Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Blaðsíða 20
20 DV. MANUDAGUR 22. APRIL1985. Mikið úrval vinnupalla úti sem inni. Leiga — sala. FOSRHÁI Sl 27 - SlMI 687160 3 BIIAUICA REYKJAVÍK: AKUREYRI: BORGARNES: VÍÐIGERÐI V-HÚN.: BLÖNDUÓS: SAUÐÁRKRÓKUR: SIGLUFJÖRÐUR: HÚSAVÍK: EGILSTAÐIR: VOPNAFJÖRÐUR: SEYÐISFJÖRÐUR: FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: HÖFN HORNAFIRÐI: 91-31815/686915 96-21715/23515 93-7618 95-1591 95-4350/4568 95-5884/5969 96-71498 96-41940/41594 97-1550 97-3145/3121 97-2312/2204 97-5366/5166 97-8303 interRent KRAFTBLAKKIR ÚTGERÐARMENN Höfum á l»gmr 400 kg kraftbUkkir nwö mina mOa tvaggja spora hjóii. Gott varfl og göOk gr*ið»lu*kil Atlas hf Borgartuni 24, símt 26755 KAR '/4 lltri Kr. |3 80 1 litri Kr.52^“ MÍTOrIsÍI KJOTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2. Sími 686511. Stórmót sumarsins Landssamband hestamanna hefur sent frá sér skrá um hestamót sumars- ins. Erfiöaraveröurmeðhverjuárinu sem líöur að koma saman slíkri skrá því aö hestamannafélögunum f jölgar, svo og aukamótum. Hestamannafélög i Landssambandi hestamanna eru 46 og öll með mót nema Félag tamninga- manna. Helstu mót sumarsins verða á suð- vesturhominu að þessu sinni og eru þessi auk félagsmóta. Fjórðungsmót sunnlenskra hestamanna í Víðidal í Heykja- vík 27,—30. júní, Islandsmót í hesta- íþróttum á Gaddstaðaflötum við Rangá 15.—16. júní, hvítasunnukapp- reiðar Fáks 24.-27. maí, sýning Stóð- hestastöðvar Búnaðarfélags Islands 1. júní, héraðssýning Eyfirðinga o. fl. á Melgeröismelum 7.-8. júní, Suður- landsmót í hestaíþróttum á Selfossi 8.-9. júní, héraðssýning Skagfirðinga á Vindheimamelum 14,—15. júní, hér- aðssýning Húnvetninga 21.—22. júní, Evrópumótsúrtaka Víðivöllum Reykjavík 5.-6. júlí, DV-mót í hesta- iþróttum 20,—21. júlí, hestamót Skag- firðinga á Vindheimamelum 3.-4. ágúst, Evrópumót í hestaíþróttum í Al- ingsás í Svíþjóð 16,—18. ágúst og deild- armót norðlenskra íþróttadeilda á Dal- vík 20.-21. júlí. Vegna þessara erfiðleika við að raða niður mótum á helgar sumarsins hafa komið upp margar hugmyndir um úr- bætur. Mönnum hefur dottið í hug að einungis séu skráð meiriháttar mót, svo sem fjórðungsmót og önnur stór- mót, en að félögin ráði sjálf hvenær þau halda mót sín. Einnig hefur komið upp sú hugmynd að hvert félag hafi lokað félagsmót, þannig að hægt sé að halda nokkur mót sömu helgamar. Einnig aö félög taki sig saman um aö halda lokuö félagsmót. E.J. J6n Amason A Hrafni, einni helstu skrautfjöður þeirra i Dreyra. DV-mynd Ej. Hestadagar á Akranesi Hestamannafélagið Dreyri á Akra- nesi og nágrenni heldur hestadaga á íþróttavöllum Akraness dagana 4.-5. maí næstkomandi. Mót þetta er haldið til aö kynna íslenska hestinn en einnig til að efla félagsstarf hestamanna á Akranesi. Nokkrir brottfluttir Dreyrafélagar, þeir Agúst Oddsson, Jóhann Þorsteins- son, Miðsitju (Jói vakri), og Albert Jónsson munu koma og sýna hesta- mennsku. Einnig verður hópsýning allra félaga í Dreyra, sýning unglinga og fullorðinna auk skeiðkeppni. Hesta- dagar hefjast klukkan 14.00 báða dag- ana en sýningaratriði munu verða eins og standa yfir i tæplega 3 tima. Einnig verður sögusýning félagsins í myndum I félagsheimilinu Rein. Þar