Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Síða 48
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og rfreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu efla vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greifl- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Vifl tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst, óháð dagblað MÁNUDAGUR 22. APRÍL1985. Grænland: Tveirmenn fórust er Fokker nauðlenti — vélin millilenti íReykjavík Tveir menn fórust og þrír slösuðust alvarlega þegar Fokker flugvél nauð- lenti á vesturströnd Grænlands á laugardagskvöldið. Vélin var að koma frá Yemen, Austurlöndum nær, og á leið til Nicaragua. Hún millilenti á Reykjavíkurflugvelli á laugardag og fór héðan í loftið um klukkan f imm. Astæöan fyrir nauðlendingunni var vélarbilun. Fimm menn voru í vél- inni, Bandaríkjamaður, Indverji,Fil- ippseyingur og tveir Jórdanir. Vélin var í eigu samgönguráðuneytisins í Nicaragua. Hún kom hingað frá Skotlandi um klukkan fjögur á laugardag og fór í loftið rúmri klukkustund síðar, kl.17.21. Flugmaðurinn leitaði aðstoö- ar hér vegna galla í aukaeldsneytis- tönkum um borð í vélinni. Klukkustund eftir að vélin fór í loftið héðan barst skeyti frá flugmanninum um að allt væri í lagi um borð, engin vandræði lengur vegna aukaelds- neytistankanna. Það var svo klukkan 21.10 á laugar- dagskvöld sem vélarbilun mun hafa komið upp í vélinni og sá flugmaðurinn enga leið aöra en nauðlenda. Skall vélin á jökulinn um 80 kilómetra frá Syðri-Straumfirði. Vélin fannst svo í dögun á sunnu- dagsmorgun, eftir leit bandarískra herþyrlna og dönsku lögreglunnar. Hún hafði lent á flugvellinum í Syðri- Straumfirði á laugardagskvöldið og tekiðeldsneyti. —jgh. 0K0N BLOMAABURÐUR FRÁ HOLLENSKU BLÓMAÞJÓÐINNL LOKI TV-Rolf œtti að verða í regnbogalitunum — | eða hvað? Rolf Johansen hyggst reisa sjónvarpsstöð —verður stöð án stúdíós, segir Rolf Rolf Johansen ætlar að reisa sjón- varpsstöð verði slíkt gefið frjálst. Ot- sendingar munu eingöngu sjást á suðvesturhominu. Hefjast þær í há- deginu og eiga að standa fram á nótt. Dagskráin mun einungis byggja á auglýsingum og skemmtiefni. „Þetta verður stöð án stúdíós. Það mun einn maður vinna við hana, starf hans felst mest i því að skipta um kassettur,” sagði Rolf f gær. Hann er ekki einn í þessu fy rirtæki, með honum er Jón Ragnarsson, for- stjóri Regnbogans. Þeir eiga fyrir- tækið ísmann sf. sem flutt hefur inn myndbönd. Er það meðal annars með Falcon Crest þættina. „Eg held aö fólk átti sig ekki á hvað þaö er í rauninni lítið verk að setja upp eina svona stöð. Sú stöð sem við erum með í huga kostar lik- legast í kringum þrjár til fjórar milljónir. Þetta er ákaflega lítið verk,”sagðiRolf. Ef af verður munu útsendingar eingöngu sjást á suðvesturiiorninu. „Það veröur mikill léttleiki yfir dag- skránni, engin pólitik eða þess hátt- ar. Stööinni er ætlað að stytta fólki stundir, koma því i gott skap.” Þeir Rolf og Jón Ragnarsson sendu inn umsókn fyrir stöðina í mennta- málaráðuneytiö siðastliðið haust. Fæst leyfi? Hefjast sendingar? Fari svo mun dagskrá stöðvarinnar hefj- ast í hádeginu og standa fram á nótt, til klukkan eitt eða tvö. -JGH Jökulfell, hið nýja skip Sambandsins, kom til Hafnar I Homafirfli f gærmorgun. Á móti skipinu tóku ýmsir