Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Síða 9
DV. MÁNUDAGUK 22. APRÍL1985. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Tveir Norö- menn klifu Everest Tveir Norðmenn, Breti og þrír sjeip- ar frá Nepal komust upp á tind Ever- estfjalls í gær. Einn sjerpanna, Pert- emba að nafni, kleif þama Everest í þriðja sinn, en það hafa aðeins tveir aðrir gert (sjerpinn Sugdare og Yasuo heitinn Kato frá Japan). Sexmenningamir eru hluti af „norska leiðangrinum” svonefnda, sem kleif þetta hæsta fjall heims eftir hinni heðfbundnu suðurleið, sem Ed- mund Hillary og Tenzing Norgay klifu fyrst 1953. Norðmennirnir heita Björn Myrer- Lund (33 ára stúdent frá Osló) og Odd- Þessi mynd er af einum elsta leið- angrinum á leiö upp á Everest í Himalayafjöllum en síðan Edmund Hiliary og Tenzing sigraðu tindinn fyrstir, 1953, hafa 167 til viðbótar komist upp á hæsta tind heims. 1 norska leiðangrinum er sjerpi sem er einn þriggja manna er komist hafa þrisvar upp 6 hæsta tind Mont Everest. ur Eliassen (fertugur trésmiður frá Ostenotad). Bretinn er hinn kunni klif- urkappi, Chris Bonington, sem fimmt- ugur að aldri er einn sá elsti þeirra 169 manna sem klifið hafa Mount Everest. Hann stýrði hópi sem 1975 komst upp á tindinn eftir þá nýrri leið upp suður- hlíðina en sjálfur fór hann ekki á tind- inníþaösinn. Mikil mótmæli gegn kirkjugarðsheimsókn Gyðingasamtök í Bandaríkjunum hafa skorað á Reagan, forseta Banda- ríkjanna, að aflýsa heimsókn sinni til Bitburg-kirkjugarðsins þar sem eru grafnir hermenn sem létust í seinni heimsstyrjöldinni. Mikiö fjaðrafok varð í Bandaríkjunum eftir að upplýst- ist að þar eru einnig grafnir 20 til 30 menn úr SS sveitum nasista. Til að lægja öldumar ákvað Reagan að heimsækja einnig útrýmingarbúðir nasista. En mótmælin hafa haldið áf ram þrátt f yrir það. Samey forseti eftir Neves Jose Samey varð í gær forseti Brasilíu í óþökk flestallra samflokks- manna sinna. Stjórnmálaferill Sameys hefur tekið stökkbreytingum undanfarið ár. Hann var forseti Jafnaöarmannaflokksins sem var við völd og hafði stuöning hersins. 1 júní í fyrra sagði hann af sér og gekk í lið með Lýðræðishreyfingar- flokknum. Sá flokkur bauð Sarney varaforsetaembættiö sem venjulega er valdalaus virðingarstaða, til að tryggja Neves sigurinn í forsetakosn- ingunum. Samey fékk hikandi stuðning flokks- manna þegar hann tók við starfi for- seta þegar Neves varð veikur rétt áður en hann átti að taka við embætti. En sumir þingmenn segja að hann sé óhæfur til að verða forseti. Hve lengi hann heldur völdum veltur á þvi hve fær hann er að lægja öldumar í eigin flokki. Samey verður 55 ára gamall á mið- vikudag. Hann hóf stjórnmáiaferil sinn í flokki sem var á móti herstjórn Getulio Vargas 1945. Hann varð vara- formaður flokksins 1959. Eftir bylting- una 1964 fór hann í Arena flokkinn sem herstjómin setti á fót. Hann varð for- seti flokksins 1979, stuttu áður en nafni flokksins var breytt í Jafnaðarmanna- flokkurinn. Sarney er af valdamikilli fjölskyldu í fátækrahéruðum Maranhao. Þar stjómar hún blööum og útvarps- og sjónvarpsstöðum. Samey er þekktur sem ljóöskáld. Þekktasta bók hans er „Vespur eld- sins.” Hann er meðlimur rithöfunda- akademíu Brasilíu og hefur skrifað um stjórnmál, fiskveiðar og einnig ættar- sögur. Hann er kvæntur. Kona hans heitir Marly. Þau eiga tvo syni. Annar var eitt sinn stjórnmálaandstæðingur föður síns. Dóttir þeirra er stjórnmála- fræðingur við Brasilíuháskóla. Nýtt og vandað myndbandstæki frá Thomson á aðeins 37.539 kr. stgr. Nú er tækifærið til að eignast nýtt og vandað myndbandstæki frá Thomson. Þar með ert þú orðinn þinn eiginn dagskrárstjóri og getur stjórnað því hvernig þú ráðstafar kvöidinu. Þetta tæki er framhlaðið og hefur að geyma allar helstu tækninýjungarnar eins og til Gæðatæki á góðu verði Góð greiðslukjör THOMSON dæmis þráðlausa fjarstýringu, sjö daga upptökuminni, tölvustýringu með snerti- tökkum, myndspólun fram og aftur á tíföldum hraða, góða kyrrmynd, sjálfvirka bakspólun, og tólf rásir svo að nokkuð sé nefnt. n m qnwn fíHiuúa SAMBANDSINS ÁRMÚLA 3 SÍMAR 68 7910-812 66

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.