Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Síða 10
10
DV. MÁNUDAGUR 22. APRIL1985.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Með slíkum útbúnaði er dagskrá „Sky Channel" og „Music Box" send til sjónvarpshnatta sem endurvarpa þeim til kapalkerfa.
Sjónvarpsbylt-
ingin í Evrópu
Tvær nýjar sjónvarpsstöðvar í einkaeign koma dagskrá
sinni til 11 Evrópulanda umgervihnetti
Þeir kalla það sjónvarps-
byltinguna í Evrópu og meina þá
þróunina í einkarekstri sjónvarps-
stöðva. Tvær stöðvar í einkaeign eru
á hraðfaraleið með að koma upp
sjónvarpsneti sem spannað getur
alla Evrópu. Nokkuö sem hinar
ríkisreknu sjónvarpsstöðvar þessara
landa hafa ekki nálgast. — En lyk-
illinn að netinu er sjónvarpshnettir.
Enn sem komið er verður naumast
hrópað húrra fyrir hinum útsendu
dagskrám þessara tveggja sjón-
varpsstöðva. Þær notast við
fimmtán ára gamlar sápuóperur úr
bandarísku sjónvarpi, annars flokks
kvikmyndir og poppþætti.
Fyrsta gervihoatta-
sjónvarpskerfið
Fyrsta gervihnattsjónvarpskerfið
sem kallast getur því nafni í Evrópu
er „Sky Channel”. Það hefur þegar
orðið sér úti um notendaáskrift
þriggja milljóna heimila í ellefu
löndum Evrópu. Hin stöðin er
„Music Box” sem hóf rekstur fyrir
átta mánuðum en er þegar komin
með tvær milljónir fastanotenda, og
sendir þó á sinni rás lítið annað en
poppþætti.
Báðar þessar stöðvar senda dag-
skrár sínar út í gegnum fjarskipta-
hnetti. Kapalsjónvarpskerfi taka við
útsendingunum og miðla þeim síðan
áfram inn á heimili áskrifenda. Til
þessa eru ekki nema um sjö milljfn
heimili af 125 milljónum í Vestur-
Evrópu tengd við kapalsjónvarp.
Ern horfurnar fyrir frekari útþenslu
mjög misjafnar eftir löndum. Póst-
og símamálastofnun Vestur-
Þýskalands ætlar að rúm milljón
heimila muni bætast við þar fyrir lric
þessa árs. En í Bretlandi og Frakk-
landi hafa áætlanir um að tengja
sjónvarpshnattakerfi við kapalþjón-
ustu ekki gengið, eins og vonast
hafði verið til. Og á Italíu er ekkert
kapalkerfi komið, og raunar ekkert í
undirbúningi. — „Sky Channel”
gerir sér vonir um að ná til 5 milljón
notenda fyrir árslok. Aðalviðbótin í
Belgíu Hollandi og Sviss.
Því byggja þessar tvær einka-
stöðvar aðalframtíðarvonir sínar á
fjarskiptahnöttum sem senda út
beint og margþátta loftnetum. Að
vísu er bannað í flestum Evrópulönd-
um í dag, gistihúsum, sjúkrahúsum,
f jölbýlishúsum og skólum, að taka á
móti gervihnattasendingum í gegn-
um slík loftnet eða loftnetsskerma,
en ýmis teikn sjást á lofti um að þess-
um lögum kunni að veröa breytt.
Annar möguleiki er loftnetsskermur
í hverjum bakgarði sem taki beint
við útsendingum. — Næsta ár ætla
Frakkar að senda á braut umhverfis
jörðu fyrsta sjónvarpshnöttinn í
Evrópu, útbúinn til beinna útsend-
inga, og heitir sá TDF—1. Bæði „Sky
„Sky Channel" sendir sfna dagskrá út á ensku og tungumálaerfiflleikar
skapa nokkurn vanda þvi að talifl er afl afleins fjúrflungur Evrópubúa
tali ensku. — En þessi sjónvarpsáhorfandi virflist ekki líklegur til afl
gera sér rellu út af textanum.
Channel” og „Music Box” íhuga að
hafa afnot af honum en kostnaðurinn
stendurþóíþeim.
Murdoch seilist
inn á evrópskt
sjónvarp
Hvaö sem því líöur keppast „Sky
Channel” og „Music Box” á meðan
við aö tryggja sér fastaviðskipti
allra kapalkerfa sem bjóðast. „Sky
Channel”, sem hefur aðalskrifstofur
sínar í London, fer fyrir þeim báöum.
