltalín Magnússon, sem dró út nöfnin. Fyrst kom upp Valur B— Víkingur en þessi lið léku í gær og komst Víkingur í undanúrslitin. Síöan kom upp nafn FH, þá Vals og síðast Stjörnunnar. Það verða því Víkingur og Valur sem leika í öðrum leiknum, sem verður í Seljaskóla á miðvikudagskvöld. 1 hinum leika FH og Stjarnan í Hafnarfirði, einnig á miðvikudag. -hsím. — eftir tap Bayern Miinchen í Hamborg. Lárus átti mjög góðan leik með Uerdingen Frá Atla Hilmarssyni, fréttamanni DV í Þýskalandi: „Við vorum án efa betra liðið en þaö er ekki hægt að sigra í slíkum leik þeg- ar tækifærin eru ekki nýtt,” sagði Udo Lattek, þjálfari Bayern Miinchen, eftir að lið hans tapaði fyrir Hamburger SV í Hamborg á laugardag, 2—1. A sama tíma sigraöi Werder Bremen í Boehum, 1—3, og hefur nú betri möguleika en Bayern til að hljóta þýska meistaratitilinn. Að vísu er Bayern einu stigi á undan en hefur leikið einum leik meira. Þó leikmenn Bayern hafi ekki nýtt færi sin voru það þó fyrst og fremst mistök belgíska landsliðsmark- varðarins Jean-Marie Pfaff sem færðu Hamborgarliðinu sigur. Það var belgíski miövörðurinn hjá Hamborg, Gerard Plessers, sem náöi forustu í leiknum á fjórðu minútu þegar hann skoraði af 18 metra færi — spyma sem Pfaff hefði átt að verja. Pfaff urðu aftur á mistök á 15. min. þegar Skotinn Mark McGhee skoraði. Fyrsta mark Skotans fyrir Hamborg í marga mánuði en hann hefur ekki veriö fastamaður í Hamborgarliðinu. Bayem sótti mjög í síöari hálf leik og á 50. mín. tókst miðherjanum Roland Wohlfarth að minnka muninn. En þó leikurinn færi að mestu fram á vallar- helmingi Hamborgar-liðsins tókst Bayern ekkiaðjafna. Lárus mjög góður A sama tíma sigraöi Werder Bremen örugglega í Bochum þó svo heimaliðið næði forustu á þriðju mínútu meö marki hins unga Frank Benatelli. Bremen-liöið var þó heppið þegar það jafnaöi — Walter Oswald sendi Rudi Völler skoraði sitt tuttugasta mark á leiktímabilinu. knöttinn í eigið mark ó 25. mín. Tólf mín. síðar náði Rudi Völler forustu þegar hann skoraði tuttugasta mark sitt á leiktímabilinu. Hann er marka- hæstur í Bundesligunni. I síðari hálf- leik skoraði fyrirliði Werder, Benno Möhlmann. Borussia Mönchengladbach, liðiö í þriðja sæti, mátti þakka fyrir jafntefli gegn Uerdingen á heimavelli. Lárus Guömundsson lék allan leikinn með Uerdingen og átti mjög góðan leik. Fékk þrjá í einkunn. Hann var felldur innan vítateigs en ekkert dæmt — dæmigerður heimadómari en þar átti Lárus að fá víti. Þá fékk hann tvö sæmileg færi í leiknum sem honum tókst ekki að nýta. I heild var leikurinn lélegur og ekkert mark skorað. Urslit í leikj unum u rðu þessi: Leverkusen-Bielefeld 1-1 Bochum-Werder Bremen 1-3 Gladbach-Uerdingen 0-0 Frankfurt-Stuttgart 2-0 Hamburger-Bayem 2-1 Kaiserlautern-Dortmund 5-0 Karlsruhe-Braunschweig 4-1 Schalke-Köln 2-3 Diisseldorf-Mannheim 1-1 Diisseldorf, sem í fyrsta skipti var undir stjórn nýja þjálfarans, Dieter Brei, tókst ekki að ná sigri gegn Mannheim. Það gæti orðið erfitt fyrir Diisseldorf að missa slíkt stig í fallbar- áttunni. Leikurinn var heldur leiðinlegur í fyrri hálfleik. Mannheim lék stífan vamarleik og Diisseldorf átti ekkert svar við því. Fékk enginn færi. Strax í byrjun síöari hálfleiks náði Diisseldorf forustu þegar Rudi Bomm- er skoraði úr vítaspymu sem dæmd var á Tsionanis. Þá loks fór Mannheim að sækja og tókst að jafna átta mínútunj, síðar með marki Tsionanis. Hann skallaöi knöttinn í mark. Atli Eðvaldsson lék allan leikinn með ■ «>-> Lárus Guðmundsson átti mjög góðan leik