Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Síða 14
14
Frjá!st.óhá6 dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaðurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON.
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON.
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM.
Aöstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON.
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON.
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON.
Ritstjórn: SÍÐUMÚLA12—14. SÍMI 686411. Auglýsingar: SlDUMÚLA 33. SlMI 27022.
Afgreiðsla, áskriftir. smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMl 27022.
Sími ritstjórnar: 686611.
Setning,umbrot, mynda-og plötugerö: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12.
Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19.
Áskriftarverðá mánuöi 330 kr. Verö í lausasölu 30 kr.
Helgarblaö35 kr.
ov
Þúsundimar bíða enn
Áhugamenn um húsnæðismál fylltu Háskólabíó á
fundi, sem svonefndur „Sigtúnshópur” stóð fyrir. Líklega
hafa þar mest verið á ferð menn, sem eiga við mikil
vandamál aö glíma vegna húsnæðiskaupa.
Víða í kerfinu sitja menn á fundum og ræða lausnir á
vanda húsbyggjenda. Flokkamir gera tillögur. Málið er
efst á baugi í „samráði” ríkisstjómar og aðila vinnu-
markaöarins í þessari viku.
Hið eina, sem hönd festir á, er, að ráðgjafarþjónusta
hefur farið af stað hjá Húsnæðisstofnun. Færri gáfu sig
fram þar en búizt var við. Líklega stafar það af því, að úr-
ræði ráðgjafarþjónustunnar á að takmarka við þá, sem
komnir voru í mikil vanskil. Bent hefur verið á, að sið-
laust sé að miða úrlausnir við vanskil. Húsbyggjendur
reyna eins og aðrir í lengstu lög að greiða lán sín, áður en
þau teljast vera í vanskilum. Til þess taka flestir ný lán,
eftir því sem þau eru föl. Skuldabaggarnir hlaðast.
Reynsla húsbyggjenda hefur oft verið hin síðustu ár, að
þeir komast ekki upp úr skuldafeninu. Skuldimar verða
sífellt stærri hluti af verömæti húsnæöisins, sem þeir
eiga, og samsvara margra ára launum.
Skattafsláttur fyrir húsbyggjendur og kaupendur hefur
mest verið í fréttum síðustu daga. Tillögur um skattaaf-
slátt munu komnar frá Alexander Stefánssyni félags-
málaráðherra og starfshópi á hans vegum.
Rætt er um, að þeir, sem byggt hafa eða keypt húsnæði
að undanförnu, geti fengið afslátt af tekjuskatti, allt að 40
þúsund krónum fyrir einstakling og 80 þúsund fyrir hjón.
Miöað verði við ákveðna staðla, og afslátturinn verði 8
prósent af þeim, þó aldrei meiri en aö framan greinir.
Fyrst sagði félagsmálaráðherra, að þessi afsláttur
ætti helzt að koma til sögunnar við skattlagningu í ár.
Valdamenn í kerfinu sögðu hins vegar nú fyrir helgina, að
afslátturinn kæmi ekki í gagnið fyrr en á næsta ári, yrði
eitthvað af honum.
Nokkur rök eru fyrir slíki. Þótt ætlunin sé, að þessi af-
sláttur dragist beint frá skatti eftir að hann hefur verið
reiknaður, mundu sumir húsbyggjendur tapa á kerfis-
breytingunni. Vafalaust munu margir finnast, sem hafa
hundruð þúsunda í vaxtafrádrátt vegna húsbygginga eða
-kaupa. Þótt afslátturinn nýtist miklu betur en frádrátt-
urinn, vegna þess að afslátturinn verði dreginn beint af
skattinum og útborganlegur í sumum tilvikum, mundu
ýmsir samt bera skarðan hlut frá borði. Þá hefur verið
rætt um að minnka almenna frádráttinn frá tekjum úr 10
prósentum í 6 jafnframt þessu. Á móti komi, að liðir verði
frádráttarbærir, sem nú eru það ekki, ef menn nota 10
prósent frádrátt. Þessi breyting gæti einnig komið niður á
sumum. Málið er býsna flókið. Rétt kann að vera, að slík
kerfisbreyting þurfi lengri aðdraganda.
Þegar haft er í huga, að þúsundir bíða úrræða, virðist
því sem litlar vonir verði í bili bundnar við þessar tillögur
Alexanders, sem lengi hefur verið unnið að.
Eftir standa tillögur hans um „greiðslujöfnun”. Sá
munur, sem felst í því, að lán hafi verið bundin lánskjara-
vísitölu en ekki miðuð við kauphækkanir, yrði þá færður
aftan við lánstímann, sem þýddi lengingu lána — mikið
hagsmunamál húsbyggjenda. En skuldbreytingar er það,
sem húsbyggjendur og -kaupendur þarfnast helzt, til
dæmis lenging allra skammtímalána til 8 ára eins og lagt
hefurveriðtil.
