Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Blaðsíða 30
DV. MANUDAGUR 22. APRlL 1985.
30
NÁMSKEIÐ
í japanskri prjónaaðferð og fl.
Sérstakt garn — sérstakar prjónaaðferðir.
Uppiýsingarí síma 15030og 15483.
Vefnaðar- og listiðnaðarskóli Sigrúnar Jónsdóttur,
Kirkjustræti 10, Reykjavík.
Djúprœkjuveiðar
Otgerðarmenn — skipstjórar, sem hyggja á djúprækju-
veiðar. Okkur vantar báta í viðskipti. Upplýsingar í síma
96-52188 og á kvöldin í síma 96-52128.
Sæblik h/f
Kópaskeri.
^ArLSSQm
Hér skoðar frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, tölvur sam koma fötiuðum að ýmsu gagni. Myndin
er fró hjálpartœkjasýningunni sem lauk fyrir skömmu. DV-mynd VHV.
Ný sending,
sandalar,
st. 28-40.
Litir: svartur,
hvftur, rauður.
Vorð kr. 646, kr. 749
Póstsendum
Laugavegi 11, R,
Sími 21675.
SÚLUSKATTUR
Viðurlög falla á söluskatt fyrir mársmánuð 1985, hafi
hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 26. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern
byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. maí.
Fjármálaráðuneytið,
19. apríl 1985.
Menningarsjóður
Listamiðstöðvarinnar hf.
Starfslaun fyrir
myndlistarmonn 1985
Á vegum Listamiðstöðvarinnar hf. hefur verið stofnaöur menningarsjóöur.
Eru hér meö auglýst til umsóknar starfslaun til handa myndlistarmönnum
1985.
Skulu umsóknir hafa borist fyrir 10. maí nk.
Utanáskrift:
Listamiðstööin hf.
Menningarsjóður
Hafnarstræti 20—22
101 Rvík
f umsókn komi fram:
1. Nafn, heimilisfang, fæöingardagur og ár, nafnnúmer.
2. Upplýsingar um náms- og starfsferil.
3. Gerö skal grein fyrir þvi verkefni er liggur umsókn til grundvallar, ásamt
aö fram komi tlmasetning fyrirhugaörar sýningar aö loknum starfstima.
4. Um starfslaun skal sótt til ákveöins tíma. Starfslaun eru veitt til þriggja
og sex mánaða. Laun á mánuöi eru kr 30.000.
5. Æskilegt er að umsækjandi sé ekki I föstu starfi meðan hann nýtur
starfslauna, enda séu þau til þess aö hann geti helgað sig óskiptur
verkefni sinu.
6. Aö loknum starfstíma skal haldin sýning í Listamiðstöðinni á verkum
viðkomandi listamanns(nna).
Listamiöstööin hf.
Tölvumiðstöð fyrir fatlaða
í undirbúningi
Samtök sem vinna að málefnum
fatlaöra ó Islandi hafa á undanförn-
um mánuðum unniö að því að skipu-
leggja tölvumiðstöð sem kemur fötluðu
fólki og aöstandendum þess að notum.
Noel Burgess, sem hefur starfað
meö Samtökum aðstandenda f atlaöra í
Reykjanesumdæmi (Safír), sagði aö
síöastliðið haust heföi verið stungið
upp á þessu innan hópsins. Hann sagði
að þetta myndi hafa þann kost í för
með sér að öll þekking um hjólpartæki
og hugbúnað í tölvur fyrir fatlaða safn-
aðist á einn stað.
Er tölvumiðstöðin hefur hafið starf-
semi sína geta fatlaðir og aðstand-
endur þeirra snúið sér til miðstöðvar-
innar og fengið upplýsingar um hvaða
tæki hæfir þeirra fötlun eða hvemig
eigi að bregðast við ákveðinni tegund
fötlunar.
Noel Burgess sagði að þetta myndi
líka geta verið tengiliður innflytjend-
um hjálpartækja sem leituðu oft að
nýjum tækjum til innflutnings. Hann
sagði einnig aö komið heföi til tals aö
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
veitti tölvumiðstöðinni aðstöðu í húsa-
kynnum sínum. Fyrirhugaö formlegt
félag um tölvumiöstöðina verður
stofnað á næstunni.
Sem dæmi um það hvernig tölvu-
miðstöðin gæti nýst fötluðum nefndi
Noel að á Kópavogshæli hefði dvalið
fötluö stúlka sem ekki hefði getað tjáð
sig á neinn hátt. Hald manna var að
ekki væri hægt að veita henni neina
aðstoð á því sviði. Er búið var að hafa
uppi á réttum búnaði handa stúlkunni
kom í ljós að hún var bráögreind. Hún
hafði veriö læs í mörg ár án þess að
neinn vissi.
Nöel sagði að samtök heyrnarlausra
og blindrahefðuverið höfð með í ráðum
vegna þeirrar tölvutækni sem nýlega
hefði komið fram á þeim sviðum. Til
dæmis eru til tölvur sem geta fært
90% af mæltu máli yfir á prentað mál
með aðstoð túlks. Eins er til hug-
búnaður sem þýðir blindraletur yfir í
venjulega bókstafi og bókstafi yfir í
blindraletur ogtal.
Hin Ariega firmakeppni Fáks verflur
haldin sumardaginn fyrsta, 25. apríl
næstkomandi. Á þriflja hundrafl
fyrirtækja eiga skrðflan keppanda.
Keppt verður i þremur flokkum:
karlaflokki, kvennaflokki og ungl-
ingaflokki. Þrenn verfllaun verfla
veitt i hverjum flokki auk viflur-
kenninga til fyrirtsakjanna. Keppnin
hefst kl. 14.30. i tengslum vifl firma-
keppnina munu Fákskonur verfla
mafl sölu á kaffiveitingum i hinum
nýju húsakynnum Fáks en þau eru
mjög rúmgófl. Lögfl verflur áhersla
á að börn geti komifl og skroppið á
hestbak ef þau langar til.
^ Vornámskeið ^
8—10 vikur Allir aldurshópar
Kennslugreinar:
Píanó, harmóníka, rafmagnsorgel,
gítar, munnharpa.
Einkatímar. Hóptímar.
Innritun í síma 16239 og 666909.
Tónskóli EMILS. Brautarholti 4.