með Uerdingen. Diisseldorf. Lék þokkalega og fékk fimm í einkunn. Með þessu jafntefli setti Mannheim nýtt met í Bundesligunni. Áttundi jafnteflisleikur liðsins í röð. Köln vann þýðingarmikinn sigur á Schalke á útiveUi. Schalke náði forustu með marki Tauger eftir hornspymu. AUofs jafnaði eftir vamarmistök SchaUte en á 61. mín. komst Schalke aftur yfir. Þá skoraði Hartman en hann lék áöur með Köln. Þeir Litt- barski og AUofs tryggðu svo sigur Köln þegar þeir skoruöu með tveggja mín. miUibUi. Staðan er nú þannig: Bayern 28 16 7 5 64-36 39 Bremen 27 15 8 4 72—41 38 Gladbach 27 13 7 7 64-38 33 Hamborg 26 12 8 6 48-37 32 Köln 27 14 3 10 52-46 31 Uerdingen 27 11 7 9 47—41 29 Bochum 27 10 9 8 44-40 29 Mannheim 27 9 11 7 36-39 29 Stuttgart 28 12 4 12 69-49 28 Frankfurt 28 9 9 10 53-56 27 Leverkusen 28 8 10 10 42-41 26 Schalke 27 10 6 11 51-54 26 Kaiserslautem 25 8 9 8 35-43 25 Dortmund 27 10 3 14 39-53 23 DUsseldorf 27 6 8 13 43-58 20 Bielefeld 28 4 12 12 33-54 20 Karlsruhe 27 4 9 14 38-70 17 Braunschweig 27 7 2 18 31-65 16 Markvörður Stuttgart, Roeleder, átti slæman dag gegn Frankfurt. Fékk á sig tvö klaufamörk. -hsím. Gömlu Valsararnir sprungu undir lokin — og Víkingur sigraði 26:20 íbikarkeppninni íhandknattleik. Valur hafði yfir 11:8 í hálfleik Gömlu kapparnir í B-Iiöi Vals sprungu heldur betur í lokin gegn bUí- armeisturum Víkings í 8-Iiða úrslitum bikarkeppni HSt í gær. Eftir að hafa haft forustu lengi vel datt botninn al- veg úr leik þeirra lokaminúturnar. Vikingar skoruðu þá grimmt, sjö mörk í einu, og sigruðu með sex marka mun 26—20 eftir að staöan hafði verið 11—8 fyrirValíhálfleik. Valsmenn með Öla H., Hemma Gunn, Stebba Gunnars og Jón Breið- fjörö markvörö sem bestu menn léku rólegan, yfirvegaðan handbolta, lengi vel. Tóku Þorberg Aðalsteinsson og Viggó Sigurðsson úr umferð og „göngubolti” þeirra gafst lengi vel auk þess sem dómgæslan var þeim mjög hagstæð, svo ekki sé meira sagt, eink- um hjjá KristjániEmi. Enlengi lifir í gömlum glæðum og það var oft gaman aö sjá til Valsliösins þó aukakílóin hjá mörgum væru nokkuðmörg. En þaðer handbolti í þessum strákum. Víkingar voru daufir lengi vel, áhug- inn takmarkaður eins og svo oft í leikj- ENN BROTNAR PALLIBJÖRGVINS Handknattleiksmaöurinn Páll Björgvinsson í KR bætti enn einu bein- brotinu í safn sitt á fimmtudagskvöldið síðasta þegar KR lék gegn FH. Það var skammt til leiksloka þegar Páll fingur- brotnaði. Ekki höfum við nákvæma tölu á beinbrotum Páls en varla cr það bein í iikama hans sem ekki hefur brotnað. -SK. um aö undanfömu. Eftir aö staðan var 11—8 í hálfleik breyttist þaö lítiö fram- an af síðari hálfleiknum. Síðan fóru Víkingar að minnka muninn. Jöfnuðu í 15—15. Komust síðan í 16—15 en Valur svaraði meö tveimur mörkum. Enn var Valur yfir, 19—18, þegar nokkrar mínútur voru eftir. Þá sagði þreytan til sín hjá þeim „gömlu” — oft gefið beint á Víkinga, sem bmnuðu upp og skor- uðu. Mörk Víkings skomðu Steinar 6, Hilmai'5, GuðmundurGuömundsson4, Þorbergur 4, Karl 3, Einar 2, Siggeir 1 og Viggó 1. Mörk Vals skoruðu Oli H. 7, Hemmi Gunn 4/3, Hörður Hilmarsson 3, Stef- án 3, Bjarni Jónsson 1, Ágúst Ög- mundsson 1 og Gunnsteinn Skúlason 1. Valsmenn fengu fimm vítaköst í leiknum, Kristján Sigmundsson varði tvö frá Hemma í síðari hálfleik, en Vík- ingur eitt vítakast. Fimm sinnum var Víkingum vikið af velli, einum Vals- manni, tvívegis. hsím. Ölafur H. Jónsson skoraði flest mörk í gær, eða sjö fyrir B-lið Vals.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.