Haukur Helgason.
DV. MANUDAGUR 22. APRIL1985.
„HVALVEIÐAR
HEFJIST
AÐ NÝJU”
Vitið þiö hvaða tvær spumingar
það eru, sem fyrstar leita á hug
þeirra, sem ekki sátu sjálfir lands-
fund Sjálfstæðisflokksins?
Sú fyrri er hvort verið geti að
f undinum hafi verið frestað.
Að fengnu neikvæöu svari er þá
spurt hvort fundurinn standi kannski
ennþá.
Eftir gríöarlangt tilhlaup aö fund-
inum var nefnilega ekkert stokkiö.
Það gerðist ekki neitt. Kúguppgefn-
um stökkvaranum snerist hugur
þegar á stökkbrettið sjálft var komið
svo hann sneri bara af leið og fór inn
ísturtu.
Áhorfendumir, sem beöið hafa
með öndina í hálsinum umhverfls
sandgryfjuna, eftir að stór atburður
gerðist, horfa nú í forundran á ó-
snortið sandyfirborðið í gryfjunni.
Smátt og smátt fara þeir aö átta sig
á að þar á enginn stökkvari eftir að
lenda. Mótið er á enda. Því lauk áður
enþaðhófst.
Aldrei hafa jafnmargir
Islendingar veriö kallaðir um jafn-
langan veg til jafnlítils gagns og þeir
1100 sjálfstæðismenn sem kvaddir
vom til landsfundarins.
Ljótur leikur
Þótt menn greini á í stjórnmálum
og séu því pólitískir andstæöingar
em þeir tímar liðnir aö saman fari
persónuleg óvild og pólitískur
ágreiningur. Eindregnir pólitískir
andstæðingar þurfa því síður en svo
að vera persónulegir óvildarmenn.
Þvert á móti skapa persónuleg kynni
oft virðingu og álit á andstæðingum.
Það hefur oft komið fram opinber-
lega hjá mér að ég met mikils greind
og hæfileika Geirs Hallgrímssonar
og tel að flokksmönnum hans og
ýmsum öðrum hafi farist við hann
bæði illa og ódrengilega. Mér er
heldur engin launung á að þrátt fyrir
minni kynni af Þorsteini Pálssyni tel
ég að flokkur hans sé að ósekju að
sýna honum svipaða framkomu.
Slfkt kann að valda einhverri kátínu
hjá andstæðingum en sú gleði verður
skammæ því slíkar starfsaöferöir
stjórnmálaflokks valda þvi aðeins að
erfiðara verður að ná nauðsynlegri
pólitískri samvinnu og grafa þegar
lengra lætur undan pólitiskum
stöðugleika í landinu.
Óframkvæmanlegt
hlutverk
Hlutskipti kjörinnar forystu Sjálf-
stæöisflokksins við rik jandi aöstæður
er óframkvæmanlegt. Flokksmenn
ætlast til þess að ný forysta gefi
flokknum nýtt svipmót, lífgi upp á
hann og sé fersk brjóstvöm hans inn
á við og út á við. Um leið eru allir
möguleikar hennar til þess frá henni
teknir af þessum sömu flokksmönn-
um með því að svipta flokksforyst-
una öllu raunverulegu valdi; allri
reisn og vægi. Flokksleiðtogamir em
valdalausir að mestu um þá stefnu-
mótun sem máli skiptir — þá stefnu-
mótun sem fram fer á vettvangi
ríkisstjómar.
Ráöherramir em hinir sterku
menn. Þeir hafa valdið, þeirra orð
hafa vægið, þeirra em tækifærin.
Þeim þykir að sjálfsögðu ágætt að
geta notað flokksforystuna til blaöa-
fulltrúastarfa, til þess að bera skila-
boð og leika sáttasemjara en brosa
góðlátlega henni á bak og láta á sér
skilja aö engir landsfundir fái svo
Kjallarinn
SIGHVATUR
BJÖRGVINSSON
FYRRVERANDI
ALÞINGISMAÐUR
sem við þeim hróflað nema þeir sætti
sig við það sjálfir.
Flokksformaður, sem þarf að
berja í slíka bresti, er að vinna von-
laust verk. Hlutskipti hans er
næstum því aumkunarvert og sjálfur
koðnar hann óhjákvæmilega niður,
brýtur sig í smærri og smærri mola
eftir því sem tímar líða og það sem
verst er — gerir það í engra þökk.
Þorsteinn Pálsson er veikari for-
maður Sjálfstæðisflokksins nú en
hann var fyrir einu og hálfu ári
þegar hann fyrst var til þess kjörinn.
Það er ekki hans sök. Flokkur hans
getur sjálfum sér um það kennt.
