Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Síða 43
DV. MANUDAGUR 22. APRIL1985. 43 Nú geta menn lærtaögera v«ð drusluna Námskeiö fyrir almenning í viðhaldi bíla hafa verið haldin í vetur af fyrir- tækinu Leiðsögn sf. Þar gefst fólki kostur á gagnlegri þjálfun sem ætla má að sparað geti jafnvel stórfé í við- gerðakostnað. Konum og körlum er kennt hvernig bregðast megi viö bili bíllinn og hvern- ig koma megi í veg fyrir bilanir með réttri meðferð bílsins. Næsta námskeiö hefst 22. apríl næst- komandi. Námskeiðsgjald er 2.900 krónur. Námskeiðiö er fimm kvöld, alls sextán kennslustundir, frá mánudegi til fimmtudags. Kennslan skiptist að jöfnu í bóklegt og verklegt. I verklegu kennsluna, sem fer fram á bifreiðaverkstæði, geta nemendur komiö meö eigin bifreið. Skráð er í sima 79233 milli klukkan 16.30 og 18.30. Þar fást einnig nánari upplýsingar. —KMU. Fyrirtækifl Leiðsögn býður fólki að læra að gera sjálft við bílinn. Frá skrykkdanskeppninni sem fór fram á hóraðsvöku Rangæinga f Hvoli. Vel heppnuð héraðsvaka Héraðsvaka Rangæinga var haldin í bk mars og þótti takast mjög vel sem endranær. Var þá mikið um að vera og viö allra hæfi. Héraðsvakan er orðin mikil menningarhátíð í sýslunni. Þó kam fram aö áhugi manna á sumum atriöum var dræmur. Skemmtun Leik- félags Rangæinga var ilia sótt af heimamönnum, en mun betur af aökomufóiki. Af dagskráratriöum má nefna útvarpsguðsþjónustu sem fór fram i Hábæ, fjöltefli við Hannes Olafsson og unglingaskemmtun sem fór fram í Hvoli. Var þar efnt til mikillar skrykk- danskeppni. Bjami Þorvaldsson fór þar með sigur af hólmi. Ilið árvissa íþróttamót var haldið að Laugalandi, i Njálsbúð og á Hellu. Alls voru 270 þátttakendur á mótunum. I héraösbókasafni Rangæinga var opn- uð sýning á verkum sex rangæskra myndlistarmanna. Skemmtuninni var slitið i Njálsbúö laugardaginn 30. mars með því að hljómsveitin Staccato lék fyrir dansi. -AE. Davíð SchevingThorsteinsson: „Svartnætti mið■ alda afturhalds" Ályktun VSÍ beinir til samgönguráðherra að nema leigubílalög úr gildi Aðalfundur VSI í síðustu viku sam- þykkti ályktun þess efnis að beina því til samgönguráöherra að hann beitti sér fýrir því aö úrelt lög um leigubif- reiðir verði þegar felld úr gildi og skor- ar jafnframt á Alþingi að fylgja eftir- leiðis þeirri stefnu sem því er mörkuð í 69. grein stjómarskrár lýðveldisins, sem mælir fyrir um að atvinnufrelsi skuli ríkja á Islandi. Astæðan fyrir þessari ályktun er aö þeir atburðir gerðust 10. apríl sl. að kveðinn var upp dómur í sakamáli 482 frá 1984 í sakadómi Húsavíkur. Þá voru tveir forsvarsmenn Skipaaf- greiðslu Húsavíkur hf., Ámi Grétar Gunnarsson og Hannes Höskuldsson, dæmdir sekir fyrir þá yfirsjón eina að starfrækja skipaafgreiðslufyrirtæki, en það taldi sakadómur varða við lög frá 1970 um leigubifreiðir, með þvi að vörubifreiðir fyrirtækisins voru not- aðar við akstur milli skips og vöru- geymslu á hafnarsvæðinu. Olafur Þorsteinsson, einn af flutningsmönnum þessarar ályktunar, sagði að þeir Ami Grétar og Hannes hefðu þama veriö að standa við hluta af samningi viö Kísiliðjuna. Dómari í málinu heföi dæmt menn sem stunduðu frjálsan atvinnurekstur og sett þá í átthagafjötra. Þegar ályktunin var borin upp, sagði Davíð Scheving Thorsteinsson, f undar- stjóri aðalfundarins, að þetta mál væri hreint furðulegt, eða „svartnætti mið- alda afturhalds”, og hann bætti við að þessi dómur yfir þeim Ama Grétari og Hannesi væri ekki í anda nýsköpunar- umræðnanna. —SOS Fyrir tröppurnar, verönama og svalirnar. Utihandrið úr oregontré Notið sumaríð og fullgeriö húseignina með oregonpine handridum frá Árfelli. Handriöin eru með innbyggðum raflögnum og lituð eftir yðar eigin vali. Komum og mælum Gerum verðtilboð Ármúla 20. Simar 84630 og 84635. SANDALAR - SUMARSKOR Litur: rauður/svartur. Stæröir: 36—41. Verð kr. 1.590,- Litur: blár/grár. Stærðir: 36—40. Verð kr. 1.589,- Úrval af skóm á alla fjölskylduna Litur: svartur/hvítur. Stærðir: 28—40. Verð frá kr. 695,- Litur: blár/hvitur. Stærðir: 35—41. Verð kr. 1.095,- Litur: rauður. Stærðir: 36—41. Verð kr. 1.789,- Ný og endurbœtt verslun. Skó- verslun IUII. Kopoyogs Hamrolborg O - Sími 41754R^ —

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.