forsvarsmann skipadeildar SÍS auk frammómanna á Höfn. DV-mynd Ragnar Imsland. SAMBAND Féll af hestbaki Það slys átti sér stað við Norðlinga- braut fyrir ofan Rauðavatn í gær- kvöldi, að 20 ára stúlka f éll af hestbaki. Stúlkan liggur á Borgarspítalanum — höfuökúpubrotin. Fellt á Þingeyri Samkomulag það sem náðist í sjó- sjö voru því fylgjandi og einn seðill mannadeilunni á Vestfjöröum í var auöur. Samkomulagiö var sam- fyrrakvöld var fellt á Þingeyri í gær- þykkt í atkvæðagreiðslu á Flateyri í kvöldi. Átta felldu samkomulagið, gær. — sjá nánarábls.2 Geir Hallgrímsson: ástæðulaust að krefjast svara Geir Hallgrímsson utanríkis- ráðherra segir að ríkisstjórnin muni ekki krefjast svara frá Bandaríkja- mönnum um hvort kjarnavopn séu í þeim bandarísku skipum sem koma í höfn á Islandi. „Það er ástæðulaust. Við höfum þegar samkomulag að þessu leyti,” sagði Geir í viðtali við DV. „Við göngum bara út frá því að Bandaríkin virði það sem við höfum sagt að þessu leyti og sömuleiöis liggur það fyrir í yfirlýsingu ieiðtoga Atlants- hafsbandalagsins frá 1957 að kjam- orkuvopn verði ekki flutt til einhvers Atlantshafsbandalagsríkjanna án samþykkis yfirvalda þess ríkis.” Geir sagði einnig að Bandaríkja- menn hefðu ekki haft samband við sig vegna yfirlýsingar sinnar á Alþingi um að skip með kjarnavopn væru óvel- komin inn fyrir lögsögu Islands og þeir heföu ekki beöið um skýringar á um- mælumhans. Aðspurður hvort þetta þýddi að hann bæri meira traust til Banda- ríkjamanna en Ný-Sjálendingar svaraði Geir: ,,Þú verður að spyrja Ný-Sjálendinga að því.” -ÞÖG. P Kjarnavopnaskip: VIUA ÍSLENDING AR AF- DRATTARLAUS SVÖR? „Ekkert nýtt” í yf irlýsingu Geirs, segir aðstoðarutanríkisráðherra í viðtali við DV spuröur hvort þeir hefðu engar athugasemdir að gera af þessu til- efni, sagði ráðherrann: „Okkur skilst að ekkert nýtt felist í yfiriýs- ingu islenska utanríkisráðherrans, heldur sé aðeins verið að ítreka stefnu sem gilt hafi í mörg ár.” Samkvæmt upplýsingum sem DV hefur aflað sér munu ekki uppi ráða- gerðir um komur bandariskra skipa til Islands í nánustu f ramtíð. Oskar Magnússon, DV, Washington: „Já, þaö er munur á stefnu Nýsjá- lendinga og annarra þjóða um komu herskipa með kjarnorkuvopn til ha&ia í þessum löndum," svaraöi Bernard Kalb, aðstoöarutanrikisráð- herra Bandaríkjanna, spumingu blaöamanns DV á blaðamannafundi siöastiiöinn föstudag. Bernard Kalb sagði að munurinn fælist í þvi að aðeins Ný-Sjálendingar hafa krafist þess að Bandaríkjamenn víki frá þeirri stefnu sinni að neita hvorki né játa hvort kjamorkuvopn væru innanborðs. Ný-Sjálendingar vilja skýr svör um, þetta efni og segjast ekki munu sætta sig við „hvorki já eöa nei”. Þá er þvi ósvarað hvort Islendingar muni yfir- leitt gera fyrirspurn um vopnabúnað skipanna og hver viðbrögð Islend- inga verða ef ekki f ást skýr svör. Bernard Kaib sagöi aö Banda- ríkjamenn væru vel meðvitaðir um sérstaka stefnu ýmissa þjóða að þessu leyti. Blaðamaður DV spuröi þá hvort það að vera meðvitaður þýddi að þeir myndu virða eöa hlíta slikum stefnum. Ráðherrann svaraði með þvi aö vltna í fyrri svör sín: „hvorkijánénei.” Spumingum um hvort Bandaríkja- menn myndu mótmæla yfirlýsingu Geirs Hailgrímssonar svaraði Bernard Kalb neitandi. Og að-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.