Fyrir tveim árum horföi illa með
rekstur þeirrar stöðvar og sýndist
stefna í gjaldþrot. Astralski blaða-
kóngurinn Rupert Murdoch kom þá
til skjalanna og fyrirtæki hans, News
Intemational PLC, á nú 71% hluta-
bréfa í móðurfyrirtæki ,,Sky
Channel”, en það heitir Satellite
Television PLC. Fyrirtækiö hefur
orðið sér úti um leyfi hjá 275 sveitar-
félögum til þess að senda út dagskrá
sína hjá kapalkerfum þeirra. — Enn
sem komiö er mun Vera tap á rekstri
„Sky Channel”. Stöðin hefur ekki
aðrar tekjur að kalla en auglýsinga-
tekjur. En framtiðarhorfur þykja
góðar. Þeir hafa fjölgað notendum
útsendinga sinna svo ört að ekki
verður lengur litið á stöð þeirra sem
leikfang fjölþjóðaauglýsenda. „Sky
Channel” hefur haslaö sér völl sem
eiginn fjölmiðill.
Léleg dagskrá
Stór hluti útsendrar dagskrár
,,Sky Channel” þykir þó þunnur
þrettándi, en forráðamenn eru
góðrar trúar á að auka gæðin, eftir
því sem stöðinni vex fiskur um hrygg
og tekjurnar aukast. Annað vanda-
mál verður trúlega vandleystara í
viðleitninni til að ná til sem flestra
sjónvarpsnotenda í ríkjumálfunnar.
Það eru tungumálaerfiðleikarnir.
Utsendingarnar eru bundnar við
Evrópu eina og eru allará ensku, en
hana skilur ekki nema fjórðungur
Evrópubúa. Þetta er hins vegar
minna vandamál fyrir „Music Box”
sem sendir út átján stundir á sólar-
hring. Það er sex klukkustunda dag-
skrá sem er send út þrívegis og er
Rupert Murdoch, blaflakóngurinn óstralski, hafur mesta trú ó sjónvarp-
inu sem fjölmiflli framtiðarinnar og keypti meirihluta i fyrirtækinu er é
„Sky Channel". Þafl sendir um gervihnött dagskré til kapalkerfa í 11
Evrópulöndum, en hefur enn sem komiö er engar f réttaútsendingar.
aðallega samansett úr poppþáttum,
hljómleikum, poppfréttum og viðtöl-
um við poppstjörnur. Poppið þekkir
naumast tungumálaerfiöleika.
Ýta við gömlu
stöðunum
Gervihnattaútsendingar sem slík-
ar eru ekki ný bóla í Evrópu, en það
eru einvörðungu „Sky Channel” og
„Music Box” sem taka til stórs hluta
meginlandsins. Athafnasemi og
framtak þessara tveggja stöðva
hefur orðið til þess að hrista upp í
doða sjónvarpsiðnaðarins í Evrópu.
Ríkissjónvarpsstöðvarnar, sem til
skamms tíma þurftu ekki að taka
mið af samkeppni, hafa upp á síð-
kastið haft tilburði til þess að lífga
upp á dagskrár sínar. I Bretlandi,
þar sem löngum hefur verið dauf-
heyrst við óskum notenda um að
sýndir verði ýmsir vinsælir banda-
rískir framhaldssþættir, hefur BBC
til dæmis byrjað að sýna „Dallas”-
þættina.
Framtak „Sky Channel” og
^„Music Box” hefur ekki aðeins haft
áhrif á stöðvar sem eru rfkisreknar,
heldur hafa aðrar stöðvar í einka-
eign byrjað að gjóa augunum að
möguleikunum, eftir leiðinni sem
þessar tvær hafa opnaö.
Strangar reglur
Strangar reglur um sjónvarps- og
útvarpsrekstur í Evrópu gera einka-
aðilum erfiöara um vik en tilfelliö
var í Bandaríkjunum, þegar kapal-
sjónvarp hóf göngu sína þar. „Sky
Channel” hefur orðið að semja við
yfirvöld í hverju landi um leyfi til
útsendinga á enskri dagskrá. —
„Fyrstu viðbrögö stjórnvalda voru
almennt þau að segja nei,” sagði
Patrick Cox, framkvæmdastjóri
„Sky Channel”, í viðtali við tímaritið
„International Management”. „Nú
orðið eru þau ekki eins fljót tií að
segja nei. Enda erum við þegar
komnir með útsendingarleyfi í þetta
mörgum löndum, sem sýnir þróun-
ina.”
Þeir byrja á aö kynna viðkomandi
landsyfirvöldum framleiðslu sína
og þurfa síöan jafnan að bíöa á
meðan viðkomandi stjórn ákveður
stefnu sína gagnvart frjálsu sjón-
varpi. Síöan kynna þeir dagskrána í
smáatriðum og eftir þaö rúllar bolt-
inn jafnan greitt. — Framtak „Sky
Channel” hefur orðið til þess að örva
umræður um frjálsan sjónvarps-
rekstur, ekki hvað síst í löndum þar
sem útsendingar þeirra eru
byrjaðar.