Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Blaðsíða 12
12 DV. MANUDAGUR 22. APRIL1985. MFR Aðalfundur Málarafélags Reykja- víkur verður haldinn í Lágmúla 5 mánudaginn 29. apríl 1985, kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreytingar. 3. önnurmál. Mætið vel og stundvíslega. Stjórnin. Notaðar trésmíöavélar til sölu Vegna breytinga í rekstri eru eftirtaldar notaðar trésmíða- vélar fyrirtækisins til sölu: Rennibekkur Fræsari (Jonsereds) Bandsög (jukksög) Borvél — WalkerTurner Bandsög (J. Withelud) Hulsuborvél Bandsög (Oliver) Yta—Holz Ker Hjólsög (Frommia) Geirungshnífur Hjólsög (Oliver) Blikkþvinga Kúttari Handhefilbekkur Vélhefill - afréttari Slípivél — Walker Turner Vélhefill — Domag Slípivél f. trésagarblöð Þykktarhefill (Robinson) Slípivél f. tennur úr fræsara Nánari upplýsingar veitir Þórður Guðlaugsson í síma 91- 20680. / LANDSSMIÐJAN HF. Sérverslun með hemlahluti OÍStilling Skeifunní 11 Símar 31340 og 82740 mm ,lodu - b - í>að er ekkert gamanmál ef hemlabúnaður bílsins svíkur þegar á reynir. Gegn slíkri skelfingu, er aðeins ein vörn: Láta yfirfara hemlakerfi bílsins reglulega, svo það sé ávallt í fullkomnu lagi. Hjá okkur fást original hemlahlutir í allar tegundir bifreiða á ótrúlega lágu verði. Menning Menning Menning Magnea S. Hallmundsdóttir I Listasmiðju Glits. DV-mynd KAE. ANDUT í LEIR — rætt við Magneu S. Hallmundsdóttur í tilefni af sýningu í Listamiðstöðinni „Þessi sýning snýst mikiö um manninn; skilyrði mannsins til aö lifa,” sagði Magnea S. Hallmunds- dóttir sem nú heldur aðra einkasýn- ingu sína í Listamiðstöðinni við Hafnarstræti. A sýningunni eru verk úr leir sem Magnea hefur unnið á síö- asta ári í Listasmiðju Glits. „Þessi aöstaða í Listasmiðjunni kemur sér mjög vel,” sagði Magnea, „sérstaklega fyrir þá sem ekki hafa aöra aöstöðu til aö vinna. Þannig er oft ástatt um þá sem eru nýkomnir frá námi og eru aö koma undir sig fótunum. Eg er búin að vinna hér í Gliti í 15 ár. Síöasta áriö hef ég unnið hálfan daginn, fyrir há- degi, fyrir fyrirtækið en síðdegis hef ég verið í Listasmiðjunni. Eg tel að kjörin, sem boðið er upp á í Listasmiðjunni, séu mjög góð. Glit leggur til efni og brennslu en við hug- myndir og vinnu. Afrakstrinum er síöan skipt til helminga. Við erum þrjú sem höfum notið þessarar aðstöðu til þessa. A undan mér voru þau Ragnar Kjartansson og Ragn- hildur Stefánsdóttir héma. Einnig hafa þeir Hringur Jóhannesson og Gunnar örn Gunnarsson unnið hér ogsýnt.” Þú leggur út í myndlistarnám þeg- ar þú ert orðin fullorðin. Hvað kom til? „Þegar ég var ung sótti ég nám- skeið í myndlist. Það var síðan ekki fyrr en áriö 1982 að ég lauk prófi úr myndmótunardeild Myndlista- og handíðaskólans. Ymissa hluta vegna hafði ég ekki aðstöðu til að fara í samfellt skólanám fyrr en nú fyrir fáum árum að ég settist í Myndiista- og handíðaskólann. Þegar ég var lítil ætlaði ég að verða málari og hef alltaf málað með. Þegar höggmyndadeildin var stofnuð stóðst ég ekki mátið. Eg hef alltaf haft gaman af að móta. Annars hef ég komið víða við og m.a. farið á námskeið í tréskurði. Það hjálpar við mótunina.” Myndir þínar eru meira í ætt við höggmyndir en það sem venjulega er átt við með leirlist. „Það er svo margt sem talið er til höggmynda en er þaö ekki strangt tekiö. Nú er sjaldgæft aö menn höggvi í stein. Eg hjó myndir þegar ég var í skólanum og hef hug á að halda því áfram. A fyrri sýningu minni voru skóla- verk af ýmsu tagi. Þessa sýningu tel ég vera miklu ákveðnari. Það er ekki hægt annað en að hugsa um það sem er að gerast í kringum mann. Sumir hafa of mikið en aðrir of h'tið. Eins og sést á sýningunni hef ég gaman af að skoða andlit og móta þau. Sýningin snýst þannig mikið um manninn en þó ekki eingöngu. Hvað hugsar fólk þegar það sér hungrað fólk eöa það sem býr við ofgnótt? Það er hægt að nota myndhst til að vekja til um- hugsunar um ýmislegt. -GK. FREMSTIKOR FINNA Finnsk -sænski háskólakvennakór- inn Lyran frá Helsinki mun halda þrenna tónleika hér á landi í vikunni. Fyrstu tónleikarnir verða í kvöld í Félagsstofnun stúdenta kl 20.30. Á morgun verður kórinn á ferð um Borgarfjörðinn og syngur í Lyng- brekku kl 21.00. Að lokum syngur kór- inn á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Islands í Háskólabíói laugardaginn 27. apríl. A efnisskrá kórsins eru gömul og ný finnsk sönglög og stærri verk. Þá er einnig að finna íslensk þjóðlög í útsetn- ingu Jóns Ásgeirssonar. Auk þessara verka flytur kórinn verk eftir gamla meistara á borð við Schubert og Brahms. Háskólakvennakórinn Lyran var stofnaður árið 1946. Hann hefur unnið til margvíslegra viðurkenninga bæði í Finnlandi og erlendis. Kórinn syngur reglulega með útvarpshljómsveitinni í Helsinki og með sinfóníuhljómsveit Helsinkiborgar í uppfærslu stærri verka. Lyran hefur farið í fjölda tón- leikaferöa um Evrópu en þetta er í fyrsta skipti sem hann sækir Is- lendinga heim. Með í ferðinni er píanó- leikarinn Gustav Djupsjöbacka, einn fremsti undirleikari Finna. Stjórnandi kórsins síðan árið 1972 hefur veriö Lena von Bondsdorff. EITT UÓD AÐ LOKUM Niðurlag ritdóms Arnar Olafssonar um bók Sigurlaugs Ehassonar sl. mánudag féh niður í prentun. Rit- dómnum átti að lj úka svona: burstaklippt hús og þakskeggjuð vídeóstónd rnáta neonbragó ljósanna vió pernód síóan norguninn s t a u r blindur rr.eó hjólsagar moröíngjum úr t imburinannas tétt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.