Ein hrakförin enn
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
var í vitund þorra landsmanna
tilraun til að leysa þennan harða
hnút — til þess að brjótast út úr þess-
ari sjálfheldu. Fæstir geröu sér ljóst
^ „Þeir stjórnmálaflokkar sem etja
fylgiskappi viö Sjálfstæðisflokkinn
hafa vissulega stundað hvalveiðar á
fylgismönnum hans að undanförnu.
Sannarlega ratast Morgunblaðinu satt
á munn þegar það telur fréttnæmustu
niðurstöðu landsfundarins vera þá að
hvalveiðar hefjist að nýju.”
I Landsfundur ályktan
Hvalveiðar hefj-
ist að nýju
I LAND8FUNDUB SjiirabeMsflakkafan
I saæþykkti í aouadag UUöga þeoa effa-
lia ak tryggja yrti ak kraheiiar og
Ikreffaareikar gda mrt eimhrerjaiB
Lkctti kaldit áfrara, og rar farf beiat til
[þiagflokka SjilfatreAnflokkafaia at
Jkaaa Kti eiaakfai tfreiatat tU þeaa at
| sro auetti rerta.
Þaö var Haraldur Blðndal aem
I mælti fyrir þessari tillðgu, og voru
flutningsmenn tillögunnar auk hans
18 sjálfstæðiamenn úr öllum kjör-
| dæmum landsins.
Flutningsmenn tillögunnar voru
Hár Elfsson, Reykjavfk, Ágúst Haf-
berg, Reykjavfk, Guömundur Hall-
varðsaon, Reykjavík, Haraldur
Blðndal, Reykjavík, Valdimar Ind-
riðason, Akranesi, Ragnheiður
Ólafsdóttir, Akranesi, Ellert Krist-
| insson, Stykkishólmi, Sveinn Jóh.
| Þórðarson, Barðastrandarsýslu,
Engilbert Ingvarsson, Norður-
[ fsafjarðarsýslu, Matthfss Bjsrna-
fsafirði, Sveinn S. Ingólfsson,
I Skagastrðnd, Ómar • Hauksson,
I Siglufirði, Bjðrn Dagbjartsson,
lReykjavik, Halldór Blöndal, Akur-
Jeyri, Guðmundur G. Halldórsson,
| Húsavík, Theodór Blöndal, Seyðis-
Jflrði, Eggert Haukdai, Rangárvalla-
|sýslu, Guðjón Tómasson, Hafnar-
Sfirði, og Matthías Á. Mathiesen,
| Hafnarfirði.
Sjá grein um Uadsfnadinn á bfs.
26—27 og fréttir af fúadiaum á mió-
Þeasi eindálka frétt var elna lands-
fundarfróttin sam finnanleg var ó
aðahfréttasíflum Mbl. 6 fyrsta út-
komudegl blaðsins að loknum
landsfundi Sjálfstæðisflokksins.
að það getur svona samkoma ekki
gert nema formaðurinn krefjist þess
sjálfur og gangi til opinberrar högg-
orustu við ráðherrana. Af flokksholl-
ustu lét Þorsteinn Pálsson það undir
höfuð leggjast. Fyrir hann hefði ver-
iö betra ef fundurinn hefði aldrei ver-
ið haldinn, því þennan atkvæöalausa
fund upplifir þjóðin sem enn eina
hrakför atkvæðalitils formanns.
Því fundurinn var „anti-klimax”
— atburöalaus meö öllu. Það má t.d.
marka af því að í fréttatíma sjón-
varpsins á mánudagskvöldið — dag-
inn eftir að landsfundinum lauk —
var ekki svo mikið sem ein einasta
frétt frá fundlnum sögð. Sú þögn
æpir.
En þögn sjónvarpsins æpti ekki
ein. A aöalfréttasíðum Morgunblaðs-
ins fyrsta útkomudag þess að lokn-
um landsfundi var aðelns ein ein-
dálka frétt sögð af fundinum. Sú ein-
dálka frétt var birt undir fyrirsögn-
inni: „Landsfundur ályktar;
Hvalveiðar hefjist að nýju.”
Ný hvalveiðivertíð
Þeir stjómmálaflokkar sem etja
kappi við Sjálfstæðisflokkinn um
fylgi — ekki síst Alþýðuflokkurinn —
hafa sannarlega stundað hvalveiðar
á fylgismönnum Sjálfstæðisflokksins
að undanförnu. Sannarlega ratast
Morgunblaðinu satt orð á munn þeg-
ar það telur fréttnæmustu niðurstöðu
landsfundarins vera þá að hvalveið-
ar skuli núaftur hefjast.
Að loknum aðgeröalausum
landsfundi hefst nefnilega ný og
fengsæl hvalvertíð á veiðisvæði
Sjálfstæðisflokksins.
Góða veiði!
Sighvatur Björgvinsson.