verða einn- ig skemmtiatriði og kaffiveitingar og eru allir velkomnir þangað. Innisýn- ingin hefst klukkan 18.00 á laugardeg- inum og verður ekki endurtekin. Dreyrafélagar vonast eftir miklum fjölda áhorfenda því áhugi á hesta- mennsku á Akranesi er mikill. E.J. Tóbaksgjöld og fiskeldi Frumvarp um launakjör banka- st jóra og ráðherra hefur verið lagt fram í efri deild Alþingis. Þrir þingmenn Alþýðubandalagsins, Skúli Alexandersson, Ragnar Am- alds og Helgi Seljan, eru flutnings- menn. Þetta frumvarp er flutt í fram- haldi af umræðu um bílafríðindi bankastjóra undanfama daga. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að Kjaradómur ákveði framvegis öll kjör bankastjóra í stað banka- ráðanna eins og nú er. Áfengisvarslun „I samræmi við fyrirheit í stefnu- yfirlýsingu ríkisstjómarinnar um að draga úr rfkisumsvifum þar sem þess er kostur og vegna breyttra aðstæðna er með frum- varpi þessu lagt til að einkaréttur ríkisins til sölu á tóbaki og eldspýt- um verði afnuminn.” A þessa leið segir í nýju frum- varpi tU laga um verslun rfkisins með áfengi sem fjármálaráðherra, Albert Guðmundsson, hefur mælt fyrir í efri deild Alþingis. Aður hef- ur eínkaréttur ríkisins á innflutn- ingi og heildsölu á tóbaki og eld- spýtum verið réttlættur með að hann aflaði ríkissjóði aukinna tekna. Þau sjónarmið eiga ekki við lengur. Tóbaksgjöld Við afnám einkaréttar ríkisins á innflutningi og dreifingu á tóbaki minnka tekjur rfkissjóðs. Því hefur samhliða áöumefndu frumvarpi um afnám einkaréttarins á tóbaks- sölu annað frumvarp verið lagt fram, einnig af fjármálaráðherra. Verði það frumvarp samþykkt verða tekin upp tvö ný gjöld sem lögö verða á tóbak. Tóbaksgjald og vörugjald skal samkvæmt frum- varpinu leggja á allt innflutt tóbak svo og innlenda tóbaksframleiöslu. Á það er bent í athugasemdum frumvarpsins, báðum frum- vörpunum til stuðnings, að óviðeig- andi sé, í ljósi þess hve skaðsemi tóbaksneyslu sé talin ótvíræð, að ríkið standi að tóbaksverslun. Fiskeldismál Stefán Valgeirsson, Olafur Þ. Þórðarson og Stefán Guðmunds- son, þrir framsóknarmenn, hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um stefnumótun í fiskeldismálum og um rannsóknir og tilraunir á möguleikum á fiskeldi. Þar segja þeir þremenningamir að Alþingi eigi aö fela ríkisstjóminni að skipa fimm manna nefnd alþingismanna til að gera tillögur um stefnumótun í fiskeidismálum. Nefndin skal leggja höfuðáherslu á að leita svara við því hvort fiskeldi geti orðið að umtalsverðri framleiðslu- grein fyrir strjálbýliö í landinu í stað þess samdráttar sem á sér nú stað í heöbundnum búgreinum. Erfðalög Frumvarp til laga um breytingu á erfðalögum hefur verið lagt fram frá allsherjamefnd. Þetta frum- varp er breytt frá upprunalegu frumvarpi sem Guðrún Helgadóttir var fyrsti flutningsmaður að á síð- asta þingi. I allsherjamefnd náðist ekki samkomulag um frumvarp Guð- rúnar en hún á sæti i allsherjar- nefnd neðri deildar sem haföi frum- varpiö til umfjöllunar. Guðrún og Guömundur Einarsson, sem var meöflutningsmaður, samþykktu flutning þessa frumvarps þó það sé frábrugðið því fyrra. Nýja frum- varpið telja þau skref í rétta átt. -